Morgunblaðið - 07.08.1994, Side 4
4 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994
VIKAN 31/7-7/8.
► FUNDIR hafa verið boð-
aðir í flestum stjórnmála-
flokkum til að hefja undir-
búning fyrir kosningar.
Stjórn fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík
hefur ákveðið fund, þar sem
ákveða á hvort efnt verður
til prófkjörs. Þingflokkur,
framkvæmdastjórn og for-
menn kjördæmaráðs Al-
þýðuflokksins héldu fund á
Akranesi og þingmenn og
formenn kjördæmisráða Al-
þýðubandalagsins hafa ver-
ið boðaðir til vinnufundar
og Kvennalistinn hefur boð-
að til samráðsfundar.
► ÁVÖXTUNARKRAFAá
3, 6 og 12 mánaða ríkisvíxl-
um hækkaði í útboði í vik-
unni. Mest var hækkunin á
12 mánaða ríkisvíxlum, 0,70
prósentustig frá síðasta út-
boði fyrir mánuði síðan, en
ávöxtunarkrafa sex mánaða
víxlanna lækkaði um 0,42
prósentustig og 3 mánaða
víxlanna um 0,19 prósentu-
stig á sama tíma.
► Félagsmálaráðuneytið
hefur úrskurðað sveita-
stjórnarkosningarnar í
Hólmavíkurhreppi og
Stykkishólmsbæ ógildar.
Kjósa verður að nýju í þess-
um sveitarfélögum. Dóms-
mál hefur verið höfðað
vegna sameiningar Stykkis-
hólms og Helgafellssveitar.
►í LJÓS hefur komið að
of seint er að breyta lagn-
ingu Ijósleiðarakapalsins
CANTAT 3 þar sem verið
er að leggja hann um Kötl-
utanga og taka þar með til-
lit til óska útvegsmanna í
Vestmannaeyjum.
Vopnaskak við
Svalbarða
SKIPVERJI á Hágangi II. er sakaður
um að hafa skotið af byssu þegar
sjóliðar af norska strandgæsluskipinu
Senju reyndu að trufla veiðar skipsins
á Svalbarðasvæðinu. Norska strand-
gæslan færði Hágang II. til hafnar
í Tromsö en áður skaut Senja nokkr-
um skotum að skipinu. Enginn skip-
verji slasaðist í átökunum. Tvennum
sögum fer af því hvað gerðist á Sval-
barðasvæðinu.
Konur þinga
NÆR fjórtán hundruð íslenskar kon-
ur fóru á Norræna kvennaþingið
Nordisk Forum sem haldið var í
Turku í Finnlandi. Samtals 14 þúsund
konur sóttu þingið frá Norðurlöndun-
um. Framtíð Evrópumála, efnahags-
mál, atvinnuleysi og barátta fyrir
jöfnum launum kvenna og karla voru
meðal mála sem rædd voru á þinginu.
Sendiherraskipti
KJARTANI Jóhannssyni sendiherra
hefur verið veitt leyfí frá utanríkis-
þjónustunni í eitt ár til þess að gegna
starfi framkvæmdastjóra EFTA.
Ákveðið hefur verið að hann taki við
starfi sendiherra í London er hann
lýkur störfum fyrir EFTA. Helgi
Ágústsson sendiherra íslands í Lond-
on hefur verið kallaður heim til starfa
frá og með áramótum og mun Jakob
Magnússon menningarfulltrúi gegna
störfum sendiherra þar til Kjartan
tekur við.
Heita að rjúfa tengsl
við Bosníu-Serba
STJÓRNVÖLD í
Júgóslavíu, þ.e. Serb-
íu og Svartfjallalandi,
þrýsta mjög á þjóð-
bræður sína, Bosníu-
Serba, um að hinir
síðamefndu sam-
þykki áætlun fimm
stórvelda er kveður á
um frið og skiptingu
Bosníu. Þing Bosníu-
Serba hafnaði
áætluninni í þriðja sinn á miðvikudag
og samþykkti að efnt yrði til þjóðarat-
kvæðis um hana. Radovan Karadzic,
leiðtogi Bosníu-Serba, fullyrðir að áætl-
unin stofni í voða framtíð þjóðarinnar
en Slobodan Milosevic, forseti Serbíu,
segir það firrn og sakar Bosníu-Serba
um „landráð". Milosevic sagðist ætla
að loka landamæranum að Bosníu og
slíta öll efnahags- og stjómamálatengsl
við þá en Serbar hafa séð bosnískum
löndum sínum fyrir vopnum. Stórveldin
sögðust vilja sjá hvort Milosevic stæði
við orð sín en hann hefur áður heitið
því að stöðva vopnasendingamar.
