Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 53
MIMIMIIMGAR
RASMUS A.
RASMUSSEN
+ Rasmus Andreas Rasmus-
sen fæddist í Sörlafirði í
Færeyjum 13. ágúst 1927. Hann
lést á Landspítalanum 12. nóv-
ember síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Langholtskirkju
18. nóvember.
MEÐ nokkrum fátæklegum orðum
langar mig að kveðja góðan vin og
starfsfélaga, Rasmus Andreas Ras-
mussen. Rasmus var hávaxinn og
þrekinn og stórglæsilegur í útliti.
Það var árið 1958, er ég var
skipstjóri á Jóni Þoríákssyni, að
Rasmus réð sig sem háseta í skip-
rúm til mín, en varð strax netamað-
ur og mjög fljótlega bátsmaður,
enda var hann frábær sjómaður og
kunni allt til verka, sem þurfti til
á togara. Haustið 1963 fór ég í
land og þá skildu leiðir okkar í
nokkur ár. Árið 1973 fór Rasmus
að vinna í landi og réð sig á víra-
verkstæði BÚR, sem síðar varð
Grandi hf. Rasmus starfaði við víra-
verkstæðið til dauðadágs. Ég var
svo lánsamur að starfa við hlið
hans í um það bil 30 ár.
Starfið á víraverkstæðinu fólst í
svokölluðum vírasplæsingum.
Starfið er gífurlega erfitt líkamlega
og ekki á færi nema hraustustu
manna. Sumir myndu e.t.v. segja
ungra og hraustra manna. En Ras-
mus þjónaði togaraflota Granda
með alla víra að heitið getur án
nokkurrar aðstoðar.
Rasmus var bæði greindur og vel
lesinn. Þá kunni hann manna best
að segja frá, hvort sem það voru
atvik frá liðinni ævi eða eitthvað
af þeim mikla fróðleik sem hann
bjó yfir.
Rasmus talaði mjög vel fjögur
tungumál sem var og er frekar
óvanalegt fyrir mann með stutta
skólagöngu.
Rasmus var heiðarlegur og heil-
steyptur og traustari vin var ekki
hægt að eiga. Honum varð aldrei
misdægurt, vantaði aldrei í vinnu
og það var hægt að treysta vinnu
hans eins og sjálfsögðum hlut. Þess
vegna kom andlát hans meira á
óvart en ella. Þó taldi ég mig sjá
einhveijar breytingar á heilsu hans
undanfama mánuði, þótt það kæmi
ekki niður á vinnunni. Einn daginn
færði ég þetta í tal við hann. Ras-
mus svaraði með því að líklega
væri elli kerling að heimsækja hann
og þar með var það útrætt. Rasmus
gerði alla hluti bæði fljótt og vel
og segja má að andlát hans hafi
verið táknrænt fyrir hans lífsstíl.
Veikist á fimmtudegi, látinn á laug-
ardegi að undangengnum rann-
sóknum og aðgerð.
Fyrir 12 árum kynntist Rasmus
Jóhönnu Jóhannesdóttur og hófu
þau sambúð eftir tiltölulega stutt
kynni. Jóhanna hafði þá verið ekkja
í tíu ár eftir að eiginmaður hennar
lést mjög sviplega af slysförum.
Jóhanna var því ein með sex böm
þegar Rasmus kom til sögunnar.
Árin með Jóhönnu og hennar fjöl-
skyldu voru bestu árin í lífi Rasmus-
ar. Hann hafði ósjaldan orð á því
hvað hún og hennar fjölskylda væru
samhent og innileg. Ég veit líka
að Rasmus var í miklum metum
hjá Jóhönnu, börnum hennar og
barnabörnum.
Rasmus átti son í Færeyjum sem
nú saknar föður síns sárt, ekki síð-
ur en Jóhanna og hennar fjölskylda.
Við tvinnufélagarnir í Bakka-
skemmunni söknum hans sárt.
Ég votta Jóhönnu og hennar fjöl-
skyldu ásamt syni Rasmusar í Fær-
eyjum mína dýpstu samúð. Enn-
fremur fá systir hans í Færeyjum
og bróðir í' Danmörku samúðar-
kveðjur.
Sigurður Á. Kristjánsson.
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
-kjarni málsins!
11. desemberkl. 16:30
BJARTMAR GUÐLAUGSSON
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
BJÖRN JÖRUNDUR
BUBBI MORTHENS
DANCIN MANIA
EGILL ÓLAFSSON
HÖRÐUR TORFASON
KÓR ÖLDUTÚNSSKÓLA
PLÁHNETAN
SCOPE OG SVALA BJÖRGVINS
SSSÓL
TRÍÓ ÓLAFS STEPHENSEN
VINIRVORS &BLÓMA
tónleikar
SKÍFUNNAR
askolabioi
Blab allra landsmanna! Biovaunbiahib
-kjarmmálsins!
RAD AUGL YSINGAR
Leikskólakennarar
Tálknafjarðarhreppur óskar að ráða leik-
skólakennara að leikskólanum Vindheimum
frá og með 1. janúar 1995.
Um hálfa stöðu er að ræða - vinnutími eftir
hádegi.
Laun skv. samningum Launanefndar sveitar-
félaga.
Nánari upplýsingar veita sveitarstjóri í síma
(94) 2539 og formaður leikskólanefndar í
síma (94) 2694.
Umsóknarfrestur er til 23. desember nk.
Sveitarstjóri.
Tálknafjarðarhreppur
auglýsir
Þeim einstaklingum, sem hyggjast sækja um
húsaleigubætur fyrir árið 1995, er bent á, að
umsóknir þeirra þurfa að hafa borist sveitar-
skrifstofu fyrir 23. desember nk., ef bætur
eiga að koma til útborgunar í janúar 1995.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Tálknafjarðarhrepps, þar sem nánari upplýs-
ingar eru veittar.
Sveitarstjóri.
^pP^| Garðabær
Auglýsing um tillögu að
breytingu á deiliskipulagi
lóðarinnar Eskiholt 23
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Garða-
bæjar og skipulagsstjóra ríkisins og með
vísan til gr. 4.4.1. í skipulagsreglugerð nr.
318/1985 er hér með lýst eftir athugasemd-
um við tillögu að breytingu á deiliskipulagi
lóðarinnar Eskiholt 23. Breytingin felst í því,
að heimilað er að skipta einbýlishúsi í tvær
aðskildar íbúðir, sem hvor um sig er sérstök
eign.
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofunum
í Garðabæ, Sveinatungu við Vífilsstaðaveg,
frá 9. desember 1994 til 6. janúar 1995 á
skrifstofutíma alla virka daga.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skal
skila til undirritaðs fyrir 20. janúar 1995 og
skulu þær vera skriflegar.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Bæjarverkfræðingurirm í Garðabæ.
Félag
matreiðslumanna
Fundarboð
Almennur félagsfundur verður haldinn í Þara-
bakka 3 þriðjudaginn 13. desember kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Úrsögn Félags matreiðslumanna úr
Þjónustusambandi íslands.
2. Kjaramál.
3. Framtíð Lífeyrissjóðs matreiðslumanna.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundur Landsmála-
félagsins Varðar
Boðað er til aðalfundar Landsmálafélagsins
Varðar í Valhöll v/Háaleitisbraut í kvöld,
fimmtudagskvöldið 8. desember, kl. 20.30.
Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum
félagsins.
Aðalræðu kvöldsins flytur dr. Hannes H.
Gissurarson, lektor.
Fundurinn er opinn öllu sjálfstæðisfólki.
Stjórn Landsmálafélagsins Varðar.