Morgunblaðið - 19.11.1994, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 35
FRETTIR
INNLENT
Skátafélagið
Skjöldung-
ar 25 ára
HALDIÐ verður upp á 25 ára
afmæli Skátafélagsins Skjöld-
unga nk. sunnudag. í tilefni af
því er öllum gömluin og nýjum
félögum í Skjöldungum og einnig
öðrum skátum boðið að sækja
skátaskemmtun í Langholts-
kirkju sunnudaginn 20. nóvem-
ber kl. 16-17.30 og þiggja veit-
ingar á eftir í safnaðarheimilinu.
Gestir geta einnig skoðað skáta-
heimilið sem er í næsta nágrenni
kirkjunnar.
Skátafélagið Skjöldungar á
djúparrætur í skátahreyfing-
unni á íslandi og hafa skátar úr
félaginu og forverum þess
Skjöldungasveit og síðar Skjöld-
ungadeild í Skátafélagi Reykja-
víkur ætíð tekið virkan þátt í
mótun hennar og eru öflugur
burðarás í skátahreyfingunni í
dag.
SKÁTASVEITIN Farúlfar. Myndin er tekin árið 1969.
Trjónukrabbi í sæ-
lífskerfinu á Miðbakka
TRJÓNUKRABBINN verður í dag
og næstu sólarhringa kynntur í
sælífskerunum á Hvalnum, útivist-
arsvæði Miðbakkans.
Í kerunum verða bæði kynin og
ungviði, margir einstaklingar en
tijónukrabbinn er ákaflega breyti-
legur á litinn, getur litbreytt ysta
lagi skeljarinnar og líkist þá gjama
því umhverfi sem hann lifir í. Auk
þess laðar hann að sér ýmis ásætu-
dýr, s.s. mosadýr og hrúðukarla og
setur á sig ungar þörungaplöntur
(dulargervi). Lífsbarátta krabbanna
er hörð og oft vantar þá griparma
(klær) og lappir, en það breytir
ekki miklu, þeir bjarga sér samt
og næst þegar þeir stækka við skel-
skipti vaxa á þá nýir griparmar og
lappir.
Ráðstefna um Evrópu-
sambandsumræðuna
ALÞÝÐUFLOKKURINN telur
nauðsynlegt að sem flestir fái tæki-
•færi til þess að kynna sér upplýs-
ingar um Evrópusambandið og ís-
land og hefur því boðað til ráð-
stefnu í Átthagasal Hótel Sögu
sunnudaginn 20. nóvmeber kl.
14.30, segir í frétt frá Alþýðu-
flokknum.
Þar munu fulltrúar háskólans
kynna niðurstöður rannsókna á
kostum og göllum ESB-aðilar og
á eftir verða pallborðsumræður.
Þátttakendur þar verða: Jón Bald-
■vin Hannibalsson, utanríkisráð-
herra, Sighvatur Bjamason, for-
maður SIK, Haukur Halldórsson,
formaður Stéttarsambands bænda,
og Ari Skúlason, alþjóðafulltrúi
ASÍ.
Fundarstjóri verður Ingólfur
Margeirsson, blaðamaður. Ráð-
stefnan er öllum opin og að loknum
framsögum verða fyrirspumir og
umræður.
í>ie<\le<t jóí
Jólakort MS -
félags Islands
MS - FÉLAG íslands hefur gefið
út jólakort til styrktar dagvistar-
byggingu félagsins á Sléttuvegi
5, Reykjavík.
Að þessu sinni prýða kortin ljós-
myndir af íslensku landslagi eftir
Pál Stefánsson, ljósmyndara. Kort-
in eru seld á skrifstofu félagsins,
Álandi 13 auk þess sem sölubörn
ganga í hús. Jólakortasalan er
aðal fjáröflun félagsins.
Sj ónvarpsmessa
á sunnudags-
morgun
SJÓNVARPIÐ bryddar upp á
þeirri nýbreytni nú á sunnudag
klukkan 11 árdegis, að sjónvarpa
sérstakri sjónvarpsmessu, sem tek-
in var upp fimmtudag fyrir rúmri
viku.
