Morgunblaðið - 22.09.1994, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 41
BREF TIL BLAÐSINS
Sjúkrahús Suður-
nesja, Keflavík
Á valdi heimskunnar
Frá Val Óskarssyni:
Ég hef oft verið að hugsa um
það hvort ekki mætti hafa svona
eina og eina viku í Þjóðarsálinni á
Rás 2 þar sem fólk yrði að vera
jákvætt, annars væri hreinlega
skellt á það. Það er nánast óþol-
andi á þessu annars ágæta landi
okkar hvað fólk sökkvir sér oft nið-
ur í neikvæðni og gleymir eða nenn-
ir hreinlega ekki að geta þess sem
vel er gert.
Undirritaður þurfti nú nýverið
að fara inn á sjúkrahús og þá voru
liðin 42 ár síðan hann þurfti síðast
að gangast undir aðgerð á slíkum
stað. Það var því með nokkrum
kvíða sem ég mætti í viðtal á sjúkra-
húsinu í Keflavík daginn fyrir að-
gerð. Kvíðinn reyndist þó með öllu
ástæðulaus, því mér var tekið með
einstakri hlýju og settur nákvæm-
lega inn í það hvað gera þyrfti fyr-
ir aðgerð, hvernig hún færi fram,
SÖGUNEFND íslendinga í Lúx-
emborg er að vinna að útgáfu
bókar um landnám íslendinga í
Lúxemborg. Ætlunin er að hafa
ítarlegt manntal í bókinni um
alla þá sem búsettir hafa verið í
Lúxemborg til lengri eða
skemmri tíma.
Á sínum tíma voru send út
manntalsblöð sem stuðst hefur
verið við. Aðrar heimildir sem
hvað mænudeyfing þýddi o.s.frv.
Ég var því hreint ekki eins stress-
aður og ég hafði búist við þegar
ég mætti daginn eftir í aðgerðina.
Nú vita það allir sem mig þekkja
að ég er með málgefnari mönnum
og þótt ég þyrfti ekki að dvelja lengi
á sjúkrahúsinu þá náði ég þó að
kynnast ótrúlega mörgum starfs-
mönnum á þeim tíma og voru þeir
allir sem einn alveg einstaklega
notalegir við sjúklingana. Það þykir
kannski væmið en ég ætla samt að
leyfa mér að segja að það er sómi
fyrir Suðurnesin að hafa slíka stofn-
un.
Ég flyt starfsfólkinu innilegar
þakkir um leið og ég sendi bestu
kveðjur til Hafsteins vinar míns —
níu ára stráks úr Njarðvíkunum,
sem deildi með mér herbergi á
sjúkrahúsinu.
hafa verið notaðar eru: Eldri
manntalsblöð sem til voru í fór-
um íslendingafélagsins, Flug-
mannatal, Facts about Cargolux
og ýmsar munnlegar heimildir.
Þeir sem vilja vita hvaða upp-
lýsingar um þá eru fyrirliggjandi
og þau ykkar sem ekki hefur
náðst til eða eigið eftir að senda
inn manntalsblöð, biðjum við vin-
samlegast að hafa samband við
Frá Haraldi Þorvaldssyni:
Það hefur varla farið fram hjá
neinum sem fylgist með fréttum,
að Þjóðleikhúsið er farið af stað
með óperuna Á valdi örlaganna eft-
ir Verdi með stórsöngvarann Krist-
ján Jóhannsson í aðalhlutverki. Þær
stjarnfræðilegu íjárhæðir sem
nefndar hafa verið, sem Kristjáni
er ætlað að fá fyrir sinn snúð, hafa
heldur ekki farið fram hjá neinum.
