Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 29 útgerð og fískverkun i Ólafsvík. Ég átti því láni að fagna að njóta vináttu og eiga gott samstarf við Víglund í þrjá áratugi. Hann var tillögugóður og heill í samstarfi. 1989-1982 voru hafnarmálin fyrir- ferðarmest í sveitarfélaginu enda um lífshagsmunamál að tefla. Þessi mikla hafnargerð í Ólafsvík varð að veruleika með samstilltu átaki — þar var hlutur Víglundar Jóns- sonar stór. Árið 1978 gerðu Portúgalar þá kröfu til íslands við gerð viðskipta- samninga um saltfisksölu, að ís- lendingar keyptu meira af vörum en áður frá Portúgal. Ríkisstjórnin ákvað að smíðaðir yrðu tveir skut- togarar í Portúgal, um 500 lestir hvor. Víglundur sat í stjórn SÍF og sótti strax um að Ólafsvík, sem einn stærsti saltfiskútflytjandi til Portúgals, fengi annað skipið. Ásóknin í þessi'skip var gífurleg. Þáverandi sjávarútvegsráðherra gerði ráð fyrir að Reykjavík og Hafnarfjörður fengju þessi skip. Það var spennandi að koma að þessu máli með Víglundi. Hann flutti mál sitt heima í hreppsnefnd. Við sem sátum í hreppsnefnd á þessum tímamótum ákváðum að fylgja málinu eftir með yíglundi. Stofnað var hlutafélagið Útver hf. með Ólafsvíkurhreppi, fiskverkend- um í Ólafsvík og Neshreppi utan Ennis. Formaður stjómar var Víg- lundur. Málið var lagt fyrir ríkis- stjórn og mikil vinna lögð í málið. Ríkisstjórnin samþykkti að annað skipið færi til Ólafsvíkur — þetta var stórmál á þessum tíma. Ég nefni þetta hér til að minnast fram- göngu Víglundar í þessu máli, yfir- veguð framganga hans og rök- stuðningur hafði áhrif. Mér er minnisstæð gleði Víg- lundar er þetta glæsilega skip, Már SH 127, kom til Ólafsvíkur vorið 1980. Víglundur vildi sjá auknar fram- farir í byggðarlagi sínu, hann lagði metnað sinn og atorku í það tak- mark meðan kraftar entust. Víglundur var mikill gæfumaður í einkalífi. Heimili þeirra Kristjönu Tómasdóttur, Lindarholti 7 í Ólafs- vík, bar vitni um myndarskap og sérstsaka snyrtimennsku þeirra beggja. Þau eignuðust_ þijú börn sem öll eiga heima í Ólafsvík og hafa tekið virkan þátt í atvinnu- rekstri föður síns. Kristjana og Víglundur lögðu metnað sinn í að halda fjölskyldunni allri í nálægð við sig. Kristjana lést í júní 1986. Ég og fjölskylda mín flytjum sérstakar þakkir fyrir samstarf, vináttu og hollráð Víglundar Jóns- sonar. Við flytjum börnum hans og ástvinum okkar dýpstu sam- úðarkveðjur og biðjum Guð að blessa þeim minninguna. Alexander Stefánssón. Þegar Víglundur Jónsson skip- stjóri flutti hingað til Ólafsvíkur með bát sinn Fram, 17 rúmlestir, frá Hafnarfirði tók hann sér stöðu í hópi kjarkmikilla einstaklinga er um þær mundir hófu héðan sjósókn á þilfarsbátum líkrar stærðar og minni við kröpp og aðþrengd hafn- arskilyrði. Útgerðarvettvangurinn var línu- veiðar yfir vetrarmánuðina og dragnótaveiðar yfir sumarmánuð- ina. Hraðfrystihús hafði tekið til starfa það ár hér í Ólafsvík sem ýtti mjög undir þá bylgju til útgerð- ar sem hér átti sér stað, þrátt fyr- ir að hafnaraðstaða væri jafn bá- borin og raun bar vitni þar sem allir bátar voru á þurru um fjörur og sæta varð sjávarföllum við róðra og landtöku. Hraðfrystihúsavæðingin var þá í fullum gangi víða um landið og útaf Ólafsvíkinni voru gjöful skar- kolamið, afurðaverð kolans var mjög gott í Bretlandi og verð hans upp úr bát var allt að fímmfalt miðað við þorskverð þeirra tíma. Um þessar mundir var síðari heims- styijöldin að skella á og ýtti það einnig undir vaxandi eftirspurn eft- ir fiskafurðum til Bretlands. Þannig fyrir smiði togarans Más og með voru aðstæður í Ólafsvík þegar aðilum í Ólafsvík og á Hellissandi Víglundur