Morgunblaðið - 21.10.1994, Page 2

Morgunblaðið - 21.10.1994, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ Menntamálaráðherra vill að Island sæki um aðild að ESB ÓLAFUR G. Einarsson, menntamálaráðherra, lýsti því yfir á fundi hjá Tý, félagi sjálfstæðis- manna í Kópavogi, að hann vildi að ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu. Hann sagði að aðeins með því að sækja um fengi ísland að vita hvaða skilyrði ESB setti fýrir aðild. Á fundinum, sem haldinn var til að kynna frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi, voru frambjóðendur spurðir hvort þeir væru fylgjandi aðild íslands að ESB. Ósk- að var eftir því að frambjóðendur svöruðu með jái eða neii. Ólafur sagði að útilokað væri að svara spurn- ingunni játandi eða neitandi vegna þess að ísland vissi ekki hvað því byðist í samingum við ESB. „Ef ég væri spurður hvort ég væri fylgjandi því að við sæktum um aðild, myndi ég svara því játandi. Ég er fylgjandi því að við sækjum um vegna þess að við vitum ekk- ert, að hvaða skilyrðum við yrðum að ganga fyrr en við höfum gengið í gegn um samninga- lotuna," sagði Ólafur. Aðrir mótfallnir eða varfærnir Aðrir frambjóðendur svöruðu spurningunni af varfærni eða lýstu beinlínis yfir andstöðu við aðild íslands að ESB. Sigríður Anna Þórðar- dóttir, alþingismaður, sagðist telja aðild koma til greina ef hagsmunir Islands væru tryggðir. Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður, sagðist telja aðild koma til greina ef hagsmunir ís- lands yrðu tryggðir, en benti jafnframt á að erfitt yrði að fá vitneskju um kostina nema að sækja um aðild. Árni R. Ámason, alþingis- maður, benti á að ESB biði ekkert eftir um- sókn frá íslandi, en tók jafnframt fram að ísland yrði sífellt að hafa afstöðuna til ESB til endurskoðunar. Árni Mathiesen, alþingis- maður, lýsti tortryggni gagnvart spurningunni um aðild og sagðist vilja sjá hvernig bandalag- ið þróaðist. Viktor B. Kjartansson, varaþing- maður, lýsti svipuðum viðhorfum og Árni og benti á að ESB væri að breytast. Kristján Pálsson, fyrrverandi bæjarstjóri, sagðist fylgj- andi því að leggja fram umsókn ef það væri það sem þyrfti til að fá svör um málið. Sigur- rós Þorgrímsdóttir sagðist vera fylgjandi aðild að vissu leyti, en benti á að Norðmenn hefðu gert slæman samning. Stefán Tómason, út- gerðarstjóri, sagði ekkert liggja á í þessu efni. Tryggingar borgarinnar í borgarstjórn Iðgiöld um 40 millj. árið 1993 Samið við tvö bílaleigufyrirtæki ÚTTEKT á tryggingum Reykjavikurborgar og fyrirtækja hennar kom til umræðu á fundi borgarstjórnar i gær. í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur borgarstjóra kom fram að í maí árið 1991 hafi verið samið um tryggingar við Sjóvá-Almennar án útboðs, og að iðgjöld fyrir árið 1993 hafi verið um 40 milljónir króna. Um er að ræða sameiningu trygginga fyrir borgarsjóð, Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Reykjavíkur, Reykjavikurhöfn og Borgarspítala. Fram kom að samið er við tvö bílaleigu- fyrirtæki Bílaleiguna Höld sf. og Bílaleigu Kjartans án útboðs og var kostnaður borgarinnar vegna þessa um 44 milljónir árið 1992 og rúmlega 38 milljónir árið 1993. Gagnrýndi vinnubrögð Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hóf umræðuna og gagnrýndi vinnu- brögð borgarstjóra. Á sama fundi og úttekt var samþykkt á trygging- um borgarinnar hafi komið fram að utanaðkomandi aðili væri þegar farinn að vinna að úttekt fyrir borg- arstjóra án þess að slík úttek hafi verið kynnt í borgarráði. Þessi aðili hafí snúið sér til embættismanna borgarinnar og sagst vera að vinna fyrir borgarstjóra og leitað eftir upplýsingum um tryggingar borg- arinnar. Sagði hann að samningar um tryggingar borgarinnar hafí ávallt verið kynntir í borgarráði en vildi ekki fullyrða að það hafi verið bókað. Borgarstjóri sagði að þegar hafi verið upplýst á fundi borgarráðs að enginn hafi enn verið ráðinn til að vinna úttekt á tryggingunum en ekki sé nema sjálfsagt að slík skoð- un fari fram. Minnti borgarstjóri á að ekki hafi farið fram úttekt árið 1991 þegar tryggingasamningurinn var gerður og að sá samningur hafi ekki verið kynntur í borgar- ráði. Þær upplýsingar sem veittar hafí verið séu árleg yfirlit yfir tryggingar borgarinnar frá borgar- endurskoðun, sem hveijum og ein- um sé frjálst að kynna sér. Kanna útboð á lögfræðivinnu Þá kom fram hjá borgarstjóra að verið er að kanna hvort rétt sé að bjóða út lögfræðivinnu á vegum borgarinnar. Alfreð Þorsteinsson, borgarfull- trúi R-listans, fagnaði tillögum um