Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 7
Lífsstörf og skoðanir
f jögurra áhrifa-
og athafnamanna
Ævintýraleg
viðskiptasaga
P álmi í Hagkaup var skag-
firskur bóndasonur og
lögfræðingur að mennt, en
kaupmaður að atvinnu og ástríðu.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
hefur nú skráð viðskiptasögu Pálma.
Hún er ævintýri líkust frá því er
hann hóf verslun í gömlu fjósi við
Eskihlíð árið 1959 þar til hann lést
en þá var fyrirtæki hans orðið eitt hið
stærsta á landinu. Lífsstarf Pálma ein
kenndist meðal annars af lang-
vinnum átökum við einokunaröfl
og sérhagsmunasamtök, sem stóðu
í vegi fyrir frumkvöðulsstarfi
Pálrna, sem var að bjóða góða
vöru á lágu verði.
Ibókinni Ahrifamenn eftir
Jónínu Michaelsdóttur segja
fjórir menn af kynslóðinni sem
fagnaði lýðveldi á Þingvöllum fyrir
fimmtíu árum frá störfum sínum og
lífshlaupi. Þeir tala tæpitungulaust
um kosti og lesti íslensks samfélags
fyrr og nú og lýsa skoðunum sínum
á eftirminnilegan hátt.
Guðmundur Guðmundsson,
útgerðarmaður og fyrrum
skipstjóri á Isafirði gerir út
aflaskipið Guðbjörgu ÍS 46
eða „Gugguna11.
Haraldur Sveinsson er framkvæmda
'Stjóri Árvakurs sem gefur út blað
allra landsmanna, Morgunblaðið.
Jónas H. Haralz var efnahagslegur
ráðgjafi ríkisstjórna, bæði á hægri og
vinstri væng stjórnmálanna áður en
hann varð bankastjóri Landsbankans.
Vilhjálmur Jónsson var franri'
kvæmdastjóri Olíufélagsins hf. í
þrjátíu og tvö ár og rak fyrirtækið
allan þann tíma með hagnaði.
FRAMTÍÐARSÝN HF.
Sími 91 628780