Morgunblaðið - 08.12.1994, Side 32

Morgunblaðið - 08.12.1994, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 AÐSEIMDAR GREIIVIAR MORGUNBLAÐIÐ Hvers virði er Háskóli íslands? FRAMLAG ríkisins til Háskóla íslands hefur farið minnkandi nú um nokkurra ára skeið ef miðað er við þá kennslu sem þar er innt af hendi, þrátt fyrir að sífellt séu gerðar meiri kröfur til skólans um betri kennslu, meiri rannsóknir og nánari tengsl við þjóðlífið. Ég tel að of nálægt skól- anum sé gengið í að- haldsaðgerðum og það sé langt frá því að hann geti sinnt mikilvægum skyldum sínum af þeim þrótti og þeirri reisn sem honum ber. II Einn vandi Háskóla íslands er hve skyldur hans éru margvíslegar. Hann á að mennta starfsfólk fyrir flestar atvinnugreinar þjóðar- innar og útskrifar á hveiju ári um sjö hundruð manns með háskóla- próf. Þar að auki á hann að búa margt af þessu fólki undir fram- haldsnám með því að veita því fræðilega menntun. Háskólinn á einnig að vera vísindastofnun og starfsfóiki hans er ætlað að vera fullgildir þátttakendur í alþjóðlegu vísindastarfí. Hann á einnig að sinna rannsóknum sem sérstaklega tengjast íslensku þjóðlífí. Vandinn er sá að skólinn má ekki velja ein- hver þessara verkefna og ákveða að gegna sumum skyldum sínum og öðrum ekki. Eðli málsins sam- kvæmt verður hann að rækja þær allar til Jiess að verðskulda heitið Háskóli Islands. En til þess verður hann að hafa raunverulegt fjár- hagslegt sjálfstæði, en það hefur hann aðeins að nafninu til. III Tengsl Háskólans við þjóðlífið eru mjög sterk. Pjölmargir kennar- ar vinna verkefni utan veggja skól- ans og margar stofnanir hans vinna verk af ýmsum toga víðs vegar að úr þjóðlífinu. í skólanum eru marg- ir stundakennarar, sem hafa sitt aðalstarf utan hans. Þar við bætist að í mörgum lokaverkefnum nem- enda er verið að glíma við viðfangs- efni sem eiga rætur utan skólans. Sumum kann jafnvel að finnast nóg um hve samofínn skólinn er þjóðlífi okkar. Hvað sem um það sjónarmið má segja þá er vandi skólans frekar en ekki sá að hann er of nátengdur vandamálum líðandi stundar og uppfyllir ekki framvarðarskyldur sínar. Háskóli á ekki að vera í takt við tímann, heidur að minnsta kosti hálfum takti á undan, en til þess verður hann að hafa visst fjárhags- legt svigrúm sem Háskóli íslands hefur alls ekki eins og sakir standa. IV Nemendum við Háskóla íslands fjölgar stöðugt og þeir sinna nám- inu af meiri festu en fyrr. Álag á skólann hefur því aukist meira en ljöldi nemenda segir til um. En aukið áiag mælist ekki aðeins í fjöldatölum því ákveðnari kröfur um betri menntun berast úr mörgum áttum: frá nemendum, frá þeim sem taka við nemend- um skólans og frá kennurum sem miða starf sitt við erlenda háskóla. Innan skólans er nokkuð góð sam- staða um að rannsókn- ir og kennsla verði að haldast miklu betur í hendur en nú er svo hægt sé að bæta menntunina. En Háskóli íslands hefur ekki íjárhagslega getu til þess að svara þessum kröfum eins og mál standa nú. Skólar hafa þá sérstöðu, segir Jón Torfi Jónas- son, að tímabundinn fjárskort er ekki hægt að bæta upp síðar. íslensk ungmenni vilja afla sér menntunar, þjóðin þarfnast hennar og við höfum alla faglega burði til að veita hana hér á landi. Háskóli Islands hefur hvorki vilja né getu til þess að vísa fólki frá, né að fækka námsbrautum, en það leiddi aðeins til fjölgunar fólks á þeim brautum sem eftir yrðu og eru þeg- ar býsna þétt setnar. En miðað við aðstæður í skólanum eru nemendur of margir og sumum háskólakenn- urum finnst þeir vera að bregðast stórum hópum nemenda sem flæða í gegnum skólann á hveiju ári og telja sig vera að veita þeim langtum lakari menntun heldur en hægt væri að veita þeim hér. Því miður hefur Háskólinn ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að