Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MARS Pathfinder eftir lendingu á Mars. Geimfarið hefur fjórflötungslögun, og skömmu eftir lendingu munu þrjár
hliðar þess leggjast út, en á innra byrði þeirra eru ljósrafhlöður sem knýja munu rannsóknartæki og boðsendingar
til jarðar. Á myndinni sést einnig hinn svokallaði „Micro-Rover“, sem mun aka um í nálægð geimfarsins, taka myndir
og framkvæma efnagreiningar. í fjarska má greina lendingarfallhlífina, en henni verður sleppt talsvert fyrir lend-
ingu svo hún lendi ekki á geimfarinu og hylji það. Undir geimfarinu liggja síðan leifarnar af uppblásnu púðunum,
sem draga úr árekstri geimfarsins við yfirborðið.
eftir Horold P. Gunnlougsson
Á NÆSTA áratug mun þekking
okkar á reikistjörnunni Mars
aukast stórum. Ráðgerðar eru
a.m.k. fimm geimferðir til rei-
kistjörnunnar á vegum Banda-
ríkjamanna og Rússa. í fjórum
þessara ferða munu geimför
lenda á yfirborði hennar, fram-
kvæma mælingar og senda
myndir og aðrar upplýsingar
til baka til jarðar. Enn sem
komið er hafa mönnuð för ekki
verið send til reikistjörnunnar
og búast, má við að bíða þurfi
enn nokkra áratugi þar til slík-
ur leiðangur verður reyndur.
Þangað til þurfa menn að láta
sér nægja upplýsingar frá
geimförum sem send eru á
sporbaug um reikistjörnuna og
frá ómönnuðum rannsóknar-
stofum sem lenda á yfirborðinu.
yrir utan jörðina er Mars
sú reikistjarna sem lík-
legast er að hafi ein-
hvern tíma náð að
fóstra líf.
Innsta reikistjarna
sólkerfisins, Merkúr,
er brennheit vegna ná-
lægðarinnar við sólina, auk þess
sem hún hefur engan lofthjúp.
Næsta reikistjarna er Venus, sem
hefur aftur á móti mjög þykkan
lofthjúp. Loftþrýstingur þar er um
það bil sá sami og á kílómetra
hafdýpi á jörðinni og hiti við yfír-
borðið er nægur til að bræða blý.
Þessi mikli hiti orsakast af því
fyrirbæri sem við nefnum gróður-
húsaáhrif.
Næst í röðinni er jörðin, en þar
næst kemur Mars. Mars er tals-
vert minni en jörðin, massinn er
ekki nema 1/10 af massa jarðar
og þvermálið rétt helmingur af
þvermáli hennar. Mars hefur
þunnan lofthjúp, loftþrýstingur er
minni en einn hundraðasti af loft-
þrýstingi við yfirborð jarðar og
hitastigið er á bilinu -100°C til
frostmarks. Ýmislegt bendir þó til
að einhvern tímann hafi aðstæður
á Mars verið viðkunnanlegri, jafn-
vel lífvænlegar.
Seint á síðustu öld fóru miklar
bollaleggingar um líf á Mars af
stað. Var þar fremstur í flokki
stjörnufræðingurinn Percival Low-
ell, sem skoðaði reikistjörnuna í
gegnum sjónauka og sagðist sjá
þar allflókið skurðakerfi, sem
hann taldi að Marsbúar hefðu
komið sér upp til að veita vatni
frá pólunum til þurrari svæða um
miðbik reikistjörnunnar.
Geimferðir til Mars
Fyrsta geimfarið til að fljúga
nærri reikistjörnunni var banda-
ríska geimfarið „Mariner 4“ árið
1964. Það tók 22 myndir af yfir-
borðinu, sem sýndu gíga eftir loft-
steina og útlit ekki ósvipað tungl-
inu en enga skurði. Einnig mældi
geimfarið þykkt og efnasamsetn-
ingu lofthjúpsins. í ljós kom að
hann var mun þynnri en menn
höfðu áður gert sér hugmyndir
um og aðallega gerður úr koldíox-
íði sem er sú lofttegund sem helst
veldur gróðurhúsaáhrifum á jörð-
inni.
Hugmyndir manna um Mars
breyttust síðan ekki fyrr en 1971
þegar bandaríska geimfarið „Mar-
iner 9“ var sett á braut um Mars.
Geimfarið tók myndir af öllu yfir-
borði reikistjörnunnar, sýndu þær
stórbrotið landslag, stærstu eld-
fjöll sólkerfisins (Olympus Mons
27 km hátt), gljúfur (Valles Marin-
eris, 4000 km langt, og allt að 500
km breitt) svo og uppþornaða árf-
arvegi.
Árið 1976 sendu Bandaríkja-
menn tvö geimför, Víking fyrsta
og annan, sem lentu á yfirborðinu.
Geimförin tóku myndir af um-
hverfi lendingarstaðarins, fram-
kvæmdu veðurathuganir og ýmsar
aðrar mælingar. Einnig voru þar
tilraunastofur sem áttu að leita
að lífrænum sameindum í yfir-
borðssandinum en fundu engin
ótvíræð merki um líffræðilega
virkni. Mestöll vitneskja manna
um yfírborð reikistjörnunnar er
komin frá þessum tveimur geim-
förum.
Yfirborðsrannsóknir á Mars
Um borð í Víking geimförunum
voru seglar sem áttu að athuga
hvort sandur og yfirborðsryk væri
segulmagnað. I ljós kom að yfir-
borðsrykið var mjög segulmagnað.
Víking geimförin höfðu hins vegar
enga möguleika á að greina hvaða
segulmögnuðu efnasambönd áttu
þarna í hlut.
Áhugi manna á reikistjörnunni
beinist hvað mest að því að kom-
ast að því hvernig yfirborðið hefur
þróast og hafa menn meðal ann-
ars beint sjónum sínum að þessum
segulmögnuðu efnasamböndum.
Járn í jarðveginum veldur segul-
mögnuninni og sambönd sem járn-
ið finnst í gefa upplýsingar um
þróun jarðvegarins.
Segulmögnun bergs stafar aðal-
lega af steindinni magnetíti.
(seguljárnsteini). Yfirleitt kemur
það fram sem títanómagnetít en
þá hafa títanatóm sest í sæti járna-
tóma í efnasambandinu. Magn tít-
ans í magnetitinu getur síðan sagt
til um með hvaða hætti bergið
hefur þróast.
Fyrirhugaðir leiðangrar til
aldamóta
í árslok 1995 munu Bandaríkja-
menn senda geimfarið „Mars
Pathfinder" til reikistjörnunnar og
mun það lenda á yfirborðinu þann
4. júli 1996 eftir um sjö mánaða
ferðalag. Ekki verður um mjúka
lendingu að ræða. Geimfarið mun
falla eins og steinn á reikistjörn-
una en dregið verður úr högginu
við yfirborðið með fallhlífum og
uppblásnum höggdeyfum á hliðum
geimfarsins. Víking geimförin
lentu hins vegar mjúklega með
aðstoð eldflauga er drógu úr fall-
hraða þeirra. Um borð verða tæki
sem geta leyst úr spurningum um
yfirborðið sem Víking geimförin
gátu ekki svarað. Myndavélin get-
ur tekið myndir í mismunandi lit-
rófsböndum og þar með er hægt
að fá vitnesku um efnasambönd
yfirborðsins.
Um borð verður svokallaður
„Micro Rover“ sem aka mun um
yfirborðið, taka myndir og fram-
kvæma efnagreiningar. Hægt
verður því að skoða efnasamsetn-
ingu mismunandi steina, sands og
ryks.
Einnig verður um borð svokall-
að „Magnet Array“ sem er röð
missterkra segla sem segulmagn-
að ryk mun festast við. Seglunum
verður komið fyrir í plötu, rétt
undir yfirborði hennar. Reglulega
verða teknar myndir af þessari
plötu og mynstur ryksins skoðað.
Með því að fylgjast með hvernig
ryk sest á seglana fást upplýs-
ingar um magn segulvirkra efna-
sambanda í ryki lofthjúpsins,
hversu segulmagnað það er og
e.t.v. fást upplýsingar um korna-
stærð og fleira. Litmyndir geta
síðan sýnt hvort mismunandi ryk
sest á sterkustu seglana og þá
veikari.
s
'»
i
i
f
I
i
i
í
l
i
i
i
i
l
i
I