Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 43 AÐSENDAR GREIIMAR/PRÓFKJÖR Húsnæðiskerfi á brauðfótum EIN mesta hætta sem blasir við íslensku samfélagi er skulda- söfnun heimilanna. í árslok 1993 námu skuldir heimilanna 115% af ráðstöfunar- tekjum þeirra. Við mörgum heimilum blasir gjaldþrot og þar með neyðarástand sem ekki verður séð fyrir endann á. Gjald- þrot heimilanna skilja eftir sig sár og niður- lægingu hjá þeim sem fyrir því verða og auka enn á þá erfið- leika sem fyrir voru. Vanskil í húsnæðiskerfinu eru rúmlega 700 milljónir. Það segir meira en margt annað um hve gallað húsnæðiskerfið er. Aföll af húsbréfum eru mikil og nýlega sá ég dæmi um 11% afföll af sex milljóna króna upphæð í húsbréfa- kerfinu, en dæmi eru um mun hærri upphæð. Húsbréfin eru af- greidd í slumpum og þannig sköpuð óþarfa þensla sem eykur enn á afföllin. Minna verður úr láninu en til stóð og þá þarf að leita annað eftir fyrirgreiðslu til að brúa bilið. Gjaman er um að ræða dýr skamm- tímalán. Þegar fjallað er um láns- kjör hjá Húsnæðisstofnun, þá væri eðlilegt að bæta við öllum kostnaði sem fylgir húsbréfakerfinu til þess að lántakendur geti gert sér betri grein fyrir eðli lánskerfisins. Þeir sem eiga peninga hafa hagnast vel á þeim sem orðið hafa að taka húsbréf til að koma þaki yfir höfuð- ið. Þannig hefur kerfið stuðlað að því að gera þá „ríku“ ríkari og auka erfiðleikana hjá venjulegu launafólki. Húsbréfakerfið stendur á brauðfótum og hefur á engan hátt staðið undir vænting- um. Nú er hægt að greiða af lánunum mánaðarlega eins og um húsaleigu væri að ræða - og er það til bóta.. Það er dýrara að innheimta mánaðar- legar greiðslur, en ef greitt yrði af launa- reikingi viððkomandi mánaðarlega, þá munu vanskil hjá stofnuninni minnka verulega. Á tímum pappírslausra viðskipta hlýtur að vera hægt að finna leið til að ná niður kostnaði og auka möguleika þeirra sem skulda til að standa í skilum. Mikil skuldaaukning Þeir útreikningar sem notaðir hafa verið sem viðmiðun fyrir fólk um hve miklar skuldir það ræður við hafa reynst meingallaðir. Þess var ekki gætt að yfirvinna gæti minnkað né litið á ýmsar aðrar skuldbindingar sem heimilin hafa. Þetta leiddi til þess að allt of auð- velt var að fá þessi dýru lán og við bættist að erfitt var fyrir fólk að gera sér grein fyrir þeim kostn- aði sem fylgir húsbréfakerfinu. Fyrirtækin eru nú eitthvað betur stödd en heimilin enda hefur verið lögð mikil áhersla á að leysa skuldavanda þeirra. En nú verður ekki lengur undan því vikist að veita fjölskyldunum a.m.k. sömu fyrirgreiðslu. Fjölmörg heimili þurfa skuldbreytingu og þeir sem eru í vanskilum í bönkum lenda Drífa Sigfúsdóttir Drífa í 1. sæti ÉG EFAST um að Framsóknarflokkur- inn í Reykajaneskjör- dæmi hafi áður átt svo framsækna og öfluga sveit sem nú sækist eftir að skipa efstu sæti framboðs- listans. En þó ég beri mikið traust til þessa fólks, þá tel ég að Drífa Sig- fúsdóttir uppfylli best þær kröfur sem gera verður til þess er skip- ar 1. sætið. Ég hef átt þess kost að starfa mikið Drífa uppfyllir bezt þær kröfur, segir Steindór