Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 37 NÚ HEFUR hljóðnað á holtinu mínu, farfuglarnir. eru óðum að hverfa, krían löngu horfin og hin- ir að smátínast í burtu. En ekki eru allir íbúar holtsins með vængi, sem hægt er að fljúga á til heit- ara landa, t.d. hagamúsin, sem langar til að komast í hlýjuna inn- anhúss, þegar kólna tekur. Nóg æti er þó fyrir hana enn. Ein lítil hagamús kom sér þó inn um loft- rör í búrskápinn minn, þar sem hún hélt sér mikla veislu, gæddi sér á jólaköku, núgga, súkkulaði og hnetum, en rétt nartaði í ný- uppteknar gulrætur, sem mér fínnst miklu meira lostæti en hin- ar krásirnar. Ég lagði eldhúsrúllu á hliðina og mýsla var fljót að smeygja sér inn i hana, en ég hafði hröð handtök og greip fyrir báðum megin og sleppti henni síð- an í birkitrén. Síðan var sett net fyrir loftrörið, en mýsla sást næstu daga fýrir utan loftrörið og ætlaði sér greinilega meira af krásunum. Við hjónin kynnumst hér hegðun fugla og dýra. Vinur okkar spóinn hafði komið sér upp einum unga í sumar og var að vonum hræddur um þetta eina barn sitt, enda lífsbaráttan hörð í fuglaheimi. Músarungi var á vappi í kringum ungann og spóinn gerði sér lítið fyrir, greip músar- ungann í gogginn og sló honum nokkrum sinnum í jörðina þar til hann drapst. Ófáa fuglsunga hef- ur veiðibjallan og hennar skyldul- ið gripið í gogginn í sumar og alltaf verður maður jafn sár. Þótt mýsla litla hafi ekki litið við gulrótunum mínum, skulum við mannanna börn búa til ýmis- legt gómsætt úr þeim, en þær eru mjög hollar, bragðgóðar og líka ódýrar núna. Gulrótarbrúnkur, (brownies) ___________3 egg__________ 2‘A dl sykur Matur og matgerð Af músum og gulrótum Kristín Gestsdóttir segir okkur í dag sögur af hagamúsunum í 1. Þeytið egg og sykur þar til það er ljóst og létt, setjið þá matarolíu út í og hrærið saman. 2. Blandið saman hveiti, lyfti- dufti, salti, kanil, negul og allra- handa, setjið út í og hrærið var- lega saman, ekki í hrærivél. 3. Setjið saxaðar hnetur og rúsínur út í. 4. Setjið bökunarppír á bökun- arskúffu, hellið deiginu á bökun- arpappírinn og smyijið jafnt yfir. 5. Hitið bakaraofn í 200°C, blástursofn í 190°C, setjið í miðj- an ofninn og bakið í um 15 mín. 6. Takið úr ofninum og skerið strax í ferninga með beittum hníf. Gulrótarmarmelaði _________1 kg gulrætur_______ _____2 meóglstórgr sítrónur__ 4 meðalstórar appelsínur ___________2 dl vgtn_________ 1 kg sykur 1. Þvoið gulræturnar vel, skafið ekki, mest vítamín er við hýðið. Setjið í grænmetiskvörn og rífið fínt eða setjið í hakkavél. 2. Þvoið appelsínur og sítrónur vel. Skerið hýðið þunnt af með kartöfluhníf (með rauf). Flettið síðan hvítu himnunni af og fleyt- ið. Skerið sítrónur og appelsínur í bita og fjarlægið steina. Setjið ávaxtakjötið ásamt berkinum í matvinnsluvél eða hakkavél. 3. Setjið rifnar gulrætur og sítr- ónu- og appelsínumaukið í pott ásamt sykri og vatni og sjóðið við hægan hita í 10-15 mínútur. 4. Sjóðið krukkur og lok í 10 mínútur. Setjið marmelaðið í heit- ar krukkurnar, fyllið alveg upp á brún, setjið iokið strax á. Herðið lokið aftur eftir að þetta hefur kólnað. 