Morgunblaðið - 07.08.1994, Page 36
36 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Grisham
misboðið
►RITHÖFUNDURINN John
Grisham seldi kvikmyndaréttinn
að nýju skáldsögunni sinni, „The
Chamber", fyrir tæplega fjórar
milljónir dollara á síðasta ári,
þegar hann hafði aðeins gert
einnar síðu
uppkast að
sögunni. Það
voru leik-
stjórinn Ron
Howard og
framleiðand-
inn Brian
Grazer sem
keyptu rétt-
inn, en þeim
brá nokkuð
þegar þeir
sáu endanlegu söguna vegna
þess að í henni var ekki sá has-
ar sem einkennt hafði fyrri
bækur Grishams. Hinn þekkti
handritshöfundur William Gold-
man var því fenginn til að færa
söguna í þann búning sem kvik-
mynd hæfir. Þetta líkaði Gris-
ham ekki sem best og næsta
saga hans, sem þegar er í bí-
■gerð, verður því ekki boðin föl
í Hollywood fyrr en bókin er
búin að tryggja sér öruggt sæti
á vinsældarlistum. Umboðsmað-
ur hans segir að honum hafi
mislíkað mjög að láta kvik-
myndagerðarmenn segja til um
hvernig hann ætti að hafa bók-
ina, og því sé hann staðráðinn
í að selja kvikmyndaréttinn að
nýju bókinni ekki fyrr en hann
hefur Iokið við að skrifa hana.
Chuck Norris ætlar að leggja
Moskvu undir sig innan
tveggja ára.
Innrás í Moskvu
►HARÐJAXLINN Chuck Norr-
is fer senn að færa út kvíamar
því innan tveggja ára ætlar hann
að gera innrás í Moskvu og opna
þar skemmtistað og spilavíti
sem mun bera nafn hans. Ætlun-
in er að þar verði til húsa spila-
víti í líkingu við þau bestu í Las
Vegas, diskótek og tveir veit-
ingasalir. Stjórnarformaður
fjárfestingarfélags Chuck Nor-
ris segir í þessu sambandi, að
Norris hafi alla tíð verið gefinn
fyrir að taka áhættu í viðskipt-
um, en hins vegar verði að hafa
í huga að kvikmyndir kappans
séu óhemjuvinsælar í Rússlandi
þar sem hann sé nánast í guða-
tölu.
Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson
Stórlaxalið
FYRSTI laxinn er oft stór í augum
veiðimannsins. Þannig var að
minnsta kosti með Albert Berg-
steinsson, sem veiddi þennan
þriggja punda lax í Eyrarvatni í
Svínadal. Albert hefur verið
starfsmaður sumarbúðanna í
Vatnaskógi til margra ára og oft
rennt fyrir silung í Eyrarvatninu,
en aldrei fengið lax áður, enda
gerist slíkt ákaflega sjaldan í
Vatnaskógi. Til þess að sýna veið-
ina fór Albert að styttu Friðriks
Friðrikssonar - stofnanda KFUM
- og er þá mitt á meðal stórlaxa.
Hjónabandið
er heilög stofnun!
(ett sumir leggjast ekki viljugir inn á stofnanir...)
u^jögur brúðkaup og jarðarfór
FÓLK í FRÉTTUM
Verslunarmannahelgin
FOLK
Listflug í Múlakoti
FLUGMÓT var haldið í Múlakoti
um verslunarmannahelgina.
Boðið var upp á ýmis skemmtiat-
riði og þrautir tengdar fluglist-
inni. Flugáhugamenn fjölmenntu
hvaðanæva af landinu. Meðal
þeirra var Brynjólfur Gíslason
sem hafði unnið að smíði fjar-
stýrðs flugmódels í hálfan vetur.
Hann varð fyrir því leiða óhappi
að brotlenda vélinni á hátíðinni,
eftir að hafa sýnt ýmsar kúnstir
með hana. Auðvitað er ekkert
annað við því að gera en að
bretta upp ermar og mæta tví-
efldur til leiks á næsta ári. Brynj-
ólfur sagðist í samtali við Morg-
unblaðið gera ráð fyrir að verða
þrjár vikur að gera við flugmód-
elið.
Morgunblaðið/Halldór
FLUGMÓDEL Brynjólfs skömmu fyrir flugtak ...
og eftir brotlendinguna.
Meg Ryan
í fótspor
Audrey
Hepburn
►MARGAR þekktustu leikkon-
urnar vestan hafs hafa nú gerst
þreyttar á að leika annaðhvort
vændiskonur eða nútíma hús-
mæður og hafa því leitað á vit
klassískra kvikmynda til að finna
hlutverk sem þær telja við hæfi.
Þannig kemur Winona Ryder til
með að leika aðalhlutverkið í
endurgerð myndarinnar „Little
Women“ sem gerð var árið 1933,
en þá fór Katharine Hepburn
með aðalhlutverkið. Þá eru Meg
Ryan og Julia Roberts að vinna
með kvikmyndahandrit sem
byggt er á myndinni „The Wom-
en“ frá 1939, og hafa Susan Sar-
andon, Jodie Foster og Holly
Ilunter allar lýst áhuga á að vera
með í nýju myndinni. Framleið-
andi Little Women, Denise
DiNovi, segir að í fyrsta sinn í
Iangan tíma sé nú til hópur leik-
kvenna sem standi helstu karl-
sljörnunum fullkomlega jafnfæt-
is hvað vinsældir snertir, en þær
skorti hins vegar bitastæð hlut-
verk. Kathryn Galan framleið-
andi hjá Fandango Films, sem
er í eigu Meg Ryan, segir að stór
hópur áhorfenda vilji nú helst sjá
kvikmyndir sem gerðar séu fyrir
konur og fjalli um konur, og til
að koma til móts við óskir þeirra
verði ráðist í að endurgera
nokkrar klassískar myndir af
þessu tagi. Þannig mun Meg
Ryan feta í fótspor Audrey Hep-
burn þegar hún leikur í endur-
gerð myndarinnar „Two for the
Road.“
Lambert fær ekki næturfrið
►CHRISTOPHER Lambert er
mikið kvennagull og líkar það
ágætlega að eigin sögn. Engu að
síður blöskraði honum nýlega þeg-
ar kona á Italíu gerðist of ágeng
við hann. „Þessu svipaði til mynd-
arinnar „Fatal Attraction". Það
kom kona upp á herbergi til mín
og bað um eiginhandaráritun. Þá
brá svo við að hún settist á stól í
herberginu og sagðist ekki ætla
að færa sig vitundarögn. Eg hafði
lífvörð minn hjá mér og hann kom
henni út úr herberginu, en þegar
ég fór í háttinn um kvöldið hringdi
hún og sagðist ætla að koma til
mín. Hún linnti ekki látunum fyrr
en hún hafði brotið upp hurðina
á herberginu og ég varð að
hringja á lífvörðinn minn. Ekki lét
hún þar við sitja heldur hringdi
aftur og að þessu sinni til að segja
frá því að hún hyggðist fremja
sjálfsmorð. Ég sendi lífvörðinn
minn á herbergi hennar, hann
hristi aðeins hausinn, því þá hafði
hún borið varalit, á úlnliðina á
sér. Þetta var eins og í verstu
martröð."
Lambert fær ekki frið fyrir
kvenþjóðinni.