Morgunblaðið - 08.12.1994, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Könnun Félags einstæðra foreldra á framfærslu barna
Kostnaður a bam
386-550 þúsund á ári
KOSTNAÐUR af framfærslu eins
barns í heilt ár er á bilinu 386
þúsund krónur og upp í tæp 550
þúsund krónur eftir aldri barnsins,
samkvæmt könnun sem Félag ein-
stæðra foreldra framkvæmdi með-
al félagsmanna sinna á árinu 1991.
Tölurnar eru framreiknaðar til
verðlags í dag.
Kostnaður vex með aldri
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar er minnstur kostnaður
samfara framfærslu bams undir
fimm ára aldri, en hann vex sam-
fara aldri barnsins og er hæstur í
aldursflokknum 13-15 ára. Kostn-
aðurinn framreiknaður til meðal-
verðlags í ár er 386 þúsund í
yngsta aldurshópnum, 391 þúsund
í aldursflokknum 6-9 ára, 434 þús-
und í aldursflokknum 10-12 ára
og hæstur 549 þúsund í aldurs-
flokknum 13-15 ára.
Könnunin var þannig fram-
kvæmd að félagar í Félagi ein-
stæðra foreldra héldu saman
kostnaði við framfærslu barna
sinna á árinu 1991 og eru þær
tölur sem birtar eru hér til hliðar
meðaltal niðurstaðna af kostnaði
af einstökum liðum framfærslunn-
ar. Sem dæmi má taka að meðal-
talskostnaður vegna fatnaðar
barna á aldrinuin 6-9 ára reyndist
vera tæp 95 þúsund á verðlagi
ársins 1994 eða tæpar 8 þúsund
krónur á mánuði.
Svo annað dæmi sé tekið þá
telst kostnaður vegna matar- og
hreinlætisvara 10-12 ára gamals
barns vera 185 þúsund krónur á
ári eða tæplega 15.500 krónur á
mánuði. Þá telst framreiknaður
kostnaður vegna gæslu 1-5 ára
gamals barns vera 126 þúsund
krónur á ári eða 10.500 krónur á
mánuði.
Ekkert opinbert yfirlit til
Samkvæmt upplýsingum Hag-
stofu íslands er ekkert opinbert
yfirliti til sem sérstaklega tekur
til kostnaðar vegna framfærslu
barna. Sú neyslukönnun sem ligg-
ur útgjöldum vísitölufjölskyldunn-
ar til grundvallar er miðuð við
heildarneyslu meðaltalsfjölskyldu
sem telst vera 3,63 einstaklingar.
Síðasta neyslukönnun sem gerð
var vegna framfærsluvísitölunnar
var framkvæmd 1990. Þá reyndust
útgjöld vísitölufjölskyldunnar á
heilu ári vera 2,4 milljónir króna
á þágildandi verðlagi eða sem svar-
ar til 2.740.000 króna í dag.
Meðaltal 1991 framreiknaðtil 1994
1-5 ára 6-9 ára
10-12 ára 13-15 ára
Greitt f. gæslu 125.922 90.299
Matar- og hreinlætisvörur 78.032 150.694
Fatnaður 126:603 94.666
Ferðakostnaður 10.176 7.289
Læknis- og lyfjakostnaður 11.541 4.572
Tónlistar- og dansskóli, íþróttir 3.403 12.182
Skólagjöld, bækur, skólatöskur 4.824
Skemmtanir 0g vasapeningar 4.877 18.120
Klipping 2.837 2.354
Kerra - vagn - hjól 17.911 2.819
Hókus pókus stóll - bílstóll 1.640
Myndataka 1.397 1.690
Gleraugu 1.685 1.850
386.024 391.360
Matar- og hreinlætisvörur 185.125 206.462
Fatnaður 113.542 130.956
Ferðakostnaður 16.245 24.023
Læknis- og lyfjakostnaður 12.923 19.187
Tónlistar- og dansskóli + íþróttir 30.973 38.247
Skólagj., bækur, skólatöskur o.fl. 20.606 21.984
Skemmtanir og vasapeningar 26.068 47.411
Klipping 3.753 3.812
Reiðhjól og varahlutir 3.665 4.726
Skíðaútbúnaður/skíði/skautar 7.077 5.721
Rúm o.fl. húsgögn í herbergið 3.205 8.135
Gleraugu 3.008 4.033
Tannrétting 7.587 34.502
433.777 549.199
Innifalið í fatnaði er allur úti- og innifatnaður, blei-
ur o.þ.h., skór og stígvél, rúmfatnaður, sængur og
koddar.
