Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 49

Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 49 hann úr hópi flestra jafnaldra sinna. Hann var afburða námsmaður og eins og honum væru allir vegir færir. En jafnframt hafði hann til að bera fágætan tilfinningaþroska af svo ungum manni að vera og mannskilning, sem meðal annars - birtist í því að hann bauð sig fram í slíkt tilsjónarmannsstarf með náminu. Þeir eru sannarlega ekki margir ungu menntamennirnir á hans aldri sem telja sér samboðið að eyða frístundum sínum og kröft- um í að umgangast lítinn þroska- heftan dreng. Ekki voru launin slík að þau gerðu starfið eftirsóknar- vert. í þijú ár hittust Kári og Gummi svo að segja um hverja helgi og strax mánudaginn eftir að þeir höfðu hist byijaði Kári að spyija um Gumma og hlakka til. Dagskrá- in var alltaf með svipuðu móti: Fyrst fóru þeir í sund, svo jafnvel i Periuna að fá sér kaffi og ís, síð- an var farið heim til Gumma og horft á Bleika pardusinn á vídeó- mynd, eða þeir spiluðu tennis. Og í sumar kom það tvisvar fyrir að Kári kom heim úr leiðangri þeirra alsæll og skítugur upp fyrir haus með silungsbröndu í plastpoka sem hann hafði veitt sjálfur og horfði á pokann með fagnaðarblöndnum hryllingi. Það vill því miður oftast verða hlutskipti þroskaheftra barna - og einstaklinga yfirleitt - að verða af- skiptir og einangraðir. Þeim er skip- að niður á einhvern afniarkaðan bás, komið fyrir í sérstökum skólum og dagheimilum fjarri heimilum sín- um og jafnaldrar þeirra í hverfinu annaðhvort sniðganga þá eða áreita á leikvellinum. Engir vinir koma í heimsókn og jafnvel ættingjarnir vilja gleyma að þeir séu til þegar öðrum börnum er boðið heim og leidd saman. Þá gerir allan mun ef maður eignast vin sem kemur í heimsókn til manns sérstaklega, ekki bara til systkina manns, og fer með mann út í bæ, burt frá þessari fjölskyldu sem maður hefur sýknt og heilagt fyrir augunum. í Gumma eignaðist Kári vin sem umgekkst hann eins og jafningja, skildi hann og mat hann eins og hann var. Hann hafði næmt auga fyrir hon- um, umbar strákapör hans, tók dyntum hans með kímni og kunni að höfða til kímnigáfu hans á móti. Þegar Gummi hafði lokið heim- spekináminu byijaði hann á fyrsta ári í læknisfræði. Þá tók við strang- ur lestrartími og frí frá tilsjónar- mannsstarfi. En samt hélt hann tryggð við Kára, kom hálfsmánað- arlega og tók hann út í sund í 1-2 tíma í senn. Líka í læknisfræðinni stóð Guð- mundur sig með afbrigðum vel. Hann komst í gegnum nálarauga forprófanna þegar í fyrstu atrennu, og nú vorum við hrædd um að Gummi hefði ekki lengur tíma fyrir Kára vin sinn. Við kviðum fyrir að segja honum það, það yrði eins og að tilkynna honum að jólin hefðu verið lögð niður í eitt skipti fyrir öll. En svo hringdi Gummi og bauðst til að taka upp þráðinn aftur. Það urðu miklir fagnaðarfundir, og aft- ur varð Gummi skemmtilegasti hluti tilverunnar. Fagnaðarhrópin „Kumma, Kumma" eiga ekki eftir að hljóma aftur þegar dyrabjöllunni er hringt. Þessu fallega ævintýri er lokið, tjaldið fallið. Missir Kára er óbæt- anlegur og okkur finnst við hafa misst náinn fjölskylduvin. Hvílíkur mun þá missir þeirra vera sem stóðu honum næstir. Eftir lifir minningin um óvenjulega hæfileikaríkan ung- an mann sem er hrifinn burt í blóma lífsins, sannan mannvin og góðan dreng. Guðný Bjarnadóttir, Þorleifur Hauksson. Kæri vinur, þú varst aldrei sér- lega auðveldur í samskiptum, ekki þessi manngerð sem ruggaðir kæruleysislega í gegnum lífíð. Hvorki látalæti né fáskiptni voru þér að skapi. Þú tókst á við alvarleg- ar spurningar af alvöru og hafðir hvorki áhuga né þolinmæði fyrir illa ígrundaðar skoðanir. Þegar ég fyrst kynntist þér skynjaði ég strax að með þér væri betra að hafa taumhald á tungunni og af samræð- um við þig lærði ég að réttast væri að