Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 23 ERLENT Reuter Ók inn í verslun og- varð níu að bana Statoil útilokað frá olíuvinnslu? Þórshöfn. Morgunblaðið. ÓLI Breckmann og John Petersen, báðir þingmenn úr Fólkaflokknum, hafa lagt fram frumvarp til laga á Lögþingi Færeyja, sem á að koma í veg fyrir að Statoil-olíufé- lagið norska taki þátt í olíuvinnslu á færeysku hafsvæði. Breckmann og Petersen segja í frumvarpinu að sýni norsk yfírvöld nágrönnum sínum ekki meira vin- arþel, þá er m.a. átt við Smugu- veiðar, verði stjórn Gro Uarlem Brundtland tilkynnt að ríkisfyrir- tækinu Statoil verði ekki leyft að taka þátt í neinni samvinnu um mögulega olíuvinnslu í framtíðinni. Vísa tvímenningarnir m.a. til mörg hundruð milljóna, jafnvel milljarða kr. sem Færeyingar hafi lagt í norskan skipaiðnað. Þá vísa þeir einnig til þess sem Færeying- ar hafi fengið þess í stað; norskur floti og strandgæsla séu á hælum þeirra. Ólíkir íslendingum „Það er gjörólíkt viðmóti bræðra okkar á íslandi, sem, hafa leyft Færeyingum að veiða svo mikinn botnfisk að það hefur orðið til þess að halda rekstri nokkurra skipa og vinnslustöðva gangandi, og það án þess að krefjast nokkurs í stað- inn,“ segja Breckmann og Peters- en. NÍU manns biðu bana og 50 slös- uðust þegar vörubíl var ekið á 80 km hraða á klst. inn í stór- verslun á aðalverslunargötunni í Andorra á þriðjudag, fór þar í gegnum veitingastað sem var fullur af fólki og stöðvaðist loks við afgreiðsluborð snyrtivöru- verslunar. Bannað er að aka vö- rubílum á götunni, sem er mjög þröng, en bílstjórinn segir að hemlarnir hafi bilað og hann hafi ekki náð að beygja af henni. „Mér þykir þetta miður, ég lít á mig sem morðingja," sagði hann. • • Qryggisráð Rússlands hefur í hótunum við Tsjetsjena Krefst afvopnunar allra hersveitanna Moskvu. Reuter. DEILA rússneskra stjórnvalda og yfirvalda í Tsjetsjníju harðnaði að nýju í gær þegar æðstu embættis- menn Rússlands á sviði öryggis- og varnarmála kröfðust þess að öllum ráðum, sem stjórnarskráin heimilar, yrði beitt til að afvopna stríðandi fylkingar í Tsjetsjníju. Frjálslyndir þingmenn í Moskvu gagnrýndu þessa hörðu afstöðu og töldu hana draga mjög úr líkunum á því að friðsamleg lausn fyndist á deilunni. Tvær rússneskar herflugvélar flugu yfír Grozní, höfuðstað Tsjetsjníju, og gerðu árás á skrið- drekastöð í grennd við flugvöllinn í gær. Öryggisráð Rússlands, sem er skipað æðstu embættismönnum landsins á sviði öryggis- og varnar- mála, krafðist þess að „allir ólögleg- ir og vopnaðir hópar“ yrðu afvopn- Rússneskar her- þotur gera árás á skriðdrekastöð aðir og leystir upp með öllum ráðum sem stjórnarskráin heimilar. Sam- kvæmt henni getur forsetinn lýst yfír neyðarástandi í Tsjetsjníju, sem hefur lýst yfir sjálfstæði frá Rúss- landi, og sent þangað hermenn. Öryggisráðið vill að stuðnings- menn Dzokhars Dúdajevs, leiðtoga Tsjetsjníju, verði afvopnaðir, en ljóst er af fyrri ummælum hans að það kemur ekki til greina af hans hálfu. Dregið hafði úr spennunni eftir Dúdajev og Pavel Gratsjov, varnar- málaráðherra Rússlands, lýstu því yfir á þriðjudag að deilan yrði ekki leyst með hernaði. „Þeir ljúga allan tímann," sagði Shamsedin Yúsef, utanríkisráð- herra Tsjetsjníju, um kröfu öryggis- ráðsins og bætti við að Rússar væru enn að undirbúa innrás i hér- aðið. Hann sagði að Tsjetsjenar myndu beijast til síðasta manns. Hermönnum sleppt Grígoríj Javlínskíj, áhrifamikill fijálslyndur þingmaður, og Sergej Júshenkov, formaður varnarmála- nefndar neðri deildar þingsins, gagnrýndu kröfu öryggisráðsins og töldu að hún gæti leitt til átaka í Tsjetsjeníju. Þeir hafa báðir verið í héraðinu síðustu daga til að freista þess að frelsa rússneska hermenn, sem voru teknir þar til fanga. 14 hermönnum var sleppt í gær, en um 10 munu vera þar enn í haidi liðsmanna Dúdajevs. dömu og herra Stærðir: S-XXL Póstsendum. 5% staðgreiðsluafsláttur, einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga. muTiuFPfm GLÆSiÐÆ SÍMI 812922 N Ú E R R É T T I T í M t N N T I L A Ð F Á S É R G S M F A R S í M A um helgar! í desember og janúar gefst GSM farstmæígendum kostur á að hringja gjaktfrýákt um helgar.* Tíibodíð gíidír frá 10. desember 1994 til 29. janúar 199S á tímanum frá kL 20:00 á föstudagskvöidum ti! kl. 08:00 á mánudagsmorgnum. PÓSTUR OG SÍMJ GSEI’ *Tilboðið á ekki við um símtöl til útlanda eða í Símatorg. Símtöl í GSM farsímakerfið úr venjulegum síma eru gjaldfærð á venjulegan hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.