Morgunblaðið - 21.10.1994, Page 24

Morgunblaðið - 21.10.1994, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 25 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDL Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FÆKKUN í FJÁR- MÁLARÁÐUNEYTI * AKVORÐUN breska fjármálaráðuneytisins um fækkun starfsmanna um allt að þriðjung hefur að vonum vakið athygli og gæti orðið, ekki einungis öðrum breskum ráðuneytum, heldur einnig íslenskum stjórnvöldum vegvís- ir að breyttri og bættri stjórnsýslu. Það er til fyrirmyndar hvernig fjármálaráðherra Breta, Kenneth Clarke, hefur staðið að undirbúningi einhverrar umfangsmestu upp- stokkunar breskrar stjórnsýslu hingað til. Raunar ber ákvörðun fjármálaráðherrans vitni um að hann búi yfir umtalsverðum pólitískum kjarki, sem honum mun væntan- lega ekki veita af, þegar litið er til þeirra sterku við- bragða sem ákvörðun hans hefur vakið í Bretlandi. í Morgunblaðinu í gær, var greint frá því að æðsti embættismaður breska fjármálaráðuneytisins, hefði í fyrradag gert þá ákvörðun opinbera, að um þriðjungur æðstu embættismanna fjármálaráðuneytisins léti af störf- um. Hann skýrði tilgang uppsagna embættismannanna á þann veg, að auka ætti framleiðni og draga úr kostnaði við rekstur ráðuneytisins. Búist er við því að umtalsverð fækkun verði í hópi annarra starfsmanna breska fjármála- ráðuneytisins í kjölfar þessa. Svo virðist sem fjármálaráðherra Breta gangi hér á undan öðrum ráðherrum bresku ríkisstjórnarinnar, með góðu fordæmi, sem þó getur reynst bæði erfitt og sárs- aukafullt í framkvæmd. Með sanni má segja, að þannig eigi það að vera, því meginþungi ábyrgðar ríkisfjármála, hvílir á herðum fjármálaráðherra. Kenneth Clarke fékk fyrrum aðstoðarmann sinn til þess að vinna fyrir sig ítarlega úttekt á rekstri ráðuneytis- ins, sem breskir fjölmiðlar segja að ráðherrann hafi byggt ákvarðanir sínar á. Mesta athygli hlýtur sú niðurstaða úttektarinnar að vekja, að um helmingur starfsmanna breska fjármálaráðuneytisins vinnur ýmis hliðarstörf, ótengd raunverulegri starfsemi ráðuneytisins. Hvernig skyldi málum vera háttað í stjórnsýslunni hér á landi? Hve stórt hlutfall opinberra starfsmanna vinnur hliðarstörf, ótengd störfum ráðuneytis eða ríkisstofnunar sem unnið er hjá? Er ekki tímabært, nú í kjölfar mikillar umræðu um ferðakostnað hins opinbera, embættisfærslur ráðherra, meðferð opinberra fjármuna og þóknanir til embættismanna, m.a. fyrir margvíslega störf í nefndum, ráðum og stjórnum, að allsheijar úttekt óháðra aðila á skipulagi og starfsreglum stjórnsýslunnar fari fram? Er ekki nauðsynlegt að byggja á slíkum upplýsingum, þegar ráðist verður í löngu tímabæran uppskurð alls ríkiskerfis- ins? Eins og vænta mátti, hafa uppsagnirnar valdið uppnámi í breska fjármálaráðuneytinu og reiði embættismanna, sem telja að uppsagnirnar séu ákveðnar af ráðherranum til þess að setja öðrum ráðuneytum og ríkisstofnunum for- dæmi. Væntanlega er töluvert til í því, en engu að síður verð- ur það að teljast fjármálaráðherra Breta til tekna að hefja niðurskurð og sparnað í eigin ráðuneyti. Samkvæmt frammistöðu breska fjármálaráðuneytisins á undanförnum árum, sem ekki hefur þótt sérlega lofsverð, er áreiðanlega tímabært að stokka þar upp. Rekstrarkostnaður bresku stjórnsýslunnar í heild, er um fimmtán milljarðar sterlings- punda á ári, en rekstrarkostnaður breska fjármálaráðu- neytisins nemur einungis um 67 milljónum punda. Því er ljóst að sparnaður af þessum ákvörðunum