Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Rúnar Þór Sex sjúkrarúm til Hlíðar KONIJR í kvenfélaginu Framtíðinni hafa löngum stutt myndarlega við bakið á Dvalarheimilinu Hlíð. í fyrradag afhentu þær heimilinu sex ný sjúkrarúm, og hér eru framtíðarkonur ásamt ánægðum vistmönnum við eitt rúmið. Meira atvinnuleysi nú en á sama tíma í fyrra Erfitt framundan í byggingariðnaði TIL orðahnippinga kom milli fyrr- verandi og núverandi formanna at- vinnumálanefndar Akureyrar á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. Heimir Ingimarsson, Alþýðu- bandalagi og fyrrverandi formaður atvinnurriálanefndar, sagði að at- vinnuleysið hefði verið eitt af aðai- kosningamálunum í vor „og töldu sumir hvurjir ekki vandkvæðum bundið að ráða þar bót á,“ sagði hann og benti á að atvinnuleysis- dagar á Akureyri í nóvembermán- uði hefðu verið 10.053 en í fyrra 9.826, þeim hefði fjölgað um 227, sem léti nærri að vera heilt árs- verk. Um síðustu mánaðamót hefðu 482 verið á atvinnuleysisskrá en voru 465 á sama tíma í fyrra. Alvar- legast væri þó að ástandið horfði til verri vegar og hefðu til að mynda forystumenn í byggingariðnaði nefnt að allt stefndi í 30-40% at- vinnuleysi í greininni er liði á vetur- inn. „Þetta vekur ekki vonir um að verið sé að vinna að úrbótum á þessu sviði,“ sagði Heimir. Guðmundur Stefánsson formað- ur atvinnumálanefndar benti á að fram tii þessa hefði atvinnuleysi verið minna en í fyrra og Heimir vissi mæta vel að atvinnumálanefnd gæti ekki stokkið til og bjargað málum í einum hvelli. „Ef atvinnu- málanefnd á sök á þessu atvinnu- leysi ætti fyrrverandi formaður að líta í eigin barm og skoða hvað fyrri atvinnumálanefnd gerði,“ sagði Guðmundur og bætti við að verið væri að vinna að ýmsum málum er til framtíðar horfðu. Lítið til framdráttar atvinnulausum Heimir sagði að á fyrra kjörtíma- bili hefði langt verið gengið í að halda úti átaksverkefnum, en þau væru með allra minnsta móti nú. Reynt hefði verið að bregðast við vandanum, en sér virtist lítið gert í þeim efnum um þessar mundir. Guðmundur sagði atvinnuátaks- verkefni á vegum bæjarstjórnar ekki atvinnumálanefndar og lægi fyrir að slík verkefni yrðu áfram í gangi. „En þessar umræður eru lít- ið til framdráttar þeim sem atvinnu- lausir eru, en staðreyndin er þó sú að atvinnuástandið er ívíð skárra en á undanförnum árum, því ber að fagna, þó vissulega sé það enn alltof mikið,“ sagði Guðmundur. Aðstaða fótbolta- manna slæm KNATTSPYRNURÁÐ Akur- eyrar hefur skorað á bæjaryf- irvöld á Akureyri að leggja nú þegar fram fjármuni til að bæta aðstöðu knattspyrnumanna í bænum. Öllum megi Ijóst vera að æfinga- og keppnisaðstaða akureyskra knattspymumanna sé með öllu óviðunandi og að úrbóta sé þörf þegar í stað. Flygill á til- boðsverði ODDUR Halldórsson bæjarfull- trúi Framsóknarflokks sem fyr- ir nokkru lýsti hugmyndum sín- um um að draga úr framlögum til Tónlistarskólans og taldi kaup á konsertflygli ekki fyrst í forgangsröðinni sagði við umræður um íjárhagsáætlun bæjarsjóðs á fundi bæjarstjóm- ar í fyrradag að mikið væri rætt um hagræðingu í tengslum við áætlunina. Fyrst þegar rætt hefði verið um konsertflygilin hefði verið talað um að hann kostaði 6 milljónir króna. Síðan hefði sér verið boðinn flygill á 4,5 milljónir og nú fyrir stuttu hefði hannfrétt af flygli sem væri falur fyrir 2,7 milljónir. „Þannig að greinilegt er að víða er hægt að hagræða," sagði Oddur. Bókakynning* BÓKAKYNNING verður í Deiglunni í kvöld, fímmtudags- kvöldið 8. desember og hefst það kl. 20.30. Lesið verður úr Sniglaveisl- unni eftir Ólaf Jóhann Olafsson, Grandavegi 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur, Kvikasilfri eftir Einar Kárason, Tvílýsi eftir Thor Vilhjálmsson, Kvæði 94 eftir Kristján Karlsson, Játn- ingum landnemadóttur eftir Lauru Goodman og Sögu Ak- ureyrar eftir Jón Hjaltason. Nokkrir rithöfundanna legga leið sína í Deigluna og lesa sjálf- ir úr verkum sínum. Flutt verð- ur tónlist á undan upplestri. Bæjarsljóri um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar Gæta þarf verulegs að- halds í rekstri bæjarins Taka þarf tillit til aukinna útgjalda vegna Grenilundarmálsins JAKOB Bjömsson, bæjarstjóri á Akureyri, sagði við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og stofnana bæjarins að afkoma yfir- standandi árs væri mun verri heldur en reiknað var með og rekstur málaflokka farið verulega fram úr áætlun eða því sem næst um 50 milljónir króna. Við gerð áætlunar- innar þyrfti að taka tillit til aukinna útgjalda vegna niðurstöðu dóms- mála, þ.e. Grenilundarmálsins, 30 milljóna króna auk skuldaaukningu bæjarsjóðs á