Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuter BOSNÍSKIR stjóriiarhermenn miða flugskeytabyssu á óvinastöðvar i grennd við bæinn Teslic í Bosn- íu. Sljórnarherinn átti þar undir högg að sækja í bardögum við serbneskar hersveitir. Loftárásir Serbaá griðasvæðið í Bihac Sar^jevo. Reuter. Sveitarstjórna- kosningar á Itaiíu Flokki Berlus- conis spáð ósigri Róm. Reuter. KOSIÐ verður til sveitarstjórna víða á Ítalíu á morgun, sunnudag, og er Forza Itaiia, flokki Silvios Berlusc- onis forsætisráðherra, spáð miklu fylgistapi, aðeins 23% segjast nú styðja hann. Stjórnarflokkamir þrír deila hart um niðurskurð á eftirlau- nagreiðslum og á fimmtudag greiddi Norðursambandið atkvæði með breytingatillögu stjórnarandstöð- unnar sem mildar nokkuð aðgerðir stjórnarinnar er vill minnka fjárlaga- halla. Verkalýðsleiðtogar hafa boðað til átta stunda allsheijarverkfalls 2. desember til að mótmæla niður- skurðinum en segja nú koma til greina að aflýsa því ef stjórnvöld komi meira til móts við kröfur þeirra. Geitur og fasistasvín Berlusconi hleypti illu blóði í Norð- ursambandið á mánudag er hann gerði hluta fjárlagatillagnanna að spurningu um traust á stjórnina til að þvinga fram stuðning Norður- sambandsins sem vill fara hægar í sakimar í niðurskurði. Gianfranco Fini, leiðtogi Þjóðfylk- ingarinnar hefur deilt hart á leiðtoga Norðursambandsins, sagt að þeir höguðu sér eins og „geitur“. Ekki stóð á svari hjá Luigi Rossi, tals- manni þingflokks Norðursambánds- ins. „Sé þetta svo svara ég þeim sem þingmaður sambandsins og segi að þeir séu fasistasvín". 70% kjósenda óánægðir Stefnt er að því að neðri deild þingsins afgreiði fjárlagatillögumar um helgina og því brýnt að ná um þær samkomulagi. Kannanir sýna dvínandi stuðning við ríkisstjómina, 70% kjósenda lýsa óánægju með hana og aðeins 40% vilja að hún sitji út kjörtímabilið. f RSKA kvennahreyfingin var í I sókn í byijun áratugarins en virðist nú eiga í vök að veijast. Þegar Frances Fitzgerald, ein af atkvæðamestu konunum í kvenna- hreyfíngunni á Írlandi, var kjörin á þing fyrir tveimur árum virtist hreyf- ingin vera að sækja í sig veðrið í íhaldssömu þjóðfélagi þar sem kven- réttindabaráttan hefur gengið hæg- ar en annars staðar í Vestur-Evrópu. Fitzgerald, sem er 44 ára félags- ráðgjafi, hafði gegnt formennsku í jafnréttisráði írlands og margir töldu hana líklega til að verða fyrsta írska konan til að gegna embætti forsætis- ráðherra. Mikill kraftur hafði færst í kvennahreyfinguna þegar Mary Robinson var kjörin forseti írlands árið 1990, -en hún er fyrsta konan sem hefur gegnt því embætti. Tveimur árum síðar fagnaði kvenna- hreyfingin því að 20 konur náðu kjöri til þingsins, sem hefur 166 þingsæti, og fjölgaði um sjö. Ymis mál virtust kalla á umræðu og breytingar. Líklegt þótti að nán- ast aigjört bann við fóstureyðingum yrði afnumið og hjónaskilnaðir yrðu heimilaðir. Barátta kvenna fyrir jafnrétti á vinnumarkaðnum og auknu framlagi ríkisins til barna- gæslu virtist hafa borið árangur. Syrtir í álinn Fitzgerald varð hins vegar undir í valdabaráttu innan flokks hennar, Fine Gael, og áhrif hennar hafa minnkað. Ýmsar úrbætur sem kvennahreyfingin hefur barist fyrir TVÆR serbneskar flugvélar gerðu loftárásir á griðasvæði múslima í Bihacborg í Norðvestur-Bosníu í gær þrátt fyrir að Sameinuðu þjóð- imar hafí varað við, að slíkum árás- um yrði svarað með aðgerðum NATO-herflugvéla. SÞ hefur stað- fest, að árásimar hafí átt sér stað og telja, að napalm- og klasa- sprengjur hafí verið notaðar en tals- maður NATO, sem hefur eftirlit með flugbanninu yfír Bosníu, kvaðst ekki geta gert það að svo stöddu. Jan-Dirk Merveldt, talsmaður SÞ, sagðist geta staðfest, að tvær þotur af Orao-gerð hefðu flogið lágt yfír Bihacborg og varpað sprengj- um á hana en fjölmiðlar í Bosníu segja, að þær hafí verið þijár. Fund- á þingi hafa einnig verið hindraðar. „Hreyfíngin stendur á krossgöt- um að nýju,“ sagði Fitzgerald. „Bar- áttan er komin á nýtt og erfiðara stig.“ Fitzgerald rekur vanda kvenna- hreyfingarinnar til þess að ýmis baráttumál hennar, sem þóttu rót- tæk í fyrstu, séu orðin að ríkjandi Vísbendingar um að notaðar hafi verið napalm- og klasasprengjur ist hafa merki um napalm- og klasa- sprengjur og fréttir eru um mikið mannfall. Fyrr í mánuðinum gerðu flugvélar frá yfirráðasvæði Serba í Krajina í Krótaíu árásir á Bihac og þykir líklegt, að árásimar í gær hafí einnig verið gerðar þaðan. Talsmaður NATO kvaðst ekki geta staðfest, að árásirnar hefðu verið gerðar. Engar upplýsingar væm um, að flugvélamar hefðu komið fram á ratsjárskjám stefnu. „Við höfum fengið stjómina til að fallast á grundvallarhugmynd- ir okkar um jafnrétti, úrbætur, kvóta, réttindi barna,“ sagði hún. „Þegar boðskapurinn öðlast viður- kenningu er erfiðara að dýpka hann.