Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 27 SVEINN GUÐMUNDSSON -I- Sveinn Stefán * Guðmundsson fæddist á Hrafna- björgum í Jökuls- árhlíð 5. septem- ber 1941. Hann lést 12. nóvember síð- astliðinn. Foreldr- ar hans voru Val- borg Stefánsdóttir, f. 1914, d. 1991, og Guðmundur Björnsson, f. 1913, d. 1992, búendur á Hrafnabjörgum. Bræður Sveins eru Eyþór, f. 1944, og Jónas, f. 1946. Hinn 27. 12. 1964 kvæntist Sveinn Sæunni Önnu Stefánsdóttur frá Artúni í Hjaltastaðaþinghá, f. 26. 5. 1945. Börn þeirra eru: Malen, f. 1963, Valborg f. 1966, Veig- ur, f. 1973, og Stefán Bogi, f. 1980. Sveinn var við nám í Alþýðuskólanum á Eiðum og Samvinnuskólanum. Hann var skrifstofumaður hjá Skipaút- gerð ríkisins í eitt ár, en var eftir það á Austurlandi. Hann starfaði á skrifstofu Kf. Hér- aðsbúa, var fulltrúi í útibúi Búnaðarbanka íslands á Egils- stöðum og kennari og eitt ár skóla- sljóri barnaskólans á Eiðum. Sveinn hóf byggingu ný- býlisins Sellands í Hlíðarhreppi 1965 og bjó þar 1970- 1984, en varð þá sveitarstjóri á Vopnafirði og gegndi því starfi til 1990. Eftir það var hann starfsmaður Malarvinnslunnar hf. á Egilsstöðum til dauðadags. Sveinn var í stjórn UIA og um árabil í stjóm og formaður Kjördæmissambands Fram- sóknarmanna. Hann var odd- viti Hlíðarhrepps 1970-1984. Hann var formaður skóla- nefndar Brúarásskóla í nokk- ur ár og í sljómum Búnaðar- sambands Austurlands og Ræktunarsambands Austur- lands. Einnig sat hann í stjórn Kf. Héraðsbúa. Síðustu ár var hann formaður knattspyrnu- deildar Hattar á Egilsstöðum. Útför Sveins verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag. í OKKAR stóra landi þar sem náttúran heillar er ekki óalgengt að við heyrum í útvarpinu að maður sé týndur og leit sé hafín. Við hrökkvum öll við og þá sér- staklega í litlum byggðarlögum, þar sem nálægðin er mikil og flest- ir þekkjast. Þannig fór fyrir mörg- um sl. laugardagskvöld þegar byijað var að leita að Sveini Guð- mundssyni. En menn halda í von- ina og þá er gott að vita af því að hundruð manna um allt land eru í viðbragðsstöðu til að bregð- ast við slíkum aðstæðum. Ekkert land getur státað af öðrum eins Qölda sjálfboðaliða sem eru tilbún- ir til að leggja sig fram við hvaða skilyrði sem er. I þetta skipti bár- ust sorgartíðindi og eins og oft áður gerðist hið óvænta að maður á besta aldri fannst látinn. Það er orðið langt síðan ég kynntist Sveini. Hann vakti fyrst athygli mína þegar hann vann hjá Búnaðarbanka Islands á Egils- stöðum og byijaði að byggja upp nýbýli í Jökulsárhlíð í landi for- eldra sinna, sem bjuggu á Hrafna- björgum. Nýbýlið Selland blasti við frá veginum í Heiðarendanum og stóð þar sem ljóslifandi dæmi ungs bjartsýns manns sem hafði trú á íslenskum landbúnaði. Þarna byggði hann upp myndarlegt heimili ásamt fjölskyidu sinni og vegnaði þar vel. Sveinn var einn af þessum mönnum sem allir sótt- ust eftir til félagsstarfa og hann var boðinn og búinn til að taka þátt í sameiginlegum viðfangsefn- um samfélagsins. Hann gegndi fjölda trúnaðarstarfa innan land- búnaðarins. Hann stundaði kennslu og tók virkan þátt í störf- um Framsóknarflokksins. Hann sat í miðstjórn og var á framboðs- lista flokksins til alþingiskosninga og lagði sig mjög fram í kosninga- baráttunni. Hann hafði yfir- gripsmikla þekkingu á landbúnað- armálum og það var engin hálf- velgja í máli hans