Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eyfirskir kartöflubændur vilja leggja landssamband sitt niður ,, Land ssambandið er í raun ekki til“ „ÞAÐ er á hreinu að landssam- bandið er að sinna sínum síðustu störfum, það hefði átt að vera búið að leggja það niður fyrir löngu. Flest aðilarfélögin hafa ekki greitt lögbundin gjöld til sam- bandsins í mörg ár, svo hafa félög sagt sig frá því og í einu félagi er aðeins einn félagi, en lög sam- bandsins gera ekki ráð fyrir færri en tíu félögum í hverju félagi. Því er nánast hægt að segja að lands- sambandið sé í rauninni ekki til,“ sagði Jónas Baldursson, formaður Félags kartöflubænda við Eyja- fjörð, á fundi félagins í fyrrakvöld þar sem staða mála var rætt. Óánægja Flestir fundarmanna tóku í sama streng og formaðurinn, al- menn óánægja með landssam- bandið kom greinilega fram á fundinum. Helgi Örlygsson, bóndi á Þórisstöðum, fulltrúi félagins á aðalfundi sambandsins á dögun- Eyfirðingar einir hafa greitt til sam- bandsins frá 1990 um, sagði að Félag kartöflubænda við Eyjafjörð væri eina félagið inn- an sambandsins sem greitt hefði gjöld til félagins frá árinu 1990. Það væri til marks um að sam- bandið væri að líða undir lok. Órói Ákveðið var á aðalfundi sam- bandsins að skipa þriggja manna nefnd til að fara í saumana á málefnum Landssambands kart- öflubænda og eiga Norðlendingar einn nefndarmanna. Sterklega kom fram á fundi eyfiskra kart- öflubænda að leggja bæri lands- sambandið niður í núverandi mynd, málum þeirra yrði ekki síð- ur betur komið fyrir innan heildar- samtaka landbúnaðarins. Kom fram í máli eins fundarmanna að hann teldi sambandið ekki hafa unnið að framgagni hagsmuna- mála kartöfluframleiðenda, vilji meirihluta framleiðenda hefði í raun verið hundsaður. Óeining Ólafur Vagnsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, sagði á fundinum frá gangi mála varðandi stofnrækt útsæðis og taldi að óeining meðal kartöflu- bænda gæti ógnað því að góður árangur næðist. Mikill órói er á kartöflumarkaði vegna góðrar uppskeru á liðnu hausti og eru bændur uggandi um að þeir fái ekki nægilega hátt verð fyrir framleiðslu þess árs. Fram kom í máli formannsins á fundinum, að ekki væri vitað ná- kvæmlega hversu mikil uppskera væri þannig að ef til vill væri um óþarfa hræðslu að ræða. MIKLU magni af ónýtu parket-und- irlagi var fargað á sorphaugum Akureyringa í Glerárdal í vikunni, en hugmyndir um að flytja efnið til endurvinnslu í Úrvinnslunni hf. náðu ekki fram að ganga, þar sem reglur kveða á um að ekki megi nýta ótollafgreiddar vörur. Um- hverfissinnar telja reglugerðarstífni einum of mikla. Byggingavörudeild ’ KEA flutti inn parket-undirlagið í tveimur gámum, alls 82 rúllur, sem hver er tæplega 290 fermetrar að stærð. Sjór komist í annan gáminn og þannig eyðilagðist 31 rúlla af undir- laginu sem er úr mjúku plasti. I stað þess að urða þetta efni, sem var mikið að umfangi og lengi að eyðast, komu fram hugmyndir um Jólakonfekt ÞEIR eru til sem farnir eru að huga að undirbúningi jólanna og eitt af því sem sumir taka sér fyr- ir hendur áður en hátíðin gengur í garð er konfektgerð. Friðrik Karlsson, matreiðslumaður, hefur staðið fyrir námskeiðum í konf- ektgerð. Töluvert er síðan það fyrsta af mörgum var haldið en upppantað er á þau öll. „Ég legg áherslu á hafa þetta ekki flókið, þetta er heimiliskonfekt sem auð- velt er ad gera og gott að nálgast hráefnið," sagði Friðrik. að flytja það til Úrvinnslunnar hf. sem nýtir plast og pappír og fram- leiðir brettakubba. Reglur í gildi Sigurður Pálsson, yfirmaður toll- gæslunnar á Akureyri, sagði, að samkvæmt reglum yrði að tollaf- greiða og greiða virðisaukaskatt og önnur lögboðin gjöld af þeim vam- ingi sem ætti að nýta. „Við hefðum ekki mátt fara með þetta efni í endurvinnsluna ótollafgreitt því þá væri verið að nýta vaminginn. Hann var af tryggingarfélagi dæmdur ónýtur og slíkum varningi verður að farga og um það gilda strangar reglur, jarðýta keyrir yfir hann og tætir áður en urðað er,“ sagði Sig- urður. Messur AKUREYRARPRESTAKALL: Helgistund verður á Fjórðungs- sjúkrahúsinu kl. 10. á morgun. Hugleiðing: Sigurur Arnarson cand. theol. Sunnudagaskóli í Ak- ureyrarkirkju kl. 11. Hátíðarmessa kl. 14.00. Afmælis kirkjunnar minnst. Blásarar úr Tónlistarskól- anum á Akureyri leika. Kór Akur- eyrarkirkju syngur. Kvenfélag Ak- ureyrarkirkju verður með basar og kaffisölu í Safnaðarheimilinu eftir messu til styrktar orgelsjóði kirkj- unnar. Aðalfundur Listvinafélags Akureyrarkirkju verður í Kapellunni kl. 16.00. Æskulýðsfélagið heldur fund í Kapellunni kl. 17. Biblíulest- ur verður mánudagskvöldið 21. nóvember kl. 20.30. í Safnaðar- heimilinu. GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og bænastund í kirkjunni kl. 11.00 í dag. Barnasamkoma kl. 11.00 á morgun. Guðsþjónusta kl. 14.00 Basar kvenfélagsins í fordyri kirkj- unnar að guðsþjónustu lokinni. Fundur æskuýðsfélagsins kl. 18.00. Kyrrðarstund í hádeginu á miðvikudag kl. 12-13, m.a. orgel- leikur, helgistund og fyrirbænir, léttur málsverður að stundinni lok- inni. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Safn- aðarfundur kl. 14.00 í dag og sam- koma í umsjá ungs fólks kl. 20.30 í kvöld. Safnaðarsamkoma kl. 1100 á morgun, og vakningarsamkoma kl. 15.30. Biblíulestur næsta mið- vikudag kl. 20.00. Kristileg krakka- samtök kl. 17.15 næsta föstudag og bænasamkoma kl. 20.30. Óskum eftir að ráða í eftirtalin störf fyrir einn af viðskiptavinum okkar: Starf fulltrúa Um er að ræða fjármálaumsjón og ýmis önnur störf á skrif- stofu. Viðkomandi þarf að hafa viðskiptapróf eða aðra sam- bærilega menntun. í starfinu felst m.a. ábygrð á innheimtu, færslur í bókhald og skrifstofuumsjón. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í upphafi ársins 1995. Starf flokksstjóra Um er að ræða flokksstjórastarf í vöruafgreiðslu, sem felur í sér verkefnastjórnun ásamt mannaforráðum. Vinnutími getur verið lengur þegar verkefni krefjast þess. Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni, þar sem umsóknareyðubiöð liggja frammi. RÁÐNINGAR Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600 Plastið mátti ekki fara í endurvinnsiu Allt á haugana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.