Morgunblaðið - 21.10.1994, Side 6

Morgunblaðið - 21.10.1994, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓB.ER 1994 MORGUNBLAÐIÐ SVORT EIMPURSKOÐUIMARSKYRSLA UM LISTAHATIÐI HAFNARFIRÐI Meðferð gagna ábótavant og fylgiskjöl ófullnægjandi í endurskoðunarskýrslu vegna listahátíðar í Hafnarfírði 1993 sem endurskoðendumir Guðmundur Fr. Sigurðsson og Guðrún T. Gísladóttir unnu fyrir bæjarráð Hafnarfjarð- ar og kynnt var í gær kemur m.a. fram að endurskoðendumir telja sér ekki unnt að gefa álit á reikningsskilum vegna hátíðarinn- ar þar sem bókhaldi, fylgiskjölum og með- ferð gagna hafí verið vemlega ábótavant. Skýrslan birtist hér að frátöldum athugasemdum við fylgiskjöl. Millifyrirsagnir eru blaðsins. FRETTIR „Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarð- ar 7. september sl. var samþykkt að láta semja rekstrarreikning og endurskoðunarskýrslu vegna Iista- hátíðar 1993. í framhaldi af því fór bæjarstjóri þess á leit við Endur- skoðun og reikningsskil hf. að vinna verkefnið. Við höfðum áður unnið að þessu máli fyrir stjórn Listahátíðar í Hafnarfirði hf. í bréfí okkar dags. 6. september sl. lögðum við til að stjórnin afhenti öll gögn tengd umræddri listahátíð aftur til bæjar- yfirvalda í Hafnarfirði til frekari ákvörðunar um framhaldið. Ástæður þessarar tillögu voru fyrst og fremst þær, að í ljós höfðu komið verulegar veilur í bókhaldi umræddrar hátíðar, vöntun á fylgi- skjölum eða þau reyndust afar ófull- komin, ábyrgð um meðferð fjár- muna var ekki á hendi félagsins, heldur bæjarins, eða m.ö.o. að Listahátíð í Hafnarfirði hf. var ekki falin ábyrgð á peningalegri meðferð hátíðarinnar, skráningu gagna né bókhaldi. Ekki hægt að henda reiður á tekjur Athugun okkar á bókhaldi hátíð- arinnar leiðir, eins og að framan greinir, í ljós að öllu skipulagi varð- andi meðferð gagna er svo ábóta- vant, að ekki er unnt að gefa álit á reikningsskilum hátíðarinnar. í því sambandi má benda meðal ann- ars á eftirfarandi: Tekjuuppgjör eru ófullkomin og ekki er hægt að henda reiður á að allar tekjur hafí skilað sér. Allar greiðslur eru greiddar með pening- um án þess að haldin sé sjóðsbók sem hægt er að styðjast við. Kvitt- anir fyrir greiðslum eru ýmist í formi reikninga, sem ekki eru árit- aðir eða samþykktir af stjóm, eða greiðslukvittana án þess að fyrir liggi reikningur eða samningar frá hlutaðeigandi aðilum. Auk þess sem framkvæmdastjóri kvittar fyrir móttöku á greiðslum til þriðja aðila. Athugun okkar á tekjuskráningu hátiðarinnar leiðir í ljós að miðað við þau tekjuuppgjör, sem liggja fyrir, þá hafí tekjurnar nánast að öllu leyti verið lagðar inn á reikning 1660. Varðandi úttektir af sama reikningi þá fara þær fram með tvennum hætti. Annars vegar tók framkvæmdastjóri greiðslur beint út af reikningi 1660 til kaupa á gjaldeyri, og hins vegar sótti hann peninga beint til gjaldkera bæjar- sjóðs. í báðum tilvikum virðist sem hann hafi ekki þurft að gera grein fyrir úttektunum. Heldur hafi hann hindrunarlaust getað gengið að þessum úttektum án nokkurra skýr- inga eða gagna. í þvi sambandi getum við upplýst, að varðandi gjaldeyriskaup var um að ræða 19 úttektir á tímabilinu apríl til ágúst 1993 samtals að fjárhæð kr. 9.207.431. 