Sigurðsson, sem gera verður til þess sem skip- ar fyrsta sætið. með henni og tel að þekking hennar og reynsla af stjórnmál- um sé það víðtæk að hún eigi fullt erindi inn á þing. Hún hefur verið leiðandi og mótandi í málefnum þeirra bæj- arstjóma sem hún hefur setið í, en auk þess er hún oft fund- vís á sáttaleiðir ef á milli ber. Ég leyfi mér að full- yrða að ef kjósendur fela henni þetta for- ustuhlutverk þann 10. desember muni hún sanna þar dugnað sinn og atorku sem hún er þekktust fyrir. Ég skora því á alla sem taka þátt í prófkjöri Framsóknarmanna nk. laugardag 10. desember að setja Drífu í 1. sæti listans. Höfundur er bæjarfulltrúi í Keflavík-Njarðvík-Höfnum. Sieindor Sigurðsson /lemBI BAÐÞILJUR Stórglæsilegar amerískar baóplötur. Mikið úrval á hreint ótrúlega lágu verói. Komið og skoðið í sýningarsal okkar í Ármúla 29. AUtar til á lagcr ÞÞ &co Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29, simi 38640 yfirleitt í því að vera með 1% hærri vaxtagreiðslu en hinir. í allmörgum tilfellum ræður heimilið ekki við skuldir sínar og ættu þá að eiga sömu möguleika á að fá niðurfelld- ar eða lækkaðar skuldir eins og tíðkast hefur hjá illa stöddum fyrir- tækjum. Það er óumflýjanlegt að grípa til greiðsluaðlögunar, leng- ingar lána, félagslegrar aðstoðar og greiðsluerfiðleikalána. Stofna þarf ráðgjafar- og endurreisnarstöð heimilanna með samstarfi ríkis, banka, sparisjóða, verkalýðshreyf- ingar, sveitarfélaga, lífeyrissjóða og neytendasamtakanna. Ég tel að húsbréfakerfið sé helsta orsök erfíðrar skuldastöðu Húsbréfakerfið er helsta orsökin, að mati Drífu Sigfúsdóttur, fyrir erfiðri skuldastöðu heimila. íslenskra heimila. Langvinn efna- hagslægð með samdrætti í atvinnu- lífinu sem leiddi af sér minnkandi tekjur vegur einnig þungt á vogar- skálunum. Þá er útlit í íslensku efnahagslífi næstu tvö árin ekki bjart aðallega vegna samdráttar í fiskveiðum. Þetta ár er sjöunda árið í röð þar sem hagvöxtur í ís- lensku efnahagslífi hefur ekki verið viðunandi og búist er við að hag- vöxtur fari hægt vaxandi á næstu árum. Af þessu sést að það þýðir ekkert fyrir stjórnvöld að búast við því, að vandi heimilanna leysist án sérstakra aðgerða af þeirra hálfu. Á hátíðarstundum er fallega talað um fjölskylduna en loforð eru létt í maga og tími aðgerða er löngu kominn. Það dugar ekki lengur að bíða eftir kraftaverki eða líta und- an. Höfundur tekur þátt í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi. Unnur Stefáns- dóttir í 2. sætið! LAUGARDAGINN 10. desember næst-' komandi fer fram próf- kjör framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi. Þar gefur kost á sér í efstu sæti gott fólk og gjörvulegt. Framsókn- arflokkurinn er í mik- illi sókn og sérstaklega er ánægjulegt hve ungt fólk fylkir sér um stefnu Framsóknar- flokksins undir kjör- orðinu „Fólk í fyrir- rúmi“. Unnur Stefánsdóttir gefur kost á sér í 2. sæti listans. Unnur er þekktur íþróttamaður og margfald- ur íslandsmeistari í hlaupum. En Unnur er þekkt fyrir fleira. Hún hefur tvisvar setið sem varamaður á þingi og notaði þann stutta tíma vel. Meðal tillagna sem hún