Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 19 FRÉTTIR: EVRÓPA Ríkiseinokun á símakerfum af- lögð 1998 í ESB Einkarekin símakerfi verða að ná til alls landsins, segir samgönguráðherra Brussel. Reuter. SAMGÖNGU- og fjarskiptaráðherr- ar Evrópusambandsins ákváðu á fimmtudagskvöld að afnema einka- rétt ríkissímafyrirtækja í aðildarríkj- unum á uppbyggingu og rekstri grunnfjarskiptakerfís hinn 1. janúar 1998. Portúgal, írland, Spánn og Grikkland fá fimm ára aðlögunar- tíma og hið smáa símakerfi Lúxem- borgara tveggja ára aðlögunartíma í viðbót. Ráðherraráðið samþykkti hins vegar ekki tillögur framkvæmda- stjómar ESB um að strax á næsta ári verði t.d. kapalsjónvarpsstöðvum leyft að dreifa tölvuupplýsingum um dreifikerfi sín. Frakkland, Bretland og Holland fóm fram á að fram- kvæmdastjórnin legði fram nýjar til- lögur, sem miðuðu að því að ná sama markmiði. Undir það tóku áheyrnar- fulltrúar Svíþjóðar og Finnlands, sem munu ganga í Evrópusambandið um áramót. ESB hafði þegar samþykkt að gefa rekstur gmnnsímaþjónustu fijálsan 1. janúar 1998, en ekki hafði verið hróflað við einkarétti ríkisfyrir- tækja á uppbyggingu og rekstri sjálfs símakerfísins fyrr en nú, og því hafa einkarekin fjarskiptafyrirtæki þurft að leigja símalínur, tengi og rofa af ríkinu. Ráðherramir samþykktu að settar yrðu reglur um leyfisveitingar, sam- tengingu símkerfa og „altæka þjón- ustu“, sem þýðir að tryggt verði að öllum símnotendum standi til boða símþjónusta á sanngjömu verði. Sérfræðingar í atvinnu- og efna- hagsmálum hafa varað við því að hömlur á fjarskiptaþjónustu í Evrópu muni skaða samkeppnishæfni álf- unnar. Óheft samkeppni þýddi hærri kostnað neytenda Hinar nýju reglur Evrópusam- bandsins gætu orðið hluti samnings- ins um Evrópskt efnahagssvæði, en í honum er einkaréttur ríkissímafyr- irtækja á rekstri og uppsetningu grunnnetsins viðurkenndur. Halldór Blöndal, samgönguráðherra^ var spurður hvort hann teldi að Islend- ingar ættu að samþykkja slíkt og fylgja þar með í fótspor ESB-ríkj- anna. Ráðherrann sagðist leggja áherzlu á að breyting Pósts og síma í sjálfstætt hlutafélag væri forsenda þess að hægt væri að opna fyrir samkeppni á takmörkuðum sviðum. Landið væri hins vegar stórt, en markaðurinn lítill. „Það má því færa rök fyrir því að óheft samkeppni hér innanlands hlyti einungis að hafa í för með sér hærri tilkostnað fyrir neytendur," sagði Halldór. Aðspurður hvort íslendingar myndu þá leggjast gegn því að kveð- ið yrði á um fijálsan rekstur síma- kerfis í EES-samningnum, minnti Halldór á að í samningnum væri staðið á annan hátt að uppbyggingu atvinnulífs og kröfum um samkeppni á strjálbýlum svæðum en þéttbýlum. „Spumingin er hvort verið er að tala um landið í heild, eða hvort gefa á fyrirtækjum færi á að keppa á ein- hveiju takmörkuðu svæði, til dæmis upp og niður Laugaveginn," sagði ráðherra. „Við getum ekki fallizt á annað en að verði opnað fyrir sam- keppni, muni fjarskiptanetið ná til landsins alls, eftir einhverri skilgrein- ingu. Sú er hugsunin á bak við Póst og síma.“ Reuter PERTTI Paasio, formaður utanríkismálanefndar finnska þings- ins, og Pertti Salolainen, ráðherra utanríkisviðskipta, fagna þeirri ákvörðun finnska þingsins að samþykkja ESB-aðild. Finnska þmgið sam- þykkir aðildarsamning FINNSKA þingið samþykkti í gær aðildarsamninginn við Evrópu- sambandið með 152 atkvæðum gegn 45. Tvö hundruð þingmenn sitja á finnska þinginu. Einn þingmaður var fjarverandi, einn sat hjá og forseti þingsins gi’eiðir ekki at- kvæði. „Þetta góð, rétt og söguleg ákvörðun," sagði Esko Aho for- sætisráðherra eftir atkvæða- greiðsluna. Hann sagði niðurstöð- una vera í samræmi við það sem hann hafði búist við. Þann 16. október sl. samþykktu Finnar aðild í þjóðaratkvæða- greiðslu með 56,9% atkvæða gegn 43,1%. •RÍKISSTJÓRN Danmerkur lýsti því yfir í gær að hún myndi reyna að hnekkja þeirri ákvörðun fram- kvæmdastjórnarinnar að leyfa stórfelldan ríkisstuðning við franska flugfélagið Air France. „Það er algjörlega ósásættanlegt að leyfa margra milljarða aðstoð af þessu tagi,“ sagði Jan Troej- borg samgönguráðherra. SAS- flugfélagið, sem danska ríkið á hlut í, hefur ásamt nokkrum öðr- um evrópskum flugfélögum ákveðið að kæra ákvörðun fram- kvæmdastjórnarinnar til Evrópu- dómstólsins. •DRIES van Agt, sérlegur fulltrúi ESB í Bandaríkjunum, hvatti á ráðstefnunni Global Panel 1994 í Maastricht til þess að Bandaríkin og ESB gerðu með sér nýjan víð- tækan fríverslunarsamning. Taldi hann það nauðsynlegt til að tengja álfurnar nánari böndum eftir að engin ógn stafaði lengur af Sovét- ríkjunum. fyrsti vinningur á laugardag! Landsleikurinn okkar!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.