þegar hann lýsti skoðunum sínum. Það hefur alltaf verið góður samgangur á milli fólks í Jökulsár- hlíð og Vopnafjarðar, þótt sam- göngurnar hafi ekki ávallt verið upp á það besta. Vopnfirðingar sóttust eftir Sveini til að gegna sveitarstjórastarfí þar og þá kynntist ég Sveini best. Hann var afskaplega þægilegur samstarfs- maður, skapgóður og glettinn og setti mál sitt fram með skýrum hætti. Það gat líka verið þungt í honum ef honum fannst ekki ganga nægilega vel og lítill skiln- ingur vera fyrir hendi, þá fékk maður að heyra álit hans umbúða- laust og af mikilli hreinskilni. Undir bjó góður hugur og um- hyggja fyrir þeim sem hann var að starfa fyrir. Ég vil fyrir hönd Framsóknar- flokksins þakka Sveini öll störfin og góðu stundirnar. Við höfum misst góðan dreng sem við sökn- um. Söknuður ástvinanna er sá- rastur og ég votta eiginkonu hans, börnum og öðrum vandamönnum mína dýpstu samúð og veit að góður Guð mun styrkja þau í harmi sínum. Halldór Asgrímsson. Um haustið 1959 kom þijátíu og tveggja manna hópur í fyrsta bekk Samvinnuskólans á Bifröst. Fæst af þessu fólki hafði hist fyrr en einhvern veginn átti það svo vel saman að eftir tveggja vetra samvist höfðu bundist vináttubönd sem halda. í þannig hóp eru menn með margar skoðanir og mörg áhuga- mál og reynir á skilning og um- burðarlyndi gagnvart náunganum eins og verða vill í heimavist. í þessum hópi var piltur austan af Fljótsdalshéraði sem fljótlega sýndi að í honum bjuggu ýmsir hæfíleikar, hann var góður náms- maður, mikill íþróttamaður, eink- um þó í knattspyrnu, og söngvinn vel. Jafnan tilbúinn að taka þátt í hveiju sem var í félagslífi skól- ans, lá þó hvergi á skoðunum sín- um en hlustaði á rök annarra og virti. Hann var barn náttúrunnar og dró aldrei dul á, að landbúnaður var draumur hans, enda reisti hann ásamt konu sinni nokkru síð- ar nýbýlið Selland á bökkum Jök- ulsár í heimabyggð sinni Jökulsár- hlíð, þar sem þau bjuggu um margra ára skeið uns önnur störf kölluðu, því félagsmálaáhugi var ríkur þáttur í gerð hans og hann oft til forystu fenginn. Undanfarin ár höfum við bekkj- arfélagar farið í helgarferð snemmsumars og átt góðar stund- ir. Þar lét Sveinn Guðmundsson sig aldrei vanta og var sem jafnan hrókur alls fagnaðar. Að í dag sé hann kvaddur hinstu kveðju er sárara en orð ná yfir. En við get- um yljað okkur við síðustu sam- fundi þegar við í sumar fórum um hans heimaslóðir og hann naut þess að leiðbeina okkur um Fljóts- dalshérað og Vopnafjörð þar sem ævistarf hans lá. Hann þekkti hveija þúfu og kunni skil á mönn- um og málefnum sem urðu ljóslif- andi í frásögn hans. Minningin yljar og Sveinn féll í faðmi íslenskrar náttúru þar sem útsýnið er best yfír Jökulsárhlíðina og góðbúið Selland. Þau ævilok hafa verið honum að skapi þótt alltof snemma kæmu. Með söknuði kveðjum við góðan vin og félaga. Eiginkonu og börn- um vottum við dýpstu samúð. Bekkjarfélagar á Bifröst 1959-1961. Þegar við Sveinn kvöddumst í sumar hafði ég á orði að ég væri hættur að heimsækja hann, hafði þá komið að húsi hans þrem sinn- um og aldrei var neinn heima, hann hlyti að skjótast út bakdyra- megin þegar hann sæi til mín. Hann hló sínum dillandi hlátri og sagði að ég skyldi reyna aftur næsta sumar. Það næsta sumar kemur ekki. Við hittumst fyrst á Samvinnu- skólanum á Bifröst haustið 1959, þá var þar búið í vistum sem lokað var yfír