Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 11 FRÉTTIR Sigurður Líndal lagaprófessor á fundi frj álslyndra j afnaðarmanna um Atlanta-málið Sviptir vinnu með mannréttindabroti Sigurður Hreinn Halldór Líndal Loftsson Grönvold SIGURÐUR Líndal prófessor reifaði í upphafi almenn atriði um stéttarfélög og rétt manna til vinnu. Hann vék því næst að Atlanta-málinu svokallaða og tók fram að ef rétt væri, eins og honum hefði skilist, að enginn kjarasamingur væri i gildi milli Atlanta og FÍA, FFF væri löglegt stéttarfélag, Atlanta hefði gert löglegan kjarasamning við félagið og engir FIA-flugmenn væru starfandi hjá Atlanta, væri aðeins um „theorískt" eða fræðilegt verkfall að ræða. Á sama hátt væri vart séð að hægt væri að boða til samúðarverkfalls til stuðnings verkfallsmönnum þar sem enginn væri í verkfalli. Sigurður sagði að FÍ A hefði eng- an rétt til að ryðja löglegu stéttarfé- lagi til hiiðar og þröngva sínum samningum upp á aðra. „Ég sé ekki betur, ef brotið er á mannrétt- indum með að neyða menn í félög, að það hljóti að vera mannréttinda- brot, og ekki betra, að taka sér vald fyrir menn sem eru viður- kenndir fyrir utan og ætla að þröngva sér með verkfallsaðgerðum til að semja. Mannréttindabrotið er notað til að fremja annað, þ.e. að svipta menn vinnu,“ sagði Sigurður og hann lauk máli sínu með því að skora á verkalýðshreyfinguna að leggjast undir feld og endurskoða grundvallarviðhorf sín. Áhrif Atlanta á stofnun FFF Halldór Grönvold, skrifstofustjóri Alþýðusambandsins, reifaði meðal annars aðdraganda stofnunar FFF og sagði að á sama tíma og Atl- anta hefði staðið í kjaraviðræðum við FÍA hjá ríkissáttasemjara hefði fyrirtækið haft bein áhrif á starfs- mennina í þeim tilgangi að þeir Andstæð sjónarmið í Atlanta-málinu svokall- aða mættust á fjöl- mennum fundi Félags frj álslyndra j afnaðar- manna á fimmtudags- _ ---------------7----- kvöld. Anna G. Olafs- dóttir dregur hér fram atriði í máli þriggja frummælenda. sniðgengju stéttarfélag sitt og semdu beint við fyrirtækið. Máli sínu til stuðnings vitnaði Halldór í telex Hafþórs Hafsteinssonar, flug- rekstrarstjóra, til starfsstöðva fyrir- tækisins eftir fyrsta fundinn með FÍA hjá ríkissáttasemjara 30. ágúst. Þar segir meðal annars: „Nú ber svo við að Arngrímur Jóhannsson ákvað að koma til móts við þessar óskir flugmanna um launasamning við flugfélagið Atl- anta. Samningur félagsins og flug- manna grundvallast á þeim samn- ingi sem að lagður hefur verið fram af flugmönnum í gegnum FÍA ..." Síðar segir: „Því er lagt til að þessi mál séu betur komin á þann hátt að flugfélagið semji beint við flug- menn um kaup og kjör á þessum nótum og að sett verði á laggirnar samninganefnd flugmanna og fé- lagsins til þess að ræða þessi mál og önnur mál með reglulegu milli- bili til þess að bæta upplýsinga- flæði og samskipti á milli félagsins og flugmanna." Með skilaboðunum var flug- mönnunum, að sögn Halldórs, fylli- lega gefið í skyn að kröfugerð stétt- arfélagsins komi í veg fyrir samn- inga og verði ekki brugðist skjótt við taki við vinnustöðvun. Flug- rekstrarstjórinn benti síðan á lausn- ina, 3ja manna samninganefnd flugmanna óháð stéttarfélaginu. Halldór telur í niðurlagi upp hvaða lærdóm sé hægt að draga af Atlantamálinu. „Það er vegið að kjörum og réttindum launafólks með grófari og ófyrirleitnari hætti en oft áður. Þar eru fremstir í flokki frjálshyggjupostular ýmsir sem ekkert virðist heilagt í baráttunni gegn skipulagðri hreyfingu launa- fólks sem hvílir á jafnaðarstefn- unni,“ segir hann og telur upp að í deilunni birtist þetta meðal annars í því að neitað sé að gera kjara- samninga, stunduð sé gervi-verk- taka, gerð tilraun til að sundra sam- tökum