Morgunblaðið - 19.11.1994, Page 6
6 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
__________________ATLAMTAMALIÐ______
Utandagskrárumræða um deilu Atlanta og FÍ A
Stjórnvöld telja ekki
tímabært að grípa inn í
Morgunblaðið/Þorkell
ÞÓRA Guðmundsdóttir, annar eigenda flugfélagsins Atlanta, mætti á Alþingi til þess að fylgjast
með umræðunum um deilu flugfélagsins við Félag íslenskra atvinnuflugmanna.
SAMGÖNGURÁÐHERRA og fé-
lagsmálaráðherra hafa komist að
þeirri sameiginlegu niðurstöðu að
ekki sé tímabært að ríkisstjómin
grípi inn í atburðarás Atlanta-deil-
unnar með skipan sáttanefndar.
Rannveig Guðmundsdóttir, fé-
lagsmálaráðherra, segir að í henn-
ar huga hljóti lausn málsins meðal
annars að byggjast á því að þeir
starfsmenn sem vinni hjá Atlanta
finni sameiginlega lausn á því með
hvaða hætti þeir geti starfað sam-
an hjá fyrirtækinu óháð því hvoru
stéttarfélaginu þeir séu aðilar að.
Hún hafi þá trú að heppnist það
muni þetta viðkvæma og erfíða
mál leysast farsællega. Rannveig
svaraði fyrirspurn Halldórs Ás-
grímssonar, Framsóknarflokki, um
viðbrögð ríkisstjómarinnar við
deilunni með þessum hætti í gær.
Eðlilegt og sjálfsagt að
reyna að hafa áhrif til góðs
Rannveig sagði að hlutverk
stjórnvalda í deilum af þessum
toga væri almennt séð aðeins
óbeint í gegnum hlutverk sátta-
semjara ríkisins. „Þó segir í lögum
um sáttastarf í vinnudeilum, að
þyki sýnt að vinnudeila hafi mjög
alvarlegar afleiðingar geti ríkis-
stjórn skipað sérstaka sáttanefnd
til að vinna að lausn deilunnar. í
því tilviki er skylt að hafa samráð
við ríkissáttasemjara og deiluaðila
áður en slík nefnd er skipuð. En
auðvitað er eðlilegt og sjálfsagt
að reyna að hafa áhrif til góðs til
að stuðla að lausn mála sem þess-
ara,“ sagði hún.
Hún sagðist hafa haft samráð
við ríkissáttasemjara í þessu máli.
„Ég hef jafnframt átt óformlegar
viðræður við einstaka aðila málsins
og þá hefur hæstvirtur samgöngu-
ráðherra beitt sér í málinu í sam-
ræmi við það sem honum leyfíst.
Okkar sameiginlega niðurstaða er
sú að athuguðu máli að alls ekki
sé tímabært að ríkisstjómin grípi
inn í atburðarás þessa máls með
þeim hætti sem hún hefur heimild
til og hér hefur verið grein fyrir.
Málið var kynnt með þessum hætti
í ríkisstjóm í morgun. Á það verð-
ur að reyna að frjálsir samningar
takist þannig að farsæl lausn fá-
ist,“ sagði Rannveig meðal annars
og lýsti yfir ánægju sinni með að
ekki lægi fyrir að gripið yrði til
samúðaraðgerða á Suðumesjum
enda ákjósanlegast að samnings-
aðilar fengju tóm til að tala saman.
Rannveig og aðrir þingmenn er
tóku til máls lögðu áherslu á mikil-
vægi þess að starfsemi Atlanta
flyttist ekki úr landi. Árni Mathie-
sen, Sjálfstæðisflokki, tók meðal
annarra til máls og spurði hvort
ekki væri ástæða til að endurskoða
og breyta viðkomandi löggjöf til
að koma í veg fyrir að deilur á
borð við Atlanta-deiluna endur-
tækju sig á sama tíma og áhersla
væri lögð á að fá erlenda aðila til
að fjárfesta hér.
Vinnulöggjöfin endurskoðuð
Svavar Gestsson, Alþýðubanda-
lagi, og Halldór Ásgrímsson,
Framsóknarflokki, mótmæltu því
hins vegar að málið yrði notað til
að knýja á um breytingar á vinnu-
löggjöfinni og þrengja að verka-
lýðsfélögum. Halldór kvað nauð-
synlegt að huga að endurskoðun
lögggjafarinnar almennt enda
væri hún frá 1938. Hann þakkaði
svar félagsmálaráðherra og tók
fram að alls ekki ætti að útiloka
að skipa sáttanefnd í deilunni.
Rannveig tók síðust til máls og
ítrekaði að henni þætti farsælasta
lausnin felast í því að ríkissátta-
semjari leiddi málið til lykta. Ef
hins vegar deiluaðilar teldu að
stjórnvöld gætu orðið að liði til
lausnar deilunni ætttu þau að fara
að því.
Samvmnufer ðir-
Landsýn
Ekkert
bendir til
röskunar
HELGI Jóhannsson forstjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar segir að komi
ekki til samúðaraðgerða verkalýðsfé-
laga hér á landi bendi ekkert til að
ferðaskrifstofan verði fyrir óþægind-
um af verkfalli FÍA hjá Atlanta.
Atlanta hefur annast flug með
farþega Samvinnuferða-Landsýnar
til og frá Dublin á írlandi, og fór vél
þangað með farþega í gærmorgun.
Ónnur ferð er svo fyrirhuguð á
sunnudaginn með 125 farþega.
