Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 31
AÐSENDAR GREINAR
Þessi þriggja fossa
syrpa er einstæð, segir
Magnús Kristinsson,
og umhverfi Jökulsár er
eitt fjölbreytilegasta og
sérkennilegsta svæði
landsins.
erlendum gestum þennan ógn-
þrungnasta foss Evrópu, gerir sér
e.t.v. mörgum öðrum betur grein
fyrir þeim áhrifum sem slíkur trölls-
leiki hefur á mannssálina. Það er
hárrétt sem haft var eftir Ingunni
Svavarsdóttur í einu blaðanna: „Það
er einfaldlega ekki hægt að sætta
sig við hann vatnsminni. Það er
kraftur Dettifoss sem gerir hann svo
mikilfenglegan, ekki endilega feg-
urðin. Án kraftsins er fossinn engin
náttúruperla. Það að missa Dettifoss
og Jökulsárgljúfur yrði reiðarslag
fyrir ferðaþjónustuna hér.“
Geta má þess að Jökulsárgljúfur
eru annað helsta aðdráttaraflið fyr-
ir ferðafólk á Norðausturlandi öllu.
Ferðaþjónustufyrirtæki á Húsavík,
í Mývatnssveit og á Akureyri byggja
afkomu sína að verulegu leyti á
þessu svæði - svo að ekki sé talað
um þjónustuaðila í héraðinu sjálfu.
Og þetta eru verðmæti sem eiga
nær örugglega eftir að vaxa að
verðgildi á komandi tímum. Fyrr á
árum nefndi ég stöku sinnum í
ferðahópum að rannsóknir færu
fram á hugsanlegri virkjun fossins.
í dag geri ég slíkt sjaldnar. Eftir
að hafa séð fossinn verður fólk svo
orðlaust og slegið yfir því að nokkr-
um skuli detta slíkt í hug að ég
sárskammast mín. Og hlífi fólkinu
og mér æ oftar með því að nefna
þetta ekki að fyrra bragði. Líklega
er það þó misráðið, því að ef í ljós
skyldi koma að við íslendingar
stöndum enn á sama stigi og þegar
við sömdum af okkur Gullfoss, þá
gæti erlent fólk hugsanlega komið
fyrir okkur vitinu.
Eiginlega ætlaði ég mér alls ekki
að dvelja svona lengi við Dettifoss.
Flestir sem rita eða ræða um virkjun
Jökulsár láta nefnilega eins og hann
yrði eina fórnin á altari Mammons.
Nokkur hundruð metrum ofar er
Selfóss. Hann nýtur sín best austan
frá, er reglulegur og fallegur foss,
öllu hærri en Goðafoss og miklu
vatnsmeiri. Skammt neðan við Detti-
foss er Hafragilsfoss. Flestir þekkja
hann aðeins ofan frá gljúfurbarmin-
um austan frá. Þaðan sýnist hann
lítill og snotur í botni eins af stór-
kostlegustu hamragljúfrum hérlend-
is. Sé hins vegar farið ofan í gljú-
frið að vestanverðu og staðið á nátt-
úrlegum útsýnispalli beint á móti og
örskammt frá fossinum, verður hann
tröllslegri en orð fá lýst - enda
hvorki meira né minna en 27 metra
hár. Til samanburðar má nefna að
neðri fossinn í Gullfossi er aðeins
20 m og að jafnaði mun vatns-
minni. Frá þessum sjónarhóli virkar
vatnsþunginn í Hafragilsfossi ennþá
feiknarlegri en í Dettifossi, bæði
vegna nálægðarinnar og af því að
fossinn er mjórri.
