Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
UMFERÐARSLYS kosta tryggingafélögin ógrynni fjár
á ári hverju, en líf fólks er ekki hægt að meta til fjár.
Dýrkeyptur um-
ferðartollur
Frá Ragnheiði Davíðsdóttur:
Á HVERJU ári slasast að meðaltali
um 2.500 einstaklingar í umferðinni
hér á landi. Um þriðjungur þeirra er
á aldrinum 17-24 ára. Þrátt fyrir
hlutfallslega mikla slysatíðni þessa
aldurshóps má geta
þess að aðeins
18,7% ökumanna
er á þessum aldri.
Hjá Vátrygg-
ingafélagi íslands
kosta umferðar-
slysin ein og sér um
2,1 milljarð á ári.
Hvert tjón, þar sem
ekki eru slys á
fólki, kostar að
meðaltali 135.000 krónur og hvert
slys um 1,2 milljónir. Ef tekið er
mið af þessum tölum er ljóst að
kostnaður tryggingafélaganna í
landinu vegna umferðaróhappa og
slysa er liðlega 5 milljarðar á ári!
Því má ætla að heildarkostnaður ís-
Ragnheiður
Davíðsdóttir
lensku þjóðarinnar vegna umferðar-
innar losi 10 milljaðra á ári þegar
allir kostnaðarliðir eru reiknaðir, s.s.
vinnutap, heilbrigðisþjónusta, skert-
ar skattatekjur o.s.frv.
Víst eru þetta miklir fjármunir
sem umferðin krefst á hverju ári.
Enn hefur þó ekki verið nefndur sá
kostnaður sem aldrei er hægt að
bæta; líf og heilsa þeirra 2.500 ein-
staklinga sem árlega verða fórn-
arlömb umferðarinnar á Islandi. Allir
fjármunir heimsins lina ekki sorgir
aðstandenda þeirra sem deyja í um-
ferðarslysum né hugga þá sem
skaddast á mænu og verða að eyða
ævinni í hjólastól eftir hörmungar
umferðarslysanna.
Slysum fækkaði með
aukinni notkun bílbelta
Á fyrstu árunum eftir að farið var
að beita viðurlögum vegna van-
rækslu á notkun bílbelta fækkaði
alvarlegum umferðarslysum til muna
sem sést á því að á fimm ára tíma-
bili skaddaðist enginn einstaklingur
á mænu í umferðarslysi, en flestir
mænuskaðar úr umferðinni verða
vegna þess að ökumenn og/eða far-
þegar kastast út úr bíl við árekstur
eða í bílveltu. Á árinu sem er að líða
hafa hins vegar þrjár manneskjur
skaddast varanlega á mænu í um-
ferðarslysi auk þess sem fjölmargir
hafa slasast alvarlega.
Um 1.000 ungmenni
hafa sótt fundi VÍS
Tölur um stóran hlut ungra öku-
manna og farþega í umferðarslysum
hljóta að vekja ugg-og jafnframt
vakna spurningar um hvernig snúa
megi þeirri óheillaþróun við. Á und-
anfömum mánuðum hefur Vátrygg-
ingafélag Islands gengist fyrir um-
ferðarfundum þar sem ungt fólk er
minnt á skelfilegar afleiðingar um-
ferðarslysa. Á fundunum tala fórn-
arlömb umferðarslysanna um þá lífs-
reynslu að lamast í umferðarslysi og
sýnd eru viðtöl við aðila sem hafa
slasað og limlest fólk eftir ölvuna-
rakstur.
Þegar þessar línur eru skrifaðar,
í byijun desember, hafa yfir 1.000
ungmenni sótt fundi VÍS og ætlunin
er að ná til enn fleiri ungmenna á
næsta ári. Með umferðarfundum VÍS
með ungu fólki, sem bera yfirskrift-
ina „Akstur á eigin ábyrgð", vill VÍS
leggja sitt lóð á vogarskálarnar í
baráttunni við þann mikla vágest
sem umferðarslysin eru.
Hjá tryggingafélögunum brenna
eldarnir heitast í þessum málaflokki
eins og tölur um fjölda fómarlamba
umferðarslysanna bera vitni um og
því er það ekki aðeins nauðsyn -
heldur ekki síður skylda okkar hjá
VIS að gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að koma í veg fyrir
þann mannlega harmleik sem dag-
lega á sér stað á götum og vegum
þessa lands.
RAGNHEIÐUR DAVÍÐSDÓTTIR
forvamarfulltrúi VÍS.
Heilræði
Tóbak er stórhættulegt litlum börnum!
Veistu að eitranir af völdum tóbaks eru
algengastar á laugardags- og sunnu-
dagsmorgnum? Munið að tæma alltaf
öskubakkana.
Þarf að lögbinda
lágmarkslaun?
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur:
EF VERKALÝÐSHREYFING þessa
lands er ekki þess umkomin að semja
um lágmarkslaun í komandi samn-
ingum, tel ég að þau verði að lög-
binda. Launþegi er náð hefur 16 ára
aldri og skilar 160 stunda vinnu á
mánuði skuli hafa að lágmarki
60.000 kr. Við getum alls ekki talist
siðmenntuð þjóð á heimsmælikvarða,
ef við gleymum því að mannvirðing'
er auður til framtíðar. Ég er sann-
færð um að þessi aðgerð yrði ekki
aðeins til þess að leiðrétta lægstu
kjörin í eitt skipti fyrir öll, heldur
myndi einnig draga úr atvinnuleysi.
