Morgunblaðið - 16.10.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1994 B 9
LJONALEIKUR
Múfasa
Sensa
Skari
Rafiki
Jones og Pétur. * Broderick og Felix. Marin og Eggert. Goldberg, og Edda Heiðrún. Irons, og Jóhann. Guillaume og Þórhallur.
■ Tvær bækur haf a komið út
um Marlon Brando n' Banda-
ríkjunum í haust. Önnur er
sjálfsævisaga þar sem Brando
rekur lífshlaup sitt en bókina
kallar hann Söngvarnir sem
móðir mín kenndi mér eða
„Songs My Mother Taught
Me“. Hin er eftir Peter Manso
og heitir einfaldlega
„Brando“. Bækumar og
Brando hafa fengið mikla
umfjöllun í bandarísku press-
unni en eru báðar sagðar að
mörgu leyti gallaðar. Brando
er ekki alveg sammála fjöldan-
um um í hveiju stórvirki hans
liggur. I sjálfsævisögunni
kemur fram að honum finnist
hann hafa leikið best í mynd-
inni „Bum“!
farin ár. Sú næsta í röðinni,
„Pocahontas", gerist á indj-
ánaslóðum og verður frum-
sýnd vestra næsta sumar.
Sagðist Björn gera fastlega
ráð fyrir að hún verði einnig
sýnd með íslensku tali.„Eftir
að þeir gáfust upp á suðinu
í okkur út af Aladdín og hún
fékkst talsett kom í ljós að
hún gekk þrisvar sinnum bet-
ur en t.d. Fríða og dýrið svo
ég sé ekki annað en framhald
verði á þessu og að við förum
síðar meir út í klassíkina,"
sagði Björn og átti við Mjall-
hvíti og dvergana sjö, Gosa
og fleiri Disneygullmola.
Áætlaður kostnaður við
talsetninguna hér heima er
tvær milljónir króna en að
sögn Björns ber Disneyfyrir-
tækið allan kostnað af tal-
setningunni. Konungur ljón-
anna verður einnig sýnd hér
með ensku tali líkt og Aladd-
MKanadíski leikstjórinn Nor-
man Jewison sendir frá sér
nýja mynd í haust sem heitir
„Only You“ og er með Marisu
Tomei og Robert Downey í
aðalhlutverkum. Myndin segir
af ungri konu sem hættir með
kærastanum sínum og flýgur
til Ítalíu á vit ævintýranna.
Myndina átti að frumsýna í
sumar og heitinu á henni hefur
tvisvar verið breytt. Stjörnu-
bíó tekur hana til sýninga um
jólin.
UFrakkar eru teknir að sjá
Hollywood fyrir mesta nýmet-
inu, virðist vera. Nýjasta
þandaríska endurgerðin á
franskri mynd er „Life-
savers" sem Nora Ephron
leikstýrir með Steve Martin,
Madeiine Kahn, Juliette
Lewis og Rob Reiner í aðal-
hlutverkum. Myndin gerist á
aðfangadagskvöldi og segir
frá hópi fólks á sjálfsmorðs-
vakt en hún byggir á „Le
pére noei est une ordure".
Hverjir leika í Konungi Ijónanna?
Persónur
leikendur
Upptökum er nú lokið á íslenskri talsetningu Disney-
teiknimyndarinnar Konungi ljónanna eða „The Lion
King“ í Stúdíó 1 fyrir Sambíóin og er unnið að
lokavinnslu hennar í Danmörku undir stjórn Jul-
íus Agnarsson. Hún er aðsóknarmesta mynd
ársins i Bandaríkjunum, miðar hafa selst
á hana fyrir um 290 milljónir dollara,
og verður frumsýnd i Sambíóun-
um umjólin.
eftir
Arnald Indriðason
Alls fara 13 leikarar með
hlutverk í íslensku út-
gáfunni: Pétur Einarsson leik-
ur Múfasa, sem James Earl
Jones leikur í bandarísku út-
gáfunni, en
það er faðir-
inn sem
deyr frá
ijónaungan-
um Simba;
Simba full-
orðinn leik-
ur Felix
Bergsson en
Matthew Broderick fer með
hlutverkið í þeirri bandarísku;
Jóhann Sigurðarson leikur
óþokkann Skara, sem vill ekki
að Simbi nái völdum, en Jer-
emy Irons fer með hlutverk
hans; Eggert Þorleifsson og
Edda Heiðrún Bachmann
leika hýenumar Bansí og
Sensa, undirtyllur Skara, og
fara Cheech Marin og Whoopi
Goldberg með hlutverk þeirra
í bandarísku útgáfunni, og
Þórhallur Sigurðsson leijíur
apann Rafiki, vin Simba, hlut-
verk sem Robert Gullaume fer
með vestra. Aðrir íslenskir
leikarar í myndinni eru Þo-
valdur D. Kristjánsson, Álfr-
ún Örnólfsdóttir, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir, Karl
Ágúst Úlfsson, Sigurður Sig-
urjónsson og Helga Jónsdótt-
ir. Leikstjóri íslensku talsetn-
ingarinnar er Randver Þor-
láksson.
