Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 33 BRÉF TIL BLAÐSINS FRÁ lýðveldishátíð á Þingvöllum 1994 - Þjóðhöfðingjar Norðurlanda fyigjast með hátíðardagskrá. I baksýn fólksfjöldinn í brekkunni. Hugsanir o g tilfinn- ingar Islendings á 17. júní 1994 Frá Liselotte Sigen Guðjónsson ÞAÐ ER erfitt að vera íslendingur á svona hátíðisdegi, ef maður býr erlendis. Lífið er gott hérna. Allt er grænt, allt blómstrar í kringum mann. Það er hlýtt úti, eitthvað um 25 gráður, fuglarnir syngja, og það er hægt að „grilla“ úti á hverju einasta kvöldi. En samt vantar eitthvað í þessa sveitasælu. Eitthvað er það sem kvelur mig í dag, og ég veit að það er heimþráin. Heimþráin til föðurlandsins, heimþráin til lýðveld- isins, sem er 50 ára gamalt í dag. Ef til vill er mér líka svo þungt um hjarta, því faðir minn dó á þessum degi fyrir fáeinum árum. Eg væri til í að gefa helmingin af trjánum, sem standa í garðinum mínum fýrir dálítið hraun og útsýni yfir Þingvelli. Ég myndi gefa meira, ef ég gæti verið í dag á Þingvöllum, viðstödd, hátíðina, sem fer fram með um 60 þús. manns. Með 60 þúsund góðum íslendingum, sem taka þátt í sögu og þróun íslands. Góðir landar, þið sem voruð við- staddir á Þingvöllum, mikið eigið þið gott að geta verið heima á litla skerinu á svona hátíðarstundu. Þessi litla þjóð og landið okkar er hrikalegt, ofsalegt og dásamlegt. Mér finnst einhvern veginn að ég hafi svikið þig, þegar ég fór frá þér. En þú föðurland mitt nærð tökum á mér aftur, og ég er sam- þykk því. Góði vinur Island. Til hamingju með afmælið. Vertu áfram eins og þú alltaf hefur verið, heiðarlegur, sterkur, hreinskilin og það sem er mikilvægast þú ert frjáls og þinn eigin herra. ÞÍN VINKONA LISA SIGEN, Höckel, Þýskalandi. Utihátíðir, áfengi og kynlíf unglinga Frá Daniel Þorsteinssyni: ÁVALLT ÞEGAR líður að versl- unarmannahelginni rekur taumlaus gróðahyggja menn út úr skítugum skúmaskotum eigin hugsana til þess að halda villtar útihátíðir. Frí- helgi verslunarmanna er þannig orðin að martröð margra foreldra sem þessa helgi missa allt taum- hald á börnum sínum. Villt líferni sem ávallt hefur verið fylgifiskur útihátíðanna lokkar þá unglinga, sem eru vart komnir af barnsaldri, til sín. Forráðamenn útihátíðanna bera þar mikla siðferðislega ábyrgð, ábyrgð sem þeir eflaust telja sig þó ekki eiga að bera. Gróðafíkn og ræsismórall rekur þá áfram, allt er því leyfilegt svo lokka megi ungl- ingana á „svæðið". Með þetta í huga fara svo ungl- ingarnir á umræddar útihátíðir með áfengi í farteskinu. Áfenginu, þeim görótta drykk, er svo ætlað að losa um þær hömlur sem siðferðiskennd hvers og eins setur viðkomandi. En hverskonar helgi er verslunar- mannahelgin hjá þeim unglingum sem hafa áfengi um hönd? Ég tel að margir foreldrar veigri sér við að hugsa þá hugsun til enda. En bíðum nú við! Hvað er svo slæmt við útihátíðirnar að foreldrar þurfi að skammast sín fyrir það sem þar gerist? Jú, flestar útihátíðirnar, þar sem áfengi er haft um hönd, eru einar allsherjar kynlífs- og drykkjuhátíðir. Líkast til verður verslunarmannahelgin í ár engin undantekning þar á. Um þessa helgi mun því mörg stúlkan tapa mey- dómi sínum og pilturinn sveindómi sínum, þ.e.a.s. ef sakleysið er þá ennþá til staðar. Margur spyr sig eflaust hvort, þetta sé eitthvert tiltökumál nú á tímum fijálslyndis (ijöllyndis) í kyn- ferðismálum. Ég tel svo vera, því ég veit að margur unglingurinn fer særður bæði á sál og líkama frá þessum „hátíðum“. Það getur vart talist eðlilegt að fara eitthvert á útihátíð, hitta þar einhveija per- sónu, eiga við hana skyndikynni (mök) og sjá hana svo ekki meir. Þetta er líferni (lauslætið) sem að lokum dregur margan manninn inn í óhamingjusama sambúð ineð til- heyrandi óöryggi og lausung. Með tilkomu alnæmis hefur íjöl- lyndið svo einnig leitt margan manninn til dauða. Það er því nötur- legt að hér skuli vera átakshópur alnæmissmitaðra á vegum land- læknisembættisins sem ekki berst gegn lausung unglinga, heldur sam- þykkir ástandið með svokölluðum „jákvæðum áróðri“, þ.e. réttlætii lauslæti unglinga, bara að þeir not