flutti hingað með bát var stofnað um smíðina og rekstur- sinn Fram, er síðar hlaut nafnið inn hlutafélagið Útver. Togarinn Snæfell SH 197, en sá bátur var Már hefur nú verið í rekstri frá lengi farsælt fley og síðast í eigu árinu 1980, en nú í eigu Snæfells- Guðlaugs Guðmundssonar skip- bæjar. stjóra. Á athafnaárum Víglundar upp Á Amarstapa, þar sem foreldrar úr 1950 tók hann verulegan þátt hans bjuggu lengst af og Víglundur í sveitarstjórnar- og öðrum félags- og systkini hans átta voru alin málum hér, sat í sveitarstjórn, upp, hlaut hann sinn undirbúning hafnarnefnd og hafði veruleg áhrif og reynsluskólagöngu sem verð- á gang hafnarmálanna. Einnig var andi sjómaður og skipstjómarmað- hann í fararbroddi í umbótamálum ur. Bræðumir og faðir þeirra (Jón er vörðuðu aðbúnaðarmál aðkomu- á Stapa), sem var nú aldeilis eng- sjómanna og verkafólks í hús- inn' aukvisi til neinna hluta, gerðu næðismálum er fólk dvaldi hér við út opinn 4 t. bát, Óðin, og þurfti vinnu og við sjóstörf. Af þessari mikinn kjark og áræði til sjósóknar gróflegu upptalningu má i hnot- frá Arnarstapa, þar sem lendingar- skurn sjá athafnaferil þessa mæta skilyrði voru í þá tíð mjög knöpp manns á þeim tíma sem honum og hafáttir brimasamar. Eitt af entist heilsa til starfa. skilyrðum veiða með línu á þessum í október 1979 var Víglundur tíma var beituöflun en skelbeitu, sæmdur riddarakrossi hinnar ísl. sem oft var notuð þurftu Stapa- Fálkaorðu fyrir störf að sjávarút- menn að sækja langa leið, eða allt vegsmálum. Á 300 ára verslunaraf- suður í Akurós á Mýrum. Var þetta mæli Ólafsvíkur var hann á há- löng leið og farmurinn hættulegur tíðarfundi bæjarstjómar í mars ef ágjöf var á opinn bátinn. 1987, gerður að fyrsta heiðurs- Á tímabili var Víglundur í áhöfn borgara Ólafsvíkur. Voru þessar Bjöms Hanssonar er var þekktur heiðursútnefningar að allra dómi aflamaður á tímum gufulínuveiðar- mjög verðskuldaðar. anna, einnig var hann um tíma við Hinn 14. mars 1942 gengu þau línuveiðar með Norðmönnum hér í hjónaband Kristjana Tómasdóttir við land. Hann stundaði nám við ættuð úr Fróðárhreppi og Víglund- Stýrimannaskólann árið 1933 og ur. Kristjana var hin mætasta kona tók þaðan skipstjómarpróf. og hjónaband þeirra afar farsælt, Víglundur vakti hér strax at- enda Víglundur mjög rækinn og hygli heimamanna fyrir þau ein- hlýr fjölskyldufaðir. Böm þeirra eru kenni er ávallt fylgdu honum. Hann Úlfar, vörubílstjóri, kvæntur Guð- var ekki margmáll, frekar fáskipt- rúnu Karlsdóttur, Guðrún, gift inn, fór sínar eigin leiðir í sjósókn Pétri Jóhannssyni skipstjóra, og þar sem sjálfstæði, festa og fylgni Ragnheiður. Heimili þeirra Úlfars voru mjög einkennandi. Hann varð og Guðrúnar og fjölskyldna þeirra því fljótlega allrar athygli verður standa hið næsta foreldraheimilinu, og ég sem unglingur heyrði menn en Ragnheiður býr þar. tala um hann sem einn af Stapa- Svo vill til að ég sem þessar lín- bræðrunum og mér skildist einnig ur rita og fjölskylda mín hafa verið að þegar talað var um Stapabræð- hinir næstu nágrannar þessarar ur, að þar var verið að tala upp til góðu fjölskyldu sl. 35 ár og hefur manna. ávallt ríkt góð vinátta milli fjöl- Ferill Víglundar í Ólafsvík hefur skyldnanna og oftast daglegt sam- nú varað í 55 ár, þar af var hann band á milli heimilanna. virkur athafnamaður í um það bil Um og upp úr miðjum níunda 45 ár, stórhuga athafnamaður og áratugnum fór heilsa Víglundar að gjaman sem slíkur í fararbroddi. dala og árið 1986 lést Kristjana Hann skilur eftir sig stór og merk eiginkona hans eftir erfið veikindi. spor í sögu byggðarlagsins með Síðustu árin hefur Víglundur dvalið