Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 40

Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Tommi og lenni Ljóska Ferdinand ■ Smáfólk IF YOU U/ERE A EORPER COLUE, YOU'P BE OUT HERPIN6 5HEEP.. 6-3/ / \ ( I CAN ^ \oo im.J 1 L—. S Ef þú værir fjárhundur, værir Ég get gert það ... þú úti að smala fé ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Stjörnur himins - eða „svört göt“ Frá Þorsteini Guðjónssyni: FYRIR nokkrum árum bar svo við að maður, mér vel kunnugur, var að segja mér frá tímaritsgreinum um svartgata-fræði, sem hann hafði verið að lesa, og kvað þar mikil tíð- indi af að segja: hvert stórgatið af öðru væri nú að finnast: tvísólir eru svart gat öðru megin, efnismekkir eru svört göt, miðja vetrarbrautar er svart gat, aðrar vetrarbrautir eru svört göt, kvasarar „á jaðri alheims- ins“ eru svört göt; tifstjörnur eru svört göt; ennfremur smáheimur- inn; rafeindir og róteindir eru svört göt, kvarkar eru svört göt: alheim- urinn er svart gat. — Við lögðum kollhúfur hvor við öðrum og fórum svo að tala um annað. — En þetta var meðan svartgatafaraldurinn reið öllum húsum og flestar ritgerð- ir enduðu á orðunum: „Ef til vill svart gat...“. - Þetta gerist á hnetti þar sem fæstir vita enn, að þeir eru á hnetti. Annar maður, mér nákunnugur, kemur til mín með nýtt hefti af rit- inu Astronomy (okt. ’94) og er aðal- fyrirsögn þessi: „Hvað varð af öllum svörtu göt- unum?“ Aðeins þijú eru eftir og þau vafasöm. Bráðum verða þau einnig týnd og tröllum gefin. Enn er hringt til mín og sagt frá löngu viðtali við Fred Hoyle, í ritinu New Scientist, en það hefur mikla útbreiðslu og er virt. „Nú ber eitthvað nýrra við!“ hugsa ég, „úr því að Fred Hoyle er kominn fram á sviðið að nýju.“ Það hefur varla mátt minnast á hann í stóru, fínu blöðunum sl. 25 ár eða svo. Helst hefur mátt sjá hans getið með vorkunnsemi, sem einhvers gamaldags stjörnufræð- ings, sem var dálítið að sér að vísu, en hélt þó fram skakkri kenningu um eðli alheimsins, en hafði síðan snúið sér að vísindaskáldsögum. En nú var ekki annað að heyra en sá hinn sami væri kominn á fullan skrið og vandaði ekki firruhug- myndum kveðjurnar. „Enginn hefur fundið neitt sem styðji tilvist þess- ara svörtu gata (‘not a scintilla of observation’)“, segir hann og Hvell- inn mikla (alspryngið) segir hann aldrei hafa orðið. Þetta þykir mér góð frétt, ekki aðeins vegna þess að heimurinn er stórkostlegur, frá- bær, en ranghugmyndir óskemmti- legar heldur ekki síður vegna þess, að nú er Fred Hoyle farinn að fá uppreisn æru. Þeir komu honum burt frá Cambridge um árið með bolabrögðum, en þar hafði hann verið prófessor, og svo höfðu þeir af honum Nóbelsverðlaunin, sem hann átti að fá fyrir að finna að lífrænn kjarni er í halastjörnum. En svartgötungar gáfu aðstoðar- manni Hoyles Nóbelsverðlaunin fyr- ir þetta og á sú ráðstöfun eftir að verða frægari en margt annað. Það sem þeim er verst við er frjáls og djörf hugsun, einkanlega þó ef hún getur sýnt árangur sinn í verki. Það sem einkennir Fred Hoyle, og mætti einkenna alla sanna vís- indamenn, er kjarkur til að hafna rugli — eins og hugmyndirnar um alspryngi og svört göt voru, eru, og munu alltaf verða. Ég held, að það sem mannkynið vanhagar um sé umfram allt viska og þekking. Það furðulegasta er þó, að mér sýnist sem öld þekkingarinn- ar sé nú að rísa — þrátt fyrir allt. Og hver veit nema viskan eigi svo eftir að segja sitt orð — þrátt fýrir allt? ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON, Rauðalæk 12, Reykjavík. Olík lífsviðhorf Frá Agli Sigurðssyni: í MORGUNBLAÐINU 25. septem- ber, bls. 22, birtust tvær aðsendar geinar. Önnur eftir Þorvald Gylfa- son prófessor bar fyrirsögnina „Heimskautabóndinn", hin eftir Jónas Pétursson fyrrverandi al- þingismann hét „Þjóðmálaum- ræða“. Yið skulum skoða þessi skrif ögn nánar. Grein Þorvaldar segir frá ónafn- greindum bónda, sem ekki var af bændaættum kominn, en beitti hins vegar lærðum vinnuaðferðum. Hann keypti sér búgarð nyrst í Svíþjóð, svonefndum Norðurbotni, sem er á stærð við ísland allt. Bústofn hans varð eftir fimm ár 100 kýr, stofnkostnaður á hveija kú frá kr. 50 til kr. 100 þús. Með- albústærð í Svíþjóð (og ESB) er hins vegar 25 kýr og stofnkostnað- ur nálægt kr. 900 þús. á kú eftir gamla búskaparlaginu. Bóndinn hefir reiknað út hagkvæmustu bú- stærðina og telur hana vera 800 til 1.000 kýr, þannig að tólf til fimmtán bændur gætu „séð um alla mjólkur- og kjötframleiðslu, sem þörf er á þarna norður frá“. Þorvaldur slær því síðan fram frá eigin brjósti, að „fáeinir frysti- togarar gætu ef til vill leyst næst- um allan fiskiskipaflota okkar ís- lendinga af hólmi með tímanum“. Þessi rökhyggja er einkennandi fyrir suma hagfræðinga — og alveg sérstaklega fyrir prófessora í við- skiptadeild HÍ — sem mæna ein- göngu á „hagræðingu og fram- leiðni“. Þeir benda ekki á leiðir til að finna störf fyrir tugþúsundir bænda, sjómanna og fiskvinnslu- fólks eða heldur hvernig fjármagna eigi atvinnuleysisbætur handa þeim, ef hagræðing þeirra nær fram að ganga. Hinn greinarhöfundurinn, Jónas Pétursson fyrrverandi alþingismað- ur, stendur með báða fæturna á jörðinni. „Þungamiðja allrar við- leitni er atvinna,“ segir hann. „Lífs- björg fyrir fólk, ekki fjármagn.“ Hann vill að allur sjávarafli sé færður á land í hvaða formi og tegund sem er. Hvers konar úr- gangur skuli notaður til gróður- auka og bættra vaxtarskilyrða um móa og mela. Samnýting á lífbelt- unum tveim muni afmá smán at- vinnuleysis, auka nytjar til búskap- ar, skapa störf og viðfangsefni sveitafólks í dreifðum byggðum. Það er ánægjulegt að heyra svo jákvæða rödd — innan um barlóm- inn og niðurskurðinn. EGILL SIGURÐSSON, fv. forstjóri, Mávahlíð 29, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.