Morgunblaðið - 07.08.1994, Side 44
N • Á • M • A • N
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Miðnætur-
stemmning
í Homvík
FÓLK á vegum Útivistar var í
Hornvík í vikunni og kveikti
varðeld. I baksýn er Hornbjarg.
Fyrir áhugafólk um ljósmynd-
un má geta þess að lýsingartími
myndarinnar er um 2 mínútur.
---» ♦ ♦-
Laxá í Þingeyjarsýslu
Stærsti
laxinn
ÍTALSKUR stangveiðimaður veiddi
fyrr í vikunni 26 punda hæng í
Presthyl í Laxá í Þingeyjarsýsiu,
nánar tiltekið á Nesveiðum. Laxinn
veiddi sá ítalski á fluguna Iðu og
var stærðin númer 6. Jafet Ólafsson
sem var með þeim ítalska á báti
sagði þá félaga hafa verið að eltast
við smálaxa sem voru að stökkva
og ekki vitað af þeim stóra. Þetta
er stærsti laxinn sem veiðst hefur
á þessu sumri, en í júní veiddi Jón
Hjartarson 25 punda hæng í Þverá
í Borgarfirði. Sá lax var jafnaður
norður í Laxá fyrir nokkrum dög-
um, því Vilhelm Þorsteinsson, 23
ára gamall Akureyringur, veiddi þá
25 punda hæng á svartan Tóbíspón
á Höfðabreiðu.
Björk í
kvikmynd
‘ ' BJÖRK Guðmundsdóttir, er nú stödd
í Los Angeles en hún var fengin til
að leika í kvikmynd sem byggð er
á ævintýrum teiknimyndapersón-
unnar Tank Girl. Að sögn Netty
Fyson hjá útgáfufyrirtæki Bjarkar
fer söngkonan með hlutverk Jet Girl,
vinkonu aðalhetju myndarinnar.
Þess má geta að rapparinn góðkunni
Ice-T fer með helsta karlhlutverkið.
Morgunblaðið/Haukur Snorrason
Hágangur II. til Tromsö
í dag í fylgd varðskips
TOGARINN Hágangur II. var væntanlegur til
hafnar í Tromsö klukkan 9 í morgun að norskum
tíma. Skipið var fært til hafnar í fylgd norska
varðskipsins Senju, eftir að varðskipið skaut íjór-
um viðvörunarskotum og síðan tveimur föstum
57 mm skotum í síðu Hágangs II. á miðunum
við Svalbarða á föstudag. Tildrög þess að skotið
var á Hágang II. var að skipveiji togarans hleypti
af haglabyssu þegar varðskipsmenn á gúmbáti
reyndu að trufla veiðarnar.
Að sögn norska blaðsins Verdens Gang er þetta
í fyrsta sinn sem norskt varðskip skýtur á fiski-
skip til að framfylgja veiðieftirliti. Blaðið hefur
eftir Lars Fause lögreglustjóra í Tromsö að tækni-
lega séð liggi öll áhöfn togarans undir ákæru eft-
ir að hann var tekinn af varðskipinu. Hann álítur
að skipstjórinn og sá sem hleypti af byssunni gegn
varðskipsmönnum verði kærðir fyrir ofbeldi gegn
Geta átt von á allt að
þriggja ára fangelsisvist
löggæslumönnum og refsing við því sé fangelsis-
vist allt frá 14 dögum til þriggja ára. Norska ríkis-
stjórnin samþykkti í gær að loka öllum norskum
höfnum fyrir því sem þeir kalla „veiðiræningjum",
það er skipum sem veiða í óleyfi norskra yfirvalda
við Svalbarða og í Smugunni.
Við komuna til Tromsö verður skipið stöðvað
við Hekkingen vita áður en það leggst að bryggju
klukkan níu að norskum tíma. Að sögn fréttarit-
ara Morgunblaðsins í Noregi njóta aðgerðir
norsku strandgæslunnar eindregins stuðnings
jafnt yfirvalda varnarmála, sem fara með land-
helgisgæslu, sem og stjórnmálamanna.
Erfitt hefur reynst að ná sambandi við Hágang
II. Morgunblaðinu tókst ekki að fá samband við
togarann í gærmorgun og var það sagt erfitt af
tæknilegum ástæðum. Að sögn Friðriks Guð-
mundssonar hjá útgerð skipsins náðist samband
við Eirík Sigurðsson skipstjóra um borð í Há-
gangi II. á föstudagskvöld. „Eiríkur fékk ekki
samband við alþjóðlegu strandarstöðina í Vardö
fyrr en skipstjórinn á Senju hafði haft samband
við þá og veitt leyfi sitt fyrir samtalinu," sagði
Friðrik.