ráðherrans verður ekki umtalsverður, þegar litið er á heildarkostnað- inn, en auknar líkur eru á, að ráðherranum takist í kjölfar- ið, að hrinda öðrum og viðameiri sparnaðar- og uppstokk- unaráformum í framkvæmd og það skiptir höfuðmáli. íslensk stjórnvöld geta áreiðanlega dregið ákveðinn lærdóm af ákvörðun breska fjármálaráðherrans. Hér skal ekkert um það fullyrt, hvort ráðuneyti og ríkisstofnanir geti fækkað starfsfólki sínu til muna. Bandalag starfs- manna ríkis og bæja er vafalaust þeirrar skoðunar, að svo sé ekki. Hinu má ekki gleyma, að vöxtur og umfang hins opinbera hefur í mörg ár verið langt umfram vöxt atvinnulífsins og einkageirans. Slík þróun er öfugþróun og stjórnvöldum ber skylda til þess að gera það sem í þeirra valdi stendur til þess að snúa þróuninni við. Auðvit- að er ákjósanlegast að gera slíkt í samvinnu og sam- starfi við opinbera starfsmenn, en líklegra þó, að slíkum breytingum verði ekki hrint í framkvæmd, án átaka. VEGAGERÐ 93 milljóna króna fjárveiting er á vegaáætlun til Hlíðarvegar á kaflan- um Torfastaðir-Hellisheiði-Dalland. Samkvæmt skýrslunni kosta þær aðgerðir sem taldar eru nauðsynleg- ar á Hlíðarvegi frá Jökulsá að Norð- Hellis- og er jafnlendið á þeirri leið talið mikils virði vegna þess að þar mun snjór viðráðanlegur. Möðrudalur yrði um 8 km frá alfaraleið. Kostn- aður er áætlaður 210 milljónir. Frá Kollseyru um Háreksstaði að Ármótaseli þyrfti algera nýbyggingu því þar er enginn vegur. I skýrsl- unni segir að snjór sé þar að mestu jafnfallinn en mældist í apríl sl. ívið dýpri en við núverandi veg. Kostnaður áætlaður 310 milljónir. Talað er um nýjan veg frá Grímsstöðum um Grímsstaðadal eystri að Kollseyru. Hér er um að ræða leið sem er sambærileg að lengd og bæði Langadalsleið og núverandi vegur. Annmarkar eru þónokkrir, svo sem sá að fara þarf yfir Skenkfellshrygg, fremur ójafn- lent er um Einbúasand og Gríms- staðadalur eystri er fremur þröngur og líklega snjóþungur. Áætlaður kostnaður er 470 milljónir. Nýr vegur um Reykjaheiði frá Laxamýri að vegamótum Uppsveit- arvegar yrði mun styttri en út fyrir Tjörnes. Kostnaður við þennan veg er áætlaður 620 milljónir. Að lokum er talað um nýjan veg yfir Öxarfjarðarheiði frá Klifshaga að Sválbarði. Gera þarf nýjan veg alla leið. Núverandi slóð yrði fylgt austur undir Helgafell en síðan farið um Einarsskarð að Svalbarði. Þessi vegur yrði nær 80 km styttri en þegar farið er út fyrir Melrakka- sléttu. Kostnaður er áætlaður 460 milljónir. Frá 266 til 472 km I skýrslunni er tafla yfir vega- lengdir milli Akureyrar og Egils- staða, Akureyrar og Vopnafjarðar og Akureyrar og Þórshafnar eftir því hvaða leiðir eru valdar. Um vegalengdina milli Akureyrar og Egilsstaða þegar leiðin um Fjöll- in og Jökuldal er valin segir að eft- ir núverandi vegi nema um nýjan veg frá Péturskirkju að Jökulsárbrú að Grímsstöðum yrði leiðin 267 km (kort 1). Styst yrði hún eftir núver- andi vegi nema um nýjan veg frá Péturskirkju að Jökulsárbrú, Gríms- staðadal eystri og Háreksstaði að Ármótaseli, 266 km (kort 2). Um Fjöllin, Vopnafjörð og Hlíðar- §öll er leiðin milli Akureyrar og Egilsstaða 322 km. Sú leið eftir núverandi vegi nema um nýja vegi frá Péturskirkju um Jökulsárbrú að Grímsstöðum og frá vegamótum Norðausturvegar um Langadal, breyttan veg frá Kollseyru um Hofs- árdal að vegamótum Hlíðarvegar og ný jarðgöng undir Hlíðarfjöll yrði 310 km (kort 3/4). Fjórum nýjum möguleikum er stillt upp um vegalengdir milli Akureyrar og