Morgunblaðið - 08.12.1994, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Verð á matvöru er að meðaltali 5,5% lægra en fyrir ári
Miklar sveiflur í verði
einstakra matartegiinda
17,7* 18,5* |
Verðbreytingar
frá nóv. ’93 til nóv. ’94
skv. framfærsluvísitölu
3,1* 3,2*
5
:§ c
:■§ 1,0* |o §
2- ■ S cs
-5,5*
tg>
1,0*1-2* «
0,1* 0,2*
u> CO CO co
io v-T -0,o% <o
-14,5*1 -48,51
VERÐ á matvöru í nóvembermánuði
var að meðaltali 5,5% lægra en það
var í sama mánuði í fyrra. Þessa
lækkun má að verulegu'leyti rekja
til lækkunar virðisaukaskatts á
matvælum um síðustu áramót, en
þó eru breytingar á verði einstakra
tegunda matvöru mjög mismun-
andi. Þessi lækkun á matvöru hefur
valdið tæplega 1% lækkun á fram-
færsluvísitölunni, en sá liður í neyslu
vísitöluíjölskyldunnar sem hefur
hækkað mest frá því í nóvember í
fyrra er kostnaður við rekstur eigin
bifreiðar. Hann hefur hækkað um
3,2% frá því í fyrra sem hefur hækk-
að vísitöluna um 0,5%, en fram-
færsluvísitalan í heild er 0,1% lægri
nú en hún var í sama mánuði í fyrra.
Ef litið er til einstakra breytinga
á verði matvöru kemur í ljós að
mjöl, gijón, bakaðar vörur og kjöt-
vörur hafa lækkað um rúm 5% frá
því í nóvember í fyrra. Fiskur hefur
hins vegar hækkað um 1,5% á þessu
ári og mjólk, ostur, ijómi og egg
um 1,0%. Aftur á móti er um veru-
lega lækkun að ræða á grænmeti
og ávöxtum eða um 11,4% og feit-
meti og olíur hafa lækkað um 14,5%.
Þá hafa kartöflur og vörur úr þeim
lækkað um hvorki meira né minna
en 48,5%, en sykur hefur hækkað
um 17,7% og kaffi, kakó, te og súkk-
ulaði hafa hækkað um 18,5% að
meðaltali. Þær matvörur sem þá eru
eftir hafa lækkað að meðaltali um
5,2%.
Drykkjarvörur í heild hækka um
0,2% frá því í fyrra. Gosdrykkir
lækka um 3,2% og bjór um 1,4%,
en annað áfengi er 1% hærra en í
fyrra og tóbak hefur hækkað um
2,3%.
Fataverð óbreytt
Verð á fötum og skófatnaði er
nánast óbreytt frá því í fyrra, en
hækkunin er 0,1%. Hins vegar hafa
húsgögn og heimilsbúnaður lækkað
um 0,8%. Rafmagn hækkar um
1,1%, húsahitun um 1%, heilsuvernd
um 0,4%, símagjöld um 0,1% og
kostnaður vegna tómstunda og
skóla er talinn hækka um 1,3%. Að
lokum hefur húsnæðiskostnaður
hækkað um 1% frá því í nóvember
í fyrra. Að öllu samanlögðu hefur
vísitala vöru og þjónustu lækkað
um 0,2% frá því í fyrra og fram-
færsluvísitalan um 0,1%. Fram-
færsluvísitalan sem gilti í nóvember
1993 var 170,8, en sú vísitala sem
gilti í nóvember í ár er 170,7 stig.
Björgvin verður fulltrúi íslands í Evrópusöngvakeppninni í fyrsta skipti
Finnst spennandi
að taka þátt í keppninni
„MÉR finnst spennandi að taka
þátt í keppninni, en það á enn
eftir að finna lagið og jafnframt
er óráðið hvort aðeins eitt lag
verður valið hér heima, eða hvort
áhorfendur geta valið um nokkur
lög,“ sagði Björgvin Halldórsson,
söngvari, en hann hefur verið
valinn til að flytja íslenska lagið
í Evrópusöngvakeppninni á næsta
ári.
