Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 68
Affli |i»e<gfair Iþxoirff Itoftefftiiir!1
WhpI hewlett
mHltÆ PACKARD
--------------UMBOÐIÐ
H P Á fSLANDI H F
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Fni möguleika tíl veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 86
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Breytingar á framfærsluvísitölu frá því í nóvember 1 fyrra
Matvara hefur
lækkað um 5,5%
VERÐ á vörum í tíu einstökum lið-
um í framfærsluvísitölunni af sam-
tals 27 er lægra í nóvembermánuði
í ár en í sama mánuði í fyrra, sam-
kvæmt yfirliti frá Hagstofu íslands.
Mestu skiptir í þessu sambandi að
verð á mörgum tegundum matvæla
hefur lækkað, meðal annars vegna
lækkunar virðisaukaskatts á mat-
væli um síðastliðin áramót, en verð
^^igíknatvara í heild nú í nóvember er
5,5% lægra en í nóvember í fyrra.
Kartöflur lækka mest
VERÐBREYTINGAR
frá nóv. ’93 til nóv. ’94
skv. framfærsluvísitölu
I -5,5% Ul Matvörur (17,1)
Vægiliða-^ -0,8% ii Húsgögn (6,8)
Föt, skór(6,3) | 0,1%
Drykkjarvörur (4,3) 0 °’2%
Heilsuvernd (2,5) 0 0,4%
Húsnæði (15,5) I 11,0%
Húshitun (1,8) [jj| 1,0%
Rafmagn (1,2)
| Tómstundaiðkun (11,5) [ 11,3%
| Flutningatæki (18,6) ■ i!*l
mjólk, ijómi, ostar og egg hækkað
um 1% og fiskur um 1,5%, sykur
um 17,7% og kaffi, te, kakó og
súkkulaði um 18,5%.
Litlar breytingar eru á öðrum lið-
um vísitölunnar á þessu eina ári.
Kostnaður vegna notkunar eigin
bifreiðar hækkar einna mest, um
3,2%. Verð á fötum og og skófatn-
aði hefur nánast staðið í stað frá
því í fyrra. Hækkunin er aðeins
0,1% og verð á húsgögnum og heim-
ilisbúnaði hefur lækkað um 0,8%.
Þá má nefna að heilsuvernd hækkar
um 0,4%, rafmagn um 1,1%, húshit-
un um 1,0%, húsnæðiskostnaður
einnig um 1% og kostnaður vegna
tómstundaiðkunar og menntunar
hækkar um 1,3%.
í heildina tekið er framfærsluvísi-
talan í nóvember í ár 0,1% lægri en
í nóvember i fyrra og vísitala vöru
og þjónustu 0,2% lægri en á sama
tíma í fyrra.
■ Miklar sveiflur/4
Verð á einstökum matvörum hef-
ur breyst mjög mismunandi ef litið
er yfir. síðastliðið ár. Þannig hafa
kartöflur og vörur úr þeim lækkað
mest um 48,5%, en grænmeti og
ávextir hafa lækkað um 11,4%, feit-
meti og olíur hafa lækkað um
14,5%, kjötvörur hafa lækkað um
5,3% og mjöl, gijón og bakaðar
vörur um 5,5%. Hins vegar hafa
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Óslóartréð
sett upp
JÓLATRÉÐ stóra, gjöf Ósló-
arbúa til Reykvíkinga, var sett
upp á Austurvelli í gærkvöldi. A
sunnudag verður kveikt á jóla-
ljósunum sem gleðja munu höf-
uðborgarbúa og gesti þeirra
fram yfir hátíðar.
Þórsbrunnur hf.
Vatnsveit-
an eykur
hlut sinn
STJÓRN Veitustofnana Reykjavík-
ur ákvað í gær að auka hlutafé
Vatnsveitu Reykjavíkur í Þórs-
brunni hf. úr 11,5% í 20%. Gengið
verður til samninga við fyrirtækið,
en það hefur meðal annars beðið
um að Vatnsveitan leggi fyrirtæk-
inu til lind og vatnslögn að verð-
mæti 35 milljónir króna.
Þegar Vífilfell og Hagkaup juku
hlutafé sitt í Þórsbrunni jók Vatns-
veitan ekki hlutafé sitt og minnkaði
því hlutur hennar í fyrirtækinu.
Öflug fyrirtæki
leggja til áhættufé
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar Veitustofnana, segir að
með ákvörðuninni nú sé stefnu
borgarinnar breytt. Um tvö öflug
reykvísk fyrirtæki sé að ræða, sem
hafí lagt áhættufé í fyrirtækið.
Gangi áætlanir þess eftir, geti orðið
til störf fyrir 180 manns í átöppun-
arverksmiðju i Reykjavík.
