Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Arni Sigfússon, fyrrverandi formaður Sjúkrastofnana í Reykjavík Spamaður var markmið- ið með breyttum kjörum Morgunblaðið/Kristinn Sjúkraliðar lokuðu hliðinu á Tunguhálsi Minni yfirvinna gerði meira en vega upp launahækkun ÁRNI Sigfússon, fyrrverandi for- maður stjórnar Sjúkrastofnana í Reykjavík, segir að markmiðið með breytingum á kjðrum hjúkr- unarfræðinga á Borgarspítala árið 1992 hafi 'verið sparnaður og það hafi gengið eftir. Þess hafi verið freistað að fá hjúkrun- arfræðinga í hlutastöðum í fullt starf og ná niður kostnaði af yfir- vinnu með því móti og niðurskurð- ur yfirvinnu hafi gert meira en vega upp kostnað vegna launa- hækkunarinnar. Árni sagði að mjög mikið hefði verið um að hjúkrunarfræðingar hefðu verið í hlutastörfum á Borg- arspítalanum og vegna þess mikla álags sem var á spítalanum hefði þurft að vinna mikla yfirvinnu. Það hefði verið einfalt reiknings- dæmi að með því að umbuna þeim sérstaklega sem færu í fullt starf væri hægt að ná niður rekstrar- kostaaði og það hafi orðið raunin. Árni sagðist ekki muna hvort það hefði verið tekin formleg af- staða til þessa máls í stjórn spítal- ans, en tillögur framkvæmda- stjómar í þessum efnum hefðu hljómað mjög skynsamlega og þetta hefði verið skynsamleg ákvörðun. Þetta kæmi kjarasamn- ingum hjúkrunarfræðinga ekkert við, þótt reyndar hafí komið fram ábending frá Landsspítalanum á þessum tíma um að þeir gætu ekki farið þessa leið, þar sem þar væru flestir hjúkrunarfræðingar í heilum stöðugildum. Það hefði hins vegar verið ótækt fyrir Borg- arspítalann að taka á sig aukið umfang á þessum tíma vegna yfir- töku bráðavakta frá Landakoti og greiða hjúkrunarfræðingum stór- í verkfallsvörslu Verkfallsverðir Sjúkraliðafé- lags íslands skoðuðu í gær í bíla sem ætluðu að hjúkrunar- lager Ríkisspítala við Tungu- háls áður en þeir hleyptu þeim I gegn um hliðið. an hluta launa sinna vegna yfir- vinnu af því þeir væru í hlutastarfi. Verður að sinna ákveðinni þjónustu Aðspurður hvort ekki hefði ver- ið hægt að ná sama árangri með öðrum hætti, eins og til dæmis að gera það að skilyrði fyrir ráðningu að ráðið væri í fullt starf, sagði Árni að um sjúkrastofnun væri að ræða sem yrði að sinna ákveðinni þjónustu. Hjúkrunarfræðingar hefðu svo sem ekkert verið of vel settir með sín laun og því hafi matið verið það að með því að hvetja til þess að fólk væri í heilum stöðugildum væri svigrúm til að umbuna hjúkrunarfræðingum með þessum hætti, þannig að spítalinn hagnaðist á niðurstöðunni og það hefði orðið raunin. SJÚKRALIÐAR lokuðu í gær hliðinu við hjúkrunarlager Ríkisspítalanna á Tunguhálsi og komu þannig í veg fyrir að vörur væru afgreiddar af lagernum. Sjúkraliðar hleyptu eng- um bílum í gegn um hliðið fyrr en þeir voru búnir að skoða í bílana. Þetta eru hörðustu aðgerðir sem sjúkraliðar hafa gripið til síðan verk- fall_ hófst fyrir rúmri viku. Ágreiningur er milli Sjúkraliðafé- lagsins og stjórnenda Ríkisspítalanna um hvort sjúkraliðinn, sem starfar á hjúkrunarlagernum, á að starfa í verkfallinu. Sjúkraliðinn hefur orðið fyrir miklum þrýstingi bæði frá fé- laginu og vinnuveitanda af þessum sökum. Eftir að hafa fengið bréf frá vinnuveitanda sínum mætti hann til starfa í fyrradag og starfaði í nokkr- ar klukkustundir. Erfitt er að fá skýr svör frá Ríkisspítölunum