36,3 millj. tap í meðfylgjandi rekstrarreikningi vegna listahátíðar í Hafnarfirði 1993 er niðurstaða tekna kr. 18.594.700 en niðurstaða gjalda kr. 54.914.321. Mismunur tekna og gjalda er því kr. 36.319.621 sem sundurliðast þannig: Framlag til listahátíðar 1993 21.244.017 FYamlag til listahátíðar 1994 1.353.056 Kaup á skúlptúr 3.000.000 Boðsmiðar 3.903.000 Krafa á Listahátíð i Hafnarf. hf. 6.400.621 Launstm.bæjarsjóðs ' 80.853 Laun stm. bæjarsjóðs 1.216.123 Samtals 37.197.670 Óinnheimt í Visa að frádreginni þóknun er kr. 10.379, þannig að óútskýrður mismunur er kr. 867.670. Þessi mismunur byggist á því að fallist sé á að þau gjöld og tekjur sem fram koma í meðfylgj- andi rekstrarreikningi séu öll við- komandi listahátíð. En eins og fram kemur hér á eftir eru gerðar ýmsar athugasemdir við fjölmörg fylgi- skjöl. Þar sem nánast öll fjármál fóru um hendur framkvæmdastjóra verður að telja að þessi óútskýrði mismunur sé á ábyrgð hans, a.m.k. þangað til hann getur gefið viðhlít- andi skýringar. Undanfarið hefur hann skýrt mjög margt af því sem óljóst var, en varðandi framan- greindan mismun, það er kr. 867.672, hafa engar haldbærar skýringar verið lagðar fram. Miðar í plastpoka í Kjós Eins og að framan greinir fóru nánast allar tekjur gegnum tékka- reikning bæjarsjóðs nr. 1660. Bók- að er eftir innleggjum og uppgjör- um Visa og Euro. Ekki eru kassa- strimlar eða nein uppgjör með inn- leggjum. Aðgöngumiðasalan skipt- ist þannig: KÚBANSKIR listamenn tróðu upp á listahátíðinni í Hafnarfirði. Visa Euro Önnurinnlegg Heildarinnlegg kr. 3.448.170 kr. 931.680 kr. 12.377.289 kr. 16.757.139 Skv. talningablöðum á sala að vera 17.094.700. Mismunurinn mið- að við innlegg er kr. 337.561 sem framkvæmdastjóri útskýrir þannig að Hjálmar og Peter Mate hafi fengið kr. 270.000 af aðgöngumiða- sölu (staðf. af Hjálmari) en hann sjálfur líklega mismuninn. Ef borið er saman framangreint uppgjör skv. talningablöðum við uppgjör vegna aðgöngumiðasölu kemur fram mismurrur kr. 135.000. Þessi mismunur stafar af sölu á miðum íslenska dansflokksins. Á talningablaði kemur fram að miðar hafí verið seldir á mismunandi verði. 1 miði á fullu verði en ef keyptir voru fleiri miðar þá voru þeir á hálfvirði. í uppgjöri vegna aðgöngumiðasölu eru allir miðarnir taldir á fullu verði. Því virðist eiga að styðjast við lægri töluna. Skv. framanrituðu byggist tekjuskrán- ingin á innleggjum, ásamt fram komnum skýringum á mismun við talningablöð og uppgjör vegna að- göngumiðasölu. Þegar borin eru saman uppgjör skv. fylgiskjali 1 og 2 kemur í ljós að stuðst hefur verið við afrifur í öllum tilvikum nema vegna hljóm- leika RAM og N. Kennedy. Vitað er að tón- leikar RAM voru undir eftirliti yfirvalda en skýr- ing á hvers vegna afrifur af tónleikum N. Kennedy voru ekki taldar, vitum við ekki annað, en að afrifur fund- ust ekki þegar uppgjörið fór fram, en