Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ £F þt& HALPtP Af? , FU<5LAFÓ€>tSAæ-l S£ plTTHVAÐ!■- ÉG VA£ AÞ HOZFA Á BIöAKÞANH 'SSZA A£> SETJA OPP FOÖUABAD V. * {0~z£~ C1968 Trlbun« M*ði« S**vtc«*. Inc. Grettir Tommi og Jenni Ljóska Ferdinand Heldurðu að það sé mögulegt Líklega Þetta herbergi er þétt- En það er ekki Svei! að verða ástfanginn þvert skipað, er það ekki? töfrandi kvöld ... vfir þéttsetið herbergi? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 InterNet og Kastljós Frá Frey Bergsteinssyni og Jóhannesi Tryggvasyni: í KASTLJÓSI fyrir nokkru var tal- að um InterNet, útbreiddasta tölvu- net heims. Aðalefni þáttarins var hversu mikið framboð er af klámi og ofbeldi og hversu ódýrt það er að nálgast slíkt efni. Önnur notkun InterNetsins var lítið rædd og hinn almenni sjóvnvarpsáhorf- andi gæti því dregið þá álykt- un af þessu að netið sé lítið ann- að en samskipta- miðill fyrir öfug- ugga. Sem virk- um notendum netsins finnst okkur þetta gefa ranga mynd því aðeins lítill hluti af þeim upplýsingum sem hægt er að nálgast er klám. InterNetið er ekkert annað en fijáls miðlun upp- lýsinga á milli fólks, hvaðanæva úr heiminum. Enginn á það og eng- inn stjórnar því. Þar af Ieiðandi getur hver sem er komið hveiju sem er á framfæri við aðra og enginn getur ritskoðað það. En notendur InterNetsins eru u.þ.b. 30 milljónir manns. Óhjákvæmilega hlýtur eitt- hvað af þessu fólki að dreifa klámi; það sama gildir um tímarit og myndbönd. Aðalatriðið er að það er hægt að læra mikið af þeim upplýsingum sem eru á netinu. Þú getur spurst fyrir um nánast hvað sem er og fengið svar frá einhveijum af þeim milljónum manna sem nota Inter- Net. Gott er að nota það við nám, vinnu og eigin áhugamál, t.d. til að hafa samband við vin eða kunn- ingja hinum megin á hnettinum á verði sem hver sem er ætti að ráða við; þar að auki er það tíma- spursmál upp á örfáar mínútur þar til viðkom- andi fær þitt bréf, hvílík þjón- usta! Þátturinn gaf mjög neikvæða mynd Það sem við viljum koma á framfæri er það að þátturinn var stuttur og gaf óneitanlega mjög neikvæða mynd um notkun InterNetsins. Þetta gæti leitt til þess að foreldrar banna börnum sínum að nota þennan sí- fellt stækkandi upplýsingamiðil (börn undir 18 ára þurfa samþykki foreldra til að fá aðgang að Inter- Netinu hjá Reiknistofnun) sem væri samsvarandi því að banna börnum sínum að fara út í myndbandaleigu vegna þess að það gætu verið klám- myndir þar. FREYR BERGSTEINSSON, Þangbakka 8, Reykjavík, JÓHANNES TRYGGVASON, Víðimel 37, Reykjavík. Hin gleymda stétt í verkfaili sjúkraiiða Frá Fjólu G. Ingþórsdóttur I ÞEIRRI miklu umræðu undanfar- ið um kjarabaráttu sjúkraliða og verkfall þeirra þykir full ástæða til að minna örlítið á þátt sóknarfélaga í umönnunarstarfi. En áður en lengra er haldið er rétt að undir- strika stuðning okkar við kjarabar- áttu sjúkraliða sem er fullur og einlægur. í starfsmannafélaginu Sókn, sem nær yfír höfuðborgarsvæðið, eru um 3.600 félagar og þar af starfa um 1.500 við umönnun á sjúkrastofnunum. I þessu starfi eru nær eingöngu konur og eru margar þeirra með langa starfsreynslu og flestar búnar að sækja öll þau nám- skeið sem Sókn hefur boðið upp á. Það er námskeið í umönnun aldr- aðra, þroskaheftra, geðsjúka og hjálp í viðlögum. Þessar konur vinna við dvalarheimili aldraðra, alkólista, þroskaheftra og að sjálf- sögðu sjúkrahús. Sóknarfélagar vinna við hlið sjúkraliða, nákvæm- lega sömu störfín og bera sömu ábyrgð en bera annað starfsheiti á launaseðli. Á mörgum stofnunum í heil- brigðiskerfínu eru fleíri sóknarfé- lagar í starfí við umönnun heldur en sjúkraliðar og nú þegar verkfall sjúkraliða stendur sem hæst eru sóknarkonur beðnar að fara ekki í störf sjúkraliða. Að sjálfsögðu virð- um við verkfallsrétt þeirra en betra hefði verið að orða hlutina á þá leið að sóknarkonur færu ekki í stöður þeirra eða tækju ekki vaktir þeirra því verkefnin eru nákvæm- lega þau sömu. í allri þessari umræðu, bæði í fréttum og fréttaviðtölum, hefur ekki verið minnst einu orði á þá sóknarfélaga frekar en þær væru ekki til innan heilbrigðiskerfísins að því er best verður séð. í verk- falli sjúkraliða mæðir mikið á sókn- arfélögum í umönnunarstarfi svo og hjúkrunarfræðingum. Að sjálf- sögðu þarf ekki að taka fram að sóknarfélagar vinna á mun lægri launum en sjúkraliðar enda ekki gerð athugasemd við það. En þrátt fyrir það er hætt við í þessari umræðu að sóknarfélagar í umönn- un spytji sig hverjir fari næst í verkfall! FJÓLA G. INGÞÓRSDÓTTIR félagi í Sókn Dalatangq 19, Mosfellsbæ. Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.