Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 2 7 MIIMIMINGAR NYBJORG JAKOBS- DÓTTIR + Nýbjörg Jak- obsdóttir fædd- ist á Akureyri 28. febrúar 1906. Hún lést á Hjúkrunar- deild Hrafnistu, Hafnarfirði, 27. júlí sl. Foreldrar hennar voru Jó- hanna Friðriks- dóttir og Jakob Júlíus Jóhannes- son, smiður á Ak- ureyri. Nýbjörg átti fjóra bræður og tvíburasystur. Þau eru öll látin. Nýbjörg giftist 1926 Vigfúsi L. Friðrikssyni, ljósmyndara á Akureyri. Dóttir þeirra er Hanna Marta Vigfúsdóttir, gift Birni K. Örvar og eiga þau þijú börn. Til Hafnarfjarðar fluttu Nýbjörg og Vigfús 1956, síðar í Kópavog til dóttur og tengdasonar og síðast að Hrafnistu, Hafnarfirði, þar sem Vigfús lést 1986. Útför Ný- bjargar fer fram frá Kópavogs- kirkju mánudaginn 8. ágúst. MÉR ER ljúft að minnast tengda- móður minnar, Nýbjargar, nú þeg- ar hún er látin í hárri elli. Margar hugsanir leita á hugann og er þar fyrst að nefna tilhlökkun og jafn- framt kvíði sem í mér bjó þegar ég og mín heitbundna Hanna Marta ókum til móts við verðandi tengda- foreldra mína, Nýbjörgu og Vigfús sumarið 1951 að Hreðavatni, þar sem við biðum þeirra um stund. Af fyrstu kynnum mátti ráða að þar fór kona mjög hógvær og vönd að virðingu sinni. Þessi fyrstu kynni mín við Nýbjörgu reyndust mér mikil hamingjustund, mér var tekið sem ég væri hennar eiginn sonur og ekki dró þar úr viðtökurnar, sem ég fékk hjá Vigfúsi húsbónda. Við nánari kynni mátti merkja að þau hjón nutu virðingar í höfuðstað Norðurlands, enda var Vigfús vel þekktur ljósmyndari þar og víða um land. Að þeim hjónum stóð traustur vina- og frændahópur og heimili þeirra í Oddeyrargötu 34 á Akureyri stóð jafnan opið vinum og frændfólki. Sumarið 1956 flytjast þau bú- ferlum til Hafnarfjarðar þar sem Vigfús stundaði áfram iðn sína. Nú voru þau komin í nálægð við okkur og börn okkar. Bömin voru mjög hænd að ömmu og afa og það er ekki orðum aukið að þau hafi lagt mikið af mörkum þeim til fróðleiks og uppbyggingar fyrir lífið, enda voru Nýbjörg og Vigfús samstillt og yfirveguð hjón. I Hafnarfirði leið þeim vel en er heilsu þeirra tók að hraka fluttust þau til okkar hjóna í Kópavog. Hjá okkur dvöldu þau næstu árin uns þau fengu vist á Hrafnistu í Hafnarfirði og nutu umhyggju þar. Vigfús lést 18. maí 1986. Nýbjörg dvaldi þar áfram og síðustu árin á hjúkrunardeild þar sem hún naut einstakrar umhyggju starfsfólks. Pyrir hönd fjölskyldunnar vil ég senda þeim mínar bestu þakkir. Nýbjörg starfaði um árabil í Odd- fellow-reglunni, bæði á Akureyri og í Rb.st. Bergþóru, Reykjavík, þar sem mannkostir hennar nutu sín vel. Ég kveð tengda- móður mína með virð- ingu og þökk. Blessuð sé minning hennar. Björn K. Örvar. Ferðin hófst á horni Hlíðarvegar og Hafn- arfjarðarvegar. Við tókum Hafnarfjarðar- vagninn, hastan undir sæti, við gamla sölut- urninn á Hlíðarvegin- um. Vagninn brunaði yfir brúna á skíta- læknum áleiðis til ömmu og afa. Það var einmitt heið- in handan skítalækjarins sem okk- ur fannst vera augun hennar ömmu, þegar við horfðum voteyg suður af barnsraunum okkar, amma varð alltaf svo glöð að heyra að við vorum að koma. Hún hafði auðheyrilega bara setið og beðið eftir okkur og uppáhaldsrétturinn okkar, fiskibollur með lauk var rétt um það bil kominn á pönnuna og Andrésblöðin þtjú, þau nýjustu lágu eins og sólir á sófaborðinu og biðu okkar. Þetta varð því notaleg og örugg ferð í gegnum Sigtún, yfir hraunið og við sjoppuna í Strandgötu í Hafnarfirði stigum við út, keyptum okkur litaðan safa- sykur í skrautlegu bréfi, rifum hornið af og potuðum fingrinum niður. Á seinfarinni leiðinni upp bratta Holtsgötuna vorum við að stinga fingrinum upp í okkur með eldrauðri eða appelsínugulri sykur- bráð og horfðum upp í hvern glugga á húsunum. Þau voru svo skrítin og gömul og eins og I Grimmsævintýrunum miðað við nýbyggingarnar í hverfinu okkar í Kópavoginum. Börnin í Holtsgötu voru alltaf uppábúin á sunnudög- um. Það þekktist varla í Kópa- voginum. Litlar telpur með stífar fléttur upp í hnakka og hreinar svuntur. I albúminu hennar ömmu var einmitt mynd af lítilli stúlku með fléttur, alvarleg og vitur augu, framsettan maga og hvíta svuntu. Þetta var mynd af ömmu þegar hún var sjö ára og það var árið 1913. Þessi stelpa var að leika sér í parís á hverjum sunnudegi á