launafólks og sá óeiningu meðal vinnufélaga og gera tilraun til atvinnukúgunar. Vinnulöggjöf veröi endurskoðuð Hreinn Loftsson, lögmaður Atl- anta, minnti á að 300 manns hefðu verið að störfum hjá fyrirtækinu síðasta sumar. Af þeim hafi íslend- ingar verið um 60%. Starfsemin hafi samtals skilað rúmum 800 milljónum í þjóðarbúið á síðastliðnu ári. Hann rakti í stuttu máli aðdrag- anda deilunnar og fullyrti að hún stæði nú í raun um forgangsrétt og starfsaldurslista sem væri ná- tengt mál. „Einnig hafa FÍA-menn krafist mun lengri uppsagnarfrests fyrir félagsmenn sína en nýja stéttarfé- lagið. Forráðamenn flugfélagsins hafa ekki viljað gefa eftir gagnvart kröfu FÍA um forgangsréttinn og óttast mjög að það geti leitt til þess að FÍA nái kverkataki á félag- inu eins og raunin er varðandi Flug- leiðir að margra mati. Hafa þeir talið sér það óheimilt þar sem þá sé verið að bijóta kjarasamninginn við hið nýja stéttarfélag,“ sagði Hreinn og dró að lokum fram tvö aðalatriði málsins að hans dómi. Annars vegar virtust menn í verkalýðshreyfingunni þrúgaðir af gömlum vana og rígbindu sig í gamalt kerfi. Þar virtust menn ekki sjá nauðsyn sveigjanleika gagnvart nýrri starfsemi. Hins vegar þarfn- aðist vinnulöggjöfin endurskoðunar ef menn meintu eitthvað í raun og veru með talinu um að laða erlend fyrirtæki til landsins. Félagsdómur sjálfur væri gott dæmi um þetta. Morgunblaðið/Sverrir VÉL Atlanta kom með farþega frá Dublin um miðnætti í fyrra- kvöld, hálfum sólarhring fyrir hertar verkfallsaðgerðir FÍA. Norræna flutningaverkamannasambandið Yilyrði fyrir sam- úðaraðgerðum NORRÆNA flutningaverkamanna- sambandið hefur gefið Félagi ís- lenskra atvinnuflugmanna vilyrði fyrir að veita því aðstoð komi til verkfalls FÍA hjá Atlanta. Borgþór S. Kjæmested, framkvæmdastjóri Norræna flutningaverkamanna- sambandsins, segir að samúðarað- gerðir sambandsins gætu falist í afgreiðslustöðvun á vélum Atlanta á Norðurlöndum. FÍA hefur sótt um aðild að Nor- ræna flutningaverkamannasam- ’ bandinu og að sögn Borgþórs hefur tilskilin umsögn íslensku aðildarfé- laganna, Verkamannasambandsins og Sjómannafélags Reykjavíkur verið jákvæð í garð umsóknarinnar og því aðeins formsatriði að veita FIA aðild. Borgþór sagði að talsmenn FIA hefðu haft samband og nefnt að þeir myndu hugsanlega leita eftir aðstoð sambandsins ef til verkfalls kæmi. Engin formleg beiðni þar að lútandi hefði þó borist frá FIA, en þeim verið tjáð að sambandið væri jákvætt í málinu. Aðspurður í hvaða formi sú aðstoð yrði ef til kæmi sagði Borgþór að til algjörar af- greiðslustöðvunar á flugvélum Atl- anta gæti komið. „Samstöðuaðgerðir af þessu tagi eru hins vegar alltaf metnar eftir aðstæðum, og einnig er þetta nokk- uð breytilegt eftir löndum," sagði hann. Mismunandi fyrirvari Borgþór sagðist hafa haft af því fregnir að eitthvað hefði verið um lendingar flugvéla Atlanta í Dan- mörku og Noregi, og því kæmi hugsanlega til samstöðuaðgerða í báðum þessum löndum, en fyrirvara aðgerða sagði hann hins vegar vera mismunandi eftir löndum. „í Noregi er 14 daga boðunartími á samstöðuaðgerðir, í Danmörku 7 dagar, en í Svíþjóð og Finnlandi hefur aðgerðum verið beitt fyrir- varalaust. Þetta fer þannig fram að vinnuveitendasambandinu á við- komandi stað er tilkynnt að stuðn- ingur sé við aðgerðirnar." OPNUNARTILBOÐ CQ qAA “ J/I/VV/" stgr. I tilefni af opnun húsgagnaverslunar og sýningarsalar Tréforms hf aS SmiÖjuvegi 6, Kópavogi, bjóðum við hin geysivinsælu AMSTERDAM SÓFASETT 3 + 2 ó fróbæru tilboð sverði. Dríföu þig á staðinn og gerðu góS kaup! Sýning um helgino! Op/ð laugordog og sunnudog 11-16 Smiðjuvegur 6, Kópavogur. Sími 44544

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.