nóttina sem siður var í þann tíð til að koma í veg fyrir óæskilega kynblöndun. Það voru átta félagar sem komu þá í skól- ann sem voru á sér vist innan við kvennagang á neðstu hæð, auðvit- að lokað með lélegu skilrúmi. Þama í kjallaranum varð mikill o g náinn félagsskapur, piltar stofnuðu eigið félag sem m.a. gaf út blað, hélt kvöldvöku og höfðu sitt eigið barmmerki sem notað var á hátíðlegum stundum. Fyrir utan alla fundina sem haldnir voru og skilmerkilega skráðir og alls þess sem rætt var utan funda um allt milli himins og jarðar. Þau voru fá vandamálin sem ekki vom tekin föstum tökum. Síðan dreifðist hópurinn en samt var eitthvað sem alltaf hefur bundið þennan kjama saman, jafn- vel frekar en við aðra bekkjarfé- laga þótt góðir væru. Þegar ég kom austur í Egilsstaði til starfa varð mér því fyrst fyrir að hringja í Svein sem var eini maðurinn sem ég þekkti á öllu Héraði. Hann brá við skjótt og kom í heimsókn og sagði að hann skyldi taka mig með á ball á Rauðalæk um næstu helgi. Þangað fómm við á austan- tjalds eðalvagni og varla var Sveinn kominn innfyrir dyr fyrr en hann sveif um gólfíð með fal- legri stúlku. Einn af hans mörgu hæfileikum var dansmennt ágæt og konum fannst ekki verra að hafa hann í nánd. Svo fór Sveinn að venja komur sínar á símstöðina sem í þann tíð var stýrt af ungum stúlkum en ekki af sálarlausum tölvum. Við félagar hans gerðum okkur mat úr því hvað hann þyrfti oft að hringja, jafnvel utan símatíma, og þau Sæunn fengu marga pilluna frá okkur. Allt samt í góðu og Sveinn kunni líka að svara fyrir sig. Og árin liðu. Draumur þeirra um eigið býli rættist þegar Sveinn og Sæunn byggðu nýbýlið Selland norður í Hlíð, skammt frá bernsku- JONINA MARGRET BERGMANN ÞÓRHALLSDÓTTIR -J- Jónína Margrét * Bergmann Þór- hallsdóttir var fædd í Reykjavík 25. mars 1924. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 9. nóvem- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þórhallur Valdimar Einars- son og Jóhanna Magnúsdóttir Berg- mann. Hún var næstyngst sjö barna þeiira hjóna. Þau sem eftir lifa eru Reynir, Sóley, Lydía og Hilmar. Eftirlifandi maður hennar er Þorvaldur Hjálm- arsson bóndi á Háa- felli í Hvítársíðu. Tvær dætur áttu þau: Eddu, f. 1957, kennara við Bænda- skólann á Hvann- eyri, á tvö börn; og Jóhönnu, f. 1961, lýúkrunarfræðing og húsfreyju, sem býr á Háafelli og á fjögur böm. Á Háa- felli bjuggu Jónina og Þoi*valdur með bróður hans, Guð- mundi Hjálmars- syni. Utför Jóninu fer fram frá Gilsbakkakirkju í dag. VIÐ FRÁFALL góðra vina leitar hugurinn til horfinna stunda: leift- ur frá liðnum árum leita á hugann og öðlast nýja merkingu í safni minninganna. Spilakvöld á heimil- um okkar beggja voru ætíð til- hlökkunarefni, kínverskur kapall var spilaður með tilheyrandi gleði og kátínu, árangurinn ætíð skráð- ur af styrkum höndum Þorvalds, grín gert að gestrisni heimafólks ef hallaði á gestina og að spila- stund lokinni var sest að kaffí með tilheyrandi meðlæti, og spjallað um lífið og tilveruna. Myndarskap- ur og rausn húsfreyjunnar á Háa- felli var slíkur að ógleymanlegt er. Ekki gleymdist unga fólkið; lítill snáði er í heimsókn á spila- kvöldi, horfir á Jónu og eftir augnablik er góðgæti laumað í lít- inn lófa. Þau hjónin fóru oft í dagsferðir á milli mjalta, nutu þess að auðga tilveruna( skoðuðu landið og hvíldu sig á amstri hversdagsins. Eitt