láta heilann vinna hraðar en tunguna. Þú varst örvandi, hvetj- andi og kröfuharður félagsskapur. Þú.varst traustur vinur og drífandi félagi, sem sást best þegar þú varst að skamma okkur Guðbrand, sem eigum það til að rugga soldið, fyrir slóðaskap. Þú varst það sem að ég veit að skipti þig meira máli en annað, góð og dygðug sál. Eitt af þeim skiptum sem við ræddum saman tveir man ég að þú sagðir að alla heimspeki væri hægt að smætta niður í eina spurningu. Nokkuð sterk fullyrðing eins og þér var lagið og auðvitað óvitlaus. Við vitum öll hver þessi spurning er og eins að svarið fæst ekki nema með þolinmóðri bið. Oft hefur maður þóst hafa svarið og þannig ýtt spurningunni frá sér en það var ekki þinn háttur. í dag sækir að mér efi um mína fyrri sannfæringu. Ég veit ekki hveiju þú trúðir undir lokin eða hvort þú hafðir yfir höfuð nokkuð velt spurningunni fyrir þér nýlega. Nú veist þú svarið og við hin bíðum þolinmóð. Kannski hitt- umst við öll einn daginn og þá skor- um við á Sókrates og Hegel í fót- bolta. Vonandi berum við þá gæfu til að spila á grasvellinum sem við komumst aldrei á, á meðan þú lifðir. Þorsteinn Stephensen. Dauðinn er eitthvað sem stendur fjarri ungu fólki en oft er hann nær en maður heldur. I dag kveðjum við Gumma bekkjarfélaga okkar hinstu kveðju. Við erum um margt óvenjulegur hópur, ólíkir einstaklingar en þó ein heild. Okkur hefur liðið vel saman, og því er það okkur mikið áfall að einn okkar skuli vera horfinn á braut. Við finnum til vanmáttar og sorgar þegar við hugsum til þess að Gummi mætir aldrei aftur í skól- ann og að við hittum hann aldrei aftur í bekkjarpartíi. Við hin litum á það sem forrétt- indi að fá að vera með Gumma í bekk, hann var svo víðsýnn og gáfaður. Það er sjaldan sem maður kynnist mönnum sem hafa bæði áhuga og þekkingu á öllum flötum og hliðum mannlífsins. Gummi gat rætt við hvern sem var um hvað sem var af kunnáttu. Á þennan hátt varð hann góður vinur okkar allra enda hlustaði hann af athygli og svaraði af visku. Gummi var heill í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Það átti betur við hann að kafa djúpin en að fleyta yflrborðið. Við munum alltaf minnast Gumma með söknuði og þakklæti fyrir allt það sem hann gaf okkur og vonandi hefur okkur tekist að gefa honum eitthvað í staðinn. Við vottum þeim sem unnu Gumma samúð okkar um leið og við fullyrðum það að minning Gumma mun alltaf lifa í okkar hópi því að manni eins og honum er ekki hægt að gleyma. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. Hnigin er sól í sjó. Sof þú í blíðri ró. Við höfum vakað nóg. Værðar þú njóta skalt. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. (Jóhann Jónsson) Bekkjarfélagar af öðru ári Læknadeildar HÍ. Kveðja frá Félagi læknanema Deyr fé, deyja frændr, deyr sjálfur et sama. En orðstírr deyr aldregi hveims sér góðan getr. (Úr Hávamálum) Horfinn er á braut samnemandi okkar og félagi Guðmundur Tómas Árnason. Hörmum við það meira MINNINGAR en orð fá lýst. Við vottum aðstand- endum hans okkar dýpstu samúð. Arnar Þór Guðjónsson. Kveðja frá Taflfélagi Reykjavíkur Við kveðjum nú Guðmund Tómas Árnason í síðasta sinn. Guðmundur Tómas var virkur skákmaður hjá Taflfélagi Reyjavíkur um árabil. Hann var feikilega efnilegur sem unglingur en tók þá ákvörðun að draga úr iðkun sinni. Mikill frami í skákinni krefst mikilla tímafórna og hann valdi aðrar áherslur. Guð- mundur hélt samt áfram að tefla, þó í minna mæli væri. Lítið tefldi hann í almennum kappskákmótum síðustu ár, en valdi í stað þess að tefla í Deildakeppni Skáksambands íslands sem er sveitakeppni sem fer fram tvisvar á ári. Tefldi hann fyr- ir c-sveit Taflfélags Reykjavíkur. Guðmundi var ljúft að taka þátt í keppninni til að styðja félag sitt, hitta gamla félaga, og finna þá þægilegu spennu og ánægju sem því fylgir að