Morgunblaðið - 22.09.1994, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.09.1994, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Flugieiðir stofna sérstakt félag um innanlandsfiugið Svona, burt með ykkur. Þið eru búin að totta nóg. Úrsögn Jóhönnu Sigurðardóttur úr Alþýðuflokknum Treysti mér ekki í bar- áttu fyrir flokkinn Jóhanna Sigurðardóttir segir, að strax eftir flokksþing Alþýðuflokksins í sumar hafí sér orðið ljóst, að ekki átti að gefa þeim rúm til að starfa innan flokksins sem höfðu aðrar skoðanir en flokksforustan. JÓHANNA sagði sig úr Alþýðuflokknum á laugar- daginn. Á flokksþingi Al- þýðuflokksins í júní sagði Jóhanna í ræðu að hún myndi ekki kljúfa flokkinn með úrsögn vegna ósigurs í formannskosningum, en hún tapaði þeim kosning- um fyrir Jóni Baldvin Hannibalssyni. „Ég sagði einnig mjög skýrt í minni ræðu á flokksþinginu að ekki væri hægt að ætlast til þess í lýðræðislegum stjóm- málaflokki að ég gæfi ioforð um að vera í flokknum ef mér væri gert að standa gegn minni sannfæringu," sagði Jóhanna við Morgunblaðið. „Ég reyndi að þrauka, en strax eftir flokksþingið varð mér ljóst, að það átti ekki að skapa okkur, sem höfðum aðrar skoðanir en flokksforustan, rúm til að starfa nema við sætum og stæðum eins og þeir sem vildu ráða ferð. Forustan taidi sig hafa stöðu til að herða tökin eftir niður- stöðuna á flokksþinginu. Ég held að staðreyndin sé sú að Jón Baldvin skorti töluvert á forustu- hæfíleika að halda flokki saman. Eg gerði mér grein fyrir því að miðað við stöðu mála treysti ég mér mjög illa til að fara aftur í kosningabar- áttu fyrir Alþýðuflokkinn undir for- ustu Jóns Baldvins. Og mér þótti nauðsynlegt að fá hreinar línur milli mín og Alþýðuflokksins nú þegar þing fer í hönd,“ sagði Jóhanna. Kaldar kveðjur Jóhanna Sigurðardóttir Formaður Alþýðuflokksins hefur gagnrýnt Jóhönnu harðlega eftir að hún sagði sig úr flokknum. Um það sagði Jóhanna, að sér þættu kveðjur formannsins og Alþýðu- blaðsins, málgagns flokks- ins, nokkuð kaldar eftir 20 ára starf sitt fyrir flokkinn og ekki vanti götustráksorð- bragðið og svigurmælin. „Það er sagt að ég að ég standi fyrir gamaldags jafn- aðarstefnu. Það er sagt að ég sé óheiðarleg, tillitslaus og hafi svikið fólk og skaðað flokkinn og geti ekki sett mig í annarra spor. Ég hef þó á umliðnum árum haft forustu um að hrinda í framkvæmd helstu umbótamálum flokksins," sagði Jó- hanna. Hún sagði að því væri einnig hald- ið fram, að hún hefði ekki gefið aðr- ar útskýringar á málefnaágreiningi sínum og flokksforustunnar en óánægju með Jón Baldvin þótt hún hefði margsinnis útskýrt þann ágreining rækilega fyrir helstu stofn- unum flokksins. „Maður getur velt fyrir sér hver þessi gamaldags jafnaðarstefna er sem ég hef staðið fyrir. Það hefur aldrei staðið á Alþýðuflokknum að gefa loforð í kosningabaráttu að Al- þýðuflokkurinn væri helsta bijóstvörn þeirra sem minnst mega sín og stæði vörð um grundvallaratriði velferðar- kerfísins og setti á oddinn jöfnuð, heiðarleika og bætt siðferði og berð- ist gegn spillingu og forréttindum. Eg hef reynt að standa við það sem flokkurinn hefur lofað kjósend- um sínum. Því hef ég staðið gegn upptöku þjónustugjalda í skóla- og heilbrigðiskerfinu og heilsukortum sem hefðu orðið afdrifaríkt skref að stéttaskiptingu. Einnig barðist ég gegn ítrekuðum tilraunum sem gerð- ar voru til að skerða þjónustu og kjör aldraðra og fatlaðra og að skerða fæðingarorlof. Ég þurfti aftur og aftur að beijast gegn því að geng- ið yrði of