sinn fórum við saman í slíka ferð, á vit hins óþekkta, línuveginn, sem þá var nýlagður frá Kaldadal í Haukadal. Margt var spjallað og skoðað á leiðinni og slegið á létta strengi. Ekki auðnaðist okkur heit um fleiri ferðir með Háafellsfólk- inu, Jónu, Þorvaldi og Guðmundi, en minningar um góðar stundir verða ekki frá okkur teknar. Smám saman fór að bera á heilsuleysi hjá Jónu, sem hún tók af aðdáunarverðu æðruleysi. Það var ekki hennar að kvarta, né bera áhyggjur sínar á torg. Ung barðist hún við berkla og sá vá- gestur hefur ugglaust mótað við- horf hennar til lífsins og alls sem lifandi er. Hún var mikil ræktunar- kona og þeir voru ófáir afleggjar- arnir og blómapottarnir, sem ferð- uðust suður yfír Hvítá á frumbýl- isárum okkar á Arnheiðarstöðum. Jóna var hlý og skilningsrík og átti ótal ráðleggingar í handraðan- um handa nýkominni húsfreyju úr Hafnarfirði, ófá handtök og uppskriftir eiga rætur að rekja til hennar, sem skildi svo vel þá breytingu sem verður á högum fólks við að flytja frá borg í rót- gróna sveit. Jóna minnti á jurt, sem stóð hnarreist og stolt, laufið bærðist og bauð vindinum byrginn, þrátt fyrir rysjótta tíð. Sumarið leið, en tími haustlitanna kom og laufin tóku að falla, eitt og eitt. Að leiðarlokum viljum við þakka Jónu samfylgdina og vottum Þor- valdi, dætrum og öðrum ættingj- um samúð okkar. Þórður og Þórunn, Arnheiðarstöðum. stöðvum hans. Þegar hann varð sveitarstjóri á Vopnafirði ætluðu þau að hverfa að því aftur að þeim tíma liðnum en þá voru aðstæður í landbúnaði ekki orðnar fýsilegar. Nú er Sveinn horfínn á besta aldri og hefði átt svo margt ógert. En hann hefur líka átt fjölbreytta ævi og lifað ríku lífí og fjögur mannvænleg böm eiga framtíðina fyrir sér. Minningin lifír um góðan dreng og ekki skyggir á síðasta samvera okkar bekkjarfélaganna frá Bifröst þegar við í sumar fórum í helgarferð um Héraðið og allt til Vopnafjarðar undir ömggri leið- sögn Sveins sem þar var öllum hnútum kunnugur. Það vora góðir sólardagar með sól í sinni og gleði í hjarta. Eg þakka Sveini Guðmundssyni fyrir viðkynninguna. Við Sæunni og bömin hafa orð lítið að segja á þessari stundu en hugur minn og samúð er hjá þeim. Guðmundur R. Jóhannsson. Þegar við skriðum upp í hjá mömmu á sunnudagsmorguninn sagði hún okkur að afí á Egilsstöð- um væri dáinn. Við skiljum ekki alveg hvað það þýðir. Mamma segir að hann sé farinn til Guðs. Hver á þá að gefa hestunum, Þokka, Rauðsokka og hinum? Við skiljum ekki að við sjáum afa ekki aftur, þegar hann er búinn að vera dáinn. Að hann kemur aldrei aftur frá guði. Okkur Iangar til að kveðja hann og þakka góðu stundirnar. Á Eg- ilsstöðum, í hesthúsinu, það var uppáhaldið, þó að önnur okkar hafí verið dálítið hrædd við hest- ana. Ásta Brá ætlar að vera hesta- kona, og eiga hesta eins og afi. Að sitja og spjalla í ró og næði. Stundum fór samt allt í bál og brand, því Ylfa rís undir nafni; henni fannst svo gaman að rífast við afa, en afí þekkti litlu stjórnun- arstelpuna sína og allt var í góðu. En eitt vitum við, og það er, að þótt afí sé farinn til himins, þá verður hann alltaf hjá okkur í minningunum og fylgir okkur í gegnum lífið, líka ömmu, Stef- áni Boga, Veig, Völlu, Stellu Rún, mömmu og öllum sem þekktu hann. Ylfa og Ásta Brá Hafsteinsdætur. HAGKAUP Mikið úrval af peysum á 1,995,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.