Morgunblaðið - 19.11.1994, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SlMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kreditkortafyrirtæki búast við
10 milljarða veltu í jólaverslun
_ Stystakorta-
tímabilið hafíð
STYSTA greiðslukortatímabil
ársins hófst í gær, 18. nóvember.
Það stendur til 8. desember þeg-
ar hið eiginlega jólatímabil hefst.
Nýhafið tímabil er því 10 dögum
styttra en venjulegttímabil. A
hinn bóginn stendur jólatímabilið
frá 8. desember til 18. janúar og
er því 10 dögum lengra en venju-
legft telst.
Viðskiptin snarminnka
íjanúar
Einar S. Einarsson, forsijóri
Visa Islands, segir að áætla megi
að heildarkortaviðskipti beggja
kortafyrirtækja frá 18. nóvem-
ber til 17. janúar nemi um 10
milljörðum króna. Viðskiptin fari
að langmestu leyti fram fyrir
jól, þau snarminnki í janúar. í
samanburði við tvo mánuði á
undan jukust kortaviðskipti Visa-
ísland í desember og janúar sl.
<“^um 853 milljónir hérlendis en
drógust saman erlendis um 345
milljónir. Hins vegar segir Einar
S. Einarsson að í kortaviðskipt-
um erlendis gæti yfirleitt
snemmbúinnar jólauppsveiflu á
haustmánuðum, október og nóv-
ember, vegna verslunarferða.
Hann segir að úttektir á jólatíma-
bilinu nemi að jafnaði um þriðj-
ungi hærri upphæð en í meðal-
mánuði.
Febrúarreikningar 15-17%
hærri en að meðaltali
Atli Orn Jónsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Kreditkorta
hf., segir að eiginlegjólavertíð
byrji ekki fyrr en með næsta
kortatímabili sem hefst 8. des-
ember. Hann segir ekki mikla
kortanotkun á yfirstandandi
tímabili. Atli Örn segir að velta
jólatímabilsins í ár verði að lík-
indum svipuð og í fyrra en þá
var hún 1,1 milljarður hjá Kred-
itkortum hf. Hver reikningur
eftir jólatímabilið, sem kemur til
greiðslu í febrúar, hljóðar að
meðaltali upp á 60 þúsund krón-
ur, en að sögn Atla er það
15-17% hærra en í meðalmánuði.
Morgunblaðið/Sverrir
STARFSMENN verslana í höfuðborginni eru sem óðast að klæða
þær í jólabúning. í gær unnu starfsmenn Kringlunnar að því
að setja upp jólaskraut á göngum verslunarmiðstöðvarinnar.
Lúðueldi
í Þor-
lákshöfn
VEGNA jákvæðs árangurs af til-
raunum í lúðueldi hefur Fiskeldi
Eyjafjarðar hf. ákveðið að ganga til
samninga við Framkvæmdasjóð um
kaup á fiskeldisstöðinni Ísþóri í Þor-
lákshöfn og hefja þar tilraunir með
matfiskeldi á lúðu. Hlutafé í Fiskeldi
Eyjafjarðar hf. hefur verið aukið um
130 millj. kr. og verður því varið til
að kosta endurbætur á stöðinni sem
áætlað er að kosti um 50 millj. kr.
Árangur í lúðueldi hjá Fiskeldi
Eyjafjarðar hf. hefur farið sífellt
batnandi. Tilraunir með nýtt fóður
lofa göðu og sömuleiðis hefur nú
tekist að færa til hrygningartíma
lúðunnar. Bjartsýni forráðamanna
fyrirtækisins hefur því aukist til
muna þó ennþá sé of snemmt að
fullyrða um að hægt sé að reka lúðu-
eldi með hagnaði í framtíðinni, að
sögn Ólafs Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Eftir miklu er að slægjast í þess-
um tilraunum því fersk lúða er mjög
eftirsótt á erlendum mörkuðum og
seld á háu verði.
Hluthafafundur í Fiskeldi Eyja-
fjarðar hf. samþykkti á fimmtudag
heimild til að auka hlutafé um 130
millj. kr. í 235 milljónir.
■ Aukin bjartsýni/14
Leiðarí Aftenposten
Alþjóð-
legan úr-
skurð um
deiluna
STÆRSTA dagblað Noregs, Aften-
posten, segir í leiðara í dag, laugar-
dag, að komi til nýrra árekstra milli
íslands og Noregs á Svalbarðasvæð-
inu komi í ljós þörf á alþjóðlegum
úrskurði sem svari því hver réttur
Noregs til yfirráða á svæðinu sé.
Blaðið segir að ekki sé hægt að
ganga að því sem vísu á hvem veg
slíkur úrskurður félli.
í leiðaranum segir að niðurstaða
héraðsdóms í Hágangsmálinu sýni
greinilega, að norsk stjórnvöld hafi,
lagalega séð, verið að fiska í grugg-
-— ugu vatni. Það sé ekki gott fyrir
Noreg þegar dómstóll finni rök til
að halda því fram að strandgæslan,
sem hafi haft samþykki vamarmála-
ráðherrans fyrir aðgerðum sínum,
hafi brotið gegn norskum lögum með
tilraunum til að klippa togvírana.