Söngvakeppnin verður haldin í
Dyflinni þann 13. maí og er það
í þriðja skipti í röð sem Irar halda
keppnina. Sjónvarpið samdi við
Skífuna hf. um að annast undir-
búning og framkvæmd á þátttöku
íslands í samráði við Sjónvarpið.
Að þessu sinni var ákveðið að
velja söngvarann og síðan Iagið,
í samráði við hann. I frétt frá
Sjónvarpinu segir, að það hafi
verið samdóma niðurstaða Sjón-
varpsins og Skifunnar að velja
Björgvin til að flytja lagið. Björg-
vin hefur margsinnis tekið þátt í
forkeppni Sjónvarpsins fyrir
Söngvakeppnina, sem og í alþjóð-
legum söngvakeppnuin og segir í
fréttinni að það sé álit margra
að sum þau lög, sem hann hafi
sungið í forkeppninni, hafi Iifað
lengur en þau sem valin hafi ver-
ið til þátttöku.
Fyrirkomulag óráðið
„Það liggur enn ekki fyrir til
hvaða höfunda við leitum eftir
lagi,“ sagði Björgvin í gær. „Þá
erum við að velta fyrir okkur
hvort við ættum að fara þá leið
að ég flylji nokkur lög í sjónvarps-
sal, sem greidd verði atkvæði um,
eða hvort valið verður endanlega
eitt lag til flutnings í keppninni."
Björgvin sagði að á næstu vik-
um skýrðist hvernig staðið yrði
að Iagavali.
Björgvin Halldórsson verður
fulltrúi íslands í Evrópu-
söngvakeppninni í Dyflinni.
Mikill stuðningur er við verkfall sjúkraliða í Dagsbrún og samninga krafist
Dagsbrún íhug-
ar að boða
skyndiverkfall
Á FÉLAGSFUNDI Dagsbrúnar í
fyrrakvöld var samþykkt tillaga um
að fela stjórn félagsins að boða til
aðgerða til stuðnings sjúkraliðum.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, útilokar ekki að
boðað verði til aðgerða í næstu viku.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formað-
ur Sjúkraliðafélagsins, fagnar mjög
stuðningi Dagsbrúnar.
Tillagan var borin fram af Gylfa
Páli Hersi og samþykkt samhljóða.
í tillögunni er skorað á öll verkalýðs-
félög að styðja sjúkraliða í baráttu
þeirra og þess krafist að stjórnvöld
semji við sjúkraliða þegar í stað.
„Jafnframt heimilar fundurinn
stjórn félagsins að boða til aðgerða,
sjúkraliðum til stuðnings, hvort sem
er með opnum fundum eða skyndi-
verkföllum, eða öðrum þeim aðgerð-
um er þurfa þykir," segir í lok tillög-
unnar.
Sjúkraliðar ánægðir
með stuðninginn
„Ég er mjög ánægð með þessa
ákvörðun Dagsbrúnar. Ég hef haldið
því fram að það eigi að fara að breyta
öllu launamunstri í landinu með tilliti
til þeirrar menntunar sem fólk hefur.
Þegar áform eru uppi um slíkar
breytingar þá tel ég það vera mál
allra launþega. Ég tel að allir laun-
þegar, hvort sem það eru opinberir
starfsmenn eða almennir launþegar,
eigi að standa saman um þessi mál.
Mér finnst þessi samþykkt Dagsbrún-
ar sýna það og sanna að hún er sam-
mála þessari skoðun okkar,“ sagði
Kristín Á. Guðmundsdóttir.
Hún sagði að Sjúkraliðafélaginu
hefði borist fjöldi stuðningsyfirlýs-
inga frá verkalýðsfélögum og vinnu-
stöðum víða um land. Stuðningur
Dagsbrúnar væri sá róttækasti sem
félaginu hefði borist til þessa.
