Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C/D 215. TBL. 82.ÁRG. FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Minnihlutastjórn boðuð í Svíþjóð Afneitun helfar- ar varði fangelsi Bonn. Reuter. NEÐRI deild þýska þingsins samþykkti í gær refsilöggjöf sem felur meðal annars í sér að þeir, sem halda því fram að helför nasista gegn gyðing- um hafi aldrei átt sér stað, eigi yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsisvist. Þingmenn stjórnar Helmuts Kohls kanslara og Jafnaðar- mannafiokksins greiddu at- kvæði með löggjöfinni eftir deilur sem stóðu í nokkra mánuði. í löggjöfinni er enn- fremur umdeilt ákvæði sem heimilar lögreglu og saksókn- urum að nota upplýsingar frá þýsku leyniþjónustunni við rannsókn sakamála. ísraelar fagna Yossi Beilin, aðstoðarutan- ríkisráðherra ísraels, sagði að ákvæðið um það sem sumir kalla „Auschwitz-lygina“ væri mjög mikilvægt. „Því miður er æ algengara að menn afneiti helförinni, ekki aðeins í Þýska- landi heldur einnig í öðrum heimshlutum. Að slíkt skuli nú vera skilgreint sem glæpur hefur fyrst og fremst menntun- argildi fyrir ungu kynslóðina í Þýskalandi sem hefur fjarlægst mjög þessa hræðilegu atburði fortíðarinnar." UM 5.000 kommúnistar ogþjóð- ernissinnar efndu til mótmæla í miðborg Moskvu í gær þegar þess var minnst að ár er liðið frá því að Borís Jeltsín, forseti Rúss- lands, leysti upp rússneska þingið. Nokkrir svarnir óvinir Jeltsíns, þeirra á meðal Alexander Rútskoj, fyrrverandi varaforseti, ávörpuðu mannfjöldann. „Aðeins með því að standa saman getum við borið sigurorð af þessari ill- ræmdu stjórn,“ sagði Rútskoj. Rútskoj hættur við framboð? Rússneska fréttastofan Ítar-Tass sagði í gær að Rútskoj hygðist ekki bjóða sig fram í þing- eða Reuter forsetakosningum. Fréttastofan hafði eftir honum að stjórnarand- stöðuflokkarnir í Rússlandi væru í „pólitískum skrípaleik“. „Þar til við fylkjum liði og stofnum fjölda- hreyfingu fáum við engu áorkað," hafði fréttastofan eftir Rútskoj, en ekki náðist í hann til að fá fréttina staðfesta. Rútskoj var almennt talinn líklegur frambjóð- andi kommúnista og þjóðernis- sinna í forsetakosningunum, sem eiga að fara fram árið 1996. Westerberg til- kynnir afsögn Stokkliólmi. Reuter. BENGT Westerberg, formaður Þjóð- arflokksins í Svíþjóð, tilkynnti í gær að hann hygðist segja af sér vegna þeirrar ákvörðunar Ingvars Carls- sons, leiðtoga jafnaðarmanna, að ganga ekki til samstarfs við Þjóðar- flokkinn og mynda frekar minni- hlutastjórn. Jafnaðarmannaflokkinn skorti að- eins 13 þingmenn til að geta mynd- að meirihlutastjórn og líkur voru taldar á að hann myndaði stjórn með Þjóðarflokknum. Carlsson tilkynnti hins vegar í gær að hann hefði ákveðið að rnynda minnihlutastjórn frekar en að ganga til stjórnarsamstarfs við minni flokka. „Eftir viðræðurnar hef ég komist að þeirri niðurstöðu að besta leiðin til að skapa sem mesta sátt á þing- inu sé að mynda stjórn jafnaðar- manna,“ sagði Carlsson eftir fund með forseta þingsins. Hann kvað minnihlutastjórn hafa meiri mögu- leika á að afla sér stuðnings við ein- stök mál á þingi en meirihlutastjórn tveggja flokka. „Hann verður að segja þetta,“ sagði Westerberg aðspurður um hvort þetta mat Carlssons væri rétt. „En þetta var tækifæri sem ekki gefst aftur í langan tíma - til að mynda stjórn þvert á hefðbundnar flokkslínur." Við öllu bunir á Haítí BANDARÍSKIR hermenn selja upp gaddavírsgirðingu umhverfis brynvagn sinn í Cap Haitien, næststærstu borg Haítí, í gær. Bandarisku hermennirnir eru sagðir afar óánægðir með að mega ekki grípa inn í þegar lög- reglu- og hermenn herforingja- stjórnarinnar níðast á óbreyttum, vopnlausum borgurum eins og á þriðjudag. Bandarísk sjónvarps- stöð fullyrti í gær, að fyrirmælun- um hefði verið breytt og herliðinu væri nú ætlað að veija öryggi Haítíbúa. Vinstri- og miðflokkarnir sigra í kosningunum í Danmörku Jafnaðarmenn stefna að Reuter ■ Reynt að fá stuðning/16 nýrri sljórn í næstu viku Kaupmannahöfn. Reuter. STJÓRNARFLOKKARNIR í Danmörku, undir forystu jafnaðar- manna, héldu velli í þingkosningunum í gær og geta myndað nýja stjórn með stuðningi tveggja vinstriflokka. Jafnaðarmanna- flokkurinn tapaði þó níu þingmönnum, en mest var fylgisaukning- in hjá Venstre, sem bætti við sig tólf þingmönnum. Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra og formaður jafnaðarmanna, kvaðst telja að hann gæti myndað nýja stjórn í næstu viku. Stjórnarflokkarnir fengu 42% atkvæða og vinstriflokkarnir tveir 10,4%. Samanlagt fengu þeir því 52,4%. Borgaraflokkarnir þrír - Venstre, Ihaldsflokkurinn og Framfaraflokkurinn - fengu 44,7%. Jafnaðarmannaflokkurinn fékk 34,6%, en var með 37,4% í kosning- unum árið 1990. Flokkurinn tapaði níu þingsætum og fékk 62. Stjórnarflokkur þurrkast út Samanlagt fengu stjórnarflokk- arnir 75 þingsæti en voru með 91. Kristilegi þjóðarflokkurinn, einn stjórnarflokkanna fjögurra, fékk engan þingmann kjörinn, en hafði fjóra. Vinstriflokkarnir tveir fengu 19 þingmenn; Sósíalíski þjóðarflokkur- inn 13 (var með 15) og Einingar- flokkurinn 6, en hann er nýr á þingi. Venstre, flokkur Uffe Ellemann- Jensens, bætti við sig mestu fylgi, fékk 23,3% og var með 15,8% í kosningunum árið 1990. Flokkurinn bætti við sig tólf þingsætum og fékk 42. íhaldsflokkurinn tapaði fjórum þingsætum, fékk 27, og Framfara- flokkurinn einu og er með 11. Ellemann-Jensen sagði í gær- kvöldi að ný stjórn undir forystu Nyrups Rasmussens yrði ekki lang- líf. í kosningabaráttunni lagði Elle- mann-Jensen ríkt á um, að tekin yrði upp strangari aðhaldsstefna til að minnka fjárlagahaliann og skuldabyrði ríkisins. Rasmussen lagði hins vegar áherslu á, að hægristjórn myndi eyðileggja danska velferðarkerfið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.