Blaðið lætur í Ijós þá von, að reglu-
gerð um veiðar á Svalbarðasvæðinu
veiti sterkari lagalegri grundvöll í
framtíðinni, eftir þær breytingar sem
gerðar voru á henni í sumar.
Skipherrann á Senju brotlegur
Siglingamálastofnun ríkisins hef-
ur sent norsku siglingamálastofnun-
inni umsögn um þann atburð í sumar
er norska strandgæsluskipið Senja
sigldi nærri fimm íslenskum toguruin
á Svalbarðasvæðinu. Siglingamála-
stofnun kemst að þeirri niðurstöðu,
að skipherrann á Senju hafi brotið
alþjóðlegar siglingareglur.
■ Norðmenn ósáttir/24
Sáttatillaga í Atlanta-
deilunni lögð fram í dag
ALLSHERJARVERKFALL Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna hjá Atlanta' tók gildi í gær.
Stjórn FIA ákvað vegna utandagskrárumræðu
á Alþingi og loforða ráðherra félags- og sam-
göngumála, um að hún myndi beita sér fyrir
lausn deilunnar, að fresta um sólarhring að senda
beiðni um stuðning til Alþjóða flugmannasam-
bandsins, Norræna flutningaverkamannasam-
bandsins og verkalýðsfélaga á Suðurnesjum.
Formaður FÍA segir þetta gert til að sjá hvað
kemur út úr samningafundi í dag, en hann sé
bjartsýnni um lausn en oft áður.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir að emb-
ætti ríkissáttasemjara hyggist leggja fram sátt-
atillögu á fundi deiluaðila í dag, sem feli m.a. í
sér að starfsaldursröð gildi og forgangsréttará-
kvæði til handa FFF, ásamt því að staða flug-
mannanna sex innan Atlanta sem eru í FIA
verði óbreytt frá því sem var. Jón Grímsson,
varaformaður FFF, kvaðst í samtali við Morgun-
blaðið í gær hafa skoðað tillöguna að hálfu í
gærmorgun. Áðurnefnd ákvæði séu til staðar,
en hann vildi ekki tjá sig um þær af ótta við
að spilla fyrir samningaviðræðum.
„Sáttavilji fyrir hendi“
Geir Gunnarsson vararíkissáttasemjari kvaðst
í gær ekki vilja ræða um tillögu sem ekki er
formlega búið að leggja fram, en ýmsar hug-
myndir um lausn verði skoðaðar í dag. „Ég held
að sáttavilji sé fyrir hendi, en þetta er mjög
erfitt og sérstakt mál. Á fundinum reynir á
hvernig þetta verður leyst og hvort úrslit nást
í málinu," segir Geir,
Samgönguráðherra og félagsmálaráðherra
hafa komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu
að ekki sé tímabært að ríkisstjórnin grípi inn í
rás atburða í Atlanta-deilunni með skipan sátta-
nefndar. Félagsmálaráðherra kvaðst á Alþingi í
gær telja að lausn málsins byggðist m.a. á að
starfsmenn Atlanta, óháð því hvaða stéttarfélagi
þeir tilheyra, leysi sín á milli hvernig þeir ætla
að starfa hjá fyrirtækinu.
■ FÍA frestaði að senda/6/11
Morgunblaðið/Muggur
LOÐNA rannsökuð um borð í rannsóknaskipinu Arna Friðriks-
syni. Einnig var r/s Bjarni Sæmundsson í leiðangrinum. I heild-
ina var ástand sjávar gott á norður- og austurmiðum. Leiðang-
ursstjórar voru Hjálmar Vilhjálmsson og Sveinn Sveinbjörnsson.
Loðnuleit Hafrannsóknastofnunar
Minna fannst
en búizt var við
AÐEINS mældust um 570.000 tonn
af hrygingarloðnu í árlegum haust-
leiðangri Hafrannsóknastofnunar,
sem er miklu minna en búizt hafði
verið við. Litlar líkur eru á því taldar
að meira sé en þetta af fullorðinni
loðnu í landgrunnskantinum, en mið-
að við reynslu undanfarinna ára var
farið yfir sennilegasta útbreiðslu-
svæði veiðistofnsins. Fullorðna loðn-
an var einnig óvenju rýr og meðal
annars þess vegna er talið hugsan-
legt að hluti stofnsins hafi enn verið
á eða í námunda við grænlenzka
landgrunnið, en þangað varð ekki
komizt vegna veðurs og ísa.
Hafrannsóknastofnun hefur lagt
til að veiðistofninn verði mældur á
ný í janúar á næsta ári og að þeim
mælingum loknum verði ákveðinn
heildarkvóti fyrir vertíðina 1995 til
1996. Kvóti hefur verið ákveðinn til
bráðabirgða 636.503 tonn. Veiðar
fóru þokkalega af stað að áliðnu
sumri, en nánast engin veiði hefur
nú verið um tveggja mánaða skeið.