Egilsstaða um strandbyggðir. Eftir núverandi vegi er leiðin 472 km. Eftir núverandi vegi nema um nýjan veg um Reykjaheiði 449 km, um nýjan veg um Óxarfjarðarheiði 394 km, um ný jarðgöng undir Hlíð- arijöll 464 km og eftir núverandi vegi nema um nýja vegi um Reykja- heiði og Öxaríjarðarheiði og ný jarð- göng undir Hlíðarfjöll 363 km. Akureyri - Vopnafjörður Leiðin frá Akureyri til Vopna- fjarðar um Fjöllin eftir núverandi vegi er 237 km. Eftir núverandi vegi um Fjöllin nema um nýja vegi frá Péturskirkju um Jökulsárbrú að Grímsstöðum og frá vegamótum Norðausturvegar um Langadal og breyttan veg frá Kollseyru um Hofs- árdal að vegamótum Hlíðarvegar 233 km (kort 3/4). Um strand- byggðir er leiðin eftir núverandi vegi 379 km. Um strandbyggðir eftir núverandi vegi nema um nýja vegi um Reykjaheiði og Öxarfjarðar- heiði 278 km (kort 5). Akureyri - Þórshöfn Leiðin milli Akureyrar og Þórs- hafnar um strandbyggðir er 310 km eftir núverandi vegi. Eftir núverandi vegi nema um nýja vegi um Reykja- heiði og Öxarfjarðarheiði yrði hún 209 km. Þjóðvegir á Norðausturlandi og hugmyndir að nýjum eða endurbyggðum vegum Hringvegur Aðrir þjóðvegir Nýr eða endur- gerður vegur Raufarhöfn Melrakka- slétta austurvegi um Torfastaði, heiði og Dalland 620 milljónir króna. Um Hlíðarveg segir í skýrslunni: „Kostnaður við veginn yfir Hellis- heiði er í samræmi við ákvörðun, sem tekin var 1991, að byggður yrði sumarvegur á þeirri leið. Er þar um að ræða malar- veg, öllu mjórri og brattari en venja er og óhæfan til umferðar að vetrarlagi. Að öðru leyti vantar lagfæringar, styrkingu og slitlag." Um jarðgöng milli Torfastáða og Dallands segir: „Til þess að gera leiðina frá Vopnafírði yfir í Jökulsár- hlíð sambærilega öðrum leiðum, sem hér eru til umfjöllunar, þarf að gera göng undir Hlíðarfjöll. Kostnaður við þessa lausn er áætlaður um 2,6 milljarðar króna og er af annarri stærðargráðu en áætlaður kostnað- ur við aðra áfanga.“ Með jarð- göngum yrði leiðin þarna á milli 14 km löng. Aðrir nýir vegir Sjö nýjum vegarköflum er lýst í skýrslunni fyrir utan jarðgöng undir Hlíðarjgöll. Um nýjan veg frá Péturskirkju að Möðrudal um Jökulsá við Lamba- fell segir að leiðin sé á jafnlendi og hún sé dýrari en vegur um núver- andi brú og muni þar aðallega kostn- aði við nýja brú á Jökulsá. Hér er gert ráð fyrir um tveggja km stytt- ingu ef farið er áfram austur á Fjall- garða en lengingu um u.þ.b. 6 km ef farið yrði í Langadal. Talið er að hægt sé að gera leiðina um Grims- staði, Víðidal og Vegaskarð sam- bærilega hvað varðar vetrarfærð. Kostnaður við þessa leið er áætlaður 680 milljónir króna. Um nýjan veg frá Péturskirkju Kópasker Oxarjörður Svafcarb Þórshöfn V lornes Grímsstaðir og Möðrudal ur yrðu utan alfaraleiðar Bakkafjör&ur Húsavík Heljardals- fjiill Þeystareykja- bunga Vopnafjöröur Hellisheiði rorfasta&ir Grimssta&ir k Einbúa- !*sk sandur r ReykjahliÖ J ^Ý^fsiíi&ja Borgarfjör&ur Akureyri •Mö&rudalur Moðrudals- örsefi iey&isfjörbur Akureyn - Egilssta 266 eða 472 km? Fjölmargir möguleikar hafa verið skoðaðir í Raufarhöfn tengingu Norður- og Austurlands en ekki hefur verið ákveðið hver þeirra verður ofan á þegar farið verður að framkvæma. Gréta og þeim er lýst í áfangaskýrslu Vegagerðar ríkisins sem kom út í maí Leiðin um Fjöllin, Vopnafjörð og Hlíðarfjöll hefur þann kost umfram fyrrnefnda leið að Vopnafjörður er vel tengdur Norður- og Austurlandi en fjarlægðin á milli Akureyrar og Egilsstaða er mun lengri og ekki sambærileg