bregðast við þessum vanda. Forsvarsmenn Háskóla íslands hafa sýnt fram á hve íjárveitingar til skólans hafa dregist saman ef miðað er við þá kennslu sem hann þarf að inna af hendi, að ekki sé talað um allar aðrar skyldur skólans sem hér hafa verið nefndar. Sumir virðast halda að þetta sé einka- vandamál Háskóla íslands; það sé. hans að hagræða, afla sér sértekna til þess að efla rannsóknir, fækka kennslustundum, hrúga nemendum hundruðum saman í stóru bíósalina í fyrirlestra og dæmatíma, -draga úr verklegu námi, minnka ailt per- sónulegt. samband við nemendur, fækka námsbrautum og setja upp einhveija varnargarða með því að takmarka nemendaijölda. En það er fráleitt að þetta sé einkamál hans því það er vitanlega eitt alvar- legasta og mikilvægasta stefnumál þjóðarinnar hvernig hún heldur á menntamálum sínum, meðal annars málefnum Háskóla íslands. Skólar hafa þá sérstöðu að þar er ekki hægt að bæta upp síðar tímabundinn ijárskort. Nemendur Háskóla ísiands sem ieggja mikið í sölurnar til þess að treysta þann faglega grunn, sem þeir ætla að byggja lífsafkomu sína á, hafa ekki aðstöðu til þess að bíða eftir því að ástandið batni. Þeir verða að láta sér nægja þá menntun sem þeim býðst hveiju sinni. Það verðum við hin líka að gera sem ætlumst til þess að menntun þeirra skili sér til þjóðfélagsins. En vegna ónógra fjárveitinga verður Háskóli íslands að láta sér lynda að bjóða nemend- um sínum lakari menntun en honum er sómi að. V En skiptir menntun örugglega máli? Það hefur því miður reynst heldur erfítt að finna óyggjandi rök fyrir því að menntun geri gæfumun- inn á hagsæld eða hamingju þjóð- ar. En vissulega hníga ótal rök að því að virkilega góð menntun sé besta veganestið sem hægt er að gefa bæði hverjum einstaklingi og þjóð á óvissutímum. Staðreyndirnar blasa við og það hefur verið hamrað svo oft á þeim ályktunum sem af þeim má draga að þær hafa orðið næstum máttlausar klisjur. Þjóðfé- lagið verður flóknara með hveijum áratugnum, heimurinn skreppur saman, samkeppni um atvinnu harðnar bæði innan lands og utan og sú vitneskja og kunnátta sem þarf til að spjara sig vex stöðugt. Við þessu verður að bregðast með vönduðu uppeldi og skilvirkri og lif- andi menntun. Menntun er líklega öruggasta fjárfestingin sem þjóðin á völ á, hvort sem litið er á hag heildarinnar eða hvers einstaklings. Hér áður fyrr biðu menn eftir betri tíð, en nú viljum við búa hana til, meðal annars með betri mennt- un. En eru þeir sem stjórna land- inu, alþingismenn, ekki sama sinn- is? Ég beini því til þeirra að þeir velti því nú fyrir sér hvort ekki hafi verið of nærri Háskóla íslands gengið miðað við til hvers er ætlast af honum og úr því beri að bæta nú. Höfundur er dósent við Háskóla íslands. Jón Torfi Jónasson EPSON STYLUS 300 Hentugur bleksprautuprentari fyrir skólafólk. Upplausn 360x360 p.á.t. Sjálfvirkur arkamatari fyrir 100 síðurfylgir. l/eró o ðeins kr. 21.900,- ÞÓR HF ÁPMÚLA 11 - 8ÍMI 881600 Tví- og þrí- sköttun líf- eyrisafreiðslu I NYLEGA bar á góma, í opinberu spjalli, að virðingin fyrir ellinni væri á undanhaldi í þjóðfélaginu. Við getum verið sammála eða ósammála þessu, eftir atvikum. En hvað sem því iíður, geta þeir, sem komnir eru á efri ár, verið á einu máli um það, enda rekið sig á það illilega, að virð- ingin fyrir hinum eldri, — ellilífeyrisþegunum — er ekki svo mjög í hávegum höfð innan veggja hins háa Alþingis. Þar virðist virðingin fyrir eilinni hafa slappast og vera á undanhaldi, þar sem þorri þingmanna gerir lítið í því og lætur það að mestu óátalið, að höggvið sé í fátæk- legan lífeyri eftirlauna- fólks með tví- og þrísköttun. II Hversu oft í ræðu og riti hefur ekki verið minnt á þessa ósvinnu og haft á orði að lögleysu þessa þyrfti að afnema hið fyrsta? En allt hefur komið