flutti þar má nefna mótun ferðamála- stefnu á íslandi og átak til eflingar atvinnutækifæra kvenna í dreifbýli en báðar voru samþykktar á þing- inu. Unnur hefur búið í Kópavogi í 22 ár og er útskrifuð úr Fóstur- skóla Islands. Hún kennir núna hagnýta uppeldisfræði í Fósturskó- lanum. Unnur er þriggja barna móðir og húsmóðir. Auk þeirra starfa hefur Unnur sinnt fjölda ábyrgðarstarfa af þeim krafti og dugnaði sem einkenna öll hennar störf. Hún var formaður Landssam- bands framsóknarkvenna í átta ár og situr nú í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Jafnframt er hún nýkjörinn gjaldkeri stjórnar Framsóknar- flokksins. Helstu baráttumál Unnar í kom- andi kosningum eru eftirfarandi: Jöfnuður í tekjuskiptingu ein- staklinga. Markviss leit að nýj- um störfum. Aukin áhersla á mennta- og íþróttamál. Vistvæn ímynd lands og þjóðar. Unnur hefur kraft og seiglu langhlaupar- ans. Þessum eiginleik- um hennar kynntist ég vel þegar ég starfaði með henni í Freyju, félagi framsóknar- kvenna í Kópavogi. Ég treysti henni einnig til að hafa kraft og seiglu til að vinna að verðug- um baráttumálum á þingi til hagsbóta fyrir okkur öll. Ég hvet þig lesandi góður til að Unnur kennir hagnýta uppeldisfræði í Fóstur- skólanum og var formað- ur Landssambands framsóknarkvenna í 8 ár. Sigrún Ingólfsdótt- ir hvetur framsóknar- menn á Reykjanesi til að setja hana í 2. sæti á framboðslista flokksins. taka þátt í prófkjöri Framsóknar- flokksins næstkomandi laugardag og kjósa Unni í baráttusæti listans. Höfundur er íþróttakennari. Unnur Stefánsdóttir Rommelsbacher irhcmda lum * r Ostbráðar- og steinasteikingartæki Til að bjóða vinum til veislu á dimmum vetrarkvöldum. Endalausir möguleikar í samsetningu á matseðlum. Rúmgóður steinn og átta ostapönnur. JÓLATILBOÐSVERÐ kr. 9.900.- RSG1201 'é' Fondúpottur á rafmagnshellu ..og ekki verður veislan síðri með þessum grip. Rafmagnshella með stiglausri hitasúllingu, 2 lítra pottur með sprautuvöm, 6 gafflar og 1,8 m tengisnúra. JÓLATILBOÐSVERÐ kr. 6.900.- F851/S ST700 Samlokugrin Og hver hefur ekki lyst á heilri samloku í dagsins önn? Sjálfvirk hitastýring, gaumljós, læsing á handfangi, 1 m tengisnúra og verðið er frábært. JÓLATILBOÐSVERÐ kr. 3.900.- Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru: Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjöröur Rafstofan Hvitárskála ■ Hellissandun Blómsturvellir Grundarfjöröur Guöni Hallgrlmsson Stykkishólmur: Skipavlk Búöardalur. Ásubúð Isafjörður Póllinn ■ Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókun Rafsjá • Siglufjöröur Torgið • Akureyrí: Ljósgjafinn Húsavik: öryggi Þórshöfn: Noröurraf Neskaupstaöur. Rafalda Reyöarfjörður: Rafvélaverkst. Árna E. - Egilsstaðir. Sveinn Guðmundsson ■ Breiðdalsvik: Stefán N. Stefánsson ■ Höfn I Hornafiröl: Kristall ■ Vestmannaeyjar Tréverk • Hvolsvöllur Kaupfélag Rangæinga Selfoss: Árvlrkinn Garður: Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Keflavik: Ljósboginn • Hafnarfjöröur Rafbúð Skúla, Álfaskeiöi SMITH & NORLAND Nóatúni 4 • Sími 628300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.