smokkinn. Einnig er það ámælis- vert að stígamótakonur skuli á for- sendum nauðgana á útihátíðun boða unglingunum val um kynlíf strákarnir þurfi bara að vita hvenæi „nei“ þýðir „nei“ hjá stelpunum Áð öðru leyti sé kynlífsflippið bars hið besta mál, svo lengi sem smokk- urinn fylgir ,jáinu“. Stígamótakonur, samtök alnæm- issmitaðra og landlæknisembættic liafa þannig, í blóra við vilja margrc foreldra, hvatt unglinga til kynlífs með smokkagjöfum á útihátíðum Stóðlífsupplifun íslenskra ung- menna á útihátíðum hefur þannig fengið opinberan réttlætisstimpi stígamótakvenna, samtaka alnæm- issmitaðra og landlæknisembættis- ins, bara að „öryggið" sé sett t oddinn. Já svona er ísland í dag. DANIEL ÞORSTEINSSON, Mávahlíð 31, Reykjavík. Röskva og rang’nefni Frá Borgari Þór Einarssyni: FÖSTUDAGINN 15. júlí sl. gaf að líta á síðum þessa blaðs bréf frá ungum manni, Davið Loga Sigurðs- syni, sem titlar sig sagnfræðinema við Háskóla íslands. Efni bréfsins kemur mér fyrir sjónir sem viðleitni sagnfræðinemans til að finna sjálf- um sér samastað í einhveijum hópi eða ímyndaðri fylkingu og um leið að upphelja þá fylkingu og yfirfæra hana á heila kynslóð, kynslóð sem hann kýs að ráði stjórnmálamanns af' Seltjarnarnesi að kalla Röskvu- kynslóðina. Þetta er athyglisverð viðleitni, en því miður, fyrir sagn- fræðinemann, er hún dæmd til að mistakast. Arfleifð Sagnfræðineminn tekur 68’-kyn- slóðina til samanburðar og segist ekki lengur þurfa að öfunda hana fyrir hennar arfleifð því hann sé sjálfur þátttakandi í að skapa arf- leifð. Þetta er undarleg niðurstaða hjá drengnum, því eins og allir vita boðaði 68’-kynslóðin ást, frið og hamingju til handa öllum mönnum en Röskva er afmarkaður hópur félagshyggjufólks í Háskóla ís- lands. Þó svo að mér þyki ekki mikið til 68’-kynslóðarinnar koma hvað þá að ég líti til þeirra með lotningu, þá verð ég nú samt að segja að það er ólíkt göfugra mark- mið að útbreiða ást, frið og ham- ingju en að sameina sundurleita vinstrimenn. Þá opinberar sagnfræðineminn vanþekkingu sína á íslensku samfé- lagi þegar hann spyr eins og barn: - Af hveiju ættu menn ekki að geta starfað saman þegar úr há- skóla kemur? -, og vísar þar til samstarfs félagshyggjufólks úr Röskvu við stjórn Stúdentaráðs. Það er auðvitað deginum ljósara að auðveldara er að vinna saman þegar hagsmunasviðið er eins tak- markað og hjá Stúdentaráði heldur en það er þegar landsmálin eru annars vegar. Þar að auki ætti sagnfræðineminn að vita betur en margir aðrir að samtök vinstri- manna í landsmálum ganga ekki upp, það segir sagan okkur. Öryggisleysi Já, ég held að sagnfræðineminn ungi ætti heldur að íhuga fræðin sín betur en að velta stöðugt vöng- um yfir því hvaða kýnslóð hann til- heyri. Það er auðvitað erfitt fyrir suma að þjást af öryggisleysi vegna óvissu um það hvaða kýnslóð þeir tilheyra og hvað þeir eigi nú að segja barnabörnunum sínum en það er hins vegar miklu verra að telja sjálfum sér trú um að maður til- heyri kynslóð sem er í raun ekki kynslóð heldur afmarkaður hópur fólks sem hefur svipaðar pólitiskar skoðanir og starfar saman á há- skólaárum sínum. Tvennt vil ég ráðleggja þér, kæri sagnfræðinemi. í fyrsta lagi skaltu í framtíðinni ekki trúa öllu sem stjórnmálamaðurinn af Seltjarnar- nesinu segir, líkt og það væri meitl- að í stein, það kann ekki góðri lukku að stýra. í öðru lagi skaltu rækta sjálfan þig sem sterkan og sjálf- stæðan einstakling en ekki sem hluta af ímyndaðri fylkingu sem á ekkert skylt við hugtakið kynslóð. BORGAR ÞÓR EINARSSON, Granaskjóli 20, nemi við Menntaskólann í Reykjavík. IFÆRIÐ! ag, nýsttu þé>t foáftœ’tt siðsumartilboð: Mánaðarkort í leikfimi (ótakmörkuð mæting) 10 tíma Ijósakort ýmM ÁGÚSTU OG HRAFNS SKEiFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 689868 Vertu á undan haust„traffíkinni“ drífðu þig af stað í líkamsræktina og gríptu þetta frábæra tækifæri. Hringdu til okkar í síma 68 98 68 og láttu senda þér stundaskrá og bækling! fitumæling m. ítarlegum niðurstöðum Fullt verð 8.550.- Okkar tilboð aðeins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.