Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 4

Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR t Einar Sig- urðsson skip- aður lands- bókavörður MENNTAMALARAÐHERRA hef- ur að fenginni umsögn stjómar Landsbókasafn íslands - Háskóla- bókasafns ákveðið að leggja til við forseta íslands að Einar Sigurðs- son, háskólabókavörður, verði skipaður landsbókavörður til sex ára frá 1. október næstkomandi. Stígum inn í nýja veröld „Landsbóka- safnið - Háskóla- bókasafn er breytt stofnun frá hinum söfnunum tveimur með miklu víðtækara hlutverk í raun, þar sem stofnunin mun sinna skyld- um þjóðbókasafns og háskólabóka- Einar Sigurðsson safns, auk skyldum við almenning í landinu. Stofnunin er ennfremur miklu tæknivæddari en hinar hafa verið og öll aðstaða gjörólík, þar sem hinar stofnanirnar hafa löng- um verið þjakaðar af húsnæðiss- korti og þrengingum margs konar. Við erum að stíga inn í nýja ver- öld hátæknivædds nútímasafns og ég.er sannfærður um að þetta verð- ur afburða skemmtilegt viðfangs- efni,“ segir Einar og kveðst fullur bjartsýni, þrátt fyrir að harður róður sé framundan við að ljúka flutningum og öðru því sem þarf í nýju húsi fyrir 1. desember næst- komandi. Fimm sóttu um embættið Aðrir umsækjendur um embætt- ið voru Guðrún Karlsdóttir, deild- arstjóri, Hildur G. Eyþórsdóttir, yfírbókavörður, Leo Ingason, cand. mag., og Sigrún Klara Hannes- dóttir, prófessor. Húsaleigubætur verða ekki greiddar út á Húsavík og Isafirði > Skorað á rí kisstj órn að endurskoða lög um bætur BÆJARSTJÓRN Húsavíkur samþykkti sam- hljóða á þriðjudag að greiða ekki húsaleigubæt- ur á árinu 1995, jafnframt þvi að ákveðið var að kanna þörf fyrir húsaleigubætur í sveitarfé- laginu og hvaða útgjöld framkvæmd laganna mun hafa í för með sér fyrir bæjarsjóð. Bæjar- stjórnin skorar jafnframt á ríkisstjórnina að taka lög um húsaleigubætur til endurskoðunar. Bæjarráð ísafjarðar samþykkti jafnframt á mánudag að leggja til við bæjarstjórn að húsa- leigubætur verði ekki greiddar á næsta ári. Kristinn Jón Jónsson, formaður bæjarráðs ísafjarðar, segir of mörg vafaatriði í lögum um húsaleigubætur og þær hafí í för með sér álög- ur fyrir sveitarfélagið, m.a. kostnað við starfs- mann og eftirlit. „Stefnan er að aðskilja verk- efni ríkis og sveitarfélaga sem mest, en húsa- leigubætumar ganga í öfuga átt,“ segir Krist- inn Jón. Húsaleigubætur eru ekki skylda á sveit- arfélögum og geta þau tekið ákvörðun um að greiða þær eða ekki fyrir 1. október ár hvert. Þungt í vöfum og dýrt Bæjarstjórn Húsavíkur samdi í maí síðast- liðnum umsögn um frumvarp til laga um húsa- leigubætur og visar til þess í ósk sinni um endurskoðun laganna. í umsögninni segir að ástæða sé til að gagnrýna þann frest sem sveit- arfélögum var gefínn til að veita umsögn um „svo viðamikið frumvarp. Bréf Félagsmála- nefndar er dagsett 14. apríl, en berst okkur í hendur 18. apríl, en frestur er gefinn til 20. apríl nk. Þetta eru óþolandi vinnubrögð, en ekki einsdæmi. Tæknilega hefur bæjarstjórn ekki möguleika á að gefa umsögn innan svo stutts tíma,“ segir í umsögn bæjarstjórnar. Þar er jafnframt talið óæskilegt að fjölga þeim verkefnum sem ríki og sveitarfélög skipta með sér kostnaði við. Stefnt hafi verið að, að fækka þeim, en ekki fjölga. „Ætíð hallar á sveitarfé- lögin í slíkum samskiptum. Það er ljóst að út- gjöld sveitarfélaga munu aukast, ef frumvarpið verður samþykkt, og án þess að nýjar tekjur komi á móti. Slíku verður að mótmæla. Sam- þykkt frumvarpsins mun leiða til aukinnar vinnu hjá sveitarfélögum, það er of flókið og framkvæmdin verður mjög þung í vöfum. Æskilegra er að