Bandaríkjamenn gáfu í skyn að þeir
myndu ef til vill aflétta vopnasölubanni
á múslima létu Bosníu-Serbar ekki und-
an.
Vilja réttarhöld
í Rúanda
NÝIR ráðamenn í Rúanda vilja að
þeir sem stóðu fyrir þjóðarmorði á
tútsum í landinu verði dregnir til
ábyrgðar í Rúanda sjálfu en ekki
verði beðið eftir því að alþjóðlegur
stríðsglæpadómstóll verði stofnaður.
Forsætisráðherrann, Faustin Twag-
iramungu, áætlaði að alls yrðu um
30.000 manns dregnir fyrir rétt.
► RÚSSNESKA stjórnin
reynir nú að velta Dzokhar
Dúdajev, leiðtoga héraðsins
Tsjetsjeníu, úr sessi en
Tsjetsjenar hafa sagt sig úr
lögum við Rússland. Hreyf-
ing stjórnarandstæðinga í
héraðinu lýsti því yfir á
þriðjudag að Dúdajev hefði
verið steypt en er síðast
fréttist var þó allt með kyrr-
um kjörum í höfuðborginni,
Grozny . íbúar í Tsjetsjeníu
eru um ein milljón og flest-
ir múslimar. Byssueign er
þar mjög almenn.
►SKÆRULIÐAR múslim-
skra bókstafstrúarmanna í
Alsir réðust á franska
sendiráðið í Algeirsborg á
miðvikudag og reyndu að
sprengja það í loft upp.
Fimm franskir rikisborgar-
ar féllu en tilræðismennirn-
ir komust undan. Um 4.000
manns, þar af 54 útlending-
ar, hafa fallið í átökum
stjórnar og bókstafstrúar-
manna í Alsír síðustu árin.
►KLOFNINGUR kom upp
í norska Hægriflokknum í
vikunni er Dag Sorli, sem
er formaður flokksdeildar-
innar í Væroy í Norður-
Noregi, sagði sjávarútvegs-
sanining Noregs við Evr-
ópusambandið ekki full-
nægjandi. Sorli telur að
verðið fyrir frjálsan mark-
aðsaðgang hafi verið of
hátt en varaformaður
flokksins, Borge Brende,
sakaði hann um að líta á
málið út frá allt of þröngu
sjónarhorni.
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Leikið í flæðarmálinu
Stórlax-
ar gefa
sig víða
Fræknir veiðimenn að loknum veiðitúr í Vesturdalsá, f.v. Lárus
Jóhannsson, Gunnsteinn Lárusson, Lárus Gunnsteinsson, Óskar
Þ. Lárusson og Guðjón Ö. Lárusson.
STÓRLAXAR em að gefa sig hér
og þar og ekki einungis í Laxá í
Þingeyjarsýslu. Á mynd í þættinum
að þessu sinni er Björn Gunnlaugs-
son með 21 punds hæng sem hann
veiddi á Iðunni, þeim rómaða stór-
laxastað. Björn lenti í þeirri að-
stöðu, að hjólið hans bilaði og frem-
ur en að hanka upp og hætta, festi
hann silungahjólið á stöngina og
hélt áfram veiðum. Á umræddu
varahjóli var að sjálfsögðu lína sem
hentar ótvírætt betur á silungsveið-
um. Skömmu eftir hjólaskiptin setti
Björn í ferlíkið sem hann hampar
á myndinni, en hann var klukku-
stund að ná laxinum.
Gott skot í Stóru Laxá
Góð veiði hefur verið í Stóru Laxá
að undanförnu. Á miðvikudags-
kvöld voru komnir 108 laxar á land
af svæðum 1 og 2. Hafði veiðin
þá tvöfaldast á tíu dögum. Var
bæði smálax og stórlax á ferðinni.