Messan, sem sjónvarpað verður,
er messa í Grafarvogskirkju og er
það sóknarpresturinn, séra Vigfús
Þór Árnason, sem predikar. Organ-
isti og kórstjóri er Bjarni Þór Jón-
atansson. Barnakór kirkjunnar
kemur einnig fram við messuna,
en kórstjóri hans er Áslaug Berg-
steinsdóttir.
Fegurð sýnd í
Glaumbar
GLAUMBAR við Tryggvagötu ætl-
ar í kvöld, laugardag, að sýna frá
keppninni Ungfrú heimur í beinni
útsendingu en þar keppir einmitt
Birna Bragadóttir fyrir íslands
hönd.
Keppnin fer fram í Suður-Afríku.
Einnig verður sýnt frá fyrri keppn-
um héma heima og verða þátttak-
endur úr keppnum síðustu fimm ára
heiðursgestir þetta kvöld. Á boð-
stólum verða léttar veitingar. Út-
sendingin frá keppninni hefst kl. 19.
Jólakort
Styrktarfélags
vangefinna
SALA er hafín á jóiakortum félags-
ins. Að þessu sinni voru gefin út
tvö kort. Annað þeirra er með mynd
eftir listakonuna Sólveigu Eggerz
Pétursdóttur og hitt kortið er með
mynd eftir Elfu Björk Jónsdóttur
og var á listsýningu fatlaðra sem
haldin var í tenglsum við alþjóðlegu
ráðstefnuna: Eitt samfélag fyrir
alla, sem haldin var í Reykjavík í
júní sl.
Átta kort em í hveijum pakka
og fylgir spjald sem gildir sem
happdrættismiði. Verð pakkans er
500 kr. Hinn 23. janúar 1995 verð-
ur dregið um myndirnar og vinn-
ingsnúmer þá birt í fjölmiðlum.
Kortin verða til sölu á skrifstofu
félagsins Háteigsvegi 6, Þroska-
hjálp Suðurlandsbraut 22, Verslun-
inni Kúnst, Engjateigi 17, Nesapó-
teki Eiðistorgi 18 og á stofnunum
félagsins.
Kvikmyndasýning í
Norræna húsinu
SÆNSKA kvikmyndin „Brödema
Lejonhjárta" verður sýnd í Norræna
húsinu sunnudaginn 20. nóvember
kl. 14.
Bræðurnir Klar og Jóhann Ienda
báðir eftir stutta lífdaga í landinu
Nangijal þar sem tími ævintýranna
og varðeldanna ræður ríkjum. En
hinu Ijúfa lífi í Kirsjubeijadalnum
er ógnað því að hinn grimmi ridd-
ari Þengill ræður rikjum í Þyrni-
rósadalnum. Hinir hugrökku bræð
ur ráðast gegn hinum illa Þengli
og svörtu riddurunum hans.
Kvikmyndin er byggð á sögu eft-
ir Astrid Lindgren. Sýningin tekur
rúma eina og hálfa klst. og er með
sænsku tali. Allir eru velkomnir og
aðgangur er ókeypis.
Sýnir leður- og mokkafatnað
SIGRÍÐUR Sunneva sýnir leður-
og mokkafatnað á Sólon íslandus,
sunnudag, kl. 20:00.
Fatnaðurinn er afrakstur síðustu
missera og er eingöngu úr íslensku
hráefni. Hönnunin er undir áhrifum
þess nýjasta sem gerist í hátísku
heimsins.
Sigríður Sunneva er fædd á Ak-
ureyri árið 1963. Hún lauk prófi frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands
árið 1987 og stundaði síðan fram
haldsnám í hönnun í Flórens á ít-
alíu til 1991. Eftir nám starfaði hún
hjá DIBI og MIBET í Toscana-hér
aði, sem í dag teljast með fremstu
framleiðendum á mokkafatnaði
heiminum.
Hún rekur nú eigið verkstæði og
saumastofu i Listagili á Akureyri
Jón Sæmundur Sigurjónsson fyrrum
þingmaður Alþýðuflokks
Mér líst mjög' vel
á margar áhersl-
ur hjá Jóhönnu
„ÉG HEF sagt að ég væri hvorki
búinn að taka þessa ákvörðun né
tilbúin til að gera upp sakir við
minn gamla flokk. Mér líst hins
vegar mjög vel á margt hjá Jó-
hönnu og áherslur hennar passa
betur við það sem ég geri mér í
hugarlund að Alþýðuflokkur ætti
að líta út,“ segir Jón Sæmundur
Siguijónsson, hagfræðingur í heil-
brigðisráðuneytinu, um hugsan-
lega þáttöku sína í jafnaðar-
mannaflokki Jóhönnu Sigurðar-
dóttur.