að gæðum nema jarð- göng verði gerð undir Hlíðarfjöll. Leiðin um strandbyggðir hefur þá kosti að hún liggur víðast á láglendi og tengir Norðausturbyggðina inn- byrðis við hinar tvær, Eyþing og Miðausturland. Gallarnir eru hvað leiðin er löng og dýr. Leiðin er nú 472 km á milli Egilsstaða og Akur- eyrar þegar farin er Hellisheiði fyrir Melrakkasléttu og Tjörnes. Hún er 200 km lengri en leiðin yfír Fjöllin. Með því að fara yfir Oxarfjarðar- og Reykjaheiði í stað þess að fara fyrir Melrakkasléttu og Tjörnes get- ur leiðin styst um eina 100 km. Líta þarf til annarra þátta en arðsemi í skýrslunni segir að samkvæmt hefðbundnum arðsemisútreikning- um Vegagerðarinnar sé umferðin t.d. á Fjöllunum of lítil til þess að hægt sé að fá arðsemi af svo dýrum vegabótum sem nauðsynlegar séu. Því verði að líta til annarra þátta til þess að réttlæta dýrar vegabæt- ur, eins og t.d. byggðamála. Vegaáætlun fyrir 1994-1996 gerir ráð fyrir 89 milljónum króna Raufarhöfn Vopnafjörbur .Vopnafjöröur NEFND sem vegamála- stjóri skipaði í ársbyijun 1993 til þess að skoða og bera saman hugsan- lega kosti í tengingu Norðurlands, Norðausturlands og Austurlands skilaði áfangaskýrslu í maí sl. Þar er þremur leiðum lýst og er um fleiri en einn möguleika á hverri þeirra að ræða. Möguleikarnir eru skoðað- ir út frá vegabótum vissra kafla núverandi vega, nýjum vegum og jafnvel jarðgöngum. Leiðirnar þrjár Leiðirnar þijár sem lýst er í skýrslunni eru um Fjöllin og Jökul- dal í fyrsta lagi, um Fjöllin, Vopna- fjörð og Hlíðarfjöll í öðru lagi og um strandbyggðir í þriðja lagi. Leiðin um Fjöllin og Jökuldal er sú stysta á milli Eyþings og Miðaust- urlands og er núverandi vegur milli Akureyrar og Egilsstaða 271 km. ;ureyrK\ ipnafjörbur, 233 ki jörbur, 2 igilssta&ir, 310 km að Grímsstöðum um Jökulsárbrú segir að um sé að ræða nýbyggingu frá Jökulsárbrú austur að Gríms- stöðum mun sunnar en nú er. Stytt- ing verði um 4 Tcm en Grímsstaðir verði um 4 km frá alfaraleið. Kostn- aður er áætlaðúr 170 milljónir. Talað er um nýjan veg frá vega- mótum Norðausturvegar um Langa- dal að Kollseyru. Núverandi vegi yrði breytt smávegis við núverandi vegamót Austurlandsvegar og við Svartfell. Að öðru leyti yrði um styrkingu að ræða að Langadals- vörðu en þaðan nýbyggingu. Langi- dalur er skarð í gegnum fjallgarðinn til endurbóta á Norðurlandsvegi á kaflanum frá Krossi að Kísiliðju. Endurbygging kaflans á Fljótsheiði, Laxárheiði og í Mývatnssveit kostar hins vegar skv. skýrslunni 445 millj- ónir króna á verðlagi í byijun þessa árs. Gert er ráð fyrir 193 milljónum króna til vegarkaflans milli Kísiliðju og Péturskirkju. í skýrslunni segir að slitlag vanti á kaflann milli Kísil- iðju og Dettifossvegar og endur- byggingu þaðan. Kostnaðurinn við þær framkvæmdir sé 220 milljónir króna. Fjárveiting samkvæmt vega- áætlun er talin nægja til þess að ljúka veginum austur fyrir Dettifoss- veg. Til Austurlandsvegar á kaflanum frá vegamótum Hljðarvegar til Eg- ilsstaða eru veittar 170 milljónir króna. Samkvæmt skýrslunni kostar hins vegar ný brú og vegur um Jök- ulsá á Dal og nýbygging frá Ærlæk að Urriðavatni 540 millj. 