Aðspurður sagði Björn
Árnason, sem hefur umsjón
með talsetningunni fyrir
Sambíóin, að upptökurnar
hafí gengið mjög vel. „Þetta
var erfiðari fæðing hvað
snerti að fá samþykkta leikar-
ana hjá Disneyfyrirtækinu því
kröfurnar eru svo miklar og
þeir hafa úrslitavald. Sum
lönd eins og Japan eru allt
uppí hálft ár að fá leikarana
sína samþykkta í talsetning-
una.“ Bjöm sagði það hafa
gengið mun erfiðar fyrir sig
nú en þegar Aladdín var tal-
sett enda myndimar ólíkar
að mörgu leyti. „En þótt þeir
séu kröfuharðir er þetta besta
fólkið í bransanum, þeir taka
manni eins og maður sé einn
af fjölskyldunni."
Disneyteiknimyndir hafa
verið óhemju vinsælar undan-
KRAFTAVERK; úr nýjustu mynd Peters Greenaways, Barnið í Macon.
Greenaway og
Barnið í Macon
Háskólabíó tekur nú í
haust nýjustu mynd
breska leikstjórans Peters
Greenaways til sýninga, en
hún heitir Barnið í Macon
eða „The Baby of Maeon“.
Hyggst bíóið einnig sýna
aðra mynd leikstjórans um
sama leyti, Bækur Prospers-
ós, með John Gielgud.
Greenaway er þekktastur
hér heima fyrir myndina
Kokkinn, þjófinn, konu hans
og elskhuga hennar, sem
einnig var í Háskólabíói.
Barnið í Macon gerist fyrr á
öldum og segir af tímum
plágu og ófijósemi í borginni
Macon þar sem eins og fyrir
kraftaverk fæðist fallegt og
heilbrigt sveinbarn. En syst-
ir hans og kirkjuyfirvöld
reyna að hagnast á barninu,
borgin tekur að blómgast á
ný en af því sprettur græðgi
og spilling sem stefnir barn-
inu í voða.
Greenaway er án efa einn
sérstæðasti og umdeildasti
kvikmyndaleikstjórinn sem
starfar í dag og hér segir
hann af kraftaverkum, hálf-
kraftaverkum og næstum
því kraftaverkum á tímum
takmarkalausrar guðrækni.
að fyrsta sem íslenskir
kvikmyndagerðar-
menn gera nú orðið þegar
þeir fara af stað með bíó-
mynd er að kemba grunn-
skólana í leit að leikurum.
Þeir hafa að undanförnu
veríð sérstaklega uppteknir
af bama- og æskumyndum
en a.m.k. fjórar nýlegar
myndir og ein sem nú er í
framleiðslu setja börnin í
öndvegi.
Þetta em Svo á jörðu sem
á himni, þar sem ung stúlka
var miðpunktur sögunnar,
Hin helgu vé, þar sem lítill
gutti var skotinn í sér mun
eldri stúlku, Bíódagar, þar
sem ungur strákur upplifði
innreið nútímans í liöfuð-
borginni og gamla tímann
í sveitinni, Skýjahöllin, þar
sem stefnufastur strákur
bjargar sér með hvolpinum
vini sínum, og loks er það
Benjamín Dúfa, sem verið
erað kvíkmynda uppúr Ijúf-
sárri sögu um ævintýri
strákaklíku.
Af hveiju krakkar leika
svona stóra rullu í íslensku
kvikmyndunum núna er
hulin ráðgáta. En þeir
standa sig yfirhöfuð mjög
vel og eru sannarlega mikil-
vægur hluti af íslenskri
kvikmyndagerð þessa
stundina.
GÓÐ AÐSÓKN;
Nicholson og
Pfeiffer í ÚlFinum.
12.000 hafa
séð Úlfinn
Alls höfðu 12.000
manns séð varúlfa-
myndina Úlfinn með Jack
Nicholson í Stjömubíói
eftir síðustu helgi, að
sögn Karls 0. Schiöth bíó-
stjóra.
Þá höfðu 23.000 manns
séð Bíódaga og framtíð-
artryllirinn Flóttinn frá
Absalom byijaði ágæt-
lega um siðustu helgi að
sögn Karls, en hún er
einnig í Laugarásbíói.
Næstu myndir Stjömu-
bíós em gamanmyndin „It
Could Happen to You“
eftir Andrew Bergman,
„The Next Karate Kid“
eftir Chris Cain, þar sem
ung stúlka er komin í
hlutvcrk karatekrakkans,
og „Threesome“ með
Stephen Baldwin, Lara
Flynn Boyle og Josh
Charles.
Jólamynd Stjörnubíós
verður að líkindum „Only
You“ eftir Norman Jewi*
son.
í BÍÓ
B