Morgunblaðið - 22.09.1994, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Yfirvöld í Singapore
Enn deilt um skilmála valdaafsals herforingja á Haítí
Rússar segja mjaldur ógna veiðum
Vilja aðstoð Norð-
manna við veiðar
Ósló. Morgunblaðið.
RÚSSAR eða hagsmunasamtök
í Arkangelsk hafa beðið Norð-
menn um aðstoð við tilrauna- og
rannsóknaveiðar á 300 mjöldrum
í Hvítahafi en á síðustu árum
hefur hlaupið mikill vöxtur í
þennan hvalastofn þar. Vilja þeir
fá skip og mannskap frá Noregi
vegna þess, að sjálfir hafa þeir
ekki stundað hvalveiðar lengi og
hafa því hvorki þekkinguna né
þann búnað, sem þarf til.
Það voru fulltrúar sjávarút-
vegsins í Arkangelsk og hafrann-
sóknastofnunin þar, sem fóru
fram á þetta fyrir milligöngu
norsks fyrirtækis, Oso Exim Int-
ernational á Andenes, sem
stundað hefur tilraunaveiðar á
þorski og ýsu í Hvítahafi. Sergei
Zaitsev, forstjóri norska fyrir-
tækisins, telur, að hvalveiðamar
geti orðið mjög miklar enda sé
nægur markaður fyrir hvalkjöt
og rengi í Rússlandi, Japan og
víðar.
Rússar veiddu 300-400
mjaldra árlega á þessum slóðum
fram á miðjan síðasta áratug en
þá var því hætt af fjárhagsá-
stæðum. Síðan hefur mjaldurs-
stofninn vaxið ört og er talinn
ógna fiskstofnum á svæðinu.
Áætla Rússar, að í stofninum séu
nú um 100.000 dýr. Mjaldurinn
er sex til sjö metra langur, minni
en hrefnan, og Steinar Bastesen,
frammámaður í samtökum nor-
skra hvalveiðimanna, telur það
engum vandkvæðum bundið að
nota hrefnubáta við veiðarnar.
Stefnubreyting Rússa?
Þetta mál þykir athyglisvert
fyrir það, að á síðustu árum
hafa Rússar vent sínu kvæði í
kross og tekið afstöðu með frið-
unarsinnum innan Alþjóðahval-
veiðiráðsins. Það yrði því um
mikla stefnubreytingu að ræða
kæmi frá þeim formleg ósk um
aðstoð við mjaldursveiðar. Al-
þjóðahvalveiðiráðið er ekki með
neinn kvóta á mjaldrinum og
hann fellur því ekki undir hval-
friðunarsamþykktina frá 1986.
Hollendingi
beðið lífs
Singapore. Reuter.
TÆPLEGA sextugur Holiendingur
verður tekinn af lífi í Singapore á
morgun ef stjórnvöld verða ekki við
óskum um að þyrma honum.
Maðurinn var tekinn fyrir eitur-
lyfjasmygl fyrir þremur árum en
hann segist aðeins hafa verið að
flytja farangur fyrir annan mann
og ekki hafa vitað hvað í honum var.
Dauðarefsing gildir um ýmis af-
brot í Singapore, meðal annars
umfangsmikið eiturlyfjasmygl. Að-
standendur mannsins segja ekki
útilokað, að glæpamenn, sem hann
kom upp um, hafi leitt hann í gildru
í hefndarskyni.
Reuter
Jörðin opnaðist
ÞÝSKUR lögreglumaður á verði við slysstað í Miinchen í
gær, en á mánudagskvöld seig jarðvegur skyndilega undir
götu í borginni og strætisvagninn, sem sést á myndinni,
féll ofan í holuna. Verkamaður sem vann við neðanjarðar-
braut í grenndinni, kom farþegunum til hjálpar og er hans
nú saknað, en að auki slösuðust 27 manns.
Þrýst á Aristide um
að styðja samninginn
Ýmsir bandarískir þingmenn
reiddust mjög gagnrýni Aristide.
„Réttu viðbrögðin hjá herra Aristide
eru ekki að gagnrýna og vera með
sparðatíning", sagði David Obey,
demókrati í öldungadeildinni. „Eina
rétta svarið er: Þakka ykkur fyrir“.
Heisti ráðgjafi Aristide sagði að-
faranótt miðvikudags að forsetinn
væri Bill Clinton Bandaríkjaforseta
„geysilega þakklátur" fyrir afskiptin
af málum Haítíbúa. Aristide mun í
fyrstu hafa verið mjög andsnúinn
því að ekki skyldi tryggt að herfor-
ingjarnir yfirgæfu Haítí eins og að
var stefnt og jafnframt að her- og
lögreglusveitir þeirra fengju áfram
að fara sínu fram.
Heimildarmenn hjá Sameinuðu
þjóðunum töldu í gær að viðskipta-
banni á herforingjastjórnina yrði
ekki aflétt fyrr en þeir færu frá 15.
október en í samningnum um valda-
afsal virðist kveðið á um að banninu
verði strax aflétt. Herforingjarnir fá
mánuð til að búa sig undir valdaaf-
salið og óttast margir að Raoul Ce-
dras ofursti, leiðtogi herforingjanna,
muni svíkja gerðan samning eins og
fyrri samninga um að láta réttkjör-
inn forseta taka aftur við valdatau-
munum. Talsmaður Hvíta hússins,
Dee Dee Myers, sagði í gær að Ar-
istide myndi snúa aftur til heima-
landsins „ekki síðar en 16. október".