Ákvörðunar Dagsbrúnar
að vænta í vikunni
Guðmundur J. sagði að stjórn
Dagsbrúnar yrði boðuð til fundar í
lok þessarar viku og þá myndi skýr-
ast hvort gripið yrði til einhverra
aðgerða til stuðnings sjúkraliðum
og þá til hvers konar aðgerða yrði
gripið. „Það er mikil reiði hjá mörg-
um út af því hvernig komið er fram
við sjúkraliða. Á félagsfundinum
heimtuðu margir félagsmenn veru-
legar aðgerðir til stuðnings sjúkral-
iðum,“ sagði Guðmundur J.
Boða þarf til skyndiverkfalla með
sjö daga fyrirvara.
Forsætisráðherra
um sjúkraliðadeilu
Engin efni
tilþessað
grípa inn í
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra segist vera sammála því
hvernig fjármálaráðherra. hefur
haldið á málum gagnvart verk-
falli sjúkraliða og engin efni
séu til þess að grípa þar inn í.
Ólafur Ragnar Grímsson
þingmaður Alþýðubandalags
spurði forsætisráðherra á Al-
þingi í gær hvað hann ætlaði
að gera til að leysa sjúkraliða-
deiluna. Ólafur Ragnar spurði
einnig hvort Davíð væri sam-
mála heilbrigðisráðherra um að
hækka beri laun sjúkraliða sér-
staklega og um afstöðu forsæt-
isráðherra til þess að laun
hjúkrunarfræðinga hefðu
hækkað 15% umfram laun
sjúkraliða frá árinu 1990, eins
og fjármálaráðuneytið hefði
upplýst.
Davíð sagðist ekki hafa
heyrt þau ummæli heilbrigðis-
ráðherra sem Ólafur Ragnar
vitnaði til en hins vegar lægi
fyrir að samninganefnd ríkisins
hefði boðið sjúkraliðum 4%
launahækkun. Davíð sagði, að
fram hefði komið að sjúkraliðar
hefðu ekki dregist afturúr öðr-
um hvað launaþróun varðaði,
en hins vegar væri viðmiðunar-
þátturinn erfiður í því sam-
bandi.
Alþjóðleg
kauphöll hér?
TVEIR þingmenn Framsóknar-
flokks vilja skoða hvort raun-
hæfir möguleikar séu á að
koma upp alþjóðlegri kauphöll
hér á landi.
Páll Pétursson og Finnur
Ingólfsson hafa lagt fram
þingsályktunartillögu um að
Alþingi kjósi nefnd til að kanna
þetta mál. í greinargerð segja
þeir að lega Islands kunni að
bjóða upp á ákveðna möguleika
á að koma hér upp alþjóðlegri
kauphöll, þaðan sem unnt væri
að gera viðskipti vestanhafs
síðdegis eftir að hliðstæðum
stofnunum hefur verið lokað í
þeim löndum sem liggja á aust-
lægari breiddargráðum.
Þingmennirnir segja að slík
starfsemi gæti stuðlað að því
að skjóta nýrri stoð undir efna-
hagslíf landsmanna en leggja
verði áherslu á að hún verði
undir stjórn íslendinga og virk-
um yfirráðum.
Samninga-
nefnd hittir
Friðrik í dag
SAMNINGANEFND ríkisins
hittir Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra f dag þar sem
farið verður yfír stöðuna í
sjúkraliðadeilunni. Af þeim sök-
um hefur samningafundi með
sjúkraliðum verið frestað til
klukkan fjögur. Samninga-
nefndirnar hittust á stuttum
fundi í gær. Enginn árangur
varð á fundinum.
Ekki er reiknað með kvöld-
fundi þó að fundur sé nú boðað-
ur síðdegis. Sjúkraliðar vonast
þó eftir að samninganefnd ríkis-
ins komi með eitthvað nýtt inn
á samningafundinn eftir fund
hennar með fjármálaráðherra.