Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Boðsmiðar á myndir í
Stjörnubíói og 67 12" pizzur
m/þrem áleggjum á.
Verð kr. 39,90 mínútan. siuuYuu
EINN
Ein steipa, tveir strákar, þrír möguleikar
MMWlBMBiiBBIMHllWÍIBnma
■miaciIIIIBIIIiiHIIuiiiiiailimn UUIIimillRlliiJKni!
ISSIIV'Kiiwma UHItK ■■ ■ SIÍI ana nmu H cnliwni nDwaUIHM
*rr nmm maBiHHM i*bi1II1K1ii!ÍB!!®I ■nianaaiiHMHIIEIBtt Tr -WaSlfj
Stórskemmtileg gamanmynd
með vafasömu ívafi með LARA
FLYNN BOYLE, STEPHEN BALD-
WIN og JOSH CHARLES í aðal-
hlutverkum.
Stuart er hrifinn af Alex,
Alex þráir Eddy og Eddy ...
er ekki með kynhvatir sínar á
alveg á hreinu.
„Galsafengin og lostafull, með
kynlíf á heilanum. Aldrew
Fleming lætur allar óskir unga
fólksins um kynlíf rætast á
hvíta tjaldinu og hrífur okkur
með sér. Samleikur þríeykisins
er frábær."
David Ansen, NEWSWEEK
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
Bíómiðar á Threesome fylgir
fyrstu 300 18" pizzunum frá
PIZZA67 s. 671515
SlMI 671515
ÞAÐ GÆTI HENT ÞIG
ÚLFUR
Sýnd kl. 6.45.
kl. 9 og 11. _________
Framlag islands til
Óskarsverðlauna
1994.
Kr. 800 f. fullorðna.
Kr. 500 fyrir börn yngri
en 12 ára. Sýnd kl. 5.
Syngjandi ljóðskáld
ÞAÐ eru ljóðin sem skipta
öllu máli og þar er Hörður
Torfason á réttri leið.
TONLIST
Illjómplata
ÁHRIF HARÐAR TORFA
Áhrif, höfundur ljóða og laga:
Hörður Torfa. Hljóðfæraleikarar:
Jens Hansson saxar, hljómborð,
Björgvin Gíslason gítarar, Georg
Baldursson bassi, Baldvin Sigurðsson
bassi í Loðdýrið, Dan Cassidy fiðla,
Hörður Torfa gítarar, söngur,
bakraddir. Kór: Steingerður Sigþórs-
dóttir, Árni Kristjánsson, Guðmund-
ur Karl Friðjónsson, Halla Gísladótt-
ir, Rósalind Gísladóttir, Þórhildur
Tómasdóttir. Útsetrimgar, forritun,
upptökur og hljóðblöndun: Jens
Hansson. Útgefandi: Hörður Torfa.
48,12 mín., 1.999 kr.
HÖRÐUR Torfason hefur stund-
um verið kallaður fyrsti íslenski
trúbadorinn og sjálfsagt borið þá
nafngift með rentu. Hlutverki
trúbadorsins hefur verið líkt við hlut-
verk sögumanns, sem notar tónlistar-
formið til að koma frásögninni á
framfæri og má vissulega til sanns
vegar færa að sú er aðferð Harðar
Torfa við að koma sínum boðskap
til fólks. Sjálfur hefur hann þó ný-
lega lýst því í viðtali að búið sé að
útþynna hugtakið „trúbador" í vitundf
almennings, sem tengir það fremur
raulandi strák á bjórknæpu en skap-
andi listamanni.