tefla kappskák. Síðast tefldi hann fyrir TR nú í október í haust. Þó Guðmundur Tómas hafi almennt ekki getað einbeitt sér að skákinni tefldi hann ávallt feikilega vel á þessum mótum, var einn af traustustu meðlimum c-sveitarinn- ar og virtist auka skákstyrleika sinn með hveiju árinu, þrátt fyrir litla ástundum. Ég kynntist Guðmundi sem unglingur í Taflfélagi Reykja- víkur og síðan þegar ég stýrði c- sveitinni um árabil. Guðmundi bauð ég að tefla í skákklúbbi sem var stofnaður meðal nokkurra vina og kunningja fyrir tveimur árum og þáði hann boðið. Þessi hópur teflir saman á 1-2 mánaða fresti og hafði Guðmundur mikla ánægju af þess- um félagsskap. Þarna gat hann haldið tengslum við gamla vini og kunningja úr taflfélaginu, sem hann hitti annars lítið, því hver hefur farið í sína áttina. Lýsti hann því oft yfir hve ánægjuleg þessi sam- skipti væru. Flestir þeir sem heill- ast af skákgyðjunni ungir þurfa að draga úr samskiptum sínum við hana þegar nám og starf fara að krefjast meiri tíma og athygli. Þannig var um Guðmund. Ég held að það hafi hins vegar gilt um hann eins og okkur hina sem hrífumst af skákinni, að hún á sér ávallt sérstakan stað í hjarta okkar og hver snerting á henni, hve lítil sem hún er, veitir ánægju og fullnægju. Ég vil fyrir hönd Taflfélags Reykja- víkur og fyrir mína hönd, þakka Guðmundi fyrir ánægjulegar stund- ir. Blessuð sé minning hans. Fyrir hönd Taflfélags Reykjavík- Einar Trausti Óskarsson. Það var á þeim árum sem leikur og spil léttu lund í önnum dagsins í Menntaskólanum við Hamrahlíð. SJÁ NÆSTU SÍÐU t Eiginkona mín, KAROLÍNA JÚLÍUSDÓTTIR, lést í Bandaríkjunum þriðjudaginn 6. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Rafn A. Pétursson. t Ástkær móðir okkar, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, áður Hátúni 4, lést á Droplaugarstöðum aðfaranótt 7. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Sigriður Jóhannesdóttir, Bergsveinn Jóhannesson, Þóra Jóhannesdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengamóðir og amma, BIRNA BJÖRNSDÓTTIR, Lögbergi, Djúpavogi, lést í Borgarspítalanum 5. desember. Álfheiður Alfreðsdóttir, Þórarinn B. Guðmundsson, Hjörleifur Alfreðsson, Margrét Benediktsdóttir, Jóhann Alfreðsson, Alfreð Alfreðsson, Melkorka Edda Freysteinsdóttir og barnabörn. t Elsku fóstri minn og vinur, GUÐMUNDUR JÓNSSON frá Þúfu í Kjós, andaðist 3. desember í Hátúni 12, Reykjavík. Kveðjuathöfn verður í Sjálfsbjörg, matsal á 2. hæð, föstudaginn 9. desember kl. 13.30. Blóm og kransar eru afbeðnir, en þeir, sem vildu minnast hans, láti Sjálfsbjörg, félag fatlaðra, njóta þess. Þorsteinn Veturliðason og vandamenn. t Vinur minn, sonur okkar, bróöir og mágur, BJÖRN BRAGI BJÖRNSSON, Klapparstíg 13a, lést 2. desember. Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. desember kl. 13.30. Peter Locke, y j Kristín Sveinbjörnsdóttir, Þórdfs Björnsd. Cortellino, Árni H. Björnsson, Björk Bjarkadóttir, Stefán Bjarkason, Sveinbjörn Bjarkason, Björn Jakobsson, Ruggero Cortellino, Þórey Bjarnadóttir, Kristján Friðriksson, Þorbjörg Garðarsdóttir, Sólveig Franklfnsdóttir. t Elskulegur bróðir minn, KRISTJÁN SÖLVASON, Skógargötu 8, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 10. desem- ber kl. 13.30. Kristfn Sölvadóttir. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FANNEYS. GUNNLAUGSDÓTTIR, Furugerði 1, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. desember kl. 10.30. Árni Elfasson, Elías Hilmar Árnason, Gunnlaugur Örn Árnason, Guðrún Esther Árnadóttir, Ólafur Jón Árnason, Ómar Þór Árnason, Svanhildur Ágústa Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Steinvör Sigurðardóttir, Sólveig Helgadóttir, Jón Haukur Baldvinsson, Þórunn Berndsen, Margrét Pétursdóttir, Jón Baldvin Halldórsson,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.