Helgi segir að Atlanta hefði tii-
kynnt að engir flugmenn í FÍA yrðu
á vélum félagsins á næstunni. Engu
að síður hefði ferðaskrifstofan til
öryggis tryggt sér að írskt flugfélag
flygi með farþegana ef þörf krefði.
----------♦ ♦ ♦---
SUS gagn-
rýnir ASI
og FÍA
STJÓRN Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna hélt fund í fyrrakvöld um
Atlanta-málið.
í ályktun stjórnarinnar er forysta
ASÍ og FÍA m.a. gagnrýnd harðlega
fyrir óbilgirni og eiginhagsmuna-
gæslu í deilunni við flugfélagið Atl-
anta. Óþolandi sé að örfáir verkalýðs-
rekendur geti att launafólki út í svo-
kallaðar samúðai-verkfallsaðgerðir
og reynt með þeim hætti að drepa
einn af vaxtarbroddum íslensks at-
vinnulífs.
Orðrétt segir: Málið er prófsteinn
á það hvort að hér á landi séu sköp-
uð skilyrði fyrir vöxt í atvinnurekstri
og hvort verkalýðshreyfingin vill ný
atvinnutækifæri eður ei. Svo virðist
sem verkalýðsforystan sé tilbúin til
þess að fórna atvinnutækifærum
hundruða íslendinga til að viðhalda
úreltu valdakerfi þeirra sjálfra.
Verkalýðshreyfingin virðist setja eig-
inhagsmuni í öndvegi en láta hag
þjóðarinnar og félagafrelsi mæta
afgangi.
Formaður FÍ A segist bjartsýnni en áður um að samningar takist við flugfélagið Atlanta
ALLSHERJARVERKFALL FÍA tók
gildi á hádegi í gær. í ljósi utan-
dagskrárumræðu á Alþingi og
yfirlýsinga frá félagsmálaráð-
herra og samgönguráðherra, um að þeir
muni beita sér fyrir lausn verkfallsins, ákvað
stjóm FÍA að fresta um sólarhring að senda
beiðni um stuðning til Alþjóða flugmanna-
sambandsins, Norræna flutningamanna-
sambandsins og til verkalýðsfélaga á Suður-
nesjum.
Tryggvi Baldursson, formaður FÍA, sagði
á blaðamannafundi í gær, að það væri gert
til að freista þess að sjá hvað kæmi út úr
samningaviðræðum síðar í dag. Sagðist
hann vera bjartsýnni en oft áður um að
samningar tækjust. Arngrímur Jóhannsson
eigandi Atlanta er væntanlegur til landsins
í dag.
Ágreiningur
um þrjú atriði
Tryggvi sagði að ágreiningur væri um þijú
atriði að hans.mati. Það er forgangsréttar-
ákvæði FFF, en því hafí verið borið við af
forsvarsmönnum Atlanta að ákvæðið kæmi
í veg fyrir að hægt væri að semja við FÍA.
Niðurstaða félagsdóms, að mati lögmanns
FÍA, væri að félagið ætti rétt á sex stöðum
til framtíðar hjá Atlanta og FFF á 23 stöð-
um. Auk þess ætti FFF vegna forgangsrétt-
arákvæða rétt á nýráðningum umfram þess-
ar 29 stöður.
FIA frestaði beiðni
um stuðning ytra
Morgunblaðið/Sverrir
TRYGGVI Baldursson formaður FÍA útskýrir sjónarmið félagsins á blaðamanna-
fundi í gær. í forgrunni er Hrafn Oddsson flugmaður hjá Atlanta.
„Til þess að reyna að leysa þetta mál „Okkar krafa núna og okkar vilji til að ná
höfum við í FIA fallið frá þeim' kröfu að samningi byggist á að þessir sex einstakling-
eiga rétt á sex stöðum,“ sagði Tryggvi. ar, og við erum tilbúnir að binda það við
nöfn, haldi sinni fyrri stöðu hjá félaginu og
sinni fyrri röð í starfsaldri. Áð mínu mati
er forgangsréttarákvæðið ekki þrándur í
götu við samninga í dag.“
Ágreiningur hefur verið um hvernig stað-
ið skuli að ráðningar- og uppsagnarröð flug-
manna en hjá öðrum viðsemjendum FÍA er
í gildi starfsaldurslisti, sem farið er eftir.
Þriðja atriðið og það eina sem Tryggvi
telur að komið geti í veg fyrir samnings-
gerð er aðgangur flugmanna FÍA að vinnu
hjá fyrirtækinu. Þeir hafi ekki haft sama
aðgang og félagar í FFF. „Það eitt er óað-
gengilegt,“ sagði hann. „Við munum ekki
geta sætt okkur við það.“
Eftii-launasjóður
flugmanna
Tryggvi sagði að auk þess væru tvö önn-
ur mál ófrágengin. Annað sneri að greiðslum
í eftirlaunasjóð. FÍA telur að það standist
ekki lög sem segir í samningi FFF við fyrir-
tækið að menn geti valið lífeyrissjóð. FÍA
hafi ákveðið að bjóða bókun vegna þessa
þar sem kemur fram að tilnefndir verði einn
frá hvorum aðila, FÍA og Atlanta, sem skili
áliti fyrir 1. desember um fyrirkomulag líf-
eyrismála starfsmanna FÍÁ. „Hitt málið
fjallar um uppsagnarfrest," sagði hann.
„Okkur finnst eðlilegt að landslög gildi um
hann og ég held að það sé sú niðurstaða
sem sé í sjónmáli og ég er ekki í vafa um
að það næst samkomulag.“