húsaleigubætur verði greiddar í gegn um skattkerfið eins og vaxtabætur og að fullu á kostnað ríkisins. Framkvæmdin yrði miklu einfaldari og ódýrari," segir í umsögn bæjarstjórnar, sem kvaðst í ljósi þessara atriða leggjast gegn samþykkt frumvarpsins. Morgunblaðið/Sverrir DR. ÁSA L. Aradóttir, sérfræðingur á Rannsóknarstöð Skóg- ræktar ríkisins á Mógilsá, tínir birkifræ. Þau er tilvalið að tína eftir lauffall í lok september eða byrjun október. Almenningur er hvattur til fræsöfnunar í haust Áhersla lögð á söfn- un birkifræs LANDGRÆÐSLAN, Skógræktarfélög og Skógrækt ríkisins hvetja almenning til fræsöfnunar í haust. Áhersla er lögð á söfnun birki- fræs vegna lélegra fræára undanfarin ár. Gott er að tína fræ eftir lauffall í lok september eða byijun október og sá þeim strax á eftir. Þau má líka geyma á köldum stað fram á sumar. Þeim sem aðeins hafa áhuga á að tína fræin er bent á að koma þeim til Landgræðslusjóðs í Fossvogi. Dr. Þröstur Eysteinsson, fag- málastjóri Skógræktar ríkisins, sagði að mest þyrfti af birki, lerki, stafafuru og sitkagrenifræjum, og lagði sérstaka áherslu á birkifræ. Lítið fræ væri til vegna lélegra fræára víðast hvar á landinu und- anfarið. Þó væru fræ t.d. í Bæjar- staðarskógi í Skaftafelli og sums- staðar f Reykjavík og nágrenni. Sáð í hálfgróinn jarðveg Dr. Ása L. Aradóttir, sérfræð- ingur á Rannsóknarstöð Skóg- ræktar ríkisins á Mógilsá, sagði ákjósanlegt að safna fræjum eftir lauffall á haustin. Gott væri að sá þeim beint og væri hálfgróin jarðvegur áskjósanlegur enda væru fræin ekki í samkeppni við annan gróður eins og þegar um gróið land væri að ræða. Hún mælti með að vel væri dreift úr fræjunum. Sáð væri í jarðvegsyfir- borð og fræjunum þjappað niður með fæti til að fá betri snertingu við jarðveginn. Ekki má róta yfir fræin því þau þurfa Ijós til að spíra. Ekki sagði Ása að fólk þyrfti að hafa áhyggjur þó fræin spíruðu ekki strax. Þau gætu spírað tveim- ur til þremur árum eftir sáningu. Sáð í nágrenni borgar Brynjólfur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Skógræktarfélags íslands, sagði að allt næsta ná- grenni borgarinnar væri friðað fyrir beit og því kjörið til sáning- ar. Hann ráðlagði hins vegar stærri hópum, t.d. skólum, að afla upplýsinga um svæði til sán- ingar hjá Skógræktarfélaginu. Brynjólfur lagði áherslu á að fræ- söfnun og sáning væri ódýr og góð leið til að rækta skóga. Að- ferðin hefði töluvert verið stunduð hér á landi um miðbik aldarinnar og væri nú verið að taka upp af nýju. Dr. Andrés Arnalds, fagmála- stjóri Landgræðslu ríkisins, sagði að ekki hefði verið aflað jafn mik- ils fræs til landgræðslu og vonir hefðu staðið til. Engu að síður hefði álíka miklu magni af melfræi og í fyrra eða 28 tonnum verið aflað með heimagerðum vélum. Fimm tonnum hefði verið safnað af túnvingli og þyrfti 15 tonn. Tíu tonn hefðu fengist af snarrótar- fræi og lítið af beringspuntsfræi eða samtals 5 tonn. Hann sagði að lúpína hefði mikið verið notið og fræár væri gott í ár. . Fræbanki Þorvaldur S. Þorvaldsson, for- maður stjórnar Landgræðslusjóðs, kynnti átak til stofnunar Fræbanka Landgræðslusjóðs. Hann sagði mikilvægt að eiga sjóð í fræbanka til að kaupa fræ erlendis frá í léleg- um fræárum. Mismunandi aðstæð- ur hafa áhrif á fræframleiðslu ólíkra tegunda en veðrátta sumarið áður þykir hafa mikil áhrif. Gefin hefur verið út geisladiskur, kort og frímerki til styrktar átaki til stofnunar fræbanka. Ekkí Eintak í dag o g Pressan kemur út í síðasta skipti PRESSAN kemur út í síðasta skipti í dag, að sögn Karls Th. Birgissonar ritstjóra, en Eintak kemur ekki út i dag, að því er