athöfnum sínum, kjarki og fylgni. langtímum saman á Sjúkrahúsinu Nú þegar hann kveður er hann í Stykkishólmi vegna veikinda jafnframt sá síðasti sem í fylk- sinna og þar lést hann að morgni ingarbijósti hóf útgerðar- og 9. nóvember sl. Útför hans verður framfarasóknina árið 1939 sem síð- gerð frá Ólafsvíkurkirkju nk. laug- ar breytti Ólafsvík í einn af fremstu ardag. sjávarútvegsbæjum landsins. Ég átti því láni að fagna að vera Víglundur hætti skipstjómar- í skipshöfn Víglundar um árabil, störfum og sjósókn árið 1953, en eða þar til hann hætti á sjónum. fyrir árið 1930 hafði hann byggt Ég kynntist honum. því vel sem fyrsta áfanga Fiskvinnslustöðvar- sjómanni og skipstjómarmanni. Á innar Hróa hf. og frá árinu 1953 þeim árum voru ekki skráðir stýri- hefur hann veitt Hróa hf. og út- menn á bátunum. Samstarf milli gerðarrekstri sínum fomstu eða skipstjóra og vélstjóra varð því að fram á níunda áratuginn. Á þeim vera traust og gott og tel ég að tima komst saltfiskframleiðsla svo hafi verið okkar í milli, enda Hróa hf. í fremstu röð slíkra fyrir- grandvöllur að góðri vináttu síðan. tækja á landinu. Eins og áður segir voru einkenni Á því tímabili eignaðist hann hans sjálfstæði og festa. Á sjónum ekki færri en níu fiskiskip. Þijú var hann ekki margmáll, en hafði þeirra vora byggð erlendis og eitt traust áhafnar, enda gætinn vel innanlands. Þess utan átti hann og og varkár ef hætta var á ferðum. gerði út í félagi við aðra fleiri fiski- Hann var maður háttvís í fram- skip. Segja má einnig að af hans komu við alla er hann átti sam- útgerðarrekstri komu margir mjög skipti við. Þau einkenni er ég hef hæfir sjómenn og þekktir afla- gert hér að umræðuefni fylgdu menn, er síðar hösluðu sér völl á honum gegnum lífið á umsvifamik- eigin spýtur. ' illi ævi. Hann tók ákvarðanir án Þegar farið var að hamla við mikilla ræðuhalda og kom þeim í frekari skuttogarasmíði á áttunda höfn af festu og fylgni. áratugnum, heimiluðu stjómvöld Við Ólafsvíkingar kveðjum þenn- þremur helstu saltfiskframleiðend- an mæta athafnamann með þökk um landsins byggingu þriggja og virðingu. nýrra skuttogara. Víglundur var Elinbergur Sveinsson. einn af þeim þrem. Hann beitti sér + Innilegar þakkir sendum við öllum, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför KRISTÍNAR ÁSMUNDSDÓTTUR, Núpum, Aðaldal. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Sjúkrahúss Húsa- vikur, 3. hæð. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Sigurðardóttir, Sigurður Karlsson, Guðfinna Sigurðardóttir, Magnús Stefánsson og fjölskyldur. HULDA V. PÁLSDÓTTIR + Hulda Vatns- dal Pálsdóttir var fædd á Akur- eyri 24. september 1909. Hún lést á Borgarspítalanum 11. nóvember síð- astliðinn. Hún var dóttir hjónanna Fanneyjar Jóseps- dóttur og Páls Vatnsdal. Var hún eitt af sex systkin- um sem komust til fullorðinsára, þijú dóu ung. Hulda giftist Karli Ó. Jónssyni útgerðarmanni, sem nú er látinn. Þau eignuðust fjögur börn: Jensínu Fanneyju, sem er látin, Jón Trausta, Orn og Huldu Eygló. Eru afltom- endur þeirra hjóna orðnir þrjá- tíu. Fyrstu árin bjuggu þau í Klöpp í Sandgerði, síðan í Reykjavík, einnig nokkur ár á Vopnafirði. Seinustu árin dvaldi Hulda á Hrafnistu í Reykjavík. Útför hennar fór fram frá Langholtskirkju 17. nóvember. NÚ ÞEGAR ég hef fylgt tengda- móður minni Huldu hinsta spölinn leitar hugurinn til baka. Ég finn að ég dáist að henni, fyrst og fremst fyrir hennar óbilandi kraft og dugn- að, það var ekkert verkefni svo stórt að ekki væri hægt að takast á við það. Mín fyrstu kynni af henni voru austur á Vopnafírði þegar hún og Karl tengdafaðir minn komu til að reka þar