Hörður Torfason á vissulega enga
samleið með slíkum skemmtikröftum
og því vil ég frekar nota orðið „ljóða-
tónská]d“ um Hörð og listsköþun
hans. í því sambandi nægir að vísa
til nýs geisladisks, sem hann hefur
nú sent frá sér og ber nafnið „Áhrif“,
en þar sýnir Hörður að honum lætur
vel að færa hugsanir sínar í ljóð og
sníða síðan um þau falleg lög. Sjálf-
sagt munu einhveijir andans menn
vera þessu ósammála því í Ijóðagerð
sinni beitir Hörður hefðbundnum
reglum bragfræðinnar um stuðla,
Bókastefna
í Gautaborg
►BÓKASTEFNAN í Gautaborg
var haldin nýlega. Islenskir rithöf-
undar kynntu verk sín og spjöll-
uðu við lesendur, fyrirlesarar
skiptust á skoðunum, m.a. um
fornar og nýjar íslenskar bók-
menntir, framtíðartungumál
Norðurlanda og galdra. Islensku
dagskráratriðin, sem tengdust að
nokkru fimmtíu ára afmæli lýð-
veldisins, mæltust vel fyrir að
sögn Önnu Einarsdóttur sem á
sæti í sljórn Bok & Bibliotek.
ANNA Einarsdóttir og finnski
rithöfundurinn Antti Tuuri.
höfuðstafi og endarím, sem í seinni
tíð hefur ekki þótt merkileg latína
meðal íslenskra samtímaskálda,
hvort sem það stafar af getuleysi
þeirra sjálfra til að beita þeim reglum
eða virðingarieysi fyrir gömlum hefð-
um. Látum það liggja á milli hluta.
Á nýju hljómplötunni kemur Hörð-
ur víða við í ljóðum sínum, sem ort
eru á ýmsum tímum og ýmsum stöð-
um, en þau fela í sér eins konar
uppgjör við fortíðina eða öllu heldur
„ýmsa elskhuga f gegnum tíðina“,
eins og Hörður orðaði það sjálfur í
áðumefndu viðtali. Þama er til dæm-
is ljóðið Rigning, sem ort var í Wash-
ington DC 1973, og Morgunn, sem
ort var í Lundi 1982, en flest ljóð-
anna em þó yngri, ort eftir 1990.
Hörður klæðir ljóðin síðan í tóna, sem
falla í flestum tilvikum vel að efninu.
Lögin em að vísu dálítið keimlík og
mætti Hörður ef til vill athuga sinn
gang í þeim efnum í framtíðinni,
svona til að skerpa betur á andstæð-
um ljóðanna.
Hvað tónlistina snertir er meira
lagt í útsetningar og undirleik en
menn eiga að venjast á fyrri plötum
Harðar. Jens Hansson ber hitann og
þungann af útsetningum og upptöku-
stjóm og hefur þar unnið ágætt verk,
en í útsetningum gætir áhrifa víða
að og má þar heyra tangó, salsa,
blús og jafnvel kántrý. Að mínu
mati hefur best tekist til í lögunum
Rigning, Bátur og Loðdýrið, en í síð-
astnefnda laginu kemur leikarinn
upp í Herði við túlkun á hrollvekj-
andi textanum. Hörður hefði gjaman
mátt gera meira af því að beita leik-
rænum stílbröðum í framsetningu
ljóðanna á þessari plötu enda er hann
þar á heimavelli.
Lögin sjálf gefa þó ef til vill ekki
mikið tilefni til átaka eða tilfæringa
á sviði upptökutækni og útfærslu.
Þau em flest fremur slétt og felld
og einhvern veginn hef ég á tilfinn-
ingunni að Hörður hefði alveg getað
gengið frá þeim sjálfur, einn með
gítarinn. Með þessum orðum er ég
ekki að gera lítið úr framlagi tónlist-
armannanna á plötunni því þeir skila
sínu með miklum ágætum. Hins veg-
ar er ljóst, að tónlistin sem slík er
aðeins umgjörð um boðskap ljóð-
anna. Það eru þau sem skipta hér
öllu máli og þar er Hörður Torfason
á réttri leið- Sveinn Guðjónsson
GESTIR á bókastefnu: Armann Snævarr, Hrafnhildur Stefánsdótt-
ir, Jenna Jensdóttir og Sigriður Snævarr, sendiherra í Svíþjóð.
ÞRÍ R kampakátir fyrirlesarar: Kristinn Jóhannesson,
Lars Lönnroth og Heimir Pálsson.