um hvort vörur hafa verið afgreiddar af hjúkr- unarlagernum síðan verkfallið hófst, en Kristín Á. Guðmundsdóttir, for- maður Sjúkraliðafélagsins, segir að engar hjúkrunarvörur hafi verið af- greiddar síðan verkfall hófst. Þegar verkfallsverðir mættu á Tunguhálsinn í gærmorgun var verið að undirbúa afgreiðslu hjúkrun- arvara. Til snarpra orðaskipta kom milli sjúkraliða og stjórnenda á hjúkrunarlagernum. Sjúkraliðar gripu til þess ráðs að loka hliðinu og hieyptu engum bíl í gegn nema að hafa leitað í honum áður. „Það er ekkert því til fyrirstöðu að veitt verði undanþága á af- greiðslu hjúkrunarvara sem teljast mjög nauðsynlegar ef Ríkisspítalarn- ir bijóta odd af oflæti sínu og sækja um undanþágu," sagði Kristín. Enginn árangur varð á samninga- fundi Sjúkraliðafélagsins og samn- inganefndar ríkisins í gær. Annar fundur hefur verið boðaður í dag. A Sala hlutabréfa í Lyfjaverslun Islands hf. rædd á Alþingi Sölu á hlut rík- isins sem eftir er verður flýtt Á Alþingi í gær beindi Svavar Gestsson nokkr- um spumingum til Frið- riks Sophussonar vegna sölu hlutabréfanna í Lyfjaverslun íslands hf. RÍKISSTJÓRNIN ákvað í gær að beina því tii þingflokka stjórnarinnar að flýta sölu síðari heimings hluta- bréfa í Lyfjaverslun íslands hf. og verður frumvarp væntanlega lagt fram á Alþingi í næstu viku svo hægt sé að ljúka sölu bréfanna sem allra fyrst. Þetta kom fram í máli Friðriks Sophussonar fjármáiaráð- herra í utandagskrárumræðu á Ai- þingi í gær. Hann sagðist telja þau vinnubrögð sem viðhöfð hefðu verið við sölu fyrri helmings hlutabréfanna vera til fyrirmyndar, bæði af hálfu einkavæðinganefndar og fyrirtækj- anna sem um sölu bréfanna sáu. Svavar Gestsson, Alþýðubanda- lagi, málshefjandi utandagskrárum- ræðunnar, óskaði svara fjármálaráð- herra um hvaða heimild hann hefði til þeirra lánveitinga til einstaklinga sem um ,væri að ræða varðandi sölu hlutabréfa í Lyfjaverslun Islands hf. og að ákveða þau kjör sem væru á lánunum. Hann vildi fá svar við því hvort rétt væri að selja ætti hinn helming hlutabréfanna eftir áramót og hvort næst ætti að selja Búnaðar- bankann með þessum hætti. Þá ósk- aði hann eftir að fá að vita hvað fengist í raun og veru fyrir hiutabréf- in að teknu tilliti til skattaafsláttar, verðtryggingar- og vaxtalausra lána og jafnframt að teknu tilliti til þess að nýlega væri búið að leggja 300 milljónir króna í að iagfæra húsa- kynni Lyfjaverslunar ríkisins. Engar sérstakar reglur eða lagafyrirmæli í máli Friðriks Sophussonar kom fram að ekki væru í gildi neinar sér- stakar reglur eða lagafyrirmæli um greiðslukjör vegna sölu á eignum ríkisins og almennt hefði verið miðað við þau kjör sem tíðkast á þeim markaði sem eignimar hafa verið. Dæmi um sambærileg greiðslukjör við sölu ríkisins á hlutabréfum væru þau að kaupendur SR-mjöls hf. greiða söluverðið á 19 mánuðum og útgefin hefðu verið vaxtalaus skulda- bréf, starfsmenn Jarðborana hf. hefðu fengið sömu greiðslukjör við sín kaup og starfsmönnum Lyfja- versiunarinnar býðst og í þríðja lagi hefðu greiðslukjör við sölu hlutabréfa ríkisins í Flugleiðum 1985 verið þau, að 77% kaupverðsins voru greidd með skuldabréfí til átta ára vaxta- laust. Hann sagði að þegar verðmat hlutabréfa Lyfjaverslunar íslands var unnið hafi legið fyrir ákvörðun um þau greiðslukjör sem almenningi voru boðin og þau því höfð til hlið- sjónar við mat bréfanna og á sölu- horfum. 