Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
c
HASKOLABIO
SÍMI22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
Stærsta sprenging sem fest hefur verið á filmu!
Kolklikkaður sprengjusérfræðingur heldur Boston í
helgreipum. Fyrrum lærisveinn hans er sá eini sem
getur stoppað hann...
Aðalhlutverk: JEFF BRIDGES, TOMMY LEE JONES OG
FOREST WHITAKER. LEIKSTJÓRI STEPHEN HOPKINS.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 2.40, 4.45, 6.55, 9 og 11.20
NIFL OG FERÐIN AÐ MIÐJU JARÐAR
BEIN OGNUN
ÞRIR LITIR: HVITUR
„Nifl: Gott handrit, mjög góð vinnubrögð
*** F.S. Dagsljós.
Sýndar kl. 3, 7 og 9.
Tom
Hanks
Forrest
Gump
ZBIGNIEW ZAMACHOWSKI
JULIE DELPY
TROIS COULEURS
AÐALHLUTVERK
JÓHANNAJÓNAS OG
JAKOB ÞÓR EINARSSON
HflRRISON FORQ
140 min
Aðalhlutverk: Harrison
Ford og Willem Dafoe
Sýnd kl. 9.10 og 11.10.
niÆTURVORÐURINN
* + * A.I. MBL
*** Ó.H.T. Rás2
Fjögur
brúðkaup
og jarðarför
40 mín.
Geislaplatan frábæra fæst í öllum hljómplötuverslunum.
Sýnd kl. 3, 5.05, 6.45 og 9.15.
„Mátulega ógeðsleg
, hrollvekja og á skjön við
I huggulega skólann i
b t danskri kvikmyndagerð"
p. *** Egill Helgason
b* Morgunpósturinn.
Sýnd kl. 9 og 11.
B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 3 og 5.05.
Sýningum fer fækkandi.
Bíómagasínið - Alltaf í Sjónvarpinu kl. 19.55 um
helgar. Búið ykkur undir Heilagt hjónaband!
Helgartilboð
Fiistud., laugard. og sunnud.
Fiparhuffsteik.
med hakaðri karliinu kl'. 980.
Hvítlauksristaðar lúðukinnar,
nieð safransósu kr. 980.
Lambagrillsneiðar Bearnais,
mtð risluðum su'ppum kr. 1.190.
Orlvsfeíktir humarhalar,
rned karrí-engif'ersósii kr. 1.090.
Súpa og brauð l'ylyir iilliim rtllum.
Börnin fá íspínna o» pabbi og maninia
l'á ostatertu á ef'tir niatnum.
BIRTHMARK-FÉLAGAR í
Real World hljóðverinu.
^Mjog vandaðir lebur •
barnaskór
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
Hamraborg 3, sími 41754.
Opið laugardaga kl. 10-16
Uppgjör upphafsáranna
Nýjar hljómplötur
Hljómsveitin Birthmark sendi frá sér sína
fyrstu breiðskífu í dag. Annar helmingur
sveitarinnar, Valgeir Sigurðsson, segir að
platan sé einskonar safn bestu laga.
IN ÞEIRRA hljómsveita
sem senda frá sér sína
fyrstu útgáfu í fyrsta
sinn fyrir þessi jól er
dúóið Birthmark. Hljómsveitin á
sér ekki nema nokkurra mánaða
sögu undir þvi nafni, en hét áður
Orange Empire og sendi frá sér lög
undir því nafni. Þegar kom að því
að taka málin fastari tökum segir
þó annar helmingur sveitarinnar,
Valgeir Sigurðsson, að þeim hafí
þótt rétta að skipta um nafn.
Valgeir, sem rekur hljómsveitina
með félaga sínum Svan Kristbergs-
syni, segir að platan, sem kemur
út í dag, sé einskonar safn bestu
laga þeirra félaga frá síðustu fimm
árum. „Þannig byrjar platan á lagi
sem er fyrsta lagið sem við sömd-
um saman, um það leyti og við
vorum að byrja. Að vísu er ekkert
glænýtt lag, en við höfðum úr
miklu að velja og völdum það besta
sem við áttum frá þessum tíma
og sem passaði í samhengi við
annað sem var á plötunni. Það má
segja að við séum að gera upp
þennan tíma og það er ekki víst
að við eigum nokkuð eftir að nota
það sem er eftir, nú vill maður
halda áfram og gera eitthvað
meira.