breytingu á rekstri borgarinnar og benti á að meðal annars þyrfti að skoða útboð á bílaleigubílum og matarinnkaupum. Morgunblaðið/Þorkell Uppsagnir hjá Freyju Suðureyri. Morgunblaðið. FISKIÐJAN Freyja á Suðureyri hef- ur sagt upp fastráðningarsamning- um 40 starfsmanna sinna þar sem fyrirtækið hefur ekki tryggt sér hrá- efni til vinnslu yfir tímabilið desem- ber fram í febrúar þegar boðað veiði- bann á krókaleyfisbáta skellur á. Fáist ekki hráefni munu starfsmenn- irnir missa vinnuna. Töluvert er síðan Sigurvon, eina skip fískiðjunnar Freyju, fór á sölu- skrá og hefur ekki haldið á veiðar á annan mánuð. Freyja hefur byggt hráefnisöflun sína á krókaleyfisbát- um, sem eru á annan tug talsins á Suðureyri, en nú er ljóst að þeir verða í veiðibanni desember, janúar og febrúar. Sveitarstjómin hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna upp- sagnar samninganna og er unnið að því að leita leiða til að útvega hrá- efni á umræddu tímabili. Morgunblaðið/Júlfus Vegfarandi fyrir bíl EKIÐ var á gangandi vegfaranda á móts við Björnsbakarí á Hringbraut rétt fyrir klukkan 19 í gær og var í fyrstu óttast að maöurinn væri alvarlega slasaöur. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að vegfarandinn var ofurölvi að sögn lögreglu og er hann talinn lítið slasaður. Ný borhola á Seltjarn- amesi BORUN nýrrar vinnsluholu á vinnslusvæði Hitaveitu Sel- tjarnarness lauk fyrr í þessum mánuði og verður borholan væntanlega tekin í notkun í byrjun næsta árs. Orkustofnun hefur annast borunina og að sögn Hrefnu Kristmannsdóttur verkefnisstjóra verður hægt að dæla upp úr holunni, sem er um 2.700 metrar að dýpt, um 30 sekúndulítrum af 110-130 gráðu heitu vatni. Borholan er viðbót við fyrri vinnsluholur á svæðinu og var ráðist í fram- kvæmdir við hana bæði vegna vaxandi byggðar og eins vegna þess að fyrri holur hafa gengið úr sér. Sjúkrahús Vestmannaeyja Stíft sótt eftir fé frá ráðuneyti ATLI Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri sjúkrahússins í Vestmannaeyjum, segir að ítrekað hafi verið leitað til heil- brigðisráðuneytisins eftir fjár- magni til að greiða starfsfólki sjúkrahússins fyrir bakvaktir í samræmi við dóm Hæstaréttar frá því í fyrra. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur starfsfólk ekki fengið umræddar greiðslur, en á fjáraukalögum er 20 milljóna króna fjárveiting vegna þessa. Atli sagði í samtali við Morg- unblaðið að eftir að dómur Hæstaréttar féll í prófmáli því sem höfðað var hefði viðkom- andi starfsmanni verið greitt samkvæmt dómnum, en þar var miðað við tímabilið frá 1. jan- úar 1986 til september 1987. Þrír starfsmenn höfðu gert kröfur um greiðslur, en einn þeirra höfðaði prófmálið. Atli sagði að starfsmenn ættu samkvæmt dómnum rétt á greiðslum fyrir bakvaktir frá 1. janúar 1986 til loka nóvem- ber 1993. Þegar hefðu verið þingfestar tvær stefnur til við- bótar vegna málsins, og enn væri von á 8 stefnum frá hjúkr- unarkonum á skurðstofu. Ekkert fjármagn til Atli sagði að sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum ætti ekkert fjármagn til að standa skil á greiðslum til starfsfólks sam- kvæmt dómi Hæstaréttar, og því hefði verið stíft sótt eftir því hjá heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu að fá fjár- magn til að greiða starfsfólkinu það sem það ætti inni, en til þessa hefði það engan árangur borið. Ríkið tók alfarið við rekstri sjúkrahússins í ársbyij- un 1991 en fram til þess hafði Vestmannaeyjabær annast reksturinn með fjárframlögum frá ríkinu. Atli sagðist því telja líklegt að ríkinu bæri að standa skil á umræddum greiðslum fyrir allt tímabilið. Samkomulag um vantraustsumræðu Hver flokkur fær kortér SAMKOMULAG hefur náðst á Alþingi um fyrirkomulag um- ræðu um vantrauststillögu á ríkisstjómina og einstaka ráð- herra. Verður umræðunni bæði útvarpað og sjónvarpað í Ríkis- útvarpinu á mánudagskvöld og hefst kl. 20.30. Hver þingflokkur fær 16 mínútna ræðutíma til umráða en Jóhanna Sigurðardóttir, sem er utan þingflokka, fær Vk mínútu. Er þetta helmingi styttri ræðutími en venja er þegar áþekkar tillögur eru á dagskrá. Geir H. Haarde þingflokks- formaður Sjálfstæðisflokks sagði að stjórnarandstaðan hefði ekki fallist á óskir um að hver ráðherra fengi tíma til að svara því vantrausti sem á hann væri borið en boðið styttri um- ræðu á móti og á það hefði verið fallist. Geir sagði stjómarflokkana hafa haldið til haga rétti sínum til að flytja einhverskonar til- lögu til frávísunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.