Morgunblaðið - 19.11.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 13
LANDIÐ
40 ára afmæli
Rjúkanda-
virlgunar
Ólafsvík - Rafmagnsveitur ríkis-
ins buðu fyrir skemmstu til sín
gestum vegna 40 ára afmæii
lyúkandavirkjunar í Ólafsvík.
Var komið saman í stöðvarhúsi
virkjunarinnar.
Jarðvinna við
virkjunina hófst
haustið 1951 og
stöðvarhúsið var
reist árið síðar.
Vinna við stífl-
una varað mestu
lokið haustið
1953 og uppsetn-
ing véla og raf-
búnaðar fór
fram sumarið
1954 og tók hún
til starfa um
haustið.
Inntaksstífla virkjunarinnar
er skammt ofan fossins Rjúk-
anda. Stíflan er þungastífla úr
járnbentri steinsteypu 240 rúm-
metrar að stærð og getur vatns-
yfirborð inntakslónsins hæst
komist í 194 metra yfir sjávar-
máli. Frá stíflunni liggur um 1,5
km löng þrýstivatnspípa að
stöðvarhúsinu. Vatnasvið ofan
stíflunnar er um 12 ferkílómetr-
ar. Miðlun er mjög takmörkuð
enda er rúmtak inntakslinsins
aðeins nokkur þúsund rúmmetr-
ar sem nægir virkjunnar aðeins
í fáeinar klukkustundir. Hins
vgar nemur virkjað rennsli 0,7
rúmmetrum á sekúndu, sem
jafnframt er lágmarksrennsli
árinnar, þannig að nær samfelld-
ur rekstur er tryggur.
Morgunbaðið/Theodór
SÉÐ yfir fyrirhugað mótssvæði og aðstöðu hesta-
eigendafélagsins Skugga á Vindási í Borgarbyggð.
Framkvæmdir hafn-
ar vegna Islands-
móts í hestaíþróttum
Borgarnesi - Miklar framkvæmdir
standa yfir á vallarsvæði hestaeig-
endafélagsins Skugga í Borgarnesi
vegna íslandsmóts í hestaíþróttum
sem verður haldið þar um miðjan
júlí á næsta ári.
Verið er að gera tvo 250 metra
langa hringvelli og eina 300 metra
langa skeiðbraut, auk áhorfenda-
svæðis og bílastæða. Verkið var
boðið út og var tilboði Borgarverks
hf. í Borgarnesi tekið. Kostnaður
við þessar framkvæmdir hljóðar upp
á rúmar 8 milljónir. Bæjarstjórn
Borgarbyggðar styrkir þessar
framkvæmdir hestamanna með
ákveðnu árvissu framlagi til 8 ára
en mismuninn greiðir Skuggi.
Að sögn Þorsteins Eyþórssonar,
formanns Skugga, var nauðsynlegt
að fara út í þessar framkvæmdir
til að geta haldið íslandsmótið á
næsta ári. Einnig væri félagið að
búa í haginn fyrir Landsmót UMFÍ
sem haldið verður í Borgarbyggð
1997. Kvaðst Þorsteinn vona að
hestaíþróttir yrðu teknar með sem
aðalgrein á landsmótinu, en ekki
einungis sem sýningargrein eins og
verið hefði. Sagði Þorsteinn að auk
Skugga stæðu hestamannafélögin
Glaður í Dalasýslu, Snæfellingur á
Snæfellsnesi og Faxi í Borgarfirði
að íslandsmótinu í hestaíþróttum á
næsta ári.
Víkurkirkja
60 ára
Fagradal - Víkurkirkja varð 60 ára
í haust, hinnv14. október, og var
haldið upp á það með ýmsu móti.
Tónleikar voru í kirkjunni 22.
október þar sem Erna Guðmunds-
dóttir sópransöngkona, Peter
Tompkins óbóleikari og Hilmar Örn
Agnarsson organisti við Skálholts-
kirkju fluttu íslenska og erlenda
tónlist.
Hátíðarguðsþjónusta var 13.
nóvember þar sem Loftur Erlings-
son baritón söng einsöng ásamt kór
Víkurkirkju og nemendum úr tón-
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Víkurkirkja
skóla Mýrdælinga. Til gamans má
geta að yfirkirkjusmiðurinn, Matt-
hías Einarsson, var viðstaddur
messuna.
ATH: OPIÐ SUNNUDAG
FRÁ KL 13-18
Á LAUGAUEGINUM
Verslanir - opið laugardaga frd kl. 10-16.
Jakkaföt frá 15.900
Skyrtur frá 2.900
Ullarvesti 4.900
Silkibindi frá 1.900
Leöurskór frá 4.800
Ullarfrakkar stuttir 16.900
Ullarfrakkar síðir 19.900
Uötiduö föt - fiott veró
Café 17
Þorsteinn Magnússon
opnar athyglisveröa
málverkasýningu ídag
Herramonn!
Uerió velkomin
..’ i. ■'
■
Höfum stækkaö
herradeildina
hiá okkur
á Lauáaveáinum
5% staögrei&sluafsláttur
Sendum í póstkröfu