fyrir fáeinum dögum afhenti Sverrir Ólafsson okkur plastpoka (sem fylgir hér með) með þessum afrifum, sem hann sagðist hafa fundið á sínum tíma í mannlausu húsi í Hvammsvík í Kjós. Við höfum hvorki talið þessar afrifur né aðrar. Framkvæmdasljóri annaðist allar greiðslur Eins og að framan greinir annað- ist framkvæmdastjóri listahátíðar- innar nánast allar greiðslur vegna hátíðarinnar, en starfsmenn bæjar- sjóðs sáu um bókhald. Fram- kvæmdastjóri hafði þann háttinn á að inna allar greiðslur af hendi með peningum án þess að færa sjóðbók. Þetta veldur því að ekki er hægt að bera saman úttekir úr bæjar- sjóði við einstakar greiðslur. Jafn- framt lét hann hvorki yfírvöld bæj- arins né stjórn listahátíðar árita reikninga eða samninga, hvorki fyr- ir eða eftir greiðslu. Af því leiðir að ábyrgðir og eftirlit með einstök- um greiðslum fara ekki um hendur bæjaiyfirvalda né stjórn listahátíð- ar. Við höfum yfirfarið alla fyrir- liggjandi reikninga, kvittanir og samninga og höfum fengið staðfest- ingar, munnlegar og skriflegar, fyr- ir þeim greiðslum sem voru óljósar. Þó að fyrir liggi staðfestingar á mótteknum greiðslum staðfestir það ekki að viðkomandi greiðslur hafi átt rétt á sér og tilheyri í raun listahátíð. Þá er átt við að í vinnu okkar með stjórn listahátíðar komu ítrekað fram hjá stjóminni efa- semdir um að einstakar greiðslur, einkum greiðslur til TKO, hafi ver- ið í samræmi við gerða samninga. Veflur í bók- haldi, vöntun á fylgiskjölum Við teljum því afar brýnt að stjóm og framkvæmdaaðilum listahátíð- arinnar verði falið að ganga úr skugga um réttmæti þessara ásak- ana. Eins og fram kemur í athuga- semdum varðandi einstök fylgiskjöl hér á eftir eru fjölmörg fylgiskjöl þess eðlis að þau þarfnast nánari skoðunar með þessum aðilum. Við getum t.d. bent á lokafærslu nr. 17 sem barst okkur í hendur fyrir fáeinum dögum þar sem fram- kvæmdastjóri listahátíðar og fram- kvæmdastjóri TKO staðfesta greiðslu til RAM upp á kr. 630.000 þar sem þeir fullyrða að RAM hafi verið afhent þessi fjárhæð að lokn- um tónleikum þeirra og fáeinum klukkustundum fyrir brottför þeirra af landinu. Okkar athug- un leiðir í ljós að um- rædda greiðslu hafi ein- göngu verið hægt að inna af hendi í ísl. krónum og okkur þykir vafasamt að RAM hafí móttekið ís- lenska peninga til að fara með úr landi. I þessu sambandi styðjast þeir við gerðan samning við RAM sem ekki er staðfestur af stjóm listahátíðar og áður hefur komið fram hjá okkur að stjórn listahátíð- ar hafi verið með öllu ókunnugt um gerð þessa samnings. Þrátt fyrir að þetta atriði sé sérstaklega nefnt vekjum við enn á ný athygli á öðr- um athugasemdum varðandi ein- stök fylgiskjöl hér á eftir. Þá viljum við benda á að fram taldar greislur innlendra aðila vegna ársins 1993 námu kr. 8.142.360 en við teljum að þær gætu numið kr. 15.983.391. Sund- urliðun á mismuninum, kr. 7.841.031, fylgir hjálagt með ...