langt í skerðingu barna- bóta og vaxtabóta. Þá get ég nefnt deilur um húsnæðismál, félagslega íbúðakerfið, upptöku húsaleigubóta. Einkavæðing í bankakerfinu og hjá Pósti og síma og nú síðast afstaðan til Evrópusambandsins voru einnig stór ágreiningsmál. Ég sé ekki að það sé hægt að líkja þessari baráttu við óheiðarleika og svik. Ég hef þvert á móti sýnt með minni vinnu og áherslum að ég set mig í spor þeirra sem Alþýðuflokkur- inn á helst að vera málsvari fyrir og reyni að vinna af heiðarleika og svíkja ekki þau loforð sem flokkurinn hefur gefíð kjósendum sínum.“ Sparnaður á móti - Snýst þá ágreiningurinn um hvort raunhæft sé að halda þessum málum til streitu miðað við núver- andi aðstæður í ríkisfjármálum? „Þessi baráttumá! snerta grund- vallaratriði í stefnu jafnaðarmanna. Þegar ég hef verið að beijast gegn því að skera þetta niður hef ég jafn- an sett fram aðrar tillögur til sparn- aðar á móti í stað niðurskurðar í þessum málum. Ég nefni að mér finnst sérkennilegt að ekki sé hægt að taka meira á risnu, ferðakostnaði og bifreiðahlunnindum sem eru 3-4 milljarðar ári. Ég hef sett fram ýtar- lega tillögur um hvernig eigi að taka á skattsvikum sem nema um 15 milljörðum. Og ég hef barist fyrir því að tekinn verði upp fjármagns- tekjuskattur," sagði Jóhanna. Fast land Jóhanna sagðist nú vera þingmað- ur utan 'flokka og myndi taka af- stöðu til þingmála eins og þau kæmu fyrir. Um framtíðaráform sín sagði Jóhanna, að hún hefði ákveðið að taka sér tíma til að skoða málin áfram. „Ef svo fer að ég býð fram nýtt afl í stjórnmálum vil ég hafa mjög fast land undir fótum varðandi samstöðu um málefni og mannval á slíkum framboðslista. Það er ég að skoða þessa dagana." Framkvæmdastjóri IMorðuriandaráðs Samvinna Norð- urlandanna hefur verið árangursrík Norðurlandaráð stendur á tímamót- um að mörgu Ieyti, því áður en árið er liðið kann svo að fara að ísland verði eitt Norðurlandanna utan Evrópusambandsins. Anders Wenström . framkvæmda- stjóri Norðurlandaráðs segir að breytingarnar í Evrópu kalli á endurmat á norrænu samstarfi, en er sannfærður um að hvort sem eitt eða fleiri Norðurlandanna ákveða að ganga til liðs við ESB verði norræn samvinna áfram mjög víðtæk vegna sameigin- legs menningararfs, skyld- leika tungumálanna og sams konar þjóðfélagsgerðar á öll- um Norðurlöndunum. Telur þú að samvinna Norðurlaridanna á undan- förnum árum hafi verið ár- angursrík? -Ég er ákveðið þeirrar skoðunar. Fólk hefur hins vegar tilhneigingu til að líta á norrænt samstarf sem eitthvað sem eigi sér stað á vettvangi ríkisstjórna og þjóðþinga, en það er auðvitað miklu víðtækara. Til að meta ár- angurinn eða mistökin eftir atvik- um til fulls þarf að líta yfír allt sviðið. Norrænt samstarf ristir mjög djúpt meðal almennings og fólk lítur nánast á það sem sjálf- sagðan hlut. Þar skiptir ekki máli hvort um er að ræða einstaklinga, félagasamtök, sveitarfélög eða annað. í flestum tilvikum er fyrst litið til einhvers hinna Norðurland- anna þegar um erlenda samvinnu eða samskipti er að ræða og þá skiptir ekki máli frá hveiju Norður- landanna viðkomandi kemur. Hið sama má segja um fyrirtæki. Þau líta iðulega fyrst til hinna Norður- landanna vilji þau færa út kvíarn- ar. Þetta sýnir að norrænt sam- starf er svo miklu víðtækara en að það lúti einungis að samvinnu ríkisstjórna, þjóðþinga eða emb- ættismanna. Hins vegar má það ekki gerast að fólk taki norrænu samstarfí sem svo sjálfsögðum hlut að það þurfi ekki að rækta. Það getur verið hættulegt, einkum