Þessi þriggja fossa syrpa er al-
gjörlega einstæð á íslandi, auk þess
afar ólík eftir því frá hvorri hliðinni
hún er skoðuð. Er samt ótalið fjölda-
margt annað sem gerir umhverfi
Jökulsár að einu fjölbreytilegasta og
sérkennilegasta svæði landsins. Má
þar nefna gljúfurveggina sjálfa sem
víða eru stuðlaðir og stórfengleg
náttúrusmíð, Rauðhóla með „must-
erinu“, Hljóðakletta, Karl og Kerl-
ingu við Tröllahelli, Kallbjörg,
Gloppu, Stalla og Hólmatungur -
auk Hallhöfða, Arnarins, Forvaða,
Réttarbjargs, Vígabjargs með
„Kristsmyndinni" og Randarhóla
austan ár. Öllum þessum ótrúlega
fjölbreyttu og undurfögru náttúru-
undrum er raðað upp innan um gróð-
urskrúð og skoppandi bergvatnslæki
í kringum Jökulsána, svo að úr verð-
ur sjálfstæð og órofa heild. Án árinn-
ar yrðu þau sem fögur umgjörð án
innihalds.
Um þjóðgarðinn i Jökulsárgljúfr-
um hafa verið gerðir snyrtilegir
göngustígar til að auðvelda gestum
að skoða fegurstu staðina og hlífa
þeim við ágangi. Ef svo skyldi fara
að alþingismönnum verði einhvern
tíma gert að taka ákvörðun um
framtíð Jökulsárgljúfra, treysti ég
því að þeir geri það ekki án þess
að kynna sér þau vel áður. Ég skyldi
gjarna taka að mér að leiðsegja þeim
um svæðið, og vafalaust yrðu þjóð-
garðsvörður og starfsmenn hans
ekki síður reiðubúnir til þess. Auðvit-
að byggju menn sig vel til göngu,
og vegna stærðar svæðisins og fjöl-
breytileika yrði að gera ráð fyrir að
veija til þess nokkrum dögum. Enda
væri annað ófyrirgefanlegt ábyrgð-
arleysi gagnvart jafn þýðingarmikilli
ákvörðun.
Höfundur er leiðsögumaður.
Þetta er engin rökræða,
hún snýst ekki lengur
um málefnið heldur
manninn argumentum
ad hominem, sem vitnar
um rökþrot, vankunn-
áttu í mótmælum, segir
Einar Heimisson, og
sér ekki ástæðu til að
ræða slíkt frekar á opin-
berum vettvangi.
snýst ekki lengur um málefnið held-
ur manninn argumentum ad homin-
em, sem vitnar um rökþrot, van--
kunnáttu í mótmælum — og sé ég
ekki ástæðu til að ræða slíkt frekar
á opinberum vettvangi, heldur vísa
á ný til greinar minnar í Morgun-
blaðinu 16. september, enda lét rit-
stjóri TMM röksemdum hennar
ósvarað með öllu.
Höfundur er sagnfræðingur og
hefur fengist við ritstörf og gerð
sjónvarpsmynda.
- kjarni málsins!
Veíðijakkar og buxur
á mjög göðu verði
Jakkt m/lausu fóðri kr. 4.970
Buxur kr. 2.300
5% staðgreidsluafstóttur,
elnnlg af póstkröfum
(jrfdddum Inn.in > datni.
CT Lti UTILÍF Rmí
GI-ÆSIBÆ SIMI 812922
Ef þú ert
gjörsamlega
frábitinn
því aö fá sjónvarp, videó, húsbúnaðar- eöa
ferðavinning; eöa kannski bíl og bensín á hann í
heilt ár eöa bara til dæmis jeppa fyrir 300 kall,
skaltu
endilega ekki
ná þér í BINGÓLOTTÓ-seðil fyrir
kl. 4 á laugardaginn. Því aö
• •
laugardagskvöl
kl. 20:30
• « e e •
er braöskemmtilegur, hættulega spennandi og
ótrúlega fjár-magnaður fjölskylduþáttur í opinni
dagskrá á Stöö 2 fyrir þá sem vilja vinna. Ekki
missa af honum.
P.S. Náðu þér strax í mi&a - síðast varö uppselt!