En heyrst hefur að kappinn hali inn
800.000 kr. á kvöldi.. Kannski ekki
mikið fyrir stórsöngvara eins og
Kristján, sem gjarnan stillir sér við
hliðina á Pavarotti og Domingo í
frægð og frama. Þeir seni lifa og
hrærast í menningu af þessu tagi
hafa haldið því fram, að það að njóta
nærveru stórsöngvarans „fræga“ sé
hvalreki á fjörur þeirra. Ekki dettur
bréfritara í hug að mótmæla þeirri
staðhæfingu, enda viðurkenndur
stórsöngvari þarna á ferð, sem
sungið hefur í fiestum helstu óperu-
húsum heims við góðan orðstír. Það
má hins vegar segja að það sé kald-
hæðni örlaganna í Ijósi framanrit-
aðs, að hljóðfæraleikarar sem spila
undir söng stórsöngvarans, sömdu
nýverið við Þjóðleikhúsið/„ríkið“ um
óbreyttan launataxta! Það er í sjálfu
sér ekki við stórsöngvarann og „ís-
landsvininn“ að sakast, þótt hann
verðleggi sig svo hátt. Það er aftur
á móti stjórn og forráðamenn Þjóð-
leikhússins, svo og styrktaraðilar,
sem eru að basla við að halda uppi
menningarstandard, en láta því mið-
ur draga sig á asnaeyrunum, sem
bera ábyrgðina.
einhvern eftirtalinna aðila fyrir
27. september næstkomandi:
íris Þorkelsdóttir, Álfaskeiði
58, 220 Hafnarfirði, sími 51738
og eftir kl. 16 í síma 35578.
Heimir G. Hansson, Víðimel
30, 107 Reykjavík, s. 619327.
Þorbjörg Jónsdóttir, 7 Rue Bel
Air, 5488 Ehnen Lúxemborg, s.
90-352-768013, fax 90-352-
769009.
artölu á við meðalstóra götu í stór-
borg úti í heimi, hefur að öllum lík-
indum ekki efni að eiga svona fræg-
an stórsöngvara. Sérstaklega, þegar
horft er til þess að gjaldþrot heim-
ila i landinu hafa aidrei verið meiri
en einmitt nú.
Á tímum fullkominna förðunar-
möguleika og tækni væri nær að
koma sér upp prótótýpu af stór-
söngvaranum og spila svo músíkina
af geisladiski rétt eins og gert var
í þætti Hemma Gunn. þegar hann
kom þar fram síðasta vetur!
Við íslendingar eigum frábæra
hæfileikamenn á heimsmælikvarða.
Mætti þar nefna ýmsa, svo sem;
Björk Guðmundsdóttir, söngkonu,
Kristin Sigmundsson, baritónsöngv-
ara, Magnús Scheving, þolfimisnill-
ing, Jón Arnar Magnússon, fijáls-
íþróttamann, Jón Baldursson, brids-
heimsmeistara, marga íslenska
skákmenn o.s.fiv. Hvað skyldu
þessir framantöldu taka fyrir að
koma fram fyrir landann og sýna
hæfileika sina? Ég hygg að þeir
flestir borgi með sér.
Það versta í þessu öllu saman er
þó dekrið og undirlægjuhátturinn
hjá „þverslaufufólkinu“ og er því
best lýst af stórsöngvaranum sjálf-
um i viðtali eftir frumsýninguna,
sem sagði að fólkið hefði byijað að
klappa áður en hann byrjaði að
syngja! Þetta minnir óneitanlega á
í gamla daga, þegar undirritaður
var að tapa viljandi í skák fyrir
yngri systkinum til þess eins, að þau
héldu áfram leiknum.
HARALDUR ÞORVALDSSON,
Hrísmóum 1, Garðabæ.
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni sem birtist í Morg-
unblaðinu og Lesbók verður
framvegis varðveitt i upplýs-
ingasafni þess. Morgunblaðið
áskilur sér rétt til að ráðstafa
efninu þaðan, hvort sem er
með endurbirtingu eða á ann-
an hátt. Þeir sem afhenda
blaðinu efni til birtingar teljast
samþykkja þetta, ef ekki fylg-
ir fyrirvari hér að lútandi.
efjhi
b r é f a b i n d i
2M kr
Þið hringið - við sendum
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS • Hátún 10c
Símar: 688476 og 688459 • Fax: 28819
Vatnsþéttir sympatex
leðurskór,
frábærir í skotveiðina og
aðra vetrar útivist.
Frábær verð.
swr
m^L E I G A n9
uTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarrniðstöðina,
_____símar 19800 óg 13072. :
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
- kjarni málsins!
VALUR ÓSKARSSON,
skólastjóri.
ísland, þessi litla eyþjóð, sem íbú-
Hefur þú búið í Lúxemborg?
byður þér góðan dag
Ljúffeng og holl blanda af úrvals dvöxtum,
ristuðu korni, hnetum og möndlum. 1
Njóttu þess d þinn hdtt
- hvenœr dagsins sem þú helst vilt. 1