Holtsgötu og einu sinni heilsuðum við henni varlega. Hún tók hikandi undir kveðjuna og okkur brá að hún skyldi vera af okkar heimi. En það var óþarfí að flýta sér, því allt varð undir eins sælt og gott í veröldinni um leið og hús ömmu og afa á Hringbrautinni kom í ljós við enda Holtsgötu eins og musteri á hæð. Amma sæti áreiðanlega við gluggann að vanda að bíða eftir okkur og stundum vingsuðum við handleggjunum eða töskunni eða lögðum okkur til smáskrítið göngu- lag til að hún gæti þekkt okkur úr krakkaskaranum neðar í göt- unni. En amma var búin að veifa til okkar allan tímann. Það sáum við þegar við loks náðum upp brekkuna og þegar við komum upp á pallinn, opnaði hún dyrnar og tók á móti okkur eins og við værum fyrirfólk - afi stóð gjarnan ögn að baki, brosandi. Mikið hlökkuðu þau til að hafa okkur og þó svo hæg og róleg að við gátum gefið okkur góðan tíma til að hugsa hvers við óskuðum okkur helst, eftir fiski- bollurnar góðu. Átti maður að leggjast með tær upp í loft og lesa Andrés í einni lotu eða skyldi mað- ur renna umbúðapappírsrúllunni hans afa eftir gólfinu á endilöngum ganginum og vatnslita þorp og eplatré? Fengi maður aftur að leggja undir sig eldhúsið undir verslun og lánaða vogina góðu til að vega sykur og hveiti ofan í kramarhús? Eða átti maður að nota daginn til að grúska í svefnher- bergisskápunum? Það þurfti ekki lengi að biðja og aldrei að suða - allt var leyft og öllum uppástungum undravel tekið. Okkur fannst við blessuð í bak og fyrir enn og aftur. Eftir erilsaman dag sofnuðum við vært undir hvítri sæng í rúmi afa og ömmu við notalegt sýsl ömmu í stofunni. Hún var að taka saman rólega og ganga frá svo við gætum hafið daginn snemma. Guðs englar sátu allt um kring. Við kveðjum nú ömmu með þökk fyrir það vegarnesti sem hún og afi gáfu okkur og sem vegur æ þyngra eftir því sem við eldumst. Umburðarlyndi þeirra, þolinmæði og skilyrðislaus elska lifir með okk- ur varanlega og einnig sem fyrir- mynd. Við vonum að okkar eigin börn megi einnig njóta góðs af. Þannig vildum við votta þeim ömmu og afa virðingu okkar og þakklæti. Elsku amma, far þú í friði og blessuð sé minning þín. Björg, Kjartan og Björn Lárus. Blómastofa Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helga Skreytingar við öll tili Giafavörur. LEGSTEINAR MOSfllK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 871960 ÚTSALAN 3 ER HAFIN SKÓVERSLUN KÓPAVOGS HAMRABORG t Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN VILHJÁLMUR JÓNSSON listmálari, frá Möðrudal, Hverfisgötu 67, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13.30. Jón Aðalsteinn Stefánsson, Sigurbjörg Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför EVU ÓLAFSDÓTTUR, Óslandi, Höfnum. Sérstakar þakkir faerum við starfsfólki Reykjalundar og SÍBS. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnheiður Jóhannesdóttir. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við fráfall og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRDÍSAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Meiritungu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands. Ragnar Marteinsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar systur okkar, EBBU TRYGGVADÓTTUR, sem lést á Elliheimilinu Grund 24. júlí. Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar. Fyrir hönd systkina, Svava Tryggvadóttir. t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SKARPHÉÐINS DALMANNS EYÞÓRSSONAR, fyrrv. framkvæmdastjóra Hópferðamiöstöðvarinnar, Asparfelli 4, Reykjavik. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabba- meinsdeildar Landakotsspítala. Sigurmunda Guðmundsdóttir, Sigurður Dalmann Skarphéðinsson, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Hólmfríður Guðrún Skarphéðinsdóttir, Agnar Magnússon, Sigurmunda Skarphéðinsdóttir, Eggert ísólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför KRISTINS SVANSSONAR, Fannafold 155, Reykjavík. Díana Vera Jónsdóttir, Rakel Ósk Kristinsdóttir, Einar Geir Kristinsson, Arnar Logi Kristinsson, Hlíf Kristinsdóttir, Málfríður Kristjánsdóttir, Magnfrfður Svansdóttir, Aðalheiður Svansdóttir, Sigrfður Einarsdóttir, Svan Magnússon, Helgi Bjarnason, Arne Skarp, Bjarni Bjarnason, Jón Geir Árnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.