Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVBMBER 1994 9 FRÉTTIR Keppnin Miss World fer fram í Suður-Afríku í kvöld Tvö blöð spá Bimu sætií 10 stúlkna úrslitum FEGURÐARSAMKEPPNIN Miss World fer fram í kvöld í Sun City í Suður-Afríku. Stúlkurnar sem taka þátt í keppninni hafa verið við æfingar og annan undirbúning í þrjár vikur og í samtali við Morgunblaðið sagði íslenzki þátttakandinn, Birna Bragadóttir, að hún væri orðin ansi þreytt en jafn- fram spennt fyrir úrslitakvöldinu. „Eg vona bara að fólkið heima sé ekki með of miklar væntíngar, ég hef gert mitt bezta og vonandi næ ég að verða framarlega.“ Keppnin hefst klukkan 19 og verður hægt að sjá hana beint í gervihnattastöðinni Sky One. Mjög mikið hefur verið fjallað um keppnina í fjölmiðlum í Suður-Afriku og stúlkurnar hafa kom- ið fram í viðtölum í blöðum og sjónvarpi. Tvö blöð hafa verið með spár um það hvaða stúlkur ættu mesta möguleika og í báðum blöðunum er þvi spáð að Birna verði í hópi 10 efstu stúlkna. „Eg tek mátulega mark á þessum spám og því verð ég ekki fyrir vonbrigðum þótt ég komist ekki í úr- slit,“ segir Birna. Dagskráin hefur verið mjög ströng hjá stúlkun- um síðastliðnar þijár vikur við æfingar, viðtöl og sýningar, en Birna segir jafnframt að þátttakan sé mikil og góð reynsla. „Við vöknum eldsnemma á morgnana og erum á fullu fram á kvöld. Orygg- isgæzlan er ótrúlega ströng og við fáum til dæmis ekki að yfirgefa hæðina á hótelinu þar sem við búum. Fjölskyldur og kærastar sumra stúlknanna eru komnar hingað tíl Suður- Afríku og stúlkurnar fá ekki að hitta aðstandendur nema kortér á dag og þá í viðurvist öryggisvarðar." Hittu Mandela Dómarar í keppninni eru 11 talsins og hafa þeir rætt við alla þátttakendur, tvær mínútur hver og einn. Meðal dómnefndarmanna er dóttir Nelsons Birna Bragadóttir. Mandelas, forseta Suður-Afríku. Forsetinn tók á mótí þátttakendum og talaði stuttlega við allar stúlkurnar. Birna segir að heimsóknin til Mandela hafi verið hápunktur dvalarinnar í Suður-Afríku. „Það er mjög skemmtilegt að hafa hitt mann sem verður örugglega getið í mannkynssögunni sem eitt af mikilmennum þessarar aldar.“ Frændfólk Birnu, sem býr í Afríku, verður á staðnum en hún segist ekki vita til þess að aðrir Islendingar verði þar. Islenzkir billjardspilarar eru um þessar mundir að keppa í Suður-Afríku. Þeir hringdu í Birnu í vikunni og óskuðu henni góðs gengis. Hún kemur heim til íslands á mánudaginn. Eldur í upptökusal Sjónvarpsins eftir að SSSól lék iagið Ekki brenna upp Tilkomumikill eldveggur ELDUR kom upp í sviðsmynd í seilingar- fjarlægð frá trommu- leikara hljómsveitar- innar SSSól þegar upptökur stóðu yfir á þættinum Konsert með hljómsveitinni hjá Sjónvarpinu á fimmtu- dag. Hljómsveitin hafði nýlega lokið við að leika lag sitt Ekki brenna upp, en síðan gerðist það að eldur kviknaði af völdum ljóskastara í máluðu sviðstjaldi sem hékk úr loftinu og niður á gólf. HÁR sviðnuðu á handlegg Hafþórs Guðmundssonar. á áttunda tug ungl- inga úr grunn- og framhaldsskólum borgarinnar. Áhorf- andi í salnum kvaðst í samtali við Morgun- blaðið telja að veruleg eldhætta hefði skap- ast þegar kviknaði í tjaldinu, þar sem leik- tjöld sem voru í snert- ingu við tjaldið hefðu legið umhverfis upp- tökusalinn og áhorf- endahópinn, og mikið hefði verið um eldfim efni eins og gasgrisjur og við. Rifu tjaldið niður „í nokkrar sekúndur frusu allir en síðan stukkum við KK, sem var Stjórn og starfs- f ólk SVFÍ * Anám- skeið um starfs- vitund STARFSFÓLK og stjórn Slysavarnarfélags íslands mun um næstu helgi sækja samskiptanámskeið á Hótel Örk sem kallast starfsvitund, og Stjórnunarfélagið sér um. Að sögn Estherar Guðmunds- dóttur, framkvæmdastjóri SVFÍ, er markmið þess að fá hæfara og betra starfsfólk og auka samhæfni á milli þess og stjórnar. „Tilgangurinn er að skerpa markmiðin og fara í smá nafla- skoðun innan félagsins eins og stundum er gert.