frystihús og söltunarstöð, hún sá um mötuneytið jafnframt því sem hún tók að sér saumaskap fyrir fólk og var þá alveg sama hvort það var spariflík fyrir þá eldri eða tískuflík fyrir okkur yngri. Við eigum öll mikla og fallega handa- vinnu eftir hana. Oft tókst hún á við erfið verkefni með tengdapabba í baráttu hans við Bakkus og alltaf stóð hún með pálmann í höndunum eftir hvern bardaga, tilbúin að byija upp á nýtt. Við voram ung við Öm sonur hennar þegar við eignuðumst okkar fyrsta barn og hjá henni áttum við öraggt skjól fyrstu árin, og það veit ég að áttu fleiri ungmenni úr hennar frændgarði. 69 ára að aldri gekkst hún undir þá miklu aðgerð að taka þurfti af henni annan fótinn við hné. Þá sá ég hana beygðasta, en hún var ekki búin að vera lengi á Reykja- lundi þegar hún var farin að baka handa þeim pönnukökur og sagði svo best að drífa sig heim, hún hefði ekkert meira þar að gera. Fötlunin virtist ekki há henni eftir það, hún hélt til dæmis upp á áttræðisafmælið sitt úti í Glasgow þár sem hún gekk piður úr gervifæt- inum og límdi hann síð- an saman með hefti- plástri uppá hótelher- bergi. Síðustu árin dvaldi hún á Hrafnistu í Reykjavík, þar undi hún hag sínum vel og féll nánast aldrei verk úr hendi. Vil ég þakka starfs- fólki þar góða umönnun Huldu. Tel ég á engan hallað þó ég nefni sér- staklega Valborgu Guðmundsdótt- ur, sem lést fyrir mánuði. Þá missti Hulda góðan vin og félaga. Elsku Hulda mín. Við eram þakk- lát fyrir að þú þurftir ekki að liggja lengi í veikindum hér á jörð. Við getum alltaf minnst þín sem hinnar hraustu og glöðu. Ástarþakkir fyrir allt og allt. Þín tengdadóttir Inga. Með þessum orðum vil ég kveðja hana ömmu mína. Hún las alltaf minningargreinar og ég veit hún hefði lesið þessa. Amma var dugleg og sterk kona og hvað sem á gekk kveinkaði hún sér aldrei. Fyrir nokkram áram byrjaði heilsu ömmu að hraka, en alltaf stóð hún upp úr veikindunum kát og hress og þá var ekki að sjá á henni að hún væri komin á níræðis- aldur. Sannaðist það best þegar hún fór í verslunarferð til Glasgow, þá áttræð. Að lokum hafði þó maður- inn með' ljáinn betur. \ Það er á stundu sem þessari að minningarnar hrannast upp. Það var aldrei lognmolla þar sem amma fór. Hún var ákveðin, án þess þó að vera með yfirgang og frekju, og fór ekkert í grafgötur með það. Eins og hjá öllum skiptust á skin og skúrir í lífí hennar. Það sem kom ömmu í gegnum alla hennar erfið- leika var alveg ábyggilega létta lundin, jákvæðnin og bjartsýnin sem hún hafði að geyma. Eftir að ég fluttist til Akureyrar til að stunda þar mitt nám, fækk- aði þeim stundum sem ég gat eytt með ömmu. í staðinn fyrir að gráta það, reyni ég að vera jákvæð eins og amma var og þakka í staðinn fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Elsku amma, ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér, ég veit að það er gott veganesti út í lífið. Harpa Þorláksdóttir. + GUÐMUNDUR RAGNAR MAGNÚSSON, sem andaðist 11. nóvember 1994, verður jarðsunginn frá Foss- vogskapellu mánudaginn 21. nóvember kl. 10.30. Systkinabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TÓMAS BJARNASON frá Teigagerði, Reyðarfirði, til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík, lést á hjartadeild Borgarspítalans aðfaranótt 16. nóvember. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 24. nóvem- ber kl. 13.30. Anna María Tómasdóttir, Karl Sigurjónsson, Ingibjörg Tómasdóttir, Haraldur Haraldsson, Bjarni Tómasson, Inga Tómasdóttir, Helge Lyckberg, Sigfús Tómasson, '-Sigríður Sigursteinsdóttir, Ásgeir Tómasson, Elín Albertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.