300 milljóna kr. endurbætur á húsnæði Lyfjaverslunarinnar hefðu komið til vegna lána sem fyrirtækið hefði sjálft tekið og skuldaði ennþá að mestum hluta, og félli það að sjálf- sögðu inn í reikninga á gengi og verðmæti bréfanna. Tvö verðbréfafyrirtæki komu að málinu „Þegar spurt er hvers virði bréfin séu og tekið tillit til greiðslukjaranna og þeirra fríðinda sem fást vegna skattalaga er því að svara að allt þetta lá fyrir þegar gengi bréfanna yar ákveðið. Það var Handsal hf. sem fór yfir mat Kaupþings, þannig að tvö verðbréfafyrirtæki komu að mál- inu,“ sagði Friðrik. Hann sagði að ekkert öðruvísi hefði verið farið með hlutabréf í Lyfjaverslun íslands held- ur en í öðrum fyrirtækjum á mark- aðnum og um samskonar skattfríð- indi kaupenda væri að ræða. Hvað Búnaðarbankann varðar sagði Friðrik, að viðskiptaráðherra áformaði að koma fram með frum- varp sem gerir ráð fyrir að bankanum verði breytt í hlutafélag, en engin ákvörðun hefði verið tekin um sölu bankans. Yigdís fær Sókrates- arverðlaun frá Svíum SAMTÖK þeirra er starfa að fullorðinsmenntun í Svíþjóð, studieförbundet Vuxenskolan, hafa ákveðið að veita forseta íslands, frú Vigdísi Finnboga- dóttur, Sókratesar- verðlaun samtakanna fyrir 1994. Sókrates- arverðlaunin hafa verið afhent ann- að hvert ár frá árinu 1967 til ein- hvers, sem talin er hafa lagt sitt af mörk- um_ til almenningsmenntunar. Ákvörðunin var tekin á að- alfundi Vuxenskolan í borginni Örebro, síðdegis á föstudag. í niðurstöðu dómnefndar- innar segir að ákveðið hafi verið að veita Vigdísi Finn- bogadóttur verðlaunin vegna framlags hennar til að „vernda á árangursríkan hátt tungu og menningu smáþjóðar". Meðal verðlaunahafa und- anfarinna ára má nefna Peter Nobel, Johan Galtung, Carl- Göran Ekerwald, Erica Simon og Ingrid Segerstedt-Wiberg. Sjúkraliðar vilja að borgin beiti sér Getur sýnt frumkvæði eins og Árni KRISTÍN Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélagsins, segist líta svo á að stjórnendur Reykj avíkurborgar geti haft sama frumkvæði að launa- hækkunum til sjúkraliða og stjóm Borgarspítalans, undir forystu Arna Sigfússonar, hafði þegar laun hjúkrunar- fræðinga á Borgarspítala voru hækkuð. Sjúkraliðar hafa skorað á stjórnendur Reykjavíkur að taka frumkvæði í samninga- viðræðum við sjúkraliða. Ingi- björg Sólrún Gísiadóttir, borg- arstjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið að ríkið greiddi laun sjúkraliða og því yrði rík- ið að hafa frumkvæði að lausn deilunnar. „Upphafið að launaskriði hjá öðrum heilbrigðisstéttum var á Borgarspítalanum. Árni Sigfússon beitti sér fyrir launahækkunum til hjúkrun- arfræðinga sem að kannski hafa orðið til þess að staðan er eins og hún er í dag. Ég tel að núverandi meirihluti ætti að geta haft svipað frum- kvæði varðandi sjúkraliða," sagði Kristín. Loðnubræðsl- ur í gang LÍKLEGT er að loðnuverk- smiðjur á Norður- eða Austur- landi hefji loðnubræðslu um helgina, en um tíu loðnuskip fengu góðan afla norðaustur af Langanesi í fyrrakvöld. Nokkur skip voru komin með góðan slatta og er búist við að þau haldi tii hafnar í dag. Al- bert fékk 300 tonna kast í fyrri- nótt og Grindvíkingur náði einu 200 tonna kasti. Öll fengu skip- in eitthvað. Spáð er brælu á miðunum. Vigdís Finnbogadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.