Morgunblaðið fékk upplýsingar um á ritstjórn Eintaks í gær. Síðdegis í gær hafði ekki verið gengið frá stofnun nýs félags með 40 milljóna króna hlutafé um að sam- eina rekstur blaðanna og gefa út blað tvísvar í viku undir nýju nafni, en undirbúningur málsins var talinn á lokastigi. { gær var stefnt að því að fyrsta tölublað nýja blaðsins kæmi út á mánudag. Óli Jóhann Öli Guðmundsson, for- stjóri Securitas, hefur verið í for- svari fyrir hóp manna sem stefnir að útgáfu blaðs til að leysa Eintak og Pressuna af hólmi. Ekki náðist tal af Jóhanni Óla í gær en sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins eru Stefán Gunnarsson og Gunn- steinn Skúlason, hluthafar í Stöð 2, meðal manna í hópi sem Jóhann Óli er í forsvari fyrir og stefnir að meiri- hlutaeign í útgáfufélaginu. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins eru einnig líkur taldar á að Friðrik Friðriksson, eigandi Pressunnar og Andrés Magnússon, Gunnar Smári Egilsson og Hafsteinn Egilsson, eigendur Eintaks, eigi þar samtals um 10% hlutafjár. Oddi með Prentsmiðjan Oddi hefur átt aðild að viðræðunum en samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins eru bæði Pressan og Eintak í talsverðri skuld við Prentsmiðjuna. Þorgeir Baldurs- son, forstjóri Odda, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fyrirtæk- ið hefði tekið þátt í viðræðunum og mundi prenta nýja blaðið en sæktist ekki eftir eignaraðild að því. Þorgeir vildi ekki upplýsa hve miklar skuldir útgefenda Pressunnar og Eintaks væru við Odda og að- spurður um hvort Oddi væri í viðræð- unum til að bjarga kröfum sínum á útgefendurna sagði hann að sjálf- sagt mætti túlka það á ýmsa lund. Ekkert væri frágengið hvort Oddi eignaðist hlutafé í blaðinu og þá hve stóran hlut en ef til þess kæmi yrðu þau hlutabréf til sölu frá fyrsta degi. Ekki hafði verið gengið frá ráðn- ingu ritstjóra nýja blaðsins síðdegis í gær en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var talið líklegt að Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Ein- taks, yrði annar tveggja ritstjóra nýja blaðsins. Karl Th. Birgisson sagði við Morgunblaðið í gær að ekkert benti til þess að hann yrði starfsmaður nýja blaðsins. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins eru uppi hugmyndir um að auk mánudags- og fimmtudags- útgáfu verði gefið út helgarblað. Aukafjárveiting til Félagsmálastofnunar 110 millj. vegna aukinnar aðstoðar BORGARRÁÐ hefur samþykkt 110 milljóna aukafjárveitingu til Félags- málastofnunar Reykjavíkur fyrir fjárhagsaðstoð í ár. Búist er við að skjólstæðingar Félagsmálastofnunar verði 3.500 á þessu ári, en þeim hefur farið ört fjölgandi sl. ár. í fjárhagsáætlun var gert ráð fyr- ir rúmlega 430 milljónum króna til fjárhagsaðstoðar í ár. Að sögn Láru Björnsdóttur, félagsmálastjóra, verður sú upphæð upp urin í næsta mánuði. „Við áttum von á að þurfa aukafjárveitingu, því allt frá 1990 hefur beiðnum um aðstoð fjölgað ört,“ sagði Lára. „Ástæðurnar eru m.a. atvinnuleysi og samdráttur sem veldur því að fólk missir aukavinnu, sem áður gerði því kleift að komast af. Þar verða ófaglærðar konur sér- staklega illa úti.“ Lára benti á að erfiðasti mánuður ársins væri eftir, jólamánuðurinn. Fjölgar um 500 milli ára l i I I I I I I ! 1 I I 1 I 6 Árið 1992 veitti Félagsmálastofn- un um 2.500 manns fjárhagsaðstoð, samtals að upphæð 288 milijónir króna. í fyrra voru skjólstæðingarn- ir um 3.000 og aðstoðin nam alls 430 milljónum. f ár er áætlað að skjólstæðingarnir verði um 3.500 og fjárhagsaðstoðin nemi hátt í 540 milljónum. 6 .

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.