undanfömum árum. Það markmið hefði verið sett að auka ekki á skuldir bæjarsjóðs. „Til þess að halda skerðingu framkvæmdafjár í lágmarki þurfti því að gæta verulegs aðhalds í rekstri og sýna fyllstu varkámi við að taka upp nýmæli og viðbætur," sagði Jakob. Ákveðið hefði verið að halda inni sem raunhæfustum tölum og öllum liðum er lytu að atvinnumálum. „Og í þessari þröngu stöðu var sú ákvörðun tekin að hækka álagningarprósentu úr 9 í 9,2%. Þessi hækkun mun gefa bæjarsjóði 24 milljónir í auknar tekjur á næsta ári en þrátt fyrir það og þrátt fyrir 3,4 milljóna króna hækkun fráveitugjalda sem til er komin vegna hækkunar álagningar- stofns eru heildarskatttekjur bæjar- sjóðs áætlaðar 15,9 milljónum króna lægri en þær reyndust vera við endurskoðun ijárhagsáætlunar yfirstandandi árs.“ Óviðunandi í máli bæjarstjóra kom fram að staða Framkvæmdasjóðs væri all- sendis óviðunandi, en verði ekkert að gert munu skuldir hans aukast um ríflega 100 milljónir króna. Greiðslubyrði lána sjóðsins á næsta ári er áætluð um 200 milljónir króna, þar af rúmlega 146 milljónir vegna greiðslu langtimalána. Gert sé ráð fyrir að tekin verði ný lang- tímalán að upphæð 255 milljónir króna. Búist er við að hreint veltufé sjóðsins hækki á árinu um 35 millj- ónir króna en verði neikvætt í árs- lok um nær 18 milljónir króna. „Ég reikna með að flestum bæj- arbúum sé eins farið og mér að þeir vildu gjarnan hafa hærri fjár- hæðir til ráðstöfunar til þarfra verk- efna sem alls staðar blasa við. En mikilvægt er að halda stöðugleika, sýna ábyrgð og festu í fjármála- stjórn, því hét núverandi meirihluti að gera. Ég tel að áætlunin beri þess merki,“ sagði bæjarstjóri og lagði til að henni yrði vísað til síð- ari umræðu sem verður á fundi bæjarstjórnar 20. desember. Bæjarfulltrúar Alþýðubandalags Útsvarshækkun skárri en auknar lántökur Sigurður J. Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki Hagræðing í rekstri betri en skattahækkun BÆJARFULLTRÚAR Alþýðu- bandalagsins sátu hjá við af- greiðslu á hækkun útsvars úr 9 í 9,2% við fyrri umræðu um fjár- hagsáætlun bæjarsjóðs Akur- eyrar, en þeir telja útsvars- hækkun skárri kost en auknar lántökur til að standa undir rekstri og framkvæmdum. „Áður en gripið var til þessarar ráðstöfunar hefði þurft að leita leiða til sparnaðar í bæjarrekstr- inum og sýna fram á með skýr- um hætti að verið væri að ná ákveðnum markmiðum í þjón- ustu við bæjarbúa,“ segir í bók- un fulltrúa Alþýðubandalagsins af þessu tilefni. Þeir fallast á hækkun sorp- hreinsigjalds með þeim rökst- uðningi að verið sé að bæta með- ferð sorps og stuðla að endur- vinnslu. Sigríður Stefánsdóttir bæjar- fulltrúi Alþýðubandalags sagði við umræðu um fjárhagsáætlun- ina að hún bæri keim af nokkru kæruleysi, meiri tíma þyrfti til að fara betur í marga þætti henn- ar. Fram kemur í bókun fulltrú- anna að afstaða til áætlunarinnar í heild muni mótast af því hvaða hljómgrunn skoðanir þeirra og áherslur fengju áður en áætlunin verður lögð fram til Iokaaf- greiðslu. I máli Sigríðar kom fram að Alþýðubandalagið legði áherslu á uppbyggingu í skóla- málum, áframhaldandi fram- kvæmdum við Sundlaug Akur- eyrar og við ákveðna áfanga í menningarmálum. „BÆJARBÚAR ætlast til þess af okkur að farið sé í saumana á rekstrinum og skoðað hvort það séu einhveijir þeir þættir sem mega bíða fremur en að málið sé Ieyst með skattahækkunum," sagði Sigurður J. Sigurðsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks við fyrri umræðu um fjárhags- áætlun bæjarsjóðs Akureyrar. Að hans mati gætir ekki mik- ils baráttuhugar í fyrstu fjár- hagsáætlun nýs meirihluta í bæj- arstjórn Akureyrar, ferskleikinn sé lítill og áerslubreytingar nán- ast engar. Áætlunin beri þess að mörgu leyti merki að hana leggi fram þreyttur meirihluti sem sé að gefast upp fyrir vandanum fremur en nýr sem sóst hafi hart eftir að komast að. Sigurður sagði við umræður um áætlunina að ástæða hefði verið til að horfa gagnrýnum augum á rekstur bæjarins frem- ur en að hækka skatta. „Það er mikilvægara en nokkru sinni áður að skoða reksturinn gaum- gæfilega ef það gæti leitt til þ ess að hægt sé að draga úr rekstrar- gjöldum. Mér finnst að engan vegin hafi verið farið yfir rekstr- arþættina á gagnrýnan hátt með það fyrir augum að hagræða," sagði Sigurður. Hann benti á að launakostnaður bæjarins næmi 950 milljónum króna þar af væru 135 milljónir vegna yfirvinnu, bærinn keypti vörur fyrir 140 milljónir á ári og orku og þjón- ustu fyrir 400 milljónir. Það hlyti að vera eitthvert svigrúm til að skoða þessa þætti betur með hag- ræðingu í huga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.