“ (aths. Mbl: Hér eru felldar út at- hugasemdir við einstök fylgiskjöl og tilvitanir hér að ofan í fylgiskjöl- in hafa einnig verið felld niður, en lokaorð skýrslunnar eru eftirfar- andi:) Stjórnendur yfirfari niðurstöðu „Við teljum okkur í hjálögðum rekstrarreikningi og með skírskot- um í það sem hér að framan grein- ir hafa sýnt fram á hvernig tekjum og framlögum frá bæjarsjóði og ríki hafi verið ráðstafað. Við viljum þó enn á ný undirstrika að vegna allra þeirra ágalla sem taldir hafa verið fram getum við ekki gefíð neitt álit á réttmæti þessara gjalda. Þess vegna viljum við ítreka að stjórn Iistahátíðar og aðrir þeir sem að listahátíðinni stóðu verði fengnir til að yfirfara þessa niðurstöðu. Jafnframt erum við reiðubúin til frekari aðstoðar ef þess verður ósk- að.“ Forfalla- þjónusta aflögð Landbúnaðarráðherra hefur lagt fram lagafrumvarp á Al- þingi um að forfallaþjónusta í sveitum verði lögð niður. Er þetta í samræmi við nið- urstöðu nefndar sem í sátu full- trúar Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda auk fulltrúa ráðherra og skilaði áliti í sumar. Forfalla- og afleysingaþjón- usta í sveitum hefur starfað frá 1979 en framlag ríkisins til starfseminnar hefur verið fellt niður um nokkurt skeið og þjónustan eingöngu fjármögn- uð með hluta af Búnaðarmála- sjóðsgjaldi. Einstök búgreina- félög hafa getað sagt sig frá forfallaþjónustunni og hafa öll félögin gert það nema félög sauðfjárbænda og loðdýra- bænda. Lög um tílrauna- stöð afnumin Landbúnaðarráðherra hefur einnig lagt fram lagafrumvarp um að afnema lög um tilrauna- stöð í jarðrækt á Reykhólum í A-Barðastrandarsýslu. Stöðin var stofnuð 1944 og stóð fyrir umfangsmiklum tilraunum um árabil en á níunda áratugnum dró stórlega úr starfseminni vegna minnkandi fjárveitinga ár frá ári. Árið 1990 var rekstri tilraunastöðvarinnar hætt og keypti Reykhólahreppur land og aðrar eignir stöðvarinnar. Bók páfans væntanleg í verslanir BÓK Jóhannesar Páls páfa II., Yfir þröskuld vonarinnar, er væntanleg í verslanir hér á landi á næstunni, en bókin kom á markað víða erlendis í gær í milljónaupplögum. Hjá Máli og menningu feng- ust þær upplýsingar að fyrsta pöntun bókar páfa gæti hugs- anlega verið komin í verslunina um miðja næstu viku, en hjá Eymundsson koma fyrstu ein- tökin í byijun næsta mánaðar. í báðum tilvikum er um breska útgáfu bókarinnar að ræða. Bókin var gefin út á 21 tungu- máli í gær og að sögn Þórðar Sturlusonar hjá Eymundsson eru allar líkur taldar á því að bókin verði þýdd á íslensku. Borgarstjóri Viðtalstím- um fækkað VIÐTALSTÍMUM borgarstjór- ans í Reykjavík hefur verið fækkað úr tveimur í einn á viku. „Ég hef ekki fækkað viðtals- tímum en ég hef fækkað form- legum opnum viðtalstímum,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir. „Eg er með viðtalstíma á miðvikudagsmorgnun milli klukkan 10 og 12. Síðan leggur fólk inn pantanir um viðtals- tíma sem er þá dreift á vikuna. Það er þá ekki síst fyrir hönd félagasamtaka, stofnana og fyriitækja." Kristín Árnadóttir, aðstoðar- kona borgarstjóra, er einnig með viðtalstíma á miðvikudög- uni á sama tíma og borgar- stjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.