“ Þótt fleiri konur séu skipaðar í opinberar nefndir og stjómin hafí AWACS-flugvéla, sem hafa eftirlit á svæðinu. Hvatt tii fimmveldafundar Utanríkisráðherrar Rússlands, Bretlands og Frakklands skomðu í gær á Bandaríkjastjórn að styðja tilraunir til að koma á friði í Bosn- íu og hvöttu til fundar með fimm- veldunum, sem stóðu að friðartillög- unum. Bandaríkjastjóm hefur lagt fyrir þingið áætlanir um hvemig hætt skuli vopnasölubanni á Bosníu og stjómvöldum veitt hemaðaraðstoð fyrir fimm milljarða dollara. Jafn- framt er þó varað við „alvarlegum afleiðingum" aðstoðar af þessu tagi en áætlunin er lögð fram að kröfu þingsins. aukið framlög til barnagæslu hefur kvennahreyfingunni ekki tekist að knýja fram ýmsar úrbætur sem tald- ar eru nauðsynlegar til að konur geti ráðið eigin lífí. Aðeins um 30% írskra kvenna vinna utan heimilis, eða færri en í nokkru öðru ríki Evrópusambands- ins. Bamsfæðingum, sem em 2,5 á hveija konu, hefur fækkað en þær eru enn tíðari en í öðrum ESB-ríkj- um. Fóstureyðingum hafnað Fitzgerald segir að kvennahreyf- ingin á írlandi eigi nú í vök að veij- ast vegna harðrar andstöðu sem komið hafi fram í umræðunni um fóstureyðingar. Harðvítug deila blossaði upp um fóstureyðingar árið 1992 þegar 14 ára stúlku, fómarlambi nauðgunar, var meinað að fara til Bretlands til að gangast undir fóstureyðingu, eins og um 5.000 írskar konur hafa gert á ári hverju. Hæstiréttur landsins heimilaði henni þó að lokum að fara til Bretlands. Málið olli mikilli deilu meðal al- mennings og þingið samþykkti frum- varp sem slakaði á banninu við fóst- ureyðingum. Kjósendur höfnuðu því hins vegar í þjóðaratkvæði. Þegar stjórnin komst til valda fyrir tæpum tveimur ámm lofaði hún þjóðaratkvæði um hjónaskilnaði, sem hafa verið bannaðir, en því hef- ur nú verið frestað. Heimild: The International Herald Tribune. Afram mótmæli á A-Tímor UM 400 Austur-Tímorbúar flýðu inn í rómversk-kaþólska kirkju eftir að sló í brýnu með þeim og almenningi auk óeirða- lögreglu er þeir stóðu fyrir mótmælum. Flýðu mótmælend- ur inn í kirkju á meðan þar stóð yfir messa en yfírgáfu hana skömmu síðar. Austur- Tímorbúar hafa haldið uppi mótmælum gegn stjórn Indó- nesíu eftir að hún innlimaði landið árið 1975. Rússar senda Eystrasalts- ríkjum tóninn RÚSSNESKA þingið tilkynnti Eystrasaltsríkjunum það í gær að ákvarðanir um hvort flytja ætti á brott vopn og hermenn frá Kalíníngrad, væru ein- göngu á könnu Rússa. Sagði í yfírlýsingu þingsins að það þyrfti ekki á neinum ráðlegg- ingum að halda varðandi þetta mál. Kalíníngrad er á milli Lit- háen og Póllands. Stafnhlera Estoniu náð STAFNHLERA feijunnar Est- oniu, sem sökk á Eystrasalti í september sl., var lyft upp af hafsbotni í gær. Var hlerinn fluttur til hafnar í Finnlandi, þar sem hann verður rannsak- aður. Nasreen verðlaunuð RITHÖFUNDURINN Taslima Nasreen frá Bangladesh hlaut í gær Shakarov-verðlaunin sem Evrópuþingið veitir, fyrir bar- áttu hennar fyrir tjáningar- frelsi. Nasreen verða' afhent verðlaunin, 1,2 milljónir, þann 18. desember í Strasbourg. Unita undir- ritar ekki TALSMAÐUR Unita skærul- iðahreyfíngarinnar í Angóla sagði í gær að Unita myndi ekki undirrita nýtt friðarsam- komulag við stjórnvöld á morg- un, sunnudag, eins og áætlað var. Áfram er barist í landinu. Eldflauga- árás í Kúrdistan TÍU óbreyttir borgarar, þar á meðal tvö börn, létu lífið þegar eldflaugar lentu á heimilum þeirra í átökum Kúrda og tyrk- neskra hersveita í suðaustur- Tyrklandi. Þá létust þrír félag- ar í Verkamannaflokki Kúrdist- an (PKK) og einn hermaður í átökunum. Ritsljóri drepinn RITSTJÓRI blaðs Úzbeka var skotinn í höfuðið í Tadjikistan í gær. Er hann 26. blaðamað- urinn sem lætur lífið í „ógnar- herferð" sem staðið hefur gegn fjölmiðlamönnum í landinu frá því í maí 1992. Kvenréttindabaráttan hefur gengið hægar á írlandi en annars staðar í Evrópu Kvennahreyf- ingin í vanda MIKILL kraftur færðist í kvennahreyfinguna þegar Mary Robin- sori var kjörin forseti Irlands árið 1990.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.