Við Svanur kynntumst í hljóð-
veri sem ég var með á Klapparstíg
og byijuðum að taka upp gömul
lög sem við áttum með öðrum.
Með tímanum sáum við að við vor-
um þeir einu sem höfðum einhvern
áhuga á að halda þessu áfram af
einhveiju viti. Við ákváðum því að
halda áfram tveir og fá til liðs við
okkur aðra hljóðfæraleikara eftir
því sem þörf krefði. Það kallar á
mikið vesen þegar við ætlum að
spila á tónleikum, sérstaklega
vegna þess að þeir menn sem við
helst vildum fá til að spila með
okkur eru ekki alltaf á lausu. Það
skýrir því það hvers vegna við
höfum ekki haldið nema fímm tón-
leika á þessum fímm árum.
Að mörgu leyti er slæmt að spila
ekki meira á tónleikum, því þó við
kunnum mjög vel við okkur í híjóð-
verinu, þá langar okkur að spila
meira. Eg held að það sé öllum
hollt að spila eitthvað með öðrum,
því það verður alltaf eitthvað nýtt
til í samspili á milli manna,“ segir
Valgeir. Hann segir að þeim fínn-
ist ekki koma til greina að koma
fram með hluyta tónlistarinnar af
bandi, við erum þannig sinnaðir
að þegar við erum að koma fram
viljum við að það sé lifandi, því
það kviknar alltaf einhver neisti
þegar menn eru að spila.“
Valgeir segir að allt sé „hand-
gert“ á plötunni er allt spilað, þ.e.
tölvur komi lítt við sögu, en alls
leggja um 25 hljóðfæraleikarar og
söngvarar þeim lið á plötunni.
Platan var nánast öll tekin upp
hér á landi, en söngur var tekinn
upp ytra og platan hljóðblönduð, í
einu helsta hljóðveri Bretlands,
Real World hljóðverinu, sem Peter
Gabriel reisti til að taka upp plötur
fyrir samnefnt fyrirtæki sitt. Val-
geir segir að það hafí verið ævin-
týri líkast að vinna í hljóðverinu,
það sé ekki bara að tæknin hafi
öll verið fyrsta flokks, heldur var
andrúmsloft allt á staðnum eftir-
minnilegt og umhverfi allt mjög
fagurt.
„Tæknilega hliðin kom ekki svo
mjög á óvart, heldur var allur við-
urgjömingur fyrsta flokks og
þama vom á vappi menn sem við
höfum haft dálæti á sem tónlistar-
menn, til að mynda hittum við
þama Peter Gabriel. Þetta var því
bæði skemmtilegt að hitta þessa
menn og svo nýttist dvölin þama
vel til að komast í samband við
menn sem geta kanski hjálpað
okkur við að koma plötunni í hend-
umar á mönnum sem myndu þá
hlusta á hana fyrir vikið.
Hljóðverið er byggt í gamalli
kornmyllu og til að mynda er eitt
upptökuherbergið með glergólfí og
þú horfír niður í vatnið sem knúði
mylluhjólið áður. Hljóðvinnan
þama var og öll sérlega skemmti-
leg og hljómur allur á plötunni er
eins og best verður á kosið, en við
leggjum mikla áherslu á hljómur-
inn sé góður.“
Valgeir segist telja nauðsynlegt
fyrir þá sem eru að fást við líka
tónlist og þeir félagar að ná inn á
stærri markað, því þó þeir geti
vonandi selt eitthvað af plötum hér
heima, þá sé loku fyrir það skotið
að þeir geti lifað af tónlistarsköp-
un, því sveitaballamarkaðurinn sé
ekki fyrir þá. „Við gemm okkur
engar grillur um heimsfrægð og
milljónatekjur. Draumurinn er að
geta selt plötur í það stóm upplagi
að það borgi upptöku- og útgáfu-
kostnað og að við höfum það gott
kaup að við getum tekið til við
næstu plötu og haldið áfram að
semja og taka upp þá tónlist sem
við viljum gera.“