Friðrik Arngrímsson lögfræðingur er farinn til
Noregs og mun vera skipveijum á Hágangi II.
til halds og trausts ásamt norskum lögmanni.
Málið hefur vakið mikla athygli í Noregi og var
þar á forsíðum nær allra dagblaða í gær. Verdens
Gang sagði á forsíðu að samkvæmt norskum lög-
um gætu íslensku „fiskibullurnar" á Hágangi II
átt von á allt að þriggja ára fangelsi.
Baldvin Þorsteinsson í Smuguna
Ekki á skjön
við samninga
FRYSTITOGARINN Baldvin Þorsteinsson EA er á leið til veiða í Smug-
unni þrátt fyrir að útgerðarfélagið Samhetji á Akureyri keypti togarann
frá Noregi en í samningum íslenskra aðila við norskar skipasmíðastöðvar
hefur verið áskilinn réttur til að fella niður greiðslur á skuldabréfum vegna
skipakaupa ef veitt er á svæðum sem norsk stjórnvöld telja að ekki hafi
náðst samkomulag um nýtingu á og liggja að fiskveiðilögsögu Noregs.
Þetta kom fram hjá Sveini Ingólfssyni, framkvæmdastjóra Skagstrendings
á Skagaströnd, í frétt í Morgunblaðinu í september síðastliðnum.
Þorsteinn Vilhelmsson hjá Sam-
heija vildi ekki staðfesta að fyrir-
tækið hefði skrifað undir slíkan
samning við kaupin á Baldvin.
Smugan utan
landhelgismarka Noregs
Smugan mun ekki vera nefnd sér-
staklega í samningum við íslenska
aðila en þar munu á hinn bóginn
vera ákveðnir skilmálar um niður-
greiðslu frá norska ríkinu og einung-
is tengt skipum sem hana fá en
ekki fyrirtækjum. Þorsteinn sagði
það ljóst að Smugan væri utan land-
helgismarka Noregs og því hafi skip
sem gert hafi slíkan samning í raun
ekkert að óttast.
Þorsteinn fullyrti að Baldvin héldi
til veiða í gær, laugardag. Skipstjór-
inn, Arngrímur Brynjólfsson, sagði
hins vegar, að síðustu atburðir í
samskiptum íslendinga og Norð-
manna á miðunum gætu komið í veg
fyrir að Baldvin færi alla leið í Smug-
una.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Minkur við
Elliðaár
NOKKRIR minkar hafa að und-
anförnu skotið veiðimönnum við
Elliðaárnar skelk í bringu. Þor-
valdur Björnsson, starfsmaður
veiðistjóra, segir að vitað sé um
þrjú fullorðin dýr sem leiki laus-
um hala við árnar. Hann segir
að minkarnir leiti skjóls á stöð-
um sem erfitt sé að hrófla við.
Þorvaldur segir óvenju mikið
um mink í borginni í vor og
hafa starfsmenn veiðistjóra í
samvinnu við meindýraeyði
borgarinnar lagt ellefu dýr að
velli.
Loðnutorfa
fannst við
Kögurgrunn
UM TÍU íslensk loðnuskip eru nú
við loðnuleit norður af Kögurgrunni
þar sem loðnuskipið Faxi fann lítið
eitt af stórri og góðri loðnu. Skipin
hafa enn ekki fundið stórar torfur,
en Ingvi Einarsson, skipstjóri á
Faxa, segist gera sér vonir um að
eitthvað sé þarna að finna.
Enga loðnu er nú að hafa á loðnu-
miðunum fyrir norðan land. Skipin
bregðast því skjótt við um leið og
eitthvert skip telur sig hafa fundið
loðnutorfu. Ingvi sagði að aðstæður
til loðnuleitar á þessu svæði væru
erfiðar. Mikil þoka og ís væri á svæð-
inu og sterkir straumar gerðu skip-
unum einnig erfitt fyrir.
Hákon leitaði í allan föstudaginn
að loðnu í lokuðu hólfi út af Vest-
fjörðum en án árangurs. Hákon fékk
sérstakt leyfi frá sjávarútvegsráðu-
neytinu til að leita á þessu svæði í
tvo daga. Oddgeir Jóhannsson, skip-
stjóri á Hákoni, sagði að það væri
ekkert að finna á þessu svæði. Hann
stefndi á miðin norður af Kögur-
grunni síðdegis í fyrradag.