“ Aðspurð um hvort námskeiðið sé tilraun til að slá á ósætti innan SVFÍ vegna brottrekstrar Hálfdans Henryssonar, sagði Esther svo ekki vera, ákvörðun um nám- skeiðið hafi verið tekin löngu áður en mál hans kom upp. „Við byijuðum fyrir ári síðan að fara gegnum samsvarandi námskeið, með umsjónar- mönnum unglingadeild, for- mönnum slysavarnardeilda og formönnum björgunarsveita. Síðan var alltaf meiningin að halda námskeið með starfs- fólki og stjóm, en það er tilvilj- un að það kemur í kjölfar máls Hálfdans. Námskeiðið tekur yfir laugardag en síðan borðum við saman og bjóðum fólki upp á að gista yfir nótt- ina, en næsta dag er stjórnar- fundur," segir hún. Hár á handleggjum trommuleikarans Hafþórs Guð- mundssonar sviðnuðu og sú hlið sem sneri að tjaldinu sótaðist, en hann náði að stökkva til hliðar. „Tjaldið hafði líklegast færst nær ljóskastaranum meðan á æfíngum og hljóðprufum stóð fyrr um dag- inn, þegar slökkt var á honum,“ segir Helgi Björnsson, söngvari SSSól. „Fimm eða sex mínútum eftir að upptökur hófust skipti engum togum að tjaldið fuðraði upp og þarna myndaðist tilkomu- mikill eldveggur. Þetta gerðist mjög hratt og án þess að ég vilji fullyrða um prósentur, hrann tals- vert stór hluti tjaldsins." Á sviðspallinum stóðu átta hljóðfæraleikarar en í salnum sat gestaleikari hjá okkur, sviðsmaður og einhverjir fleiri til í einni kös og rifum tjaldið niður með offorsi, vöðluðum því saman og tókst þannig að slökkva eldinn áður en hann breiddist út. Einhveijir komu síðan með slökkvitæki. Ég myndi segja að í nokkur augnablik hefði getað brugðið til beggja vona, en sem betur fer voru menn við- bragðsfljótir,“ segir Helgi. Upptökur voru stöðvaðar eftir að eldurinn var slokknaður og um klukkustundar langt hlé gert, og verður atriðið ekki notað í þættin- um. Eldvarnaeftirlitið ætlaði að kanna málið í gær. Franskir, köflóttir útijakkar frá Daniel.D. n .. .. , Verð kr. 22.000,- laugardaga TKSS JVeftst við Dunhiigu, .sími 622230 kl. 10-14. Uppeldi og menntun í Reykjavík Ólafur Örn Haraldsson, frambjóöandi f 2. sæti Framsóknarflokksins í Reykjavík, verður á Kaffi Reykjavík daglega næstu viku kl. 17.00-18.30 og í dag kl. 15.00-17.00. i dag verða sérstakir gestir hans Unnur Halldórsdóttir, formaður Heimilis og skóia, Ragnar Gíslason, formaður Skólastjórafélags Reykjavíkur og Sigrún Magnúsdóttir, formaður Skólamálaráðs Reykjavíkur. Lítið inn og ræöið þessi mikilvægu mál. Ólafur Örn (hjarta Reykjavíkur NÝKOMIÐ FRÁ ÍTALÍU Mikið úrval af sófasettum os rókókóstólum frá de angeli Tegund Barbara 3+1+1 tau. Tegund Raisa 3+1+1 leður og tau. — Hagstætt verð — OPIÐ í DAG TIL KL. 16.00. SUNNUDAG kl. 14.00-16.00. □HHBECl HÚSGAGNAVERSLUN Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 654 100 011Cn Q1 0*7LARUSÞ.VALDIMARSSON.framkvæmdastjori L I I JVL I 0 / V KRISTJAN KRISTJANSSON, loggiltur fasteignasau Til sýnis og sölu m.a. eigna: Glæsileg - gott lán - mikið útsýni Sólrík 2ja herb. suðuríbúð á 2. hæð miðsv. við Hraunbæ. Nýtt park- et. Nýtt gler. Mjög góð innr. Ágæt sameign. 40 ára húsnæðislán kr. 3,2 millj. Laus nú þegar. . Úrvalsíbúð - góður bílskúr - útsýni Ný 4ra herb. íb. á 2. hæð um 100 fm móti suðri og sól í Suðurhlíðum Kóp. 40 ára húsnlán um kr. 5,1 millj. Tilboð óskast. Á vinsælum stöðum í Vesturborginni Sólríkar 3ja og 4ra herb. íb. v. Meistaravelli og Hjarðarhaga. Gott verð. Vinsaml. leitið nánari uppl. Nýtt eldhús - sérhiti - kjallaraherb. Endaíb. 108,6 fm á 1. hæð v. Hraunbæ. Tvennar svalir. Mjög góð sameign. Kjherb. m. snyrtingu fylgir. Tilboð óskast. Eignaskipti mögul. Fyrir smið eða laghentan Við Safamýri 6 herb. efri hæð 144,5 fm nettó. Allt sór. Innr. af eldri gerð. Rúmg. bílsk. Eignaskipti mögul. 4ra-5 herb. íbúð í Seljahverfi óskast til kaups, má þarfn. endurbóta, í skiptum fyrir 2ja herb. úr- valsíb. m. sérþvhúsi og bílsk. Nökkvavogur - Karfavogur - nágrenni Óskum eftir húseign m. 2 íb. Einb. m. stórum bílsk., sérhæðum og 2ja-4ra herb. íb. Traustir kaupendur, Hagkv. eignaskipti. aimenna búðir á frábærum FAST ElGNASAl AN greiðslukjorum. uÚGWEGMniM^'zvÍM^zíjlTO

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.