Ekki reiknað með: Kostn. v. íbúðarhúsnæðis, raf-
magns, hita, síma og fjölmiðla.
Innifalið í fatnaði er allur úti- og innifatnaður, skór
og stígvél, rúmfatnaður, sængur og koddar.
Ath.: Fermingarkostn. vegna 14 ára barnsins er
ekki innifalinn í ofangreindum tölum.
Þessar töflur sýna sundurliðaðan kostnað af framfærslu barna í eitt ár í fjórum aldursflokkum sam-
kvæmt könnun sem Félag einstæðra foreldra framkvæmdi á árinu 1991. Tölurnar hafa verið fram-
reiknaðar miðað við verðlag í ár.
Röð frambjóðenda Atkvæði
1. 2. Samt. 1.-2. 3. Samt. 1.-3. 4. Alls 1.-4.
1. Gunnlaugur Sigmundss. 454 128 582 70 652 48 700
2. Pétur Bjarnason 350 199 549 135 684 85 769
3. Anna Jensdóttir 33 314 347 205 552 165 717
4. Anna M. Valgeirsdóttir 18 150 168 222 390 191 581
5. Sigmar B. Hauksson 372
6. Guðmundur Hagalínss. 333
7. Sigurður Kristjánss. 316
8. Sveinn Bernódusson 302
9. Ragnar Guðmundsson 202
Gunnlaugur M. Sigmundsson efstur
hjá Framsókn á Vestfjörðum
Þreyttur á vinnu í
bakvarðasveitinni
GUNNLAUGUR M. Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Kögunar hf. í
Reykjavík, áður lengi fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags ís-
lands, varð efstur í prófkjöri fram-
sóknarmanna á Vestfjörðum. Pétur
Bjamason, fræðslustjóri á Isafirði
og varaþingmaður, stefndi einnig
að efsta sætinu en varð annar. Próf-
kjörið fór fram um helgina en ekki
var hægt að telja atkvæðin fyrr en
í fyrrakvöld vegna ófærðar.
Alls tóku 1.119 þátt og voru
1.073 atkvæði gild. Níu buðu sig
fram og var kosið um skipan fjög-
urra efstu sætanna. Úrslitin eru
birt í töflunni að ofan.
Var búinn að lesa
stöðuna svona
Gunnlaugur M. Sigmundsson
segist vera ánægður með niður-
stöðu prófkjörsins. Hún hefði ekki
komið sér á óvart því hann hafi
verið búinn að lesa stöðuna svona
fyrir nokkru. Hann var við störf úti
í Bandaríkjunum fyrir sex vikum
þegar framboðið kom til tals, flaug
heim til að kanna málið og skellti
sér í baráttuna. „Ég er vanur því
að vinna skipulega í viðskiptalífinu
og tók þessa baráttu með sama
hætti með hjálp góðra manna.“
Gunnlaugur er fæddur og uppal-
inn í Reykjavík en foreldrar hans
og eiginkona eru Vestfirðingar.
Hann hefur unnið með framsóknar-
mönnum í Reykjavík en ekki tekið
Gunnlaugur Pétur
opinberlega þátt í stjórnmálum. „Ég
ákvað að prófa þetta þegar ljóst var
að þetta sæti var laust. Ég hef gam-
an af að vera innan um fólk og þar
sem hlutirnir eru að gerast og hef
lengi haft skoðanir á þjóðmálum.
