Morgunblaðið - 19.11.1994, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
_____________________________ÚRVERIMU
Samstarfsnefnd atvinnurekenda í sjávarútvegi
Ekki tímabært að
sækja um ESB-aðild
Horfið frá áformum um aðleggja SAS niður
MAGNÚS Gunnarsson, formaður
samstarfsnefndar atvinnurek-
enda í sjávarútvegi (SAS), sagði
að afloknum fundi nefndarinnar
í þessari viku, að afstaða SAS á
fundinum hefði verið sú að hverfa
að sinni frá áformum um að
leggja SAS niður, þar til ljóst
væri hver staða atvinnulífsins
verður, ef Norðmenn gerast aðil-
ar að ESB.
„Menn hafa kannski einhveijar
mismunandi áherslur, að því er
varðar afstöðuna til ESB,“ sagði
Magnús, „en það er alger meiri-
hluti fyrir því í sjávarútveginum,
að það er ekki tímabært að við
sækjum um aðild að Evrópusam-
bandinu. Það kom mjög skýrt fram
á þessum fundi.“
Jafnframt rætt um
enn frekara samstarf
„Menn hafa verið að velta vöng-
um yfir framtíð SAS og þá hefur
m.a. verið um það rætt, að leggja
niður þennan óformlega sam-
starfsvettvang. Það hafa verið
lagðir í starfsemina ákveðnir fjár-
munir og því var ákveðið að taka
framhaldið til umræðu, vegna þess
fyrirvara sem settur var í vor, um
að ekki yrði endilega framhald á
starfsemi samstarfsnefndarinnar,
þegar þessu ári er lokið,“ sagði
Magnús. „Nú var því spurningin
sú, hvort við ættum að hætta þessu
samstarfi eða halda áfram og nið-
urstaðan á fundi okkar nú varð sú,
að mönnum fannst ekki tímabært
að ákveða nú að hætta. Jafnframt
ræddu menn hvernig hægt væri
að efla enn frekar formlegt sam-
starf atvinnurekenda í sjávarút-
vegi.“
Magnús sagði að m.a. væri
ástæða þess sú, að enn væri óljóst
hvernig hlutirnir færu í Noregi
vegna væntanlegrar aðildarum-
sókn Norðmanna að Evrópusam-
bandinu. Auk þess væri ljóst að
ekki væri útséð með það, hvernig
menn tryggðu hagsmuni atvinnul-
ífsins á Islandi, í sambandi við
Evrópska efnahagssvæðið, ef
Norðmenn yrðu aðilar að ESB.
Leggja til lækkun lágmarksverðs
LAGT hefur verið til við fram-
kvæmdaráð ESB, að viðmiðunar-
verð eða svokallað lágmarksverð á
fiski, sem fluttur er inn til Evrópu-
sambandsins, verði lækkað um 3
til 5% á næsta ári. Tímaritið Euro-
fish Report skýrir frá þessu í nýj-
asta hefti sínu. Þar er sagt að
lækkun lágmarksverðsins endur-
spegli almenna lækkun á fiskverði
innan sambandsins.
Samkvæmt fyrirliggjandi tillög-
um verðu lágmarksverð á þorski
um 104 krónur og lækkar um 3%
milli ára. Lágmarksverð á ufsa
verður 53 krónur, á ýsu 73 krónur
og á karfa 76 krónur miðað við
gengi ECU nú. Um er að ræða
ferskan fisk og er verð á íslenzkum
físki að öllu jöfnu nokkru eða tölu-
vert hærra en þetta lágmarksverð.
Lágmarksverðið hefur áhrif með
þeim hætti, að komi fiskur til sölu
innan sambandsins, hvort sem er
á mörkuðum eða ekki, má ekki
selja hann undir því. Fari svo á
uppboðsmörkuðum, að boð í fisk-
inn nái ekki lágmarksverðinu, skal
fiskurinn fara í mjölvinnslu á mjög
lágu verði. Sjómönnum innan ESB
er síðan bættur upp skaðinn og
greiðslu frá sambandinu eins og
fískurinn hefði selzt á lágmarks-
verði. Sjómenn og útgerðir utan
ESB fá hins vegar skellinn, nái
fiskurinn ekki lágmarksverði.
mmrra
Corega töflur haldagerlum ogtannsteini á
gervitönnum í skeffum
í gervitönnum leynast hvers kyns afkimar og glufur sem eru
gróörarstía fyrir gerla (bakteríur). Tannsteinn hleöst upp og
þegar fram líöa stundir myndast andremma.
Best er að eyöa gerlum (bakteríum) af gervitönnum með
Corega freyöitöflu. Um leið losnar pú við öhreinindi, bletti
og mislitun á tönnunum.
Svona eintalt er þaðl
Taktu út úr þér gervitennurnar og burstaöu þær með Corega
tannbursta. Leggöu þær í glas með volgu vatni og einni
Corega freyöitöflu. Iðandi loftbólurnar smjúga alls staðar
þar sem burstinn nær ekki til! Á meðan burstar þú góminn
meö mjúkum tannbursta.
COREGA
Geröu þetta daglega. Þannig kemur þú í veg fyrir aö gerlar
(bakteríur) nái aö þrífast og þú losnar við tannsteininn og
andardrátturinn
veröur frfsklegur
og þægilegur.
Corega freyði-
tíillur - frísklegur
andardráttur og
þú ert áhyggju-
laus í návist
annarra.
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Beitt í Verinu
NÚ er sá tími kominn að afli veidd-
ur á línu telst aðeins að hálfu til
kvóta. Því róa margir með línuna
nú yfir vetrarmánuðina og er oft
mikið að gera í beitingunni. Hér
eru þeir feðgarnir Jakob Ólafsson
og Bjami Jakobsson að beita í
verðbúðunum við Mýrargötu, sem
bera hið sjálfsagða nafn Verið. Það
er Bjarni sem aðallega sér um sjó-
sóknina á Vífli RE, en faðir hans
leggur honum lið.
Kvennadeild
Reykjaví kurde i Idar
Rauða kross íslands
Kvennadeild Rauöa krossins veröur
meö kynningu á starfsemi sinni í
Perlunni sunnudaginn 20. nóvember
frá kl. 14-17. Jólaföndur, kökubasar,
danssýning, nemendur frá Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar.
ARISTON
ARISTON
ÍTILBOÐ I
(TAKMARKAÐ MAGN) i|
Á BÖKIINAROFNUM fcj
O G HELLUBORÐUM
W
BÖKUNAROFNAR FRÁ KR. 29.670,- slgr.
OG HELLUBORÐ - - 15.700,-stgr.
KJÖLUR hf.
Suöurlandsbraut 22, SÍMI 888890
ARISTON 'ieyvt&Cti. t /5 an