62 milljónir eru ætlaðar til Norð- austurvegar frá Svalbarði i Þistil- firði til vegamóta Hlíðarvegar. Tíu sinnum hærri fjárhæð er talið að þurfi til nýbyggingar á Brekknaheiði og víðar, sem aðallega felst í styrk- ingu og lagningu slitlags. AF INNLENDUM VETTVANGI Stórfelld aðstoð RIKI í suðurhluta Evrópu óttast mjög að pólitískur og efnahagsleg- ur óstöðugleiki í Norður-Afríku geti leitt til flóðbylgju flóttamanna. Hér má sjá leiðtoga heittrúaðra múslima í Alsír ganga um götur. Framkvæmdastjóm ESB veitir fjármagni til ríkja við sunnanvert Miðjarðarhaf tíl að koma á stöðugleika . Ríkin í suðurhluta Evrópusambandsins óttast stórfelldan flóttamannastraum frá arabaríkj- unum í suðri vegna hins pólitíska óstöðugleika og slæma efnahagsástands. Framkvæmda- stjóm Evrópusambandsins hefur því ákveðið að veita miklu fjármagni til þróunarverkefna í þessum ríkjum fram að aldamótum. RAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins til- kynnti á miðvikudag að hún fyrirhugaði að veita ríkjum Norður-Afríku og Mið-Austurlanda stórfellda ljárhagsaðstoð. Alls er ætl- unin að veita andvirði rúmlega 450 milljarða íslenskra króna til þróunar- verkefna í ríkjunum við sunnanvert Miðjarðarhaf. Þessi ákvörðun framkvæmda- stjórnarinnar er talin stangast nokk- uð á við þau áform Þjóðverja að að- stoða ríkin í austurhluta Evrópu sem mest þannig að þau geti fengið aðild að Evrópusambandinu fyrir aldamót. Aðrar ESB-þjóðir, ekki síst Frakkar og Spánveijar, hafa haft uppi efa- semdir um þá stefnu og telja Þjóð- vetja fara of geyst í að fá þessi ríki inn í sambandið. Óttast þau að með því myndi draga úr vægi þeirra sjálfra innan ESB og hin pólitíska þungam- iðja færast austur á bóginn. Að auki hafa jafnt Frakkar sem Spánveijar ékki minni áhyggjur af ástandinu í þeirra næstu nági’anna- ríkjum, hinum megin við Miðjarðar- hafið, s.s. Marokkó, Túnis og Alsír, heldur en efnahagsástandinu í Mið- og Austur-Evrópu. Þær áhyggjur eru ekki ástæðulausar. íbúar þeirra Mið- jarðarhafsríkja, sem standa utan Evr- ópusambandsins, eru 400 milljónir og ef efnahagur þeirra hrynur má búast við gífurlegum flóttamanna- straumi norður á bóginn. Flestir flóttamannanna myndu fara til Frakklands eða Spánar. Það ætti því ekki að koma á óvart að það var fulltrúi Spánar í fram- kvæmdastjórninni, Manuel Marin, sem fer þar með málefni Miðjarðarhafsins, sem lagði fram tillöguna um efnahags- _ aðstoð, sem samþykkt var á miðviku- dag. Samkvæmt henni á þetta fé, rúmlega 450 milljarðar, að renna til þróunarverkefna fram að aldamótum. 600 milljarðar til A-Evrópu Tíl samanburðar má geta þess að til áþekkrar aðstoðar við Austur-Evr- ópu hefur verið ákveðið að veita tæp- lega 600 milljarða króna. Nákvæm- lega hvernig fénu verður varið verður þó ekki ákveðið fyrr en á leiðtoga- fundi ESB í desember. FYamkvæmdastjórnin tók einnig fram að Miðjarðarhafsríkin, Mar- okkó, Túnis, Alsír, Líbýa, Egypta- land, fsrael, Sýrland og Líbanon ættu að hefja undirbúning að gerð sam- starfssamninga við ESB, sem í fram- tíðinni myndu þróast í fríverslunar- samninga. Framkvæmdastjómin tók þó fram að með þessu væri ekki ver- ið að gefa í skyn að ríkin ættu kost á ESB-aðild í framtíðinni. Samstarf við S-Ameríku Þá lagði framkvæmdastjórnin til að ESB og Miðjarðarhafsríkin héldu sameiginlega ráðstefnu um öryggis- og stjórnmál. Engin nánari útfærsla liggur þó fyrir á þeirri hugmynd og endanleg ákvörðun urn slíkt yrði tek- in af ráðamönnum aðildarríkjanna. Loks ákvað framkvæmdastjórnin á miðvikudag að hefja viðræður við Mercosur-ríkin en Mercosur er hið sameiginlega efnahagssvæði Argent- ínu, Brasilíu, Paraguay og Uruguay. Er þetta talið til marks um að Suður- Evrópuríkin vilji nú auka vægi sitt og áhrif gagnvart Þýskalandi í franw kvæmdastjórninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.