Þá má segja að ég sé orðinn þreytt-
ur á því að vinna í bakvarðasveit-
inni,“ segir Gunnlaugur um ástæður
þess að hann fór í prófkjörið.
Andvaraleysi
Pétur Bjarnason segist ekki
þekkja ástæður þess að hann náði
ekki markmiði sínu í prófkjörinu.
Hann segir að niðurstaðan sé skýr
og sýni að menn hafi trúlega viljað
breyta til. Þá segist hann velta því
fyrir sér hvort hann og stuðnings-
menn hans hafi verið með ákveðið
andvaraleysi í prófkjörsbaráttunni,
hafi talið stöðu hans klára.
Pétur vill ekkert segja um það
hvort hann setjist í annað sætið,
hann muni athuga sinn gang í ró-
legheitum.
Fj ór ða j afntefli
Islands í röð
Reuter
KASPAROV heimsmeistari í þungum þönkum
á Ólympíumótinu. Hann sigraði glæsilega í gær.
17. - Bg4!? 18. hxg4 - Rxg4+
19. Khl - Rf2+ 20. Hxf2 - Bxf2
SKAK
ÍSLENDINGAR tefldu við Úkraínu-
menn í 7. umferð á Ólympíuskák-
mótinu í Moskvu í gær. Aðallið Is-
lands tefldi, enda eru andstæðing-
arnir í öðru sæti þátttökusveita, ef
miðað er við alþjóðleg skákstig.
Viöureigninni lauk með jafntefli,
2-2, og erþetta fjórða umferðin í
röð sem Island gerir jafntefli.
JÓHANN Hjartþrson hafði svart
gegn ívantsjúk. Úkraínumaðurinn
náði sókn í spænskum leik, sem
Jóhann réð ekki við. Hannes Hlífar
Stefánsson hafði hvítt gegn Mal-
anjúk. Hannes fékk rýmri stöðu,
en andstæðingurinn tefldi stíft til
jafnteflis og náði því. Margeir Pét-
ursson hafði svart gegn Rómanis-
hin og lenti í erfiðri vörn. Honum
tókst þó að snúa taflinu sér í vil,
en andstæðingurinn mátti þakka
fyrir að ná jafntefli á þvingaðan
hátt. Jón L. Arnason /ékk Onisjúk
sem andstæðing, en Úkraínumenn
höfðu tilkynnt Frolov fyrir umferð-
ina. Jón mótmælti að sjálfsögðu
og mikil rekistefna upphófst, sem
endaði með því að Jón settist að
tafli með mótmæli á vör. Byrjunin
var enskur leikur, og Jón vann í
fjörugri skák.
Önnur úrslit voru þessi helst í
sjöundu umferð:
Bosnía, Herzegovína - Holland,
2'h-V/r, Rússland II - Litháen,
2V2-V2; Spánn - Búlgaría, 2-2;
Kína - fyrrum lýðv. Júgóslavíu og
Svartfjallalands, 1-3; Eistland -
Argentína, 3—1; Ungveijaland -
England, 2—2; Rússland I - Frakk-
land, 3'/2—V2; Lettland - ísrael, 2-2.
Rússarnir vakna til lífsins
Aðallið Rússa vaknaði til lífsins
í þessari umferð, drifið áfram af
glæsilegum sigri Kasparovs yfír
Lautier. Eftir sjö umferðir eru að-
eins tvær sveitir eftir, sem ekki
hafa tapað, en það eru ungliða-
sveit Rússa og íslendingar.
Staða efstu sveita eftir 7. um-
ferð:
1. Rússland II (unglingalið), 19'/2
v. ; 2.-6. Rússland I, Bosnía-
Herzegovína, Eistland, Armenía og
fyrrum lýðveldi Júgóslavíu og
Svartfjallalands, 19 vinningar hver
sveit; 7.-9. Holland, Búlgaría og
Filippseyjar með I8V2 vinning hver
þjóð; 10.-15. ísland, Úkraína,
Spánn, Litháen, Þýskaland og Sló-
vakía með 18 vinninga hver sveit.