fyrir ekki. Þetta hefur verið líkt því að stökkva vatni á gæs. Fengið litlar sem engar undirtektir. Og þó. Fyrir allnokkrum misserum (1990) reyndi Guðmundur H: Garðarsson að fá þessu kippt í liðinn með tillögu á Alþingi, sem hann sat þá, þar sem lagt var til, að Alþingi ályktaði að fela þáverandi ráðherra ijármáía að gera athugun á skattlegri meðferð lífeyrissparnaðar, undirbúa nauðsynlegar lagabreyt- ingar til þess að slíkur sparnaður njóti ekki lakari kjara en annar sparnaður í landinu. Hvað hefur gerst síðan í málinu? Sáralítið eða jafnvel ekkert. Það er til lítils sóma þeim, sem síðan, á hinu háa Alþingi, hafa hindrað að réttmæt tillaga næði fram að ganga. Mikið óþurftar- verk það — svo að ekki sé meira sagt. III Eitt og annað óréttlæti reið í garð með staðgreiðslunni, m.a. var tvísköttun lífeyrisgreiðslna tekin upp, — illu heilli. Tekjuskattur var lagð- ur, eftir breytinguna, á þær tékjur, sem laun- þegar greiddu í líf- eyrissjóð — og allar götur síðan hefur lífeyririnn verið skattlagður að nýju um leið og hann var greidd- ur út: Hrein tvísköttun það. En meira illt hefur átt sér stað í þessum efnum, því í raun og sann eru lífeyrisgreiðslur ekki einasta tví- skattlagðar heldur og einnig þrí- skattiagðar. Þetta gerist, þegar þær skerða tekjutryggingu frá Trygg- ingastofnun ríkisins. Hvað skyldi nú annars stjórnar- skráin okkar segja um þetta háttalag — eða mannréttindadómstóll Sam- einuðu þjóðanna, væri máli þessu skotið þangað? Það ætti kannski að láta reyna á það. Þorgeir Ibsen Við „sveitamenn- irnir“ og* „borgar- pakk“ Bryndísar ÞEGAR bílvélar erf- iða í vitlausUm gír heyr- ist ventlaglamur og það er ekki af hinu góða. Bíistjóri sem ekur með þeim hætti ætti að hugsa sinn gang. Bryn- dís Schram fram- kvæmdastjóri Kvik- myndasjóðs er hreint ágæt en í samtali við Morgunpóstinn um heimsókn sína til frjár- laganefndar fyrir skömmu fer hún all- geyst. „Við fórum og töluð- um við fjárlaganefnd um daginn og þetta eru allt sveita- menn sem er andskotans sama um þetta borgarpakk sem er að gera bíómyndir," sagði framkvæmda- stjórinn. Þetf a er ekki mjög skynsamlegt málæði ef framkvæmdastjórinn ætl- ar sér að vinna til árangurs og erind- ið sem um ræðir ekki útkljáð. Það er nefnilega svo að meirihluti fjár- laganefndar hefur sérstakan áhuga á að styrkja Kvikmyndasjóð eins og kostur er þótt vissulega kunni að vera erfítt um vik þegar barist er við halla á íjárlögum. Það er einnig mjög ósmekklegt af framkvæmda- stjóra Kvikmyndasjóðs að stimpla bændur og búalið með líkingunni við „sveitamenn" sem sé alveg sama um allt sem heitir framþróun og drif- kraftur í kvikmyndagerð. Fram- kvæmdastjórinn hefði til dæmis mið- að við reynsluheim sinn getað kallað okkur asna en það er óþarfi að draga sómakæra sveitamenn inn í umræðuna, þótt okkur sé mikill heiður að því að vera kallaðir sveitamenn. Sá er þetta ritar hefur reyndar unnið talsvert að kvik- myndun og þáttagerð en það er náttúrlega ekki nógu fínt fyrir framkvæmdastjórann því mest hefur það efni sem ég hef átt við fjall- að um náttúru landsins og fólkið sjálft. íslenska kvikmynda- gerð á að styrkja með fullum krafti því hún er allt í senn nýsköpun í atvitjnu, metnaðarfullur þáttur í þágu mark- aðssetningar á íslandi og því sem íslenskt er og ekki síst magnaður tónn í menningu nútímans eins og Málæðið er ekki skyn- samlegt, segir Árni Johnsen, ætli fram- kvæmdastjórinn sér að vinna til árangurs. íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa sannað. Við skulum vona að ventlaglamrið í málflutningi Bryn- dísar verði ekki til þess að skemma fyrir íslenskum kvikmyndaiðnaði. Höfundur er þingmaður Sjúlfstæðisfiokksins á Suðurlandi og á sæti í fjárlaganefnd Alþingis. Árni Johnsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.