Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 25 AÐSENPAR GREINAR I túni Jóns Þórarinssonar Þorsteinn Arnalds AÐ UNDANFÖRNU hafa nokkrar umræður spunnist um_ Sinfóníu- hljómsveit íslands á síðum Morgunblaðsins. Kveikjan að þeirri um- ræðu var gagnrýni SUS á sveitina. Runólf- ur Leifsson svaraði gagnrýninni í reifarast- íl 2. september og Jón Þórarinsson sendir ungum sjálfstæðis- mönnum orð miðviku- daginn 14.. september. Grein Jóns er rituð af föðurlegri umhyggju fyrir ungu fólki. Mörgu því sem kemur fram í grein Jóns er nauðsynlegt að svara. Hver var vilji Alþingis? Eins og fram hefur komið eru um 87% kostnaðar Sinfóníuhljóm- sveitarinnar greidd af opinberum aðilum. Sjálfsaflafé sveitarinnar stendur því einungis undir rúmlega áttunda hluta þess sem refeturinn kostar. í grein sinni segir Jón að þess hafi aldrei verið vænst að Sin- fónían gæti lifað af aflafé sínu. Þetta er e.t.v. rétt en af lögum um hljómsveitina verður ekki annað ráðið en löggjafinn hafi að minnsta kosti ekki gert ráð fyrir að nánast allur kostnaður sveitarinnar væri greiddur með skattfé. I 3. gr. laga nr. 36 1982 segir meðal annars: „Sinfóníuhljómsveitin skal kapp- kosta að afla sjálfstæðra tekna af tónleikahaldi, svo að sem mest af útgjöldum hljómsveitarinnar fáist greitt af slíkum tekjum hennar.“ Þetta hlýtur Jón Þórarinsson að vita en eins og segir í fótskrift greinar hans var hann „fyrsti stjórnarformaður Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, síðar framkvæmda- stjóri hennar um árabil og stjórnar- maður síðustu 12 ár“. Gælt við litla hópa Jón telur kostnað á hvern áheyr- anda Sinfóníunnar ekki gefa rétta mynd. Ýmislegt annað komi til. Hann nefnir þar sitthvað, svo sem þátttöku í Listahátíð, lýðveldisaf- mælinu, útgáfu geisladiska og tón- leikaferðalög erlendis. Um þetta er ýmislegt að segja. Ég er viss um að leikur sveitarinn- ar á Listahátíð þjónaði sama þrönga hópnum og þeim sem sækir sinfón- íutónleika. Ékki svo að skilja að ég hafi horn í síðu þeirra, hef reyndar sótt slíka tónleika sjálfur, en það er ekki réttlætanlegt að skattgreið- endur niðurgreiði tómstundaiðkun þeirra sem vilja verja frítíma sínum á sinfóníutónleikum. Nær öruggt er einnig að flestum skattgreiðend- um er sama hvort þeir spila geisla- disk með leik Sinfóníuhljómsveitar íslands eða Sinfóníuhljómsveitar- innar í Lublijana heima í stofu. Um þátttöku Sinfóníunnar í þjóð- vegahátíðinni segir Jón: „þar er talið að áheyrendur hennar hafi verið um 60 þúsund manns“. Ef Jón heldur að það hefði eyðilagt hátíð- ina fyrir alla þessa 60 þúsund ís- lendinga sem komust til Þingvalla að sveitin hefði ekki leikið þá ætla ég einfaldlega að leyfa honum að halda það áfram. Jón segir Sinfóníuna hafa fengið boð um að leika á tónlistarhátíðuip „sér að kostnaðarlausu". Ekki veit ég hvað hann á við með þessu. Mér þykir að núnnsta kosti sýnt að þátttaka sveitarinnar í slíkum hátíðum sé ís- lenskum skattgreiðend- um ekki að kostnaðar- lausu. Af „reiknivillum" Því hefur verið haldið fram að kostnaður á hvern áheyranda á tón- leikum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar hafi verið 5.662 krónur. Jón segir að slíkir útreikningar séu annaðhvort rangir eða dæmið vitlaust sett upp. Varla er til einhlítt svar við því en þegar útgjöld ríkissins eru skoðuð verða menn með einhveijum hætti að reyna að meta hver ávinningur og Mér þykir ljóst að rekst- ur Sinfóníuhljómsveit- arinnar þarfnist gagn- gerrar endurskoðunar, segir Þorsteinn Arn- alds, eins og raunar fleiri útgjaldaþættir, þegar stefnir í 10 millj- arða fjárlagahalla. kostnaður er. Og hvorki getur Jón kennt mér né forustu ungra sjálf- stæðismanna um þessa meintu reiknivillu því í fjárlagafrumvarpi fyrir árið Í994 segir á bls. 361: „Kostnaður á hvern áheyranda hef- ur þá [1992] verið 5.662 kr.