Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ - % Til sölu glæsileg og rúmgóð 4ra herb. íbúð í Fellsmúla 18. Ein íbúð á stiga- palli. 3 svefnherb., þar af eitt forstofu- herb. Sérhiti. Húsið er allt nýmálað og sprunguviðgert. Suðursvalir. Upplýsingar fást hjá: KAUPMIÐLUN h.f. Austurstræti 17-101 Reykjavík Fellsmúli 18 2.h.t.h. S: 621700 Opið hús - Álftamýri í dag frá kl. 15-17 Glæsil. endaíb. á 2. hæð að Álftamýri 8 sem nú er 3ja herb. en er samþ. 4ra herb. Nýl. eldh. Parket á gólfum. Nýmáluð. Mjög stór geymsla í kj. íb. er laus. Áhv. húsbr. um 4 millj. og lífeyrissjóðsl. um 600 þús. Hag- stætt verð nú, hækkun framundan. FJÁBFESTING FASTEIGN ASALA" Borgartúni 31,105 Rvk., s. 624250 Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson hdl. ! .V "STOFBSETT 19SS M FASTEIGMAMIÐSTOÐIIU " jSt 5KIPH0LTI 50B - SÍMI 62 20 30 - FAX 62 22 90 Fagrihvammur 10315 Til sölu jörðin Fagrihvammur við Berufjörð, Suður-Múla- sýslu rétt utan við Djúþavog. Á jörðinni er gott íbúðar- hús 80 fm að grunnfl. ein hæð og ris sem skiptist í 5 herb., eldh., baðherb. o.fl. Húsið stendur undir stuðla- bergshlíð og er bæjarstæðið mjög fallegt. Útihús eru fjárhús, fjós og hlaða. Tún um 30 ha. Jörðin á land að sjó. Gott bátalægi. Einnig er salthús sem stendur niður við sjó. Fyrir landi jarðarinnar er eyja. Einnig lítil á með lítisháttar bleikjuveiði. Töluvert æðarvarp, var um 70 kg af hreinsuðum dún. Mikið af náttúrusteinum m.a. japís, bergkristallar, geislasteinar o.fl. Einstæð nátt- úrufegurð. Nánari upplýsingar hjá eiganda í síma 91-31322 eða á skrifstofu FM sími 91-622030. Eskiholt II - Borgarfirði 10323 Til sölu jörðin Eskiholt II, Borgarhreppi, Mýrarsýslu. Um er að ræða vel uppbyggða jörð í fullum rekstri. Byggingar m.a. nýl. fjós og myndarl. íbúðarhús. Framl. réttur í mjólk rúmir 80 þús. lítrar. Mjög áhugaverð stað- setn. í landi jarðarinnar hefur m.a. verið skipulagt svæði fyrir sumarhús á mjög skemmtil. stað og er þar nú þegar nokkur fjöldi húsa. Heildar landsstærð tæpir 400 ha. Lítilsháttar veiðihlunnindi. Myndir og nánari uppl. á skrifstofu FM. Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignas. ] i ■» i* Skildinganes 36, Reykjavík. Vorum aö fá í sölu parhús á þessum eftirsótta stað. Húsið er mjög vel staðsett á sjávarlóð. Komiö inn í góða forstofu, þaðan í gesta wc, hol, borðstofu og eldhús með góðum innréttingum, búr innaf eldhúsi. Gengrö niöur 1/2 hæö þar er 1 herb., rúmgóö stofa og skáli, útgangur út á góða suövesturverönd. Frá þessari hæö er farið niöur i kjallara sem er nýttur undir tómstundaherb. o.tl. Frá holi er gengið upp 1/2 hæö þar sem er sjónvarpshol, 2 barnaherb., hjónaherb. meö fataherb. innaf og útgang út á stórar suðursvalir, baðherb. og þvottaherb. Öll gólfefni og innréttingar mjög vandað. Verð 16,5 millj. ÞINGHOLT Suðurlandsbraut 4a sími 680666 I DAG BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson SPIL dagsins kom upp í leik Svía og Pólverja á EM yngri spilara og er skemmtilegt dæmi um þann kjark og hugmyndaríki sem einkennir sagnir ungra manna. Vestur gefur; enginn á hættu. XI , Norður ♦ 8 ¥ 2 ♦ Á10965 ♦ G109743 Vestur Austur ♦ D10743 ♦ KG9 ¥ Á54 IIIIH ¥ K106 ♦ KD7 1111,1 ♦ 84 ♦ ÁD ♦ K8652 Suður ♦ Á652 ¥ DG9873 ♦ G32 ♦ - Vestur Norður Austur Suður Fredin Chmurski de Kniff Puczynski 1 lauf* 2 grönd** Dobl 3 lauf(!) 