Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ÞaÍ>ersa6i;/K)efX ÉGHELD'AFKAM A9. &TÚ6A pUrrANA,f4 /£&>/ þEIZ B06NJfZ V------ ---------J TEWKE/NftVE&' ytXAeséÐ jjjon \MEE> TAUN - o SPENQNH? Grettir Tommi og Jenni Ferdinand feiFmík. Smáfólk A LETTER! I SOT A LETTER FROM MVPENPAL IN 5C0TLANP! ' PEAR CMARLIE, JIJ5T BEEN TO THE 5H0P5..MA MAW'S IN BEP UIITHA 50RE HEIP ANPMA PA’5 MAKIN MINCE ANDTATTIE5 FORTHE DINNER ..LOVE, M0RA6 " r.v 5HE P0E5 PRATTLE 0N,P0E5N'T, 5HE? írfiflV kéAÍi Sendibréf! Ég fékk bréf frá pennavin- „Kæri Kalli, ég var að koma úr búðum ... mamma mín er konu minni í Skotlandi! í rúminu með kvef og pabbi minn er að malla kvöldmat- inn. Astakveðja, Manga.“ Sú kann að blaðra, ekki satt? BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 „ÞAÐ er Háskólanum nefnilega lífsnauðsyn að einhver fari í þrot samfara hægu andláti hans, byggðarlag leggist í eyði eða afurðalánadeild eigi bágt.“ Það sem Háskólann skortir er ærlegt slys Frá Degi B. Eggertssyni: Háskóli íslands er yfirmáta ófull- komið ríkisfyrirtæki. Það vantar allan hasar, boðaföll og brot. Há- skólinn er ekki á hausnum. Þess vegna er hann líka svo lágt metinn til króna og aura. Að líta eftir af- komu Háskólans er víst álíka spennandi og að fylgjast með sama skipsstrandi í sex ár. Það eru engin tíðindi þó skip sé komið á hliðina ef það hef- ur legið í sex ár á sama skeri? Háskólann vantar ekki enn eina skipsskaðafréttina af af- komu sinni. Nei, það sem Háskól- ann vantar er ærlegt slys. Háskólann á afurðalán Ef til vill dygði Háskólanum ekki einu sinni slys. Háskóli íslands þyrfti helst að eiga veð í banka, skulda eitthvað. Það er Háskólanum nefnilega lífsnauðsyn að einhver fari í þrot samfara hægu andláti hans, byggðarlag leggist í eyði eða afurðalánadeild eigi bágt. Þannig yrði til þrýstihópur fyrir hag Há- skólans sem stæði á traustari grunni en óljósar tilvísanir í framtíð þjóðarinnar, nýsköpun og þekkingu. Það sem Háskólann vantar er ávís- un á skammtímahagnað fyrir suma en ekki langtímasjónarmið til al- mannaheilla. Því þannig virka hlut- irnir bara ekki. Hungur er hungur, slys er slys Háskólann vantar 300 milljónir til að standast lágmarkskröfur. Fjárveitingar til kennslu við HÍ eru 75% af því sem álitin eru hungur- mörk háskóla í Vestur-Evrópu. En slíkt er ekki álitið slys. Lekinn í Vestfjarðagöngunum er slys. Hann kostar ríkissjóð einmitt jafrjmikið fé og þyrfti til að rétta Háskólann við á næsta ári. Umframkostnaður við Árbæjarlaugina nær sömu hæð- um, Flugstöðin auðveldlega og Perl- an hefði tryggt eðal-Háskóla í tíu ár. En þetta voru allt slys og ekk- ert við þeim að gera. Það er bara að bíta á jaxlinn og böiva í hljóði. Um Háskólann gegnir allt öðru máli. Skynsamlegt rugl Háskólinn er nefnilega svo skelfilega skynsamleg fjárfesting. Enda eru fjárveitingar til HÍ iðu- lega teknar til skynsamlegrar at- hugunar. Allir eru sammála um gildi Háskólans og allir eru sam- mála um að efla hann og styrkja og allir eru sammála að hækka ekki til hans íjárveitingar. Er ekki röksemdafærslan einhvern veginn þannig að Háskólinn kostar fé en þjóðin þarf að spara. Og skorið er við nögl. Þannig er á Alþingi að öll mál fá þá meðferð sem þeim ber. Eins og sumir vita eru skynsamlegar fjárfestingar afgreiddar af stakri skynsemi og ráðdeild, sem gjarnan leiðir til sparnaðar. Framlög til menntamála eru skorin við trog. Og eins og allir vita eru óráðleg útgjöld hins vegar afgreidd með óráði og ótvíræðu samþykki. Jarð- gögn eru gerð undir höf og gegnum ljöll, enda mun bein lína vera stysta leiðin milli tveggja punkta. Þungt vega þau rök. DAGUR B. EGGERTSSON, formaður Stúdentaráðs HÍ. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.