Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 34

Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR Systir mín. + ODDNÝ GfSLADÓTTIR BRUSSELA, frá Gauksstöðum í Garði, lést á heimili sínu í Bandaríkjunum 26. ágúst. Rannveig Gfsladóttir. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, VALGARÐUR KLEMENZSON, Álftamýri 42, lést á heimili sínu 20. september. Sigriður G. Stefánsdóttir og synir. t Elskuleg sambýliskona mín, móðir og tengdamóðir, HAFLÍNA HAFLIÐADÓTTIR, Reykjafold 1, lést í Landspítalanum 20. þessa mánaðar. Einar Guðnason, Frosti Guðlaugsson, Guðný Baldursdóttir, Bjarki Einarsson, Guðni Einarsson, Daði Einarsson. t Bróðir minn, EINAR PÁLSSON, Hátúni 10, Reykjavík, er látinn. Útförin auglýst sfðar. Fyrir hönd aðstandenda, Ingvar N. Pálsson. t Sambýlismaður minn, faðir okkar og bróðir, GYLFI SIGURÐSSON, Tungu, Fróðárhreppi, verður jarðsunginn frá Staðastaðarkirkju laugardaginn 24. sept- ember kl 15.00. Þorgerður Jónsdóttir, Sigurður Kjartan Gylfason, Jón Ingi Gylfason og systur hins látna. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐBJÖRG SIGRÍÐUR ALBERTSDÓTTIR frá Hafursstöðum, v er lést 13. september sl. verður jarðsungin frá Blönduósskirkju laugardaginn 24. september kl. 14.00. Hólmfrfður Sigurðardóttir, Sveinbjörn Sigurðsson, Svava Leifsdóttir, Hafþór Sigurðsson, Ragnheiður Þorsteinsdöttir, Sigrún Sigurðardóttir, Hörður Kristinsson, Hlff Sigurðardóttir, Ólafur Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, JÓN HALLGRfMSSON, Ránargötu 19, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 14. september, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 23. september kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast háns er bent á Sundlaug Kristnesspítala. Cecilia Steingrfmsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Guðmundur Gfslason, Jóhann Jónsson, Hulda Einarsdóttir, Eggert Jónsson, Guðbjörg Jónasdóttir, Heiðrún Jónsdóttir. SIGURÐUR SVEINSSON + Sigtirður Sveinsson fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri 11. febrúar 1922. Hann lést á heimili sinu í Reykjavík 4. september síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 11. septem- ber. AFI minn. Þegar ég kvaddi þig í júní á tröppunum á Hjallaveginum hvarflaði ekki að mér að það yrði í síðasta skipti. Þú sem hefur alltaf verið fastur punktur í tilverunni hjá mér. Alltaf til staðar og ávallt reiðu- búinn að gefa manni góð ráð. + Ólöf Jónsdóttir var fædd á ísafirði 26. febrúar 1910. Hún lést á Droplaugarstöðum 9. september síðastliðinn. AMMA Lóa er látin og við systk- inin sendum henni þessa lokakveðju með þakklæti fyrir liðin ár. Þakk- læti fyrir viðtökur sem í hvívetna voru rausnarlegar, hlýtt viðmót og röggsemi, elju við að hafa í kringum sig fallegt og gott. Við þökkum minningar um stundir þar sem fjöl- skyldan gat komið saman við full- Við Friðgeir vorum með þér í hestamennsku og þau ár komu svo sannarlega upp í huga minn þegar Ingibjörg systir hringdi austur og sagði mér að þú værir allur. Þú gafst mér svo mikið og mér þótti svo vænt um þig, elsku afi minn. Þó að fjarlægðin milli okkar síðasta áratuginn hafí verið mikil, þá veit ég að hugir okkar stóðu miklu nær. Þú hafðir alltaf trú á mér, sama á hveiju gekk. Fyrir það þakka ég þér. Fyrir 20 árum fór ég með ykkur ömmu, Sigurveigu og Friðgeiri í sumarbústað á Einarsstöðum á dekkað borð af hlýju og rausn. Amma og afi héldu fallegt heim- ili á Rauðalæknum þaðan sem jóla- boðin þeirra