Skipti um
kirkju en ekki trú
Jón sagði að ef hann færi yfir
væri hann kannski að skipta um
kirkju en ekki trú. „Auðvitað er
það þannig að málefnin mótast
af mönnunum og áherslumar eru
aðrar. Áherslurnar voru nokkuð
aðrar hjá Jóhönnu innan Alþýðu-
flokksins en Jóni Baldvin. Nú er
það ekki svo að ég hafi verið svo
mjög á móti því sem Jón Baldvin
hafði til málanna að leggja. Heldur
sé ég að í hans forystu er flokkur-
inn að koðna niður, því miður.
Mér finnst að illa sé komið fyrir
flokknum. Spumingin er auðvitað:
„Tekur maður saman höndum
ásamt sínum félögum og reynir
að sjá hvort ekki rætist úr eða
tekur maður þátt í Jafnaðar-
mannaflokki sem greinilega er á
fljúgandi ferð og er með áherslur
sem ég kann ákaflega vel við.“
Jón kapteinn
sem ekki fiskar
Hann sagði að Jón Baldvin hefði
á sínum tíma sagt að hann þyrfti
að taka við af Kjartani því hann
væri kapteinn sem ekki fiskaði.
„Nú sýna skoðanakannanir að Jón
Baldvin er kominn á sömu mið.
Hann fískar sannarlega ekki leng-
ur. Ég er eindregið þeirrar skoðun-
ar að Jón Baldvin sé einn af mikil-
fenglegri stjómmálamönnum á
sviði íslenskra stjómmála. Ég hef
líkt honum við Gorbatsjev, sem
var maður mikill afreka, virtur
mjög erlendis en sá ekki land
heimafyrir. Mér sýnist líkt á kom-
ið með Jóni Baldvin,“ sagði hann.
Hann sagðist hafa farið til fundar
við Jóhönnu og stuðningsfólk
hennar. Sá fundur hefði ekki veikt
tiltrú hans á Jóhönnu eða það sem
stæði í kringum hana.
Ný verslun Uno Danmark
UNO Danmark hefur opnað aðra
verslun í Þingholtsstræti 6 (annað
hús frá Bankastræti) en Uno hefur
verið staðsett í Borgarkringlunni í
rúm tvö ár og verður þar einnig
áfram. Uno sérhæfir sig í fatnaði
úr náttúruefnum, þ.e. bómull, visk-
os og silki bæði á fullorðna og böm
og leggur áherslu á vandaða og
umhverfisvæna framleiðslu. Eig-
endur eru Birgir Ó. Einarsson og
Guðlaug Gunnarsdóttir.
Akvörðun Guðmundar
Arna fagriað
MORGUNBLAÐINU hefur borist
ályktun stjórnar Félags ungra
jafnaðarmanna í Reykjavík:
„Stjórn FUJR fagnar ákvörðun
Guðmundar Árna Stefánssonar
um að segja af sér sem félags-
málaráðherra. Hefur hann með
ákvörðun sinni vikið persónulegum
metnaði til hliðar fyrir trúverðu-
leika og framtíð Alþýðuflokksins,
Jafnaðarflokki íslands.
Er það von stjórnar FUJR að
með djarfmannlegri ákvörðun
Guðmundar Árna Stefánssonar
takist Alþýðuflokknum, Jafnáðar-
flokki íslands, að hrista af sér
umræðu um spillingu og snúa vörn
í sókn.
Stjórn FUJR telur að fylgið sem
Alþýðuflokkurinn, Jafnaðaðar-
mannaflokkur íslands, mælist nú
með sé í engu samræmi við þau
verk sem Alþýðuflokkur, Jafn-
aðarflokkur íslands, hefur komið
til leiðar í ríkisstjórn og þá sterku
málefnastöðu sem flokkurinn hef-
ur.“