Beiting vopna heimiluð?
Yfirmaður herliðs Bandaríkjanna
á Haítí, Hugh Shelton hershöfðingi,
sagðist þrýsta á Cedras um að binda
enda á ofbeldi gegn vopnlausum,
óbreyttum borgurum sem fagnað
hafa komu bandaríska herliðsins.
Einn féll í átökum við Iögreglu á
þriðjudag og höfðu bandarísku her-
mennirnir fengið skipun um að
skipta sér ekki af atburðunum.
I gær sagði bandaríska fréttastof-
an Mutual-NBC Radio News að lög-
fræðingar varnarmálaráðuneytisins
hefðu tjáð hermönnum sem komu
til Haítí í gær að þeir ættu að gæta
öryggis Haítíbúa og erlendra þegna
í landinu og mættu beita vopnavaldi
til þess. Þessar frétir fengust ekki
staðfestar hjá bandarískum stjórn-
völdum síðdegis í gær.
Washington, Sameinudu þjóðunum, Port-au-Prince. Reuter.
GERT var ráð fyrir því í gær að útlægur forseti Haítí, Jean-Bertr-
and-Aristide, myndi eiga fund í bandaríska varnarmálaráðuneytinu
með John Shalikashvili, forseta herráðsins, og William Perry vamar-
málaráðherra þar sem aðgerðir Bandaríkjamanna á Haítí yrðu út-
skýrðar. Aristide og ráðgjafar hans gagnrýndu í fyrstu harðlega
samning Bandaríkjamanna við herforingjastjórn Haítís um helgina
en síðar virtist sem Aristide væri að snúast hugur. Nýjar skoðana-
kannanir benda til aukins stuðnings Bandaríkjamanna við Bill Clint-
on; 45% lýsa nú ánægju með störf forsetans sem hafði aðeins 36%
stuðning fyrir nokkrum dögum.
Reuter
Fögnuður
á Haítí
BANDARÍSKUR hermaður
með vélbyssu á heijeppa sín-
um í grennd við sorphauga
Port-au-Prince, höfuðborg
Haítís. Hundruð fagnandi
borgara fylgdu bílalest
Bandaríkjamannanna og
notuðu tækifæri, sem ekki
hefur gefist í þrjú ár, til að
tjá hug sinn til herforingj-
anna er látið hafa myrða
þúsundir andstæðinga sinna
undanfarin þrjú ár.
Félag íslenskra
húskólakvenna
og kvenstúdentafélag íslands
heldur hádegisfund laugardaginn 24. september kl. 12.00
að Skólabrú.
Umræðuefni: Ævi Karen Blixen - leikritið Lucifer, sem
frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í byrjun október. Gestir
fundarins verða Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræð-
ingur, og Bríet Héðinsdóttir, leikkona.
Allar konur velkomnar.
Kólera í
Ukraínu
KÓLERUFARALDUR hefur
breiðst út í Úkraínu og hafa
sjö þegar látist og yfir 150
manns eru veikir. Viður-
kenndu yfirvöld landsins í gær
að þau hefðu ekki þekkingu
til að ráða niðurlögum farald-
ursins. Hann hefur komið
harðast niður á Krím, þar sem
yfirvöld íhuga að loka skólum
og sumarleyfisstöðum.
Frakkar
börðust með
hútúum
FRANSKIR hermenn börðust
með hermönnum af hútú-ætt-
bálkinum í fyrrum stjórnarher
Rúanda er borgarastríð var í
landinu 1990. Þessar upplýs-
ingar er að finna í opinberum
skjölum frá Rúanda. Franski
herinn hefur hins vegar alltaf
neitað því og sagt að franskir
hermenn, sem sendir voru til
landsins 1990 hafi verndað
franska ríkisborgara og að-
stoðað herinn við flutninga.
Stefnt að
friðarfundi
ÍSRAELAR sögðu í gær að
reynt væri að koma á fundi
háttsettra fulltrúa et'kifjend-
anna Sýrlendinga og ísraela.
Þá vinna Bandaríkjamenn að
því að fá utanríkisráðherra
þjóðanna til að heilsast á þingi
SÞ í næsta mánuði.
Jaekson ekki
ákærður
BANDARÍSKIR saksóknarar
tilkynntu í gær að þeir myndu
ekki lögsækja poppstjörnuna
Michael Jackson fyrir kynferð-
islega misnotkun á 14 ára
dreng. Þeir sögðu þó að
ákvörðunin kynni að verða
endurskoðuð ef fleiri vísbend-
ingar kæmu fram innan sex
ára. Drengurinn hafði neitað
að bera vitni gegn Jackson.
Gegn rúss-
nesku stór-
veldi?
YFIRMAÐUR rússnesku
leyniþjónustunnar, Jevgeníj
Prímakov, varaði Borís Jeltsín
Rússlandsforseta við því í gær
á áhrifamikil öfl á Vesturlönd-
um vildu koma í veg fyrir að
Rússland yrði stórveldi. Neit-
aði Prímakov því að þessi við-
vörun tengdist fundi Jeltsíns
og Bills Clintons Bandaríkja-
forseta í næstu viku.
Samstarf um
olíuhreinsun
KÚBUMENN og Mexíkanar
undirrituðu í fyrradag samn-
ing um samstarf í olíuhreinsun
í Cienfuegos-olíuverinu á
Kúbu. Hermt er að samningur-
inn sé liður í tilraunum Kúbu-
stjórnar til þess að fá útlenda
fjárfesta til Kúbu.