í ljósi aðstæðna í dag og þess að þijú Norðurland- anna hafa sótt um aðild að ESB. Norðurlöndin verða að gera upp hug sinn gagnvart Evrópu og við þessi tímamót er nauðsynlegt að meta samstarfið. Líta yfir farinn veg og spyija sig hver sé kjami norræns samstarfs, ---------- hveiju hafí verið áorkað og hvert beri að stefna. Er ástæða á þessum tímamótum til að leggja aukna áherslu á nor- Anders Wenström ► Anders Wenström er fæddur 1946, lögfræðingur að mennt. Hann hóf störf í sænska stjórn- arráðinu á sjöunda áratugnum og hefur einkum haft með inn- flytjendamál að gera. Árið 1983 varð hann lögfræðilegur ráða- nautur framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs og gegndi því starfi í þijú ár. Eftir það sneri hann aftur til Svíþjóðar og varð yfirmaður þeirrar deildar í sænska félagsmálaráðuneytinu sem hefur með innflytjendamál að gera. Sem slíkur var hann einn af samningamönnum Svía í samningunum um Evrópska efnahagssvæðið og bar ábyrgð á samningum um frelsi til at- vinnu hvar sem er á efnahags- svæðinu. Árið 1992 varð hann einn af yfirmönnum Alþjóða- stofnunar innflyljendamála sem hefur aðsetur í Genf þar til hann tók við starfi framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs fyrir fáum vikum. Norrænt sam- starf ristir mjög djúpt rænt samstarf eða má búast við að smá saman dragi úr mikilvægi þess og samstarf Evrópuríkja taki í auknum mæli við hlutverki þess? -Það er augljóst að sumir þætt- ir norrænnar samvinnu hverfa og evrópsk samvinna tekur yfír. I því sambandi má til dæmis nefna frelsi fólks til að leita sér að atvinnu í hveiju þátttökuríkjanna sem er, en slíkar reglur hafa verið í gildi inn- an Norðurlandanna um margra ára skeið. Aðlögun Norðurlandanna að þessum breytingum er miklu auð- veldari en annarra. Þetta er venju- bundið fyrirkomulag á Norðurlönd- um og þær stofnanir sem tengjast því eru rótgrónar. Því er ekki að heilsa í mörgum landanna innan ESB. Það er alla vega mín reynsla eftir að hafa tekið þátt í að und- irbúa samninginn um EES hvað varðar fijálsan flutning fólks. Ann- að breytist ekki vegna þess að menningararfurinn er sameigin- legur, tungumálin náskyld og þjóð- félögin byggja á svipuðum hefðum. Við eigum margt sameiginlegt í norðurhluta Evrópu og munum eiga þó löndin tengist Evrópu með mismunandi hætti. En auðvitað þurfum við að rækta það sem við eigum sameiginlegt, einkum hvað varðar tungumálið og möguleika okkar til þess að tjá okkur á tungu hvers annars. Þrátt fyrir þróunina --------- í Evrópu verður pláss fyrir norræna sam- vinnu. í fyrsta lagi á vettvangi Norðurland- anna sjálfra, í öðru lagi sameiginlega gagnvart Evrópu og í þriðja lagi þurfa Norð- urlöndin að koma fram sem ein heild á alþjóðavettvangi í ýmsum mikilvægum málum, svo sem um- hverfísmálum. Ef fjögur landanna verða orðin aðilar að ESB fyrir árslok og að- eins eitt þeirra, ísland, stendur utan við, mun það ekki skapa sér- stök vandamál í norrænu sam- starfi og er ekki hætta á að ísland verði utanveltu vegna þess að það verður ekki þáttakandi í pólitískri ákvarðanatöku? - Þetta er vissulega áhætta og getur gerst hvað varðar tiltekin efni. í þessu felst því ákveðin áskorun fyrir Norðurlöndin að end- urskapa og móta samstarfið. End- urskilgreining þessa verður að taka mið af því sem um er að ræða. Hvað varðar innri málefni Norður- landanna er ekki ástæða til breyt- inga og ef til vill getum við haft þau samskipti áfram í sama fari. í >

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.