■ Vatnsveitan með 20%/Bl
*
Island enn
ósigrað
í skákinni
ÍSLENSKA skáklandsliðið gerði
jafntefli við Ukraínumenn á
Ólympíuskákmótinu í Moskvu í
gær. Var þetta fjórða jafntefli
sveitarinnar í röð. ísland er nú
í 10. sæti og nii þegar mótið er
hálfnað er sveitin önnur tveggja
sveita sem ósigraðar eru. Hin
er unglingasveit Rússa. Ekkert,
er teflt í dag. Hér að ofan má
sjá íslensku skákmennina hugsi
yfir taflinu, þá Jón L. Árnason,
Margeir Pétursson, Hannes
Hlífar Stefánsson og Jóhann
Hjartarson.
■ Fjórða jafntefli fslands/12
Reuter
Myndavélabúnaður 1 bílageymslu
Borgar sig upp
árúmuári
MYNDAVÉLABÚNAÐUR í bíla-
geymslu í Hamraborg í Kópavogi
borgar sig upp á rúmu ári að sögn
Þóris Steingrímssonar, formanns
Hamraborgarráðsins, húsfélagsins
í Hamraborg. íbúar hússins geta
fylgst með bílageymslunni í gegn-
um kapalkerfi úr íbúðum sínum.
Þórir segir að mikið hafi verið
um skemmdarverk á húsnæðinu
og bílum. Ekki hafi liðið sú vika
að ekki hafi verið unnar skemmdir
og kveikt í póstkössum. Hann telur
að tjón fyrir á þriðju milljón hafi
verið unnið í geymslunni árlega
þar til húsfélagið réðst í mynda-
vélavæðinguna fyrir rúmu ári. Hún
hafi kostað um 2,5 milljónir króna.
Árásin einsdæmi
Þrátt fyrir að almennt virðist
töluvert um að skemmdarverk séu
unnin í bílageymslum virðist árásin
á Margréti Guðnadóttur við Skelja-
granda um hádegisbil á þriðjudag
vera einsdæmi.
Þrjú ungmenni réðust á hana
og þrifu af henni seðlaveski með
30.000 krónum. Árásarmennirnir
eru ennþá ófundnir.
■ Samstaða íbúa/34
GRÝLA
Sjávarútvegsráðherra ræðir við ESB
Vongóður um
toUasanmíng
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segist vongóður um að samning-
ar náist við Evrópusambandið um tollamál, sem tryggi óbreyttan aðgang
íslendinga að mörkuðum í EFTA-ríkjunum, sem ganga í ESB um áramót.
Þorsteinn átti í gær fund í Brussel með Sir Leon Brittan, varaforseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, sem fer þar með utanríkisviðskiptamál.
Hækkun verður að óbreyttu á
tollum á nokkrum tegundum sjávar-
afurða og landbúnaðarvara þegar
Svíþjóð, Finnland og Austurríki
ganga í ESB. Þar skipta mestu
máli tollar á síld.
Sterk staða samkvæmt GATT
„Brittan sagði að undirbúningi af
hálfu ESB væri ekki lokið, en hann
tók hins vegar mjög skýrt fram að
sambandið myndi standa við allar
GATT-skuldbindingar,“ sagði Þor-
steinn í samtali við Morgunblaðið.
„Það er ljóst að þar höfum við mjög
sterka stöðu, því að samkvæmt
GATT-samningunum á innganga
ríkja í tollabandalög ekki að gera
stöðu viðskiptaríkja þeirra lakari en
hún var fyrir. Brittan sagði að þeir
viðurkenndu það. Það eru því jákvæð
viðhorf til að leysa þessi mál.“
Þorsteinn sagði að fulltrúar ESB
hefðu óskað eftir nánari útlistun á
brýnustu hagsmunum íslendinga í
tollamálum og gert væri ráð fyrir
að viðræður um þau hæfust fljót-
lega. Þorsteinn sagðist hafa lagt
áherzlu á að það samkomulag, sem
gert yrði, yrði hluti af fríverzlunar-
samningi íslands við Efnahags-
bandalagið frá 1972, en ekki yrði
gerð breyting á EES-samningnum.
Hann sagði að tækist ekki að ná
slíkum samningum fyrir áramót
væri hugsanlegt að til kæmi bráða-
birgðaákvörðun um tímabundinn
innflutningskvóta á Evrópumarkað.
Þorsteinn sagði að Brittan hefði
lýst því yfír að ESB hefði staðfastan
vilja til að byggja áfram á EES-
samningnum. „Hann sagði að ESB
myndi standa við allar skuldbinding-
ar sínar samkvæmt honum.“
©Leendert
Innbrotsþjóf-
ar handteknir
TVEIR menn voru handteknir í
-jgærmorgun eftir að lögreglu hafði
verið tilkynnt að þeir hefðu brotist
inn í bíla. Þeir fundust fljótlega ná-
lægt innbrotsstað. Á öðrum mannin-
um fundust efni sem sennilega eru
fíkniefni.
Maður var í gærmorgun handtek-
inn fyrir tilraun til að bijótast inn á
Droplaugarstaði við Snorrabraut.
Hann hafði á sér efni og áhöld sem
bentu til fíkniefnaneyslu.