Með 17'A vinning eru m. a. ísrael,
Ungveijaland, England og Lett-
land.
Sigurskák Jóns
Við skulum nú sjá sigurskák Jóns
L. Ámasonar gegn hinum óvænta
andstæðingi, sem hann fékk í gær.
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Onisjúk
Enskur leikur
1. c4 - e5 2. Rc3 - Bb4 3. g3 -
Rf6 4. Bg2 - 0-0 5. e4 - a5 6.
Rge2 - d6 7. 0-0 - Rc6 8. h3 -
Bc5 9. Kh2 - Rd4 10. Rxd4 -
Bxd4 11. Re2 - Bb6 12. f4 -
exf4 13. Rxf4 - He8 14. d3 -
c6 15. Hbl - Be6 16. b3--------
Baráttan hefur staðið um yfirráð á
miðborðinu. Hvítur reynir að leika
d3-d4 og svartur hefur varist með
öllum tiltækum ráðum.
16. ----Bd4!?
Svartur leggur nú út í ævintýri, því
að honum líkar þær þrengingar,
sem biðu hans, eftir 17. d4. Hann
getur ekki leikið 16.-----d5 17.
cxd5 - cxd5 18. e5 -7 Rd7 19. d4
o.s.frv.
17. Re2 - -
21. Bf3 - -
Ekki 21. d4 — Bxg3 22. Rxg3 -
Dh4+ o.s.frv.
21. - - Db6 22. Kg2 - Be3 23.
Bb2 - Dc5 24. Dc2 - He6 25.
Hhl — Hh6 26. Hxh6 - Bxh6 27.
d4 — Db6 28. Ba3 — Dc7 29. Rc3
- b5?!
Svartur á erfitt um vik, því að hvít-
ur hótar m. a. 29. Ra4 ásamt c5.
Eftir leikinn í skákinni verða svörtu
peðin á dottningarvæng veik og
hvíti riddarinn leggur undir sig
d5-reitinn.
30. cxb5 — cxb5 31. Dd3 — b4
32. Rd5 - Dd8 33. Bb2 - Hc8
34. Be2 - De8
35. Rb6 - Hd8
36. d5-
Jón herðir tökin
með markvissri
taflmennsku. Nú
er hótunin að
sækja að svörtu
peðunum á
drottningarvæng
með Rc4, B-d4-
b6. Svartur getur
ekkert við þessu
gert, því að bisk-
upinn hans er
lokaður úti á h6,
og ekki gengur
36. - g6? 37.
Dd4! o.s.frv.
36.-----Bg5 37.
Bd4 - De7 38.
Rc4 - Dd7 39.
Bb6 - Hb8 40.
Bxa5 — Da7 41.
e5 - Hb5
Eftir 41.----dxe5 42. d6 — Bb8
43. Bxd8 — Dxa2+ 44. Kh3 —
Hxd8 45. Rxe5 ræður svartur ekki
við fjölmargar hótanir hvíts, t. d.
45. - — Db2 46. Dd5 — Hf8 47.
Rxf7! Df6 (47.-----Hxf7 48. d7)
48. Rg5+ - Kh8 49. d7 - h6 50.
d8D — Hxf8 51. Dxd8+ — Dxd8
52. Rf7+ 0. s. frv.
42. Df5 — h6 43. e6 — De7 44.
Bd3 — fxe6 45. Dh7+ — Kf8 46.
Bg6 og svartur gafst upp, því að
hann verður mát eftir 46.---Dd7
(46.----Df6 47. Dh8+ - Ke7 48.
De8+ mát) 47. Dh8+ - Ke7 48.
Dxg7+ mát.
Bragi Kristjánsson