5. Þetta geymist ekki mjög lengi, en þetta má frysta, þó ekki í lokuðum glerkrukkum, því þær springa í frostinu. m Efst í hópi 480 bridspara BRIPS Heimsmcistaram ó 1 i ð ALBUQUERQUE,NÝJU MEXÍKÓ 17. september til 1. október HJÓNIN Jacqui McGreal og Þorlák- ur Jónsson urðu efst í undankeppni heimsmeistaramótsins í blönduðum tvímenningsflokki í Albuquerque. Alls tóku 480 pör þátt í undan- keppninni svo það er ekkert áhlaupaverk að vinna slíkt mót. Tvö önnur íslensk pör komust í 180 para úrslit mótsins. Því miður gekk þeim Jacqui og Þorláki ekki eins vel í úrslitakeppninni, en árangur- inn í undankeppninni taldi þar ekki með. I undankeppninni tóku Jacqui og Þorlákur forustu þegar tveimur af þremur umferðum var lokið og þau enduðu með 8.435 stig. I öðru sæti undankeppninnar urðu Lew og Jo- Anna Stansby með 8.412 stig, en Lew er margfaldur heimsmeistari, bæði í sveitakeppni og tvímenningi. í þriðja sæti voru. Bob Hamman og Sabine Zenkel með 8.302 stig. Tvö önnur íslensk pör sluppu gegnum nálaraugað inn í úrslitin, Sigríður Sóley Kristjánsdóttir og Bragi Hauksson, sem urðu í 138. sæti, og Anna Ivarsdóttir og Jakob Kristinsson, sem urðu í 142. sæti. Ljósbrá Baldursdóttir og Matthías Þorvaldsson komust ekki í úrslitin og ekki heldur Hjördís Eyþórsdóttir og Erla Sigurjónsdóttir sem spiluðu við Ameríkana. Nokkra athygli vakti að Juanita Chambers og Peter Weichsel kom- ust ekki í úrslitin, en þau áttu heimsmeistaratitil að veija. Zia Mahmood og Daniela Von Amim sátu einnig heima og fleiri heims- þekkt pör. Jacqui og Þorlákur voru ekki hjálpleg við heimsmeistarana fráfarandi. Norður ♦ K4 ¥9 ♦ ÁKD9753 + K94 Austur ♦ G975 ¥ KD10842 ♦ 2 ♦ 82 Suður ♦ D62 ¥ G762 ♦ 108 ♦ ÁG75 Vestur Nordui' Austur Suður ChambersJacqui Weichsel Þorl. 2 hjörtu Pass Pass 3 hjörtu Pass 3 grönd/ Jacqui tók um hornin á bola með því að segja 3 hjörtu frekar en 3 tígla og Þorlákur taldi hjartagosann fjórða nægilegt vald á litnum. Örfá pör komust í 3 grönd á þetta spil, en eins og sjá má er ekki hægt að hnekkja þeim. Og þegar Chambers spilaði út laufi eftir langa yfirlegu var Þorlákur kominn með yfirslag og nánast hreinan topp. í úrslitunum náðu Jacqui og Þor- lákur sér aldrei á strik og enduðu í 159. sæti. Bragi og Sigríður end- uðu í 71. sæti og Anna og Jakob í 177. sæti. Nú stendur yfir útslátt- armót sveita í Albuquerque en því lýkur um helgina og þá tekur heims- meistaramótið í tvímenningi við. Ein íslensk karlasveit og ein íslensk Vestur ♦ Á1083 ¥ÁÖ ♦ G64 ♦ D1063 kvennasveit taka þátt í sveita- keppninni en alls keppa þar 180 sveitir í opna flokknum og 48 í kvennaflokki. Ný heimsálfukeppni í sumar fór fram í fyrsta skipti sérstök keppni milli úrvalsliðs Evr- ópu og Bandaríkjanna. Ætlunin er að þessi keppnf verði reglulegur viðburður, svipað og keppnin um Ryderbikarinn í golfi. Keppnin var haldin í smábænum Villagio del Bridge í suðurhluta ítal- íu en þar búa eingöngu bridsspilar- ar! Úrvalslið Evrópu var skipað þeim Helgemo og Helness frá Nor- egi, Leufkens og Westra frá Hol- landi, Forrester og Robson frá Bret- landi og Lauria og Versage frá ítal- íu. Bandaríska liðið var skipað þeim Zia, Cohen, Meckstroth, Rodwell, Levin, Weichsel, Sontag og Wolff. Evrópuliðið náði forustunni snemma en 144 spila leikurinn var hálfnaður náðu Bandaríkjamenn yfirhöndinni og slepptu aldrei tak- inu. Leikurinn endaði 587-539 fyrir Bandaríkin. Það var þó huggun harmi gegn að Geir Helgemo fékk verðlaun fyr- ir best spilaða spil keppninnar. N/NS tígli, en Norðmennirnir runnu samt í hjartageimið. Larry Cohen spilaði út tígulkóng