3 grönd Pass Pass Pass Pass ♦ sterkt ** láglitir Hugmynd Puczynskis með þriggja laufa sögninni var tvíþætt. Hann bjóst við dobli og ætlaði að breyta í þijá tígla, sem hann hafði ekkert á móti að spila doblaða. En fyrst og fremst var hann að undirbúa vömina gegn hugs- anlegum 4 spöðum mótheij- anna. Hann vildi lauf út gegn þeim samningi. En þessi aðgerð mis- heppnaðist gjörsamlega þeg- ar vestur sagði þijú grönd. Útspil norðurs var að sjálf- sögðu lauf og sagnhafi fékk 10 slagi, en eins og sést, er tígulútspil banvænt! Lokaður salur: Vestur Norður Austur Suður Miechow. Bjömlund Pazur Carisson 1 spaði Pass 2 lauf 2 hjörtu Pass Pass ' 2 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Dobl(!) Redobl Pass Pass Pass Aðgerð Carlssons heppn- aðist hins vegar fullkom- lega. Norður skildi doblið réttilega sem útspilsvísandi og kom út með laufþrist. Carlsson trompaði, spilaði makker inn á tígulás og fékk aðra stungu. Bókin mætt og trompásinn í holu. SKAK Umsjón Margcir Pctursson ÞAÐ ER ekki oft sem reyndur stórmeistari verður að leggja niður vopn gegn titillausum skákmanni eftir aðeins 15 leiki. Þetta gerð- ist þó á búlgarska meist- aramótinu í vor. Hvítt: J. Radulski (2.375), svart: Wasil Spasov (2.540), Sik- ileyjarvörn, 1. e4 - c5, 2. Rc3 - Rc6, 3. Bb5 - Rd4, 4. Bc4 - e6, 5. Rge2 - Rf6, 6. 0-0 - a6, 7. d3 - d5?, 8. exd5 - exd5 Sjá stöðumynd 9. Rxd5! - Rxd5,10. Rxd4 - cxd4, 11. Dh5! (Hvítur fær nú manninn til baka með vinningsstöðu, því 11. - Be6 má svara með 12. Hel. Stórmeistarinn reyndi að halda í manninn með hrikalegum afleiðingum:) 11. - Re7, 12. Dxf7+ - Kd7, 13. Hel! - Kc6, 14. Bg5 - b5, 15. Df3+ og svartur gafst upp. Spasov var lang stigahæstur kepp- enda en þessi útreið hafði slæm áhrif á hann og hann hlaut aðeins 6 v. af 13 mögulegum. Alþjóðlegi meistarinn Deltsjev sigraði óvænt með yfirburðum. Hann hlaut 9‘/2 v. en stór- meistarinn Dontsjev og Kolev urðu næstir með 8 v. VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Húsið á sléttunni HAFLIÐI Helgason hringdi til Velvakanda sárreiður yfir þeirri þjón- ustu sem hann fékk á veitingastaðnum „Húsið á sléttunni" fyrir austan fjall. Hann var á ferða- lagi með fjölskylduna í fyrsta skipti í sjö ár og var þetta fyrsti veitinga- staðurinn sem þau sóttu. Þau tóku eftir því að út- lendingar sem þar voru fengu afbragðs þjónustu en þegar kom að þeim kom annað hljóð í strokk- inn. Greiðviknin var ekki söm ef landinn var ann- ars vegar. Hvæst var á þau, þjónusta var öll lé- leg og sagðist hann aldr- ei hafa upplifað slíkt hér á landi. Hann kvartaði yfir þessu við eigandann sem sagði að starfsfólkið væri þreytt. En hann sagðist hafa farið með fjölskylduna á kjúklinga- stað við Selfoss og þar hefði verið vel tekið á móti þeim, þjónustan frá- bær, matur vel útilátinn og allir ánægðir. Tapað/fundið Hjól fannst SVART kvenreiðhjól fannst á Miklubraut á móts við Landspítala að- faranótt sl. fimmtudags. Hjólið fæst afhent gegn greinargóðri lýsingu. Uppl. veittar í síma 643938 (símsvari). Lás fannst SVARTUR veglegur, plasthúðaður hjólalás fannst sl. miðvikudag v/Shell bensínstöðina á Miklubraut. Eigandinn má vitja hans í síma 687020 á daginn. Myndavél tapaðist HYUNDAI-myndavél með filmu í tapaðist í við sundlaugina á Blönduósi sl. sunnudagskvöld. Skil- vís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 23180 eða 32474. Týnt úr KVENMANN SÚR með svartri leðuról týndist á leiðinni frá Stýrimanna- stíg að biðstöðinni v/Hofsvallagötu. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 14465. Glói er týndur GULBRÖNDÓTTUR fressköttur, eyrnamerkt- ur og með hálsól, hvarf úr gæslu í Fannafold sl. laugardag. Hann er lík- lega einhvers staðar á Grafarvogssvæðinu. Geti einhver gefið uppl. vin- samlega hringið í síma 656897 eða 675563. Kettlingar fást gefins SVÖRT og hvít læða, falleg og þrifin þarf að komast á gott heimili. Uppl. í síma 14234. Kettlingar fást gefins ÞRIGGJA mánaða högni fæst gefins. Uppl. í síma 12549. Víkveiji skrifar... Skin og skúrir. Fátt lýsir íslenzka sumrinu betur en þessi tvö orð. Sumarið 1994 er engin undan- tekning í þeim efnum, skýföll og sólarglennur í bland. Og veðra- brigðin snögg og tíð. Þegar bezt lægur er þó íslenzka sumarið sann- kallaður heilsu- og gleðigjafí. Skin og skúrir skiptust síður en svo jafnt á landsmenn þá marg- ’rægu útilegudaga, sem enn kallast ’ríhelgi verzlunarfólks. Reyndar ikilar engin starfsstétt meiri vinnu íúorðið þessa eigin „frídaga“ en /erzlunarmenn. Rok og rigning •éðu ríkjum sumsstaðar. Sól og stafalogn féllu öðrum í hlut. Það er enginn jöfnuður í ráðslagi veður- guða. XXX Siglfirðingar söltuðu síld upp á gamlan máta fyrir um sex þúsund gesti í sólskini og blíðu um leið og þeir vígðu veglegt síldar- minjasafn þessa daga. En á næstl- iðnu ári voru einmitt 90 ár síðan síldveiðar hófust með herpinót og síldarsöltun hófst í Siglufirði. Þegar bezt lét í síldarævintýrinu lagði síldariðnaðurinn til milli fimmtungs og fjórðungs verðmætis vöruútflutnings landsmanna. En „gullhænunni" var slátrað. Síldar- stofninn hrundi vega ofveiði og óhagstæðra skilyrði í lífríki sjávar. Árið 1969 var síldin horfin að mestu. Algert síldveiðibann var síð- an árin 1971 - 1975. Frá þeim tíma hefur síldveiði aðeins verið stunduð í litlum mæli á ákveðnum svæðum við landið. Þó er að bjartsýnna manna dómi ekki öll nótt úti enn um að Norðurlandssíldin sæki á gömul mið á nýjan leik. Nýja siglfirzka síldarævintýrið gefur máski minna í aðra hönd en það gamla og góða. Það er engu að síður eftirsóttur gleðigjafi þús- undum landsmanna ár hvert. xxx að hafa líka verið skin og skúr- ir í efnahaglífi þjóðarinnar gegn um tíðina. Reyndar hefur verið hart í ári eða eigum við að segja hart í síðustu sex, sjö árum. Nú sér hins vegar til sólar gegn um skýjaþykknið. Ríkisstjómin hefur spilað dável úr erfiðum kortum að mati Vík- veija. Stöðugleiki ríkir í verðlagi, tekizt hefur að vinda ofan af óða- verðbólgu fyrri tíðar, vextir hafa lækkað (þó þar þurfi að taka enn betur til hendinni), vinnufriður hef- ur ríkt í landinu langtímum saman, hagur atvinnuvega og fyrirtækja hefur smán saman batnað og það umtalsvert, sem var nauðsynlegt, m.a. til að sporna gegn vaxandi atvinnuleysi og styrkja verðmæta- sköpun í landinu. Þetta hefur tek- izt, þrátt fyrir mikinn samdrátt í þorskafa 0g þjóðartekjum. xxx Víkveiji hefur orðið var við vax- andi umræðu um svokallað velferðarkerfi, einkum félagslega þjónustu og samhjálp. Það er vel að hans mati. Það er mikilvægt að hans dómi að tryggja aðgang allra landsmanna að atvinnu, heilbrigðis- þjónustu, menntun - og samhjálp, þegar þörf krefur, ekki sízt til aldr- aðra og sjúkra. Þeir sem vilja tryggja þessa vel- ferðarþætti, ekki aðeins í orði, held- ur líka á borði, sem mest er um vert, verða hins vegar að sameinast um að treysta kostnaðarlega undir- stöðu velferðarinnar. Það verður ekki gert með öðrum hætti en að tryggja rekstraröryggi, verðmæta- sköpum og eðlilega þróun atvinnu- lífsins. Þár - og aðeins þar - ræðst geta þjóðarinnar til að standa undir lífskjörunum og velferðinni kostn- aðarlega, bæði í bráð og lengd. Fagurgali pólitískra árðurs- manna er á hinn bóginn léttur í maga. Kjarni málsins er að skapa íslenzkum atvinnuvegum það starfsumhverfi, þá samkeppnis- stöðu við umheiminn, að þeir hafi störf handa öllum, sem vilja vinna, og skapi þau verðmæti sem rísi undir lífskjörum og félagslegri þjón- ustu, sem hugur fólks stendur til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.