settu svip á fjölskyldu- lífíð. Þar var leikið og sungið og amma hélt utan um allt, styrkri hendi. Við munum glæsimennsku henn- ar fram á síðustu stund, þrátt fyrir erfíð veikindi sem drógu úr henni allan mátt. Þar var henni ómetan- legur stuðningur starfsfólks á Droplaugarstöðum og færum við því þakkir okkar. Fljótsdalshéraði. Sú vika stendur eftir ljóslifandi i minningunni. í hvert skipti sem ég ek þar framhjá, minn- ist ég þessara góðu tíma með sökn- uði. Eg minnist útreiðartúranna sem við fórum í saman. Ég minnist þess sérstaklega hvað við þrír, ég, þú og Friðgeir vorum miklir vinir enda þótt 40 ár stæðu á milli. Þessi ár koma ekki aftur, en ég mun alltaf geyma þau í hjarta mínu. Elsku afí minn. Þakka þér fyrir allt. Elsku amma og þið öll setti syrgið yndislegan eiginmann, föður, áfa og vin. Tíminn er sagður lækna öll sár. Vonandi getum við sætt okkur við þetta með tímanum. En eitt er víst, afí minn, að minningin um þig og þín verk verður vel geymd í hjarta mínu. Hvíl þú í friði. Sigurður Þór Kjartansson. Elsku afí, missir þinn er mikill eftir Ianga samveru með góðum maka. Við biðum góðan guð að styrkja þig í þínum söknuði. Vegamót Genpar slóðir gðtur ótal margar ryk sest í óteljandi spor • þar ert þú sem allar götur mætast við nýjan veg og loksins komið vor (Sigurður Ingóifsson) Petra Bragadóttir, Ólöf Björk Bragadóttir, Hilmar Örn Bragason og fjölskyldur. Frágangur afmælis- og minning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit afmælis- og minn- ingargreina séu vel frá geng- in, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fýlgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu. tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru rit- vinnslukerfin Word og Word- perfect einnig auðveld í úr- vinnslu. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfír eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Grein- arhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURBJÖRN MAGNÚSSON hárskeri, andaðist í Hrafnistu 20. september. Gunnþórunn Egilsdóttir, Sigriður Sigurbjörnsdóttir, Geir Magnússon, Örlygur Sigurbjörnsson, Lilja Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Útför HELGA S. ÁRNASONAR, Trönuhólum 6, Reykjavík, fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstu- daginn 23. september 1994 kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Blindrabókasafnið. Guðlaug Björg Björnsdóttir, Áslaug Helgadóttir, Ellert U. Sigtryggsson, Áslaug Hafberg, Árni Eíasson. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ERLENDUR BÓAS FRIÐJÓNSSON, frá Reyðarfirði, siðast til heimilis að Ægisgötu 27, Akureyri, _ lést 17. september á Dalbæ, Dalvík. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju 26. september kl. 13.30. Guðlaug Erlendsdóttir, Pálmi Guðmundsson, Friðjón Erlendsson, Sigrún Magnúsdóttir, Björgvin Erlendsson, ísfold Helgadóttir, barnabö/n og barnabarnabarn. + Eiginmaður minn, fósturfaðir, faðir, tengdafaðir og afi, JAKOB GfSLI ÁGÚSTSSON, Lindarbergi, Kirkjuhvammshreppi, andaðist aðfaranótt 20. september. Jarðarförin verður auglýst sfðar. Aðalbjörg Pétursdóttir, Fjóla Berglind Helgadóttir, Margrét Jakobsdóttir, Aðalsteinn Jakobsson, Helga Jakobsdóttir, Ágúst Frímann Jakobsson, tengdabörn og barnabörn. OLOF JONSDOTTIR Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð Megir salir og mjög góð jíjómista. Upplýsingar ísíma22322 FLUCLEIBIR HfTEL LOFTLEItlH

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.