“ Sem stjórnarmaður í Sinfóníuhljómsveit- inni geri ég ráð fyrir að Jón Þórar- insson hafi kynnt sér umfjöllun Alþingis og framkvæmdavalds um framlög tii Sinfóníuhljómsveitarinn- ar. Hitt er þó óumdeilanlegt að af kostnaði við rekstur Sinfóníuhljóm- sveitarinnar greiða áheyrendur minnsta hlutann eins og áður var að vikið. Til samanburðar má geta þess að ef hin dásamlega forsjár- hyggja næði jafn Iangt inn á kvik- myndasýningar og sinfóníutónleika kostaði hver miði á kvikmyndasýn- ingu einungis um 70 krónur eða getur ef til vill verið að miðinn væri lítið ódýrari en hann er í dag, ávinningur neytenda af niður- greiðslunni yrði lítill sem enginn? Fleira úr grein Jóns mætti nefna en lesendum verður að mestu hlíft við því. Þó langar mig að lokum að vitna til orða Jóns þegar hann segir: Gáfnamerki er að skipta um skoðun og „hafa heldur það sem sannara reynist" ef menn hafa hlaupið á sig. Mér þykir ljóst að rekstur Sinfóníuhljómsveitarinnar þarfnist gagngerrar endurskoðunar og ekki væri úr vegi að hann yrði tekinn til athugunar nú þegar koma á saman fjárlögum sem virðast ætla að verða með um 10 milljarða halla. Og þá verður ekki vanþörf á því að Jón Þórarinsson skipti um skoðun. Höfundur er háskólanemi. O © f og svai frá Bræðrunum Ormsson hf. Kælir/frystir, nettólítrar, kælir 202, frystir 90, 2 pressur orkunotkun aSeins 1,2 kwst á 24 tímum hæS 185, breidd 60, dýpt 60 Stgr. 79.655,- 85.650,- Kælir/frystir, nettólítrar, kælir 216, frystir 79, orkunotkun 1,5 kwst á 24 tímum hæS 170, breidd 60, dýpt 60 Stgr. 75.556,- 79.533,- 0 Frystiskápur, nettólítrar 216, orkunotkun aSeins 1,1 kwst á 24 tímum hæS 155, breidd 60, dýpt 60 Stgr. 66.413,- 69.908,- Kælir/frystir, neftólítrar, kælir 170, frystir 60, orkunotkun 1,33 kwst á 24 tímum hæS 149, breidd 55, dýpt 60 Stgr. 64.333,- 67.719,- Kæliskápur► meS 81 íshólfi, nettólítrar 136, orkunotkun aSeins 0,7 kwstá 24 tímum hæS 85, breidd 50, dýpt 60. Kjörinn í sumarbústaöinn Stgr. 29,758,- 31.324,- Kælir/frystir, nettólítrar, kælir 204, frystir 46, orkunotkun 1,2 kwst á 24 tímum hæS 144, breidd 54, dýpt 58, Stgr. 59.970,- 63.162,- Frystiskápur,A nettólítrar 255, orkunotkun aSeins 1,1 kwst á 24 tímum, hæS 185, breidd 60, dýpt 60 Stgr. 75.972,- 79.970,- AEG AE6 AEG AEG AEG AiG AEG AEG AEG A Umboösmenn: Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. ÁsubúÖ.Búöardal Vesttiröfr: Rafbúö Jónasar Þór, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík Straumurjsafirði. Noröurland: Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö, Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA, Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn GuÖmundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi. Stái, Seyöisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúösfirðinga, Fáskrúösfiröi. KASK, HÖfn Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorfákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavfk. BRÆÐURNIR DJÖRMSSONHF Lágmúla 8, Sími 38820 G AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG" p - kjarni málsins! Líður þér illa?, í Læknabókinni Heilsugæsla heimilannafinnurþú 2.350 ráðfrá rúmlega 500 þekktum bandarískum læknum og öðrum sérfræðingum á sviði heilbrigðismála. Auðveld og örugg ráð sem hafa jafnmikil -eða meiri áhrif en dýrarlyfjameðferðir. Bóksem jafnvel læknarnirnota sjálfir. Verið öll velkomin á útgáfusýningu í Listhúsinu Laugardal. Kynningarverð kr. 4.950,-. Pantanasími (91) 32886.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.