Það gefur augaleið að það er ekki
þjóðfélaginu til hagsbóta að greiða
laun undir skattleysismörkum, þar
sem aðeins hluti fólks greiðir í sam-
neysluna með staðgreiðsluskatti. Það
er í raun með ólíkindum að stærstu
vinnuveitendur þessa lands skuli ekki
sjá sóma sinn í því að greiða laun
yfir skattleysismörkum. Reykjavík-
urborg er stór vinnuveitandi, veitir
Frá Frans van Hooff:
VEGNA sjónvarpsþáttarins „Hver
var Jesús?“ vill undirritaður gjarna
að eftirfarandi komi fram:
Jesús er Guð af himnum, hann gerð-
ist maður og er fæddur í Betlehem.
m.a. starfsfólki leikskóla vinnu. Við
starfsmenn Sóknar eigum dijúgan
þátt í þeirri starfsemi í Reykjavík.
í hinum gífurlega skorti fagfólks
er hefur hijáð höfuðborgina höfum
við tekist á hendur gegnum árin að
hafa umsjón með deildum leikskóla.
Hver er umbunin fyrir slík stöif? Jú,
1000 kr. á mánuði fyrir það að
stjórna starfi, skipuleggja og bera
ábyrgð á velferð um 20 ungra borg-
ara þessa lands.
Það er án efa greitt meira fyrir
stjórnunarstöður á öðrum sviðum
þjóðlífsins en á sviði uppeldismála.
Um það bil helmingur launataxta
stéttarfélagsins nær ekki skattleys-
ismörkum. Því eru auglýsingar leik-
skóla borgarinnar venjubundinn
þáttur seinni part sumars. Ég veit í
raun ekki hvar það væri mikilvægara
að hafa sama fólkið að störfum nokk-
ur ár.
„Lengi býr að fyrstu gerð.“
GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR,
Látraströnd 5, Seltjarnamesi.
Móðir hans var mey og heitir María.
Þetta er trú kaþólskra, orþódoxa og
mótmælenda. Höldum fast við þessa
trú, hún er Guðs gjöf til okkar.
SÉRA FRANS VAN HOOFF,
Karmelprestur, Hafnarfirði.
Hver
þekkir
manninn?
Frá Edvard Sverrissyni:
ÉG, undiritaður, hef átt þessa
blýansteikningu í nokkur ár.
Þetta er andlitsmynd eftir
Halldór Pétursson frá árinu
1954 af manni, sem ég ber
ekki kennsl á. Ég vil biðja
Morgunblaðið að birta mynd-
ina og auglýsa eftir ættingj-
um eða einhveijum sem
þekkja manninn og hefðu
áhuga á að eignast teikning-
una. Fólk getur haft samband
við undirritaðan í síma 44011
eða 42511.
EDVARD SVERRISSON.
Hver var Jesús?
Aðyentutilboð!
^yolunum fylgir bakstur, þrif og uppþvottur.
Við viljum létta þér störfin og bjóðum því þessi fjögur gæða-heimilistæki
frá Siemens og Bosch á sérstöku tilboðsverði.
Bakstursofn
SIEMENS BOSCH
L1 e"VM*iiiól
MUM 45S5EU
Fjölvirkur Siemens baksturofn. Yfir- og undirhiti, blástur,
glóðarsteiking með og án blásturs. Rafeindaklukka,
létthreinsikerfi, sökkhnappar. Gæði hvert sem litið er.
Og verðið er einstakt. Tilboðsverð kr. 49.900 stgr.
Fjölhaef Bosch hrærivél sem gegnir dyggu hlutverki á mörg
þúsund Islenskum heimilum. Llklega mest selda hrærivélin
á Islandi undanfarin ár. Blandari, hakkavél og grænmetis-
kvörn fylgja með. Og verðið slær enginn út.
Tilboðsverð kr. 17.900 stgr.
Uppþvottavél
Létt og lipur Siemens ryksuga sem auðveldar þér að halda
hfbýlunum hreínum. 1200 W, sjálfinndregin snúra, fylgihlutir
geymdir ( vél, hleðsluljós. Og þær gerast vart ódýrari.
Tilboðsverð kr. 12.900 stgr.
SN33306SD
Velvirk, sparneytin og hljóðlát Siemens uppþvottavél.
Tekur borðbúnað fyrir 12 manns.
Og líttu á verðið.
Tilboðsverð kr. 59.900 stgr.
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Borgarfjörður: Rafstofan
Hvítárskála • Hellissandun Blómsturvellir • Grundarfjöröun Guðni Hallgrímsson
Stykkishólmur. Skipavík • Búðardalun Ásubúð • Isafjörðun Póllinn • Hvammstangi:
Skjanni Sauöárkrókur: Rafsjá Siglufjöröun Torgiö • Akureyri: Ljósgjafinn •
Húsavík: öryggi • Þórshöfn: Noröurraf • Neskaupstaðun Rafalda Reyðarfjörður.
Rafvélaverkst. Árna E. Egilsstaöin Sveinn Guömundsson Breiödalsvlk: Stefán N.
Stefánsson • Höfn í Hornafiröi: Kristall Vestmannaeyjan Tréverk Hvolsvöllun
Kaupfélag Rangæinga ■ Selfoss: Árvirkinn • Garður. Raftækjav. Sig. Ingvarss. •
Keflavik: Ljósboginn Hafnarfjörður. Rafbúð Skúla, Álfaskeiði
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 628300
Viljirðu endingu og gæði-!
velurðu Siemens