Þann 1. ágúst voru tölur ofar úr
ánni þessar: 26 fiskar af svæði 3
og 33 af svæði 4. Þau hafa setið
eitthvað eftir, en veiðin neðra gæti
verið vísbending á gott skot á
næstunni. Ekki hefur enn frést af
stærri laxi heldur en 22 punda úr
Stóru Laxá í sumar.
„Dreitill" af smálaxi
Eitthvað hefur verið að skríða inn
af smálaxi í Laxá í Aðaldal, en
hann hefur aðallega sést og veiðst
neðan Æðarfossa. Ekki mikið
magn, en á þeim bæ er allt betra
en ekkert, því lítið hefur verið af
eins árs fiski í sumar og verulega
gengið á stóra laxinn sem gekk í
ána fyrr í sumar. Telja menn að
smálaxarnir sem um ræðir séu
afrakstur sleppinga gönguseiða í
fyrra og séu til marks
um ágæti slíkra að-
gerða. Laxá öll hefur
gefið eitthvað rúmlega
700 laxa, erfitt er jafn-
an að fá nákvæma
tölu, því svæði og
veiðiskýrslur liggja
frammi út um allan
dal. Fyrir skömmu
veiddust 26 og 25
punda fiskar í ánni eins
og frá hefur verið
greint. Þó nokkrir 20
punda fiskar hafa
einnig veiðst og meðal-
þunginn í sumar er
meiri en um árabil.
Vantar vatn í
Dölunum
Erla Sigurðardóttir í Þrándargili
við Laxá í Dölum sagði veiðina
ganga rólega fyrir sig, en það
væri mál manna að úrkomuleysi
og vatnsskortur í ánni væri helsti
hausverkurinn. „Það er lax í ánni
og menn sjá mikinn lax í Sjávar-
fljótinu, en sá sem er genginn tek-
ur illa og sá sem bíður hörfar allt-
af til baka. Við teljum að það veið-
ist vel ef við fáum góða rigning-
arskvettu,“ sagði Erla og bætti við
að á land væru komnir 310 laxar.
Sandá stendur fyrir sínu
Veiði í Sandá í Þistilfirði hefur
gengið nokkuð vel, sérstaklega
miðað við almennt ástand í lax-
veiðiánum á þessum slóðum. Að
sögn Stefáns Á. Magnússonar,
sem lauk veiðidögum ásamt félög-
um sínum rétt undir mánaðamótin,
voru þá komnir 130 laxar á land
og hópur þeirra félaga náði 24
fískum, allt að 17 punda. „Það er
talsverður lax í ánni
og smálax hefur sýnt
sig nokkuð að undan-
förnu. Auk þess veidd-
um við nokkra 9-10
punda fiska. Einn
þeirra var uggaklippt-
ur og með örmerki.
Hann reyndist vera úr
haustsleppingu okkar
frá 1991, en þá sett-
um við 10.000 seiði í
ána fyrir ofan ólax-
gengan foss. 3.000
seiðanna voru ör-
merkt. Þetta voru 3-4
laxar sem allir voru
svo líkir að við teljum
að þeir séu úr slepp-
ingunni," bætti Stef-
án við.
Hörkuganga í Vesturdalsá
„Við lentum í hörkuveiði í Vestur-
dalsánni daganna 26.-29. júlí. Holl-
ið á undan okkur hafði veitt 21 lax
og það var nokkur hreyfing af
nýjum fiski. Okkur gekk alveg
þokkalega framan af, en svo varð
allt vitlaust og mikil ganga helltist
inn. Við enduðum með 34 laxa og
35 vænar bleikjur. Meira að segja
afí minn 84 ára náði þremur löxum.
Þetta voru 4 til 15 punda laxar.
Síðasta morguninn sá ég lax í öllum
hyljum í efri hluta árinnar og svo
hringdi ég í Garðar Svavarsson á
Vakursstöðum í gær og hann sagði
mér að það væru að ganga 100
bleikjur að jafnaði á hveijum degi
og lax í bland,“ sagði Lárus Gunn-
steinsson í Skóstofunni á Dunhaga
á föstudaginn. Með veiði þeirra
félaga voru komnir milli 110 og
120 laxar á land og síðan hefur
veiði verið með ágætum.
BJÖRN Gunnlaugs-
son með 21 punds
hæng af Iðunni.
.
t
V
>
;
i
i
!
t