og skipti í tromp. Hel- gemo spilaði strax laufi og Cohen stakk upp ás og spilaði meira trompi. Skipting spilanna var nú nokkuð ljós og Helgemo tók laufkóng og henti tígli, trompaði lauf, tók spaða- ás og trompaði spaða og spilaði laufagosanum úr borði. Þegar Zia átti drottninguna henti Helgemo síðasta tíglinum sínum og lagði upp: Zia var endaspilaður og varð að spila frá tígulkóngnum. Zia og Cohen hefndu sín í þessu spili: Norður ♦ KG983 ¥6 ♦ KDG9532 ♦ - Vestur Austur ♦ 5 4 64 ¥ ÁK97 ¥ D542 ♦ 1074 ♦ Á86 ♦ ÁD432 ♦ G1097 Suður ♦ ÁD1072 ¥ G1083 ♦ - ♦ K865 Norður Vestur Norður Zia Austur Suður Cohen ♦ 4 - 1 tígull pass 1 spaði ¥ K1083 pass 2 spaðar pass 4 spaðar ♦ D653 ♦ KG54 pass 5 lauf pass 6 spaðar/ Vestur ♦ KD10865 ¥54 ♦ K ♦ Á982 Austur ♦ G9 ¥92 ♦ ÁG1072 ♦ D1063 Suður ♦ Á972 ¥ ÁDG76 ♦ 984 ♦ 7 Vestur Norður Austur Suður Cohen Helnes Zia Helgemo 2 tíglar 2 hjörtu 2 spaðar 4 hjörtu/ Zia notfærði sér hætturnar og opnaði létt á tveimur tveimur í Þetta var nokkuð sérkennileg sagnröð því 2 spaða sögn Zia var ekki krafa. En þegar Cohen stökk í geimið reiknaði Zia með að spilin lægju vel saman og sagði frá lauf- fyrirstöðunni og Cohen stökk þá í þessa 20 punkta slemmu. Vestur spilaði út hjartaás og hjartakóng og Cohen trompaði. Hann spilaði litlum tígli úr borði og þegar austur stakk upp ás lagði Cohen upp. Slemman hefði þó alltaf unnist því sagnhafi hefur nægan samgang til fría tígullitinn með trompunum. Guðm. Sv. Hermannsson FRÉTTIR Undanúr- slit í at- skák móti Islands UNDANÚRSLIT íslandsmótsins í atskák 1995 fóru fram í Iðnskólan- um í Reykjavík 10.-11. september sl. Einnig var teflt á Akureyri á sama tíma. í mótinu í Reykjavík tóku þátt 38 keppendur en 8 á Akureyri. Sex efstu menn úr mótinu í Reykjavík komast áfram í úrslit, sem fara fram í janúr nk. Þeir eru Jón Garðar Viðarsson, sem fékk 7.5 v. af 9 mögulegum. 2. Davíð Ólafsson 6,5 v. 3. Þröstur Þórhalls- son 6,5 v. 4. Magnús Sólmundarson 6.5 v. 5. David Bronstein 6 v. 6. Ólafur B. Þórsson 6 v. Á Akureyri urðu efstir og jafnir Gylfi Þórhalls- son og Rúnar Sigurpálsson og munu þeir tefla einvígi um réttinn til að tefla í úrslitunum. Efsti maður úr mótinu á Vestfjörðum kemst einnig áfram í úrslit. -----» ♦ ♦--- Framhalds- stofnfundur Regnbogans FRAMHALDSFUNDUR Regnbog- ans verður haldinn fimmtudaginn 22. september og hefst kl. 20.30 á Kornhlöðuloftinu (Bernhöftstorfu). Á fundinum verða borin upp drög að lögum fyrir félagið og því kjörin stjórn. Rætt verður um starfið framundan, stofnun hverfafélaga, skipulag málefnahópa og tengsl félagsins við borgarfulltrúa Reykja- víkurlistans. Að loknum stofnfundarstörfum talar Sigrún Magnúsdóttir um fyrstu stjórnarmánuði Reykjavíkur- listans og síðan verða almennar umræður. Flestir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar Reykj avíkur- listans verða á fundinum, taka þátt í umræðum og svara fyrirspurnum ef óskað er. -----♦ ♦ ♦--- Heimsmeist- ari teflir fjöltefli SKÁKSKÓLI íslands er að hefja þriðja starfsveturinn en fyrstu nám- skeið vetrarins hefjast laugardag- inn 24. september nk. Þann dag mun Helgi Áss Grét- arsson, nýbakaður stórmeistari og heimsmeistari unglinga, tefla fjöl- tefli í húsnæði skólans í Faxafeni 12, Reykjavík, og er öllum heimil ókeypis þátttaka í fjölteflinu. Taflið hefst kl. 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.