Morgunblaðið - 07.08.1994, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 29
safnsins. Næsti áfangi í starfi Ing-
vars var að vinna við vélvæðingu í
ræktun garðyrkjudeildar borgar-
innar og síðustu tuttugu árin var
hann fulltrúi minn við garðyrkju-
deildina. Um hvern þessara starfs-
þátta væri hægt að rita langt mál,
enda var lífsstarf Ingvars Axelsson-
ar mikilvægt fyrir Reykjavíkurborg
og varðar mjög víða þróun mála.
Nú þegar ég þarf að sjá á bak
kærum vini og góðum starfsfélaga,
eru mér efst í huga þakkir og eftir-
sjá. Hans mun lengi verða minnst
af verkum sínum, meðal okkar sem
eftir lifum.
Blessuð veri minning hans.
Hafliði Jónsson.
Það ríkir söknuður í litlum hjörtum
í Drápuhlíð 21. í fyrsta sinn kveður
dauðinn dyra í nálægð, í fyrsta sinn
þarf að útskýra það sem óútskýran-
legt er. Hvers vegna lífi lýkur svo
snöggiega, hvers vegna engin kveð-
justund gefst, hvers vegna Guð gefur
og tekur.
Það virðist svo stutt síðan við
gengum upp tröppurnar, stolt með
frumburðinn og sáum birtuna í
andlitum þeirra Ingvars og Þor-
bjargar. Þeir urðu síðan svo góðir
vinir sá stutti og Ingvar að með
ólíkindum var. Ingvar stöðugt að
ditta að og laga og fyrstu taktar
þess litla voru eintómar eftirherm-
ur. Hreyfíngarnar, fasið, tilsvörin,
allt þekktum við þetta foreldrarnir
þegar þroski guttans jókst. „Við
Ingvar ætlum að vinna aðeins leng-
ur úti“ heyrðist oft úr litlum munni.
Hvað er hægt að segja við slíkum
tilkynningum lærisveinsins unga
þegar meistarinn horfir blíðlega upp
að tröppunum og lætur skiljast að
hans sé ánægjan. Eins og ekkert
sé sjálfsagðara.
Og nokkru seinna skokkar lítil
hnáta í kringum þá báða, langar
að fá að prófa líka, að taka í verk
og reyna sig. Með þolinmæði og
rósemi er leiðbeint og spjallað. Ekki
uppskrúfað tal, heldur spjall um
daginn og veginn eins og þegar
rætt er við jafningja.
Það þarf sérstaka eiginleika til
að vera fyrirmynd, jafnt í leik og
starfi. Ingvar Axelsson hafði yfir
sér þá dagfarsprýði sem gefur
meira af sjálfri sér en hún krefst
af öðrum. Hann var ráðagóður, at-
' hugull, verklaginn og útsjónarsam-
ur með afbrigðum. Áhugasamur um
allar verklegar framkvæmdir og
ætíð hollráður. Opinn fyrir nýjung-
um og næmur á hagnýtar lausnir.
Ákveðinn og fastur fyrir, léttur í
lund og næmur á spaugilegar hliðar
hins daglega lífs.
Það varð okkar litlu fjölskyldu
happ þegar Ingvar og Þorbjörg
fluttu í Drápuhlíðina og fyrir það
| erum við þakklát.
■ Ingvar Axelsson var gæfumaður
í sínu lífi og kunna aðrir en við
betur þá sögu alla. Við skulum
þakka fyrir það sem gefið var og
hve mikið hann gaf okkur af sjálfum
sér. Hann tranaði ekki sjálfum sér
fram heldur vann af kostgæfni að
framgangi þeirra verka sem hann
I tók sér fyrir hendur. Megi Guð
gefa Þorbjörgu og allri hennar fjöl-
skyldu styrk til að sætta sig við
j orðinn hlut. Minningin um Ingvar
mun veita hlýju og gera okkur að
betri mönnum.
Margrét Baldursdóttir,
Þórólfur Árnason.
Bestu jeppakaupin!
jeep CHEROKEE JAMBOREE
hreinir yfirburðir!
Jeep Cherokee hefur 130 ha. vél, en vegur aðeins
1430 kg. Jeep Cherokee stendur enginn á sporði í
sparneytni eða afli- hvað þá með 190 ha. vélinni.
Samlæsingar með fjarstýringu, rafstilltir speglar,
rafknúnar rúðuvindur, rafmagnsloftnet, fjórir
hátalarar, leðurklætt vökva- og veltistýri, fimm
álfelgur, stillanleg toppgrind og fleira fylgir
hverjum einasta Jeep Cherokee.
10 ára reynsla af Jeep Cherokee á íslandi sannar
styrkinn, endinguna og gæðin.
Samkeppnin á ekkert svar við verðinu á Jeep
Cherokee. Vorum að fá aukasendingu-
Jeep Cherokee til afgreiðslu strax!
w Jeep
NÝBÝLAVEGUR 2, K.ÓPAVOGUR, SÍMl 42600
HLAÐINN BÚNAÐl
i
I
I
740 fiNni *
7
AMMNN
SMAGROFUR
Þær fullkomnustu á markaðnum í dag, hlaðnar nýjungum!
Eigum eftirtaldar gerðir á lager til afgreiðslu STRAX
á hagstæðu verði:
B 19, þyngd 2,1 tonn, langur og breiður undirvagn.
B 08, þyngd 850 kg með stillanlegum undirvagni.
AMMANN YANMAR gröfurnar hafa nú þegar sannað
ágæti sitt við fjölbreyttar aðstæður hér á landi.
